Morgunblaðið - 05.06.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JUNÍ 1977
3
TlÐARFARIÐ f vetur var einstaklega
heppilegt til byggingaframkvæmda suð-
vestanlands. Varla kom sá dagur að ekki
væri hægt að vinna að steypuvinnu jafnvel
um háveturinn. Einn þeirra, sem f vetur
hafa staðið f byggingaframkvæmdum, er
ólafur Björnsson, kornungur bygginga-
meistari, þrftugur að aldri. Þótt ungur sé að
árum stendur hann einn fyrir byggingu
fjölbýlishúss við Krummahóla 10 f Breið-
holti.
— Húsið sem ég byggði er sjö
hæðir, einn stigagangur, alls 31
íbúð, sagði Ólafur. Bygginga-
leyfi var gefið 30. ágúst í fyrra
og húsið varð fokhelt 25.
Ólafur Björnsson fyrir framan fjölbýlishúsið, sem hann er að
byggja við Krummahóla f Reykjavfk. Ljósm. Mbi rax
febrúar f vetur. Þetta þýðir að
tæplega sex dagar hafa farið í
hverja íbúð, sem er mjög gott.
Veturinn hefur verið alveg ein-
stakur, hægt að vinna upp á
hvern einasta dag og mest
þriggja daga bið eftir steypu-
veðri. Veturinn f vetur hefur
verið drýgri til framkvæmda
heldur en sumartíminn þvf eng-
inn frf koma nú inn i eins og á
sumrin. Ég var dálítið hræddur
þegar ég byrjaði f fyrrahaust,
kveið erfiðum vetri en ég er
auðvitað mjög ánægður að ég
skyldi drffa mig f þetta fyrst
allt hefur gengið svona vel.
— Ég er nokkrum vikum á
undan áætlun og það hefur
sfnar slæmu hliðar þótt það
„ Veturinn drýgri til
byggmgaframkiXEmda
en nokkurt sumar”
— segir Olafur Björnsson bygginqameislari
komi kaupendunum auðvitað afgreiðsla Húsnæðismála- lánanna fékk ég ekki fyrr en ég
vel. Slæmu hliðarnar eru sein stjórnarlánanna. Fyrri hluta var langt kominn með húsið og
þetta timabil hef ég orðið að
brúa með bankaiánum eins og
það er nú erfitt að fá þau nú til
dags. Ég er búinn að selja allar
fbúðirnar og það tók ekki nema
fjóra mánuði að selja þær 31 að
tölu. Tveggja herbergja ibúðir
seldi ég á 5 milljónir 250 þús-
und tilbúnar undir tréverk, 70
fermetra íbúðir, og 5—6 her-
bergja íbúðirnar voru seldar á
8,7 milljónir, 147 fermetra
íbúðir. Þetta er mjög hagstætt
verð ef miðað er við markaðinn.
Njáll Guðmundsson teiknaði
húsið og er það sérstakt að þvi
leyti, að allar íbúðirnar snúa í
norður- suður með inngang í
hánorðri.
Ólafur var aðeins 26 ára gam-
all þegar hann byrjaði að
standa fyrir byggingum í
Reykjavik og hann hefur nú
byggt 59 ibúðir. Er hann yngsti
byggingameistari borgarinnar,
sem staðið hefur einn fyrir svo
stóru verki sem byggingu heill-
ar blokkar með 31 íbúð. Tré-
smiði lærði hann hjá Sigurði
Þorgeirssyni. — Helzta vanda-
málið i dag er skortur á bygg-
ingalóðum í höfuðborginni,
sagði Ölafur. Ég hef t.d. enga
lóð til að byggja á þegar ég lýk
við fjölbýlishúsið i haust. Ég er
með góðan mannskap, sem ég
vill sfður missa frá mér en auð-
vitað verður erfitt að halda
mannskapnum þegar maður
hefur ekki næg verkefni fyrir
hann. Til að auka breiddina hef
ég sótt um lóð undir trésmiða-
verkstæði og vonast ég til að sú
málaleitan nái fram að ganga,
sagði Ólafur að lokum.
„Verra
en að
deyja”
RISIIARD Nixon fyrrverandi
forseti sagði f fjórða sjónvarps-
viðtalinu við David Frost að
það hefði verið „verra en að
devja" að hætta störfum f Hvfta
húsinu.
Ilann lagði þó áherzlu á að
hann hefði aldrei verið f sjálfs-
morðshugleiðingum og aldrei
óskað þess að dauðinn leysti
vandamálin.
„Enginn getur ímyndað sér
hvernig þeim líður sem er
neyddur til að segja af sér sem
forseti Bandaríkjanna," sagði
hann.
Nixon sagði að líf sitt væri
orðið tilgangslaust enda þótt
hann hefði komið sér vel fyrir í
húsi sínu í San Clementer.
Hann sagðist heldur hafa
viljað þola þá raun að vera
ákæröur en að sætta sig við
náðun Fbrds eftirmanns sins en
kvaðst hafa viðurkennt það mat
lögfræðings sins að bandaríska
þjóðin hefði aldrei leyft honum
Framhald á bls. 4.
10. júni
1 júlí
15. júli
29. júli
Uppselt
Saetí laus
Sæti laus
Fá sæti laus
Costa del Sol
19. júni
3. júli -
17. júli-
Fá sæti laus
Laus sæti
Laus sæti
6. júlí
13. júlf
20. júlí
Lignano
Uppselt
Fá sæti laus
Laus sæti