Morgunblaðið - 05.06.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.06.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JUNI 1977 ,J\llar sjómannskonur ættu að drífa sig á sjóinn" Sigríður Brynjólfsdóttir var eitt sinn þrjá mánuði á sjó sam- fleytt. Það var á sildinni þegar sótt var alla leið til Jan Mayen og jafnvel Svalbarða. Þá var ,,landað“ í skip á hafi úti og ekkert komið inn svo mánuðum skipti. ,,Ég hef bara verið fimm mánuði á sjó í allt á fiskeríi og það komu þarna þrir mánuðir sem maður sá ekki land,“ sagði Sigríður þegar blaðamaður spurði hana um reynslu hennar sjálfrar af sjónum. „Eftir þessa útivist gat maður miklu betur sett sig inn í sjó- mannsstarfið. Mér finnst að all- ar sjómannskonur ættu að drífa sig á sjóinn ef þær hafa tæki- færi til þess, alla vega vildi ég ekki hafa misst af þessari reynslu. „Það er svo oft bara einblínt á aflahlutinn, en ekkert hugsað út í erfiðið sem liggur að baki. Lífið er nefnilega ekki eilífur dans á rósum, og ég hafði áreið- anlega mjög gott af þessari stuttu sjómennsku minni.“ Og Sigríður heldur áfram að rifja upp síldarárin, þar sem hún situr heima hjá sér að Tún- götu 9 á ísafirði. Sigríður hefur verið gift hinum kunna afla- manni, Ásgeiri Guðbjartssyni, skipstjóra á Guðbjörginni frá ísafirði í 28 ár. Þau eiga fjögur uppkomin börn, þrjár dætur og einn son. „Ég fór i síld með Ásgeiri í fimmtán ár, nema hvað ég var alltaf á þurru, en hann úti á sjó. Já, fyrir utan þessa fimm mán- uði síðasta árið, 1968. Þá fór ég ekki með sem sjóari, heldur að gamni mínu. Það er ekki orð á þessu gerandi, maður stóð mestmegnis uppi í brú og fylgd- ist með. Aðal afþreyingin hjá mér að fylgjast með sjólaginu. Ekki veit ég hvort ég hafi nokk- uð bætt móralinn um borð, því hann var ágætur fyrir, en þar komst ég að raun um hversu mikils virði það er að vera skap- góður og geta tekið bæði með- læti og mótlæti. „Þetta voru ágætir timar, það var alltaf líf í kringum síldina. Ég bjó í einu herbergi í Siglu- firði með þrjú barnanna, svo það var stundum þröngt. Siðan hélt ég til Seyðisfjarðar þegar Ásgeir fór að landa þar og síðan til Norðfjarðar, þar sem ég fékk inni hjá Jóni Karlssyni, alveg sérstaklega góðum manni. Það má kannski segja að ég hafi lifað nokkurs konar sígaunalifi í þessi fimmtán ár, sem ég var í síldinni, flakkandi svona á milli staða.“ Tvær dætur þeirra Sigriðar og Ásgeirs giftust sjómönnum og Guðbjartur, sonur þeirra, hefur fylgt föður sinum á sjó- inn. Deila þeir feðgar nú skip- stjórn ísafjarðartogarans með sér. „Ásgeir tók sér aldrei frí hér áður,“ segir Sigriður. „Það var ekki fyrr en hann var búinn að þjálfa soninn í stöðuna, sem hann fékkst til að taka sér frí einn og einn túr.“ „Dæturnar fengu sér allar þrjár menn úr Bolungarvík, en ein þeirra skilaði Bolvíkingn- um aftur.“ Annar Bovíking- anna, sem enn er í fjölskyld- unni, Flosi Jakobsson, er nú stýrimaður á Guðbjörginni með mági sínum og tengdaföður. Guðbjörgin var aflahæsti tog- arinn á Vestfjörðum á nýafstað- inni vertið. Aðspurð hvað hún héldi að það væri í fari Ásgeirs, sem skýrði aflasælni hans sagði Sigríður, „Það er nú sjálfsagt í blóðinu. Annars er Ásgeir mjög viljasterkur maður og hann er Iaus við alla frekju. Hann er reglumaður á vin og tóbak og mikill jafnaðargeðsmaður og skapgóður. Svo hefur hann mjög góða stýrimenn, og ekki hefur það svo litið að segja. Nú Guðbjartur fiskar lika vel og Flosi reyndar líka. Það er líkast til eitthvað í blóðinu í mönn- um“ „Fjarvistunum hef ég aldrei getað vanist, þó að þær séu allt aðrar og styttri heldur en á sildinni. Nú taka túrarnir ekki nema átta til ellefu daga á tog- urunum hérna, tólf dagar eru algjört hámark. Maður hefur hrærst í þessu allt sitt líf og maður er alltaf með hugann hjá þeim, þótt maður viti þá ör- ugga.“ Skipstjórar á aflaskipum hafa miklar tekjur og oft heyr- ast nefndar himinháar upphæð- ir í því sambandi. „Okkur skort- ir auövitað ekki neitt,“ segir Sigríður. „Ríki og bær taka náttúrlega sitt en eitthvað verð- ur nú alltaf eftir. Ásgeir keypti sér loksins draumabílinn í vet- ur.“ Draumabillinn er vínrauð- ur Mercedes Benz, og þar sem hann stendur gljáandi fyrir ut- an húsið að Túngötu 9 virkar hann óneitanlega á blaðamann- inn sem tákn hinnæ feikilegu verðmæta sem Vestfjarðamiðin gefa af sér. „Ásgeir hefur aldrei keypt neitt án þess að hafa borgað fyrir það út í hönd. Hann hefur aldrei tekið víxil á æfinni." Heimili þeirra hjóna er látlaust og laust við allt prjál eða íburð, og þar er allt notalegt og hlý- legt. „Ég hef það gott og er hamingjusöm, það er fyrir öllu. „Rauðsokka? Nei ég er alls ekki rauðsokka. Ég hef alla tíð verið sátt við mitt hlutskipti. Auðvitað hef ég þurft að taka ákvarðanir í sambandi við heimilið engu siður en Ásgeir, þannig að kannski er ég bara rauðsokka að einhverju leiti. Og þó, ég er nú enginn rauö- sokka í mér, ég er mjög heima- kær. „Ég hef ekki unnið utan heimilisins síðan við komum úr síldinni. En ég er í engum vand- ræðum með að eyða tímanum — mér finnst ég bara aldrei hafa nógan tíma.“ Viðsvegar um heimilið má sjá allavega lita púða og dúka sem gefa ibúðinni svolitið sérstakan blæ. „Ég mála á tau fyrir sjálfa mig svona í frístundum og svo hef ég handavinnuna • mina líka.“ En mynstrin á púðunum hjá sjómannskonunni erú frekar af blómum en skipum af sjó. eða Framhald á bls. 19 Útgerðarmenn Skipstjórar Við getum nú boðið bobbinga með 12 cm. br. gjörð og þrefaldri hraðsuðu. Leitið upplýsinga hjá sölumanni. Vélsmiðjan ODD/H.F. Strandgötu 49, sími 21244, Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.