Morgunblaðið - 05.06.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 5. JÚNt 1977 7
HUG-
VEKJA
EFTIR
SÉRA JÓN AUÐUNS
í dag er dagur heilagrar
þrennirtgar, Trinitatissunnu-
dagur, og mig langartil að
gera nokkra úrlausn einum
lesanda þessara sunnudags-
greina. Hann sagði við mig,
er fundum okkar bar saman
á götu: Þú skrifaðir síðast um
leiðsögn andans í frumkristn-
inni, hvernig gerðist hún,
hvernig fundu þessir menn
sig leidda af heil. anda?
Af ýmsu er að taka í
Postulasögunni. Viðskulum
rifja upp eina viðburðaröð í
Iffi Páls postula og sjá, hvað
við getum lært af henni:
Páll er á kristniboðsferð og
félagi hans. Þeirfara um
Frýgíu og Galataland, en þá
segir að heil. andi hafi varn-
unnar er eitt dæmi þess af
mörgum hvernig Páll þreifaði
á handleiðslu andans, hvern-
ig hann vissi sig leiddan af
æðra valdi. Óviðráðanleg at-
vik urðu á vegi hans og
knúðu hann til að taka aðra
stefnu en hann hafði ráðið
sjálfur. Og ævinlega sá hann
það eftir á, að það vald vissi
betur en sjálfur hann, sá það
sem honum var hulið, og
knúði hann inn á óvænta
vegi, en vegi, sem voru
brautin beina að markmiðinu
sem hið æðra vald ætlaði
hinum að ná.
Og þrásinnis urðu vitranir,
líkt og nætursýnin í Tróas, til
þess að marka þýðingar-
mestu sporin á ferðum hans.
margskonar var trú þeirra, en
allir voru þeir knúðir afli, sem
var sterkara en þeir sjálfir.
Þeirsáu sýnir, þá dreymdi
drauma, og sumir þeirra
heyrðu raddir tala til sin.
Meðan ég var ungur og virti
fyrir mér þessa menn sá ég
þá fyrir mér sem stríðandi
einstaklinga, sem stefndu
hver og einn að sínu marki.
Nú lít ég á þetta öðrum
augum. Nú skil ég að þeir
voru allir hlekkir i einni
keðju".
Þannig túlkaði þessi kunni
blaðamaður sannfæringu
sina um það, að undiraldan
er ein, þótt bárur séu marg-
ar, að uppsprettan er ein,
þótt lækir falli til margra átta,
Leiðsögn
andans
að þeim að tala orðið i
Litluasiu. Með hverjum hætti
er ekki sagt, en þvi næst eru
þeir ráðnir i að fara til
Bítýníu, en ,,andi Jesú leyfði
þeim það ekki", segir
Postulasagan. Þeir neyðast,
gegn ætlun sinni, að fara til
borgarinnar Tróas. Bæn
þeirra um bendingu, leið-
sögn, er svarað þar með
óvæntum hætti: ,,Um nóttina
vitraðist Páli sýn: Maður
nokkur makedónskur — en
Páli bersýnilega ókunnur
með öllu — stóð hjá honum
og bað hann og sagði: Kom
yfir til Makedóniu og hjálpa
oss."
Páll hlýðir þessu kalli.
Hann tekur sér far með skipi
yfir sundið breiða og tekur
land í Makedoníu. Þar hefur
hann starfið, og þannig berst
kristindómurinn fyrst til
Evrópu. Nætursýnin í Tróas
og hlýðni Páls við himneska
köllun leggur grundvöll meiri
en hann gat grunað. Austur í
átthögum sinum átti kristin-
dómurinn litla framtíð og
þaðan var honum nálega
þokað siðar, i Evrópu beið
hans hin stóra framtið. Frá
Evrópu barst hann til Vestur-
heims og Suðurálfu, frá
Evrópu er enn að því unnið,
að kristna ekki —kristin lönd.
Þessi frásögn Postulasög-
Þetta var þá, en hvað er
nú? Hefur þú, sem lifir 1 9
öldum síðaren postulinn og
kynslóð hans, aldrei fundið,
hvernig þú varst leiddur,
aldrei fundið þá himnesku
hönd, sem þig leiðir? Hafa
ekki þau atvik orðið í lífi
þínu, að þú hlauzt að sjá,
hvernig þifsþráðurinn þinn
var spunninn æðri hendi og
lifsvoðin ofin, þegar þú varst
ekki við vefstólinn sjálfur?
Hvað kennir þér saga kyn-
slóðanna? Hljóðlega hefur
lífsmóðan streymt, hin
straumþunga móða. Öld hef-
ur komið eftir öld, kynslóð
komið eftir kynslóð.
Óumræðileg er öll sú mikla
saga Hana eiga allir að geta
lesið, sem augu hafa opin og
kunna stafrófið. Hitt lesa
færri, letrið hulda á bak við
viðburðarásina, letrið, sem
frumkristnin las um heil.
anda og handleiðslu hans.
Fyrir nokkrum árum and-
aðist víðkunnur blaðamaður
brezkur, Hannan Swaffer.
Hann birti endurminningar
og nefni bókina Stærsta
ævintýrið mitt. Þarsagði
hann: ..Þegar ég lít um öxl
yfir sögu kynslóðanna virði
ég fynr mér frumherjana,
sem báru kyndlana fyrir
mannkyninu. Af margskona
þjóðflokkum voru þeir.
aðandinnereinnaðbaki
allrar framsóknar kynslóð-
anna, uppsprettan ein á bak
við alla fjölbreytnina.
í bók sinni birti blaða-
maðurinn umsagnir nokkurra
merkra samtíðarmanna
brezkra um það, hvernig þeir
hafi þreifað á handleiðslu
andans. Eitt augljósasta
dæmið telur hann það, þegar
Winston Churchill bjargaðist
kornungur í Búastríðinu og
var af æðra valdi, ójarð-
nesku, leiddur á eina staðinn
á stóru svæði, þar sem lífs-
von var að fmna hæli fyrir
kúlnaregninu. Og blaða-
maðurinn birtir ummæli
margra listamanna og rithöf-
unda, þarsem þeirvitna um
það, að innblástur að ofan
hafi veitzt þeim í lífi og list.
Af slíkum vitnisburðum
samtiðarmanna er Ijóst, hve
fráleitt það er, að maður geri
sjálfur alla hluti einn og
óstuddur. Og er sú ályktun
fráleit, að meira kunni að
vera af sannleika en trúar-
veikur maður veit í þeirri
sannfæringu Páls postula, að
heilagur andi, eða andi hins
upprisna Krists, hafi ýmist
greitt honum för eða hmdrað
ferðir hans, þegar hann sá
ekki sjálfur nógu langt og
hefði stefnt í ófæru, ef hann
hefði sjálfur fengið að ráða?
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
T révirki
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins efnirtil
fræðslufunda um notkun timburs og timburaf-
urða í byggingariðnaði í fyrirlestrasal sínum að
Keldnaholti dagana 14. — 1 6. júní n.k.
Þriðjudaginn 14. júnikl. 16 —19
Fjallað verður um gæðaflokkun og efniseigin-
leika timburs og timburafurða (spónaplötur,
krossvið o.fl .)
Miðvikudaginn 1 5. júni kl. 09 —12
Nýting timburs og timburafurða við hönnun
mannvirkja
Fimmtudaginn 1 6. júni kl. 09—12
Fjallað verður um þolhönnun timburs og
nýjustu viðhorf í þeim efnum.
í fyrirlestrunum verður einkum stuðst við nýja
bók, Trévirki, eftir Edgar Guðmundsson, verk-
fræðing, sem jafnframt verður fyrirlesari á fund-
unum.
Þátttaka er öllum heimil og ókeypis meðan
húsrúm leyfir og tilkynnist í síma 83200 í
síðasta lagi föstudaginn 10. þ.m.