Morgunblaðið - 05.06.1977, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JUNÍ 1977
Sólin—Kol og olía
Sólargeislun
1 orkuskorti heimsins horfa
margir vonaraugum til sólar-
innar, — að þaðan muni koma
sú orka, sem jarðarbúar þarfn-
ist um alla eilífð.
í sænsku tækniriti var nýlega
fjallað um hagnýtingu sólar-
geislanna til orku framleiðslu,
— það er að segja til aukinnar
orkuframleiðslu, því svo til öll
orka, sem við nú notum eigum
við sólinni að þakka. Vatnsork-
an stafar frá uppgufun vatns úr
heimshöfunum fyrir tilverknað
sólargeislanna, og kol og olia
hafa myndast úr lifverum, sem
fengið hafa næringu frá sól-
inni.
Sólina má telja ótæmandi
orkugjafa, en aðeins hverfandi
hluti þeirrar orku fellur á jörð-
ina. Spekingar telja að á 1 fer-
metra flöt, hornréttan á geisla
sólarinnar, í álíka fjarlægð frá
henni sem jörðin, falli orka sem
samsvari 1,4 kW. Þetta þýðir að
ef við hefðum þar flöt, riflega
400 metra á hvorn veg, myndi
falla á hann orka sem næmi um
2400GWst. á ári, eða ámóta mik-
ið sem öll raforkuframleiðsla á
íslandi árið 1976.
Nú falla sólargeislarnir óvíða
hornrétt, lóðrétt, á byggð ból
jarðarinnar, en hvað um það,
þá endurvarpar gufuhvolfið um
30% þeirra, en um 70% ná til
jarðaryfirborðsins, þar sem
mestur hlutinn fer til upphit-
unar jarðarinnar, nokkur hluti
til uppgufunar hafsins, til haf-
strauma og vinda, en aðeins
0,002% verður eftir í gróðri
jarðar.
Sú orka sem fer til hitunar
jarðarinnar gufar upp aftur í
gegnum gufuhvolfið. Ef svo
væri ekki, t.d. ef efni í gufu-
hvolfinu, svo sem mjög mikið
magn af koldíoxídi, færi mjög
mikið vaxandi, er voðinn fyrir
dyrum og jörðin óbyggileg af
völdum hita, — að dómi áður-
nefndra spekinga. Aukin hag-
nýting sólarorku er hugsuð
tvennskonar. Annarsvegar
beint til hitunar, svo sem til
hitunar húsa og er slíkt þegar
gert sumsstaðar i Bandaríkjun-
um og víðar. Hins vegar eru svo
hugmyndur um framleiðslu raf-
orku með sólspeglum, sem hita
vatn upp fyrir suðumark, en
gufan, sem þannig myndast,
snýr eimhverflum til raforku-
vinnslu.
Áætlanir hafa verið gerðar
um framleiðslukostnað i sliku
raforkuveri, og varð niðurstað-
an 70 sænskir aurar hver
kWst., eða nær 32,— ísl. kr. Það
mun vera vel 10-fallt það verð
sem algengt er í . íslenskum
vatnsorkuverum. Þó eru hér
ekki öll kurl komin til grafar,
þvi orkuvinnslan verður inest,
þegar minnst not eru fyrir
hana, það er að sumri til, og
verður því nauðsynlegt að
geyma hana í vatnsorkudæli-
stöðvum, og eykur það enn raf-
orkukostnaðinn. Hér hefur ver-
ið miðað við sólargang í Svi-
þjóð, en ætla má að útkoman
verði nokkuð betri í suðlægari
löndum.
Önnur aðferð til vinnslu raf-
orku úr sólargeislum, er með
svonefndum sólsellum, en íbún-
aði þeim myndast raforka við
geislun sólarinnar. Þessi aðferð
er þó, á núverandi þróunar-
stigi, margfallt dýrari en
speglaverið, en talið er erfitt að
spá fram í tímann á því sviði.
Jafnvel í Noregi
kolarafstöðvar?
Noregur hefur til þessa verið
talið eitt auðugasta vatnsorku-
landið. Mikill iðnaður hefur
þar skapast, vegna mjög hag-
stæðs ••aforkuvérðs, og margvís-
leg raforkunotkun er þar, sem
ekki er möguleg í öðrum lönd-
um vegna kostnaðarsamrar
vinnslu raforkunnar.
Kyndistöð til raforkuvinnslu.
Nú er að kreppa að á þessu
sviði, vegna aðgerða náttúu-
verndarmanna. 60 fossar og
fallvötn hafa verið friðuó, —
fyrst um sinn fram til ársins
1983, en fram til þess tíma er
ætlunin að kanna margvísleg
málefni sem þetta varðar.
Um svipaö leiti sem þetta var
samþykkt í norska Stórþinginu,
kom tilkynning frá norsku
ríkisrafveitunum um að þar
væru f gangi áætlanir umbygg-
ingu kolakynnts raforkuvers,
sem brenna muni kolum frá
norsku eyjunni Svalbarða, ogr
enn nokkru seinna samþykkir
norska Stórþingið ríflega fjár-
veitingu til aukinnar kola-
vinnslu þarna.
í frumathugun ríkisrafveitn-
ORKA & TÆKNI
eftirVALGARÐ
THORODDSSEN
anna segir að framleiðslukostn-
aður kolastöðvarinnar muni
verða 14—15 n.aur. hver kWst.,
þ.e. um 5,30 ísl.kr. Hins vegar
er jafnfram tekið fram að
vinnslukostnaður vatnsorku-
vers, sem rafveiturnar hafi í
byggingu, muni verða 8—9
n.aur., eða um 3,— ísl.kr. Hér
er um tvær álika stórar stöðvar
að ræða, hvor um 699MW oog
miðað er við 7000 klst. ársnýt-
ingu.
Sumum þykir forvitnilegt að
kynnast væntalegum viðbrögð-
um náttúruverndarmanna við
kolamengun.
Olían ögrun
við Noreg
Nú hefur tekist að ger5 viö
bilunina í olíupallinum Bravó á
Ekófisksvæðinu. Þegar loks
tókst að stöðva útstreymið,
hafði lekið út á hafið 22.000
tonn af olíu og norska ríkið
hafði orðið af sköttum við oliu-
vinnsluna að upphæð 290 millj-
ón n.kr., en það samsvarar um
11 milljörðum ísl. kr.
Stærsti oliupallur heims á leið til aukningar vinnslu I Norðursjó.
Hugmynd að sólar-raforkuveri.
Slysið hefur valdið miklum
umræðum í f jölmiðlum Noregs,
svo og annarra landa, og á
norska Stórþingið hefur verið
deilt um framhaldið, — hvort
halda skuli áður ráðgerðum
hraða um vinnslu á fleiri svæð-
um, eða biða nokkuð átekta.
Norska blaðið Aftenposten
hefur skýrt all ýtarlega frá um-
mælum forsætisráðherrans, Od-
vars Nordli, um málið. Þar eru
höfð eftir honum m.a. þessi
stefnumið:
„Oliuvinnslan i hafinu er
byrjuð og henni verður haldið
áfram. Hún er þarna sem risa-
vaxinn ögrun til hagsbóta fyrir
okkar skapandi tækni, visindi
og háþróuðu verkkunnáttu.
Þrátt fyrir erfiðleika og óleyst
vandamál, megum við ekki sem
þjóð mæta þeirri ögrun með
kyrrstöðu og ótta við hið stóra
og óþekkta."
Málin virðast nú standa
þannig, að það sem komið var á
ystu nöf um framkvæmdir,
verður ekki stöðvað, en ýmis-
legar aðrar aðgerðir, sem ekki
höfðu verið nákvæmlega tima-
settar, verða teknar til nánari
athugunar í ýmsum þáttum.
Stærsti olíupallurinn sem
hingað til hefur verið smíðaður
í heiminum, að sogn Norð-
manna, lagði hinn 3. mai af stað
frá skipasmíðastöð í nágrenni
Bergen áleiðis til vinnslusvæð-
isins Statfjord. Það svæði er
talið olíuríkast allra þeirra
svæða sem hingað til hafa verið
virkjuð í Norðursjónum.
Vinnslupallurinn er ekkert
smásmiði, 35.000 tonn, ristir
120 metra, og það tók verkefna-
litla skipasmiðastöð, með 1000
manna starfsliði, rúm 2 ár að
byggja ferlíkið. Fjórir dráttar-
bátar með 70.000 hestafla orku
drógu pallinn með 2 milna
hraða hina 350 km. leið frá
Bergen út á borsvæðið. Gekk
það allt samkvæmt áætlun og er
upphaf vinnslu á næstu grös-
um.
Þá virðist hafa verið sam-
þykkt að hefja á þessu ári
virinslu á tveimur öðrum stöð-
um, en þeir nefnast Valhall og
Hod.
Öðrum fyrir-huguðum
vinnsluframkvæmdum mun
hafa verið slegið á frest, til
frekari könnunar. Þá er fyrir-
sjáanlegt að tilraunaborunum
undan ströndum Norður-
Noregs verður frestað nokkuð,
en áður hafði verið gert fyrir að
þær hæfust á árinu 1978.
Áður en oliuvinnslan hófst í
byrjun við strendur Noregs,
leitaði rikisstjórnin álits ýmissa
aðila, og voru þær álitsgerðir
opinber málsgögn. Þá var, að
mig minnir i áliti utanríkis-
ráðuneytisins, bent á að þegar
oliuvinnslan væri hafin, yrði
sennilega vart mögulegt að
stöðva hana né hemja, þótt
stjórnvöld kynnu að óska þess,
því þá myndi gæta svo sterks
þrýstings frá ýmsum hags-
munahópum, sem jafnvel ættu
lifsafkomu sína undir áfram-
haldandi framkvæmdum.
Þetta er í nokkrum mæli að
koma fram núna. Sum fyrir-
tæki sjá fram á verkefnaskort,
ef dregið verður úr fyrirhuguð-
um framkvæmdahraða, og blik-
ur eru á lofti um ýmsa erfið-
leika, sem rekja má til afleið-
inga þeirra mistaka sem urðu á
borpallinum Bravó.
Enn hefur skapast nokkuð
hættuástand i málefnum
Ekofisksvæðisins og Bravó.
Þannig er mál með vexti að frá
svæðinu liggur 350 km. löng
neðansjávarleiðsla til Teeside í
Bretlandi, en þangað er oliunni
dælt. Nýlega hefur komið í ljós,
með bergmálsmælingum, að
leiðslurnar „eru á lofti“ á all
löngum köflum, samtals um 70
km. Félagið, sem hér á hlut að
máli, telur að þetta muni stafa
af öldugangi og hafstraumum.
Verið er nú að fylla upp undir
pípurnar með sandpokum á
vissu bili og telja forsvarsmenn
félagsins hér litla hættu á ferð-
um.