Morgunblaðið - 10.06.1977, Side 14

Morgunblaðið - 10.06.1977, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JUNÍ 1977 Stúdentar frá Verzlunarskóla Islands 1977 Litsjónvarpstækin V erzlunarskóli Islands braut- skráir 1000. Frá General Electric stúdentinn Eru með öllum tækninýjungum eins og t.d. • In-Line myndlampa <2oax systemi • köldu kerfi • einingarverki • snertistöðvabreytihnöppum • möguleikar fyrir mynd- og plötusegul- bönd • ónæm fyrir spennusveiflum • Albesta verðið á markaðinum. 22 ........... kr. 242.700 26 "m/fjarstýringu .... kr. 318.800 Fyrir nokkru voru brautskráðir frá Verzlunarskóla tslands 95 stúdentar. Við skólaslitaathöfn- ina voru viðstaddir gestir svo og vinir og vandamenn nýstúdenta og lýsti skólastjóri, dr. Jón Gfsla- son, úrslitum prófa. Lærdómsdeild skiptist f tvær deildir, hagfræðideild og mála- deild, og á stúdentsprófi f hag- fræðideild hlutu tveir nemendur ágætiseinkunn, Aðalheiður Karls- dóttir, 9,22, og Brynja Halldórs- dóttir, 9,01. í máladeild skipaði Þóra Stephensen efsta sætið, hlaut 8,53. Dúxarnir, Aðalheiður Karlsdóttir og Brynja Halldórs- dóttir, hlutu verðlaun Verzlunar- ráðs Islands, en þau veitir ráðið fyrir beztan árangur f viðskipta- og verzlunargreinum. Tveir piltar hlutu einnig ágætiseinkunn f þessum greinum, þeir Einar Kr. Jónsson og Alexander G. Edvards- son, og sæmdi skólinn þá bóka- verðlaunum. Gísli Einarsson, formaður Verzlunarráðs Islands, flutti ávarp við þetta tækifæri, en hann var einn 25 ára stúdenta. Þakkaði skólastjóri honum gott starf i þágu skólans en hann hefur um árabil átt sæti i skólanefnd. Bað; skólastjóri alla nýstúdenta að rísa úr sætum og hrópa Verzlunar- skóla-húrrahróp fyrir öllum af- mælisárgöngunum. Síðan voru af- hent fleiri verðlaun. Verðlaun stúdenta brautskráðra 1954 hlýt- ur dúxinn og var það Aðalheiður Karlsdóttir, sem hlaut þau. Verð- laun úr „Móðurmálssjóði Hjartar kaupmanns Jónssonar" hlaut að þessu sinni Margrét Friðriksdótt- ir og úr Raungreinasjóði hlutu verðlaun Margrét Auður Pálsdótt- ir, Margrét Friðriksdóttir, Aðal- heiður Karlsdóttir og Brynja Halldórsdóttir. Þá, sem skarað höfðu fram úr í prófum, sæmdi skólinn bókaverðlaunum og danska sendiráðið, sendiráð Vestur-Þýzkalands og Alliance Francaise sæmdi þá nýstúdenta bókaverðlaunum, sem beztum árangri höfðu náð í erlendum tungumálum. Nú hefur Verzlunarskólinn brautskráð alls 1029 stúdenta og var 1000. stúdentinn í hópnum, sem brautskráðist nú í ár. Var það Ólafur Sveinsson, stúdent úr hag- fræðideild og hlaut hann bók frá skólanum til minningar um það. Óli Björn Tryggvason, 20 ára stúdent, mælti fyrir hönd allra afmælisárganganna og færði hann skólanum að gjöf frá þeim öllum vandað ljósritunartæki, sem skólastjóri kvað koma f góðar þarfir. í lok skólaslitaræðu sinnar brýndi skólastjóri fyrir ný- stúdentum m.a. að vera minnugir þess sem í helgum fræðum segir: „Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins." Margar hættur steðjuðu nú að ungu kynslóðinni og því yrði hún að vera vel á verði ef hún ætti að vera þeim vanda vexin að stýra fleyi sínu heilu í höfn. Athöfninni lauk með því að ný- stúdentar sungu skólasönginn og lauk þar með 72. starfsári Verzl- unarskóla Islands. Sölustaðir: TH GARÐARSSON HF. Vatnagörðum 6. — Sími 86535 V elta Sam virkis jókst um 225% AÐALFUNDUR Samvirkis — Framleiðsfusamvinnufélags raf- virkja, — var haldinn fyrir skömmu f Kópavogi. 1 skýrslu stjórnar kom fram að heildar- velta félagsins árið 1976, varð lið- lega 110 milljónir króna og hafði aukist um 225% frá fyrra árí, og er hagur félagsins góður. Starf- semi Samvirkis f Neskaupstað gekk einnig vel og var heiidar- veltan þar röskar 8 rnilfj. kr. Stærsta verkefnið sem fyrir- tækið vinnur að eru raflagnir við Sigöldu á vegum v-þýzka fyrir- tækisins Brown Boveri. Þá var samþykkt á aðalfund- inum að lýsa yfir fullum stuðn- ingi við meginkröfur ASÍ i kj ar asamningunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.