Morgunblaðið - 05.06.1977, Page 21

Morgunblaðið - 05.06.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1977 21 skan hefur alltaf drætd en vuuúngs- minnka nú sífellt” leita eftir sínum rétti í kjara- málum. Það er lika kannski bezt að þeir taki þátt í þeim hrunadansi sem nú stendur yfir, því það virðast allir láta hverjum degi nægja sfna þján- ingu. Islendingar hafa ekki sýnt nógu mikla varkárni í sam- bandi við þennan aðalatvinnu- veg’ okkar. Of mikillar bjartsýni hefur gætt hjá ráðamönnum sem með þessi mál hafa farið. En samt er það svo, að maður getur sem stjórnarandstæðing- ur gegnrýnt alla skapaða hluti, og hefur síðan engar tillögur til úrbóta. Ég tel að nú sé barnið dottið ofan í brunninn og of seint að byrgja hann.“ — Er fiskiskipaflotinn orð- inn of stór? „Það hafa margir sagt að svo sé og það tel ég rétt vera og það þarf að minnka flotann hið bráðasta. Eins og er bólar ekk- ert á því og allir kaupa skip af mismunandi gerðum. Fiski- skipafloti og fiskvinnslustöðvar hafa risið upp um allt land eins og gorkúlur á undanförnum ár- um, og i þessum efnum tel ég að hið frjálsa framtak eigi ekki lengur rétt á sér, þó svo að það sé gott á mörgum sviðum, þvi með sama áframhaldi fijótum við að feigðarósi." — En er það ekki staðreynd að það er gífurlegur munur á kaupi sjómanna og fer kaup þeirra ekki’eftir því á hvernig skipum þeir eru og hvernig veiðar þau stunda? „Að sjálfsögðu má segja sem svo. að mikill munur sé á kaupi sjómanna. Fiskveiðar eru og verða happdrætti. 100 tonna bátur getur veitt mönnum dá- góðar tekjur, en síðan getur maður haft aðeins trygginguna á 400 tonna skipi. Það er kannski þetta happdrætti sem gerði sjómennskuna að þvi að- dráttarafli sem hún var hér fyrr á árum, menn vildu taka þátt í happdrættinu og fóru á sjó til að gera það gott í stuttan tima. En gallinn við þetta happ- drætti er nú sá, að vinningslík- urnar minnka ár frá ári. Ef á að lokka unga menn til starfa á sjó núna, þarf eitthvað annað að gera en að segja að næsti dagur sé happdrættisdagurinn, ef svo má að orði komst.“ — Nú hefur þú aðeins verið formaður Sjómannasambands- ins frá þvi í október á siðasta ári, hvernig er að starfa fyrir sambandið? „Það er gott að starfa fyrir þetta samband, en gallinn er sá að Sjómannasambandið er fá- tækt. Til þess að hægt verði að þjappa sjómannastéttinni sam- an þarf sambandið að hafa miklu meira fé, og öðru visi verður sjómannastéttin ekki það afl sem hún á að vera í þjóðfélaginu." Auk Óskars starfar ein stúlka hjá Sjómannasambandinu, sem sinnir daglegum störfum sam- bandsins. Þá réð sambandið hagfræðing til starfa nú fyrir skömmu er fundir hófust vegna kjaramálanna. Um þetta segir Óskar: „Það er lengi búið að vera nauðsynlegt fyrir sambandið að ráða hagfræðing til starfa en það var fyrst núna sem var lagt út í það. Ég lit á starf þessa manns sem mjög jákvætt fyrir okkur. Það er nauðsynlegt að hafa slíkan mann til að fjalla um allt er lýtur að tekjumögu- leikum sjómanna, enda er velt yfir okkur tölum á tölum ofan og sagt að svona sé staðan og viðkomandi geti því ekkert lát- ið í té. Hins vegar ber ég ekki á móti því að þessar tölur séu réttar, en maðr þaaf ekk ðra sammála forsendunum fyrir þessum utdreikningum. Það er þvf oft svo að maður verður að beita sömu vopnum og and- stæðingurinn. Það er líka stað- reynd, að margir reiknings- glöggir menn hafa verið f for- ystuliði sjómannasamtakanna, þó að oft hafi menn orðið að fara eftir tilfinningum sínum í samningamálunum og peninga- buddunni." — Verða yfirstandandi kjara- deilur sjómanna langvinnar eða telur þú að málið leysist á næstu vikum? „Ég tel að úrslit kjara- deilunnar ráðist af þvi hvað stjórnvöld gera i fisk- verndunarmálum og við mun- um taka mið af þvi. Ef stjórn- völd gera eitthvað sem kemur til með að skerða hlut sjómanna, þannig að þeir þurfi að taka slfkar ráðstafanir á sig óbættar, er ég hræddur um að við tökum á málunum eins og efni standa til. Að lokum óska ég sjómanna- stéttinni til hamingju með dag- inn og vænti þess að hún standi vörð um sin mál," sagði Öskar aðlokum. Þ.Ó. Flugfélag Norðurlands: Aukning varð í öllum þáttum starfseminnar AÐALFUNDUR Flugfél- ags Norðurlands hf. var haldinn á Akureyri 12. maí sl. Kom þar meðal a’nnars fram, að reksturinn árið 1976 hafði gengið vel. Á því ári keypti félagið eina 19 farþega Twin Otter flug- vél. Einnig lauk smíði verkstæðisflugskýlis fél- agsins og hefur það stór- bætt alla viðhaldsaðstöðu. Veruleg aukning varð á öllum þáttum starfsem- innar. Farþegar í áætl- unarflugi voru 10.553, vör- ur og póstur samtals 318 tonn. Talsvert var um leiguflug til Grænlands og Evrópu og hefur slíkt flug farið árvaxandi. Stjórn félagsins var endurkjör- in og er Einar Helgason formaður hennar. Framkvæmdastjóri er Sigurður Aðalsteinsson. Ákveðið er að halda endurnýj- un flugvéla áfram. Nýlega var önnur Beechcraft-flugvél félags- ins seld og mun hin verða seld í haust. í staðinn mun verða keypt Piper Chieftain, 10 sæta flugvél af nýjustu gerð og er hún væntan- leg í júní. Hjá F.N. starfa fjórir flugmenn og þrir flugvirkjar. Flugleióir hf. annast alla afgreiðslu farþega og varnings fyrir áætlunarflugið. í fréttatilkynningu frá Flug- félagi Norðurlands segir að fél- agið hafi átt við ýmsa erfiðleika að stríða. Mætti nefna síaukinn reksturskostnað og þá sérstaklega eldsneytiskostnað. Til þess að mæta þessu er reynt að haga öllu flugi á sem hagkvæmastan hátt. T.d. er oftast flogið til tveggja staða í sama áætlunarfluginu. Einnig hefur verið ákveðið að hætta áætlunarflugi milli Akur- eyrar og Siglufjarðar frá 15. júní nk. þar sem flutningar á þeirri leið megna alls ekki að greiða kostnaðinn af fluginu. Þó mun verða kannað hvort hægt verði að hefja flugið að nýju i haust. tilbob á framköllun .1___________ örugglega það bezta _ .2_______________ y’ Ný litfilma ^ . INTERCOLOR II: Myndaalbúm MeS hverri framköllun fái8 þér án nokkurs Og hér er aukabónus: Þér fáiS I hvert sinn aukagjalds nýju Intercolor II litfilmuna mjög skemmtilegt vasamyndaalbúum án sem tryggir bjartari og betri litmyndir en. nokkru sinni fyrr. aukagjalds. L..A Allar myndir framkallaðar á ^matt nýja matta papplrinn sem atvinnuljós- myndarar nota til a8 tryggja bezta ðrang- Sjáið verðlistann: Við bjóBum y8ur örugglega beztu kjörin og beztu þjónustuna. Og vi8 ábyrgjumst þa8( Framköllun 20 myndir. VerBlisti me8 litfilmu og vasamynda- albúmi innifaliB: Venjulegt búðarverð: 2.890 0KKAR VERÐ: 2.450 Verzlið hjá okkur, það borgar sig 'OOOy 2*0 •>' 7^0 fuHu ASTÞÓRÍ Hafnarstræti 17og Suðuriandsbraut 20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.