Morgunblaðið - 10.06.1977, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JUNÍ 1977
11
nefndu, eru ótal launaliðir og
því sé ekki ástæða til þess að
taka þennan eins út úr. Þrátt
fyrir þetta er þetta langstærsti
liðurinn, launaliður bóndans.
Unnt væri og að tína til marga
fleiri liði, en þeir eru engir ein
áhrifamiklir og þessi og ef
hann er notaður eins og gert
hefur verið í hálfan þriðja ára-
tug, hækkuðu laun ekki eins
mikið og þar með dragi al-
mennt úr verðhækkunum og
þar með verðbólgu. Hins vegar
mun ljóst að alþýðusambands-
menn telja ekki fulla verðlags-
upbót verða i gildi, ef þetta
ákvæði heldur áfram að vera i
gildi.
Samkvæmt upplýsingum
Árna Jónassonar hjá Stéttar-
sambandi bænda var svokölluð
sex-mannanefnd fyrst skipuð á
árinu 1942 og var henni falið að
verðleggja landbúnaðarvörur
og á grundvelli hennar átti
nefndin að sjá svo um, að bænd-
ur hefðu svipuð eða sömu laun
og svokallaðar viðmiðunarstétt-
ir. Nefndin varð sammála og í
lögum, sem fylgdu samkomu-
laginu, var heimilt að hækka
launalið bóndans í samræmi við
Framhald á bls. 30
háa og bjarta tenórrödd og er
sýnilega sviðsvanur, hann skil-
aði þessu öllu af mikilli prýði
og hreif áheyrendur mjög, enda
skagfirðingar óvanir að heyra
jafn háan og bjartan tenór nú
síðustu árin. Ég vil alveg sér-
staklega þakka honum fyrir
hans stóra hlut. Sverrir Guð-
mundsson söng einnig mjög vel
Maríubæn, gullfallegt lag úr
„Cavaleria Rusticana". Sverrir
er sýnilega vaxandi söngvari.
Þó ég nefni ekki fleiri nöfn þá
skiluðu allir einsöngvararnir
sínum hlutverkum vel. Kórinn
er í heild mjög vel æfður,
hreinn og fágaður og samræmi
milli radda gott, bassinn mætti
þó gefa dálítið meira í á köfl-
um. Tenórinn er bjartur og að
mínum dómi með því besta sem
hann hefur verið i kórnum frá
byrjun.
Eins og áður segir er Snæ-
björg alveg frábær stjórnandi
og virðist spila á kórinn eins og
hljóðfæri.
Heimamenn hér f Skagafirði
mættu vissulega mikið af þessu
lær'a. Ég vil persónulega þakka
Snæbjörgu og kórnum komuna
hingað norður og þær sólskins-
stundir sem kórinn færði okkur
Skagfirðingum með söng sín-
um, enda var þeim óspart
klappað lof i lófa.
Undirleik annaðist snilling-
urinn Ólafur Vignir Albertsson
af sinni alkunnu snilld.
Snæbjörg, ég óska þér til
hamingju með kórinn og þann
mikla árangur sem þú hefur
náð. Eg vil leyfa mér fyrir hönd
okkar heimamanna að þakka
ykkur komuna og óska ykkur
allra heilla með starfsemina á
komandi árum.
Lifið heil.
Jón Björnsson
„Lagnings-
kallinn”
er fyrir net
Þau mistök urðu í sambandi við
frétt í Morgunblaðinu sunnudag-
inn 5. júní um uppfinningu Hösk-
uldar Magnússonar í Ólafsvík að
þar var talað um linu en útbúnað-
urinn er eingöngu ætlaður til
netalagna, eins og ráða mátti af
meðfylgjandi myndum.
Reykjavíkurborg:
Allt við það sama
í verkfalli rafvirkja
ENN situr allt við sama í verk- verkfallið leysist í bráð. Meðal
falli rafvirkja hjá Reykjavíkur- annars hafa rafvirkjarnir krafizt
borg og eru engar iíkur á því, að þess, að Rafiðnaðarsambandið
semji fyrir línumenn. en þeir eru
fastráðnir hjá Rafmagnsveitum
Reykjavíkur og hefur stjórn Raf-
veitnanna ekki leyfi til að semja
um þetta atriði.
Aðalsteinn Guðjohnsen, raf-
magnsveitustjóri Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að þótt rafvirkjarnir héldu
áfram í verkfalli einhvern tíma,
þa væru engar líkur á hættu-
ástandi á veitusvæði rafveitn-
anna. Hins vegar hefði verkfall
rafvirkjanna þau áhrif, að verk
hjá verktökum, sem rafvirkjar
hefðu eftirlit með, hefðu stöðvazt,
og ennfremur gætu orðið tafir á
viðgerðum í bilanatilfellum.
AK.I.YSIM.ASIMIN'N KR:
mBB ^
JRorjumhlníiib