Morgunblaðið - 05.06.1977, Blaðsíða 48
KRUPS
Þjóðvegakerfið:
Kyrrstaða í lagn-
ingu slitlags í sumar
IHJÖG lítið verður um það í sum-
ar að lagt verði varanlegt slitlag á
nýjar stofnhrautir, eins og hrað-
brautirnar nefnast nú, heldur
verður á því sviði aðallega um
viðhald á eidri vegum að ræða,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Vegagerð-
inni, og þar sem unnið verður við
slíkar stofnbrautir er I langflest-
um tilfellum um undirbyggingu
og gerð malarvega að ræða.
Unnið verður áfram við Suður-
landsveg austan Þjórsár og er
gert ráð fyrir að fara að Slétta-
dalsbrekku. Af þessum hluta
verður aðeins lítill kafli með var-
Opnun
Hafnar-
búða
dregst
„Opnun Ilafnarbúða mun
dragast enn á langinn vegna
skorts á hjúkrunarfræð-
ingum,“ sagði Ilaukur Bene-
diktsson, framkva-mdastjóri
Borgarspítalans, í samtali við
Mbl. „Ilúsna-ði er allt tilbúið
til að reka þarna sjúkradeild
fvrir aldraða. en starfsfólkið
vantar og ég tel enga von til
þess að hjúkrunarfra-ðingar
fáist fvrr en í fyrsta lagi í
haust."
Áætlunin var að opna
Ilafnarbúðir í apríl sl. Ilaukur
sagði skort á ýmsu starfsfólki
sjúkrahúsa svo sem sjúkra-
þjálfurum. iðjuþjálfurum og
félagsfræðingum, en alverstur
væri skorturinn á hjúkrunar-
fra>ðingum. Hins vegar sagði
hann la-knaskort engan.
Georg Lúðvíksson.fram-
kvæmdastjóri ríkisspítalanna,
tók í sama streng og gat þess,
að enn hefði ekki tekizt að
fullmanna Hátúnsdeild m.a.
þar eru tvær deildir í fullum
rekstri, en ein rekin að hálfu
og veldur því skortur á hjúkr-
unarfræðingum.
anlegu slitlagi, og raunar er ekki
afráðið hvort af þeirri fram-
kvæmd verður. Að öðru leyti
verður gerður malarvegur fyrst i
stað, enda yfir mýrar að fara og
búizt við að þar þurfi vegurinn að
siga og þjappast í 1—2 ár áður en
unnt er að leggja varanlegt slitlag
á þann kafla. Alls er gert ráð fyrir
að verja um 80 milljónum króna í
þessa framkvæmd.
Með sama hætti verður unnið
við Akranesveg, þar sem byrjað
var að leggja nýjan veg frá kaup-
staðnum og á nú að halda áfram
að Ósi, sem er um 5 km. innan við
kaupstaðinn, jafnframt þvi sem
gerð verður brú á Beriadalsá. Um
60 milljónum króna er varið til
þessa verks.
Þá verður unnið áfram við veg-
inn norður af Akureyri að Mold-
haugnahálsi, þ.e. á móts við af-
leggjarann til Ólafsfjarðar og er
þar einnig um malarfyllingu að
ræða. Verður 40 milljónum króna
varið til þessarar framkvæmdar
en auk þess um 20 milljónum í
veginn við Svalbarðsstrandar-
þorpið.
Loks verður nú byrjað á vegin-
um á Egilsstöðum frá Lagarfljóts-
brú að þorpinu, en einnig þar er
fyrst í stað einungis um malarfyll-
ingu að ræða, og er gert ráð fyrir
að verja um 25 milljónum króna i
þetta verk.
Fiskipaflotinn:
Hrafnista f Hafnarfirði
Hafnarfjörður:
Hornsteinn lagð-
ur að Hrafnistu
í GÆR átti Matthfas Bjarnason
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra að leggja hornstein að
húsi Dvalarheimili aldraðra
sjómanna í Hafnarfirði, Ilrafn-
istu, en húsið verður tekið f
notkun síðar á árinu.
Dvalarheimilið í Hafnarfirði
er hvíldar- og dvalarheimili fyr-
ir aldraða sjómenn og aðra sem
á sliku heimili þurfa að halda,
er byggt fyrir forgöngu Sjó-
mannadagsráðs í Reykjavík og
Hafnarfirði.
Hrafnista í Hafnarfirði hefur
að langmestu leyti verið fjár-
mögnuð með lánsfé. Munar þar
mestu um lán úr byggingarsjóði
Ljósm. Mbl.: Kr.Ol.
ríkisins og frá lífeyrissjóði sjó-
manna auk annarra lffeyris-
sjóða sem samtök sjómanna
eiga aðild að. Hafnarfjarðar-
kaupstaður og Garðabær lögðu
fram lóðir endurgjaldslaust og
Grindavíkurbær verulega fjár-
hæð. Þá hafa sveitarfélög,
lionsklúbbar og einstaklingar
gefið verulegar fjárhæðir.
Það var á sjómannadaginn
1974 hinn 9. júní sem fyrsta
skóflustungan að dvalarheimil-
inu var tekin, en það gerði Gísli
Sigurbjörnsson, forstjóri
Grundar.
í þessum hluta Hrafnistu í
Hafnarfirði verða eins og
Framhald á bls. 23
42,6 heildarskiptaverð-
mætis fást í botnvörpu
ÞJOÐIIAGSSTOFNUN
hefur látið reikna út hlut-
fallslega skiptingu skipta-
verðmætis eftir skipsgerð-
um, veiðarfærum og stærð-
arflokkum báta. Tölur þær
sem notaðar voru til við-
miðunar eru byggðar á
skiptaverðmætinu 1975
með þeirri undantekningu
þá, að hlutfall loðnu í
heildaskiptaverðmætinu
Spítaladeíldum lokað
í sumar vegna skorts
á hjúknmarfræðingum
VEGNA skorts á hjúkrunarfræðingum verður að loka
einni deild á Borgarspftalanum yfir sumarleyfistfmann
frá 15. júnf til ágústloka, en til þess hefur ekki þurft að
grfpa nokkur undanfarin ár að sögn Hauks Benedikts-
sonar, framkvæmdastjóra spftalans. Þá verða af sömu
ástæðu tekin úr notkun 44 rúm, 22 á lyflækningadeild og
sami fjöldi á handlækningadeild, á Landspftalanum og
kvaðst Georg Lúðvfksson framkvæmdastjóri vonast til
þess, að ekki þyrfti að grfpa til frekari lokunar.
Á Borgarspitalanum eru það 32
rúm, sem tekin verða úr notkun á
lyfjadeild og skurðlækningadeild,
en alls eru þar 70 rúm. Sagði
Haukur, að deildirnar myndu
hjálpa hver annarri eftir föngum
meðan gangarnir væru lokaðir til
skiptis. Haukur sagði að vegna
sumarleyfanna hefði alltaf þurft
að loka nokkrum stofum, en ekki
hefði í nokkur ár þurft að grípa
til lokunar sem samsvaraði heilii
deild.
Georg Lúðvíksson sagði, að und-
anfarin ár hefði þurft að loka
deildum að einhverju leyti vegna
sumarleyfa og stofum innan
deilda, en þetta væri það mesta,
sem gripa hefði þurft til.
Sagði Georg að skorturinn á
hjúkrunarfræðingum væri nú
orðinn áberandi allt árið um
kring og Haukur Benediktsson
kvaðst ekki sjá fram á að aðstæð-
ur bötnuðu næstu tiu árin, heldur
yrði málið erfiðara, þar sem fjölg-
un í stéttinni héldi ekki í við
þörfina í heilbrigðisrekstrinum.
hefur verið aukið úr 8.2%
eins og það var 1975 í 14%
sem er áætlun fyrir 1977.
Samkvæmt útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar gefur botnvarpan
mest af sér ef miðað er við hlut-
fall af heildarskiptaverðmæti.
Hjá bátum af stærðinni 12—500
lestir fást 11.7% af skiptaverð-
mæti þessarar stærðar frá botn-
vörpu. Síðan bætast við minni
skuttogarar með 22.6% af heild-
arskiptaverðmæti og þá stærri
skuttogarar með 8.3%, og alls fást
því 42.6% af heildarskiptaverð-
mæti fiskiskipa með botnvörpu. Á
loðnuveiðum fást 14% skiptaverð-
mætis og á línu f ást 7 %.
Ef litið er á hvaða stærð af
skipum skilar mestu á land, þá
eru bátar undir 100 lestum með
55.1% skiptaverðmætisins, minni
togarar með 22.6 og loðnuskipin
14% eins og fyrr segir. Bátar und-
Hafnarfjörður:
Sauðkindin
burtræk
HAFNFIRZKIR garðeigendur
hafa margir hverjir orðið fyrir
barðinu á sauðkindinni, einkan-
lega þeir sem í Norðurbænum
búa, og nú hyggjast bæjaryfir-
völd skera upp herör gegn sauð-
kindinni innan bæjarlandsins.
Norðurbæingar hafa aðallega
Framhald á bls. 23
ir 500 brúttólestum eru 600—700
talsins a.m.k. en togarar ekki
nema um 70 og loðnuskip um 80.
Kláravínið
selst mest
KLÁRAVÍNIÐ sem Áfengis-
og tóbaksverzlun rlkisins setti
á markað fyrir tveimur til
þremur mánuðum hefur
mælzt vel fyrir og er orðið á
þessum skamma tima mest
selda áfengistegundin.
í síðasta mánuði seldust um
55 þúsund flöskur af Klára-
víni, og samkvæmt upplýsing-
um ÁTVR hefur þessi nýja
vintegund dregið úr sölu á öll-
um öðrum sterkum tegundum
áfengis, svo sem brennivíni,
vodka og sénever en mun hvað
minnst hafa komið niður á sölu
á rommi. Má t.d. nefna að sala
á brennivíni, sem áður var
mest selda áfengistegundin,
komst i einum mánuði á sl. ári
upp í 71 þúsund flöskur en var
i síðasta mánuði komið niður i
34 þúsund flöskur.
Búizt er við að Kláravínið
nái fljótlega sömu tölu og
brennivínið var í, þvi að sala á
þvi eykst með hverjum mán-
uði. Kláravín er algjörlega
ókryddaður spiritus, en svipað
að styrkleika og aðrar íslenzk-
ar áfengistegundir.