Morgunblaðið - 10.06.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JUNÍ 1977
Stúdentar frá Verzlunarskóla Islands 1977
Litsjónvarpstækin
V erzlunarskóli
Islands braut-
skráir 1000.
Frá General Electric
stúdentinn
Eru með öllum
tækninýjungum eins og t.d.
• In-Line myndlampa <2oax systemi • köldu kerfi • einingarverki
• snertistöðvabreytihnöppum • möguleikar fyrir mynd- og plötusegul-
bönd • ónæm fyrir spennusveiflum •
Albesta verðið á markaðinum.
22 ........... kr. 242.700 26 "m/fjarstýringu .... kr. 318.800
Fyrir nokkru voru brautskráðir
frá Verzlunarskóla tslands 95
stúdentar. Við skólaslitaathöfn-
ina voru viðstaddir gestir svo og
vinir og vandamenn nýstúdenta
og lýsti skólastjóri, dr. Jón Gfsla-
son, úrslitum prófa.
Lærdómsdeild skiptist f tvær
deildir, hagfræðideild og mála-
deild, og á stúdentsprófi f hag-
fræðideild hlutu tveir nemendur
ágætiseinkunn, Aðalheiður Karls-
dóttir, 9,22, og Brynja Halldórs-
dóttir, 9,01. í máladeild skipaði
Þóra Stephensen efsta sætið,
hlaut 8,53. Dúxarnir, Aðalheiður
Karlsdóttir og Brynja Halldórs-
dóttir, hlutu verðlaun Verzlunar-
ráðs Islands, en þau veitir ráðið
fyrir beztan árangur f viðskipta-
og verzlunargreinum. Tveir piltar
hlutu einnig ágætiseinkunn f
þessum greinum, þeir Einar Kr.
Jónsson og Alexander G. Edvards-
son, og sæmdi skólinn þá bóka-
verðlaunum.
Gísli Einarsson, formaður
Verzlunarráðs Islands, flutti
ávarp við þetta tækifæri, en hann
var einn 25 ára stúdenta. Þakkaði
skólastjóri honum gott starf i
þágu skólans en hann hefur um
árabil átt sæti i skólanefnd. Bað;
skólastjóri alla nýstúdenta að rísa
úr sætum og hrópa Verzlunar-
skóla-húrrahróp fyrir öllum af-
mælisárgöngunum. Síðan voru af-
hent fleiri verðlaun. Verðlaun
stúdenta brautskráðra 1954 hlýt-
ur dúxinn og var það Aðalheiður
Karlsdóttir, sem hlaut þau. Verð-
laun úr „Móðurmálssjóði Hjartar
kaupmanns Jónssonar" hlaut að
þessu sinni Margrét Friðriksdótt-
ir og úr Raungreinasjóði hlutu
verðlaun Margrét Auður Pálsdótt-
ir, Margrét Friðriksdóttir, Aðal-
heiður Karlsdóttir og Brynja
Halldórsdóttir. Þá, sem skarað
höfðu fram úr í prófum, sæmdi
skólinn bókaverðlaunum og
danska sendiráðið, sendiráð
Vestur-Þýzkalands og Alliance
Francaise sæmdi þá nýstúdenta
bókaverðlaunum, sem beztum
árangri höfðu náð í erlendum
tungumálum.
Nú hefur Verzlunarskólinn
brautskráð alls 1029 stúdenta og
var 1000. stúdentinn í hópnum,
sem brautskráðist nú í ár. Var það
Ólafur Sveinsson, stúdent úr hag-
fræðideild og hlaut hann bók frá
skólanum til minningar um það.
Óli Björn Tryggvason, 20 ára
stúdent, mælti fyrir hönd allra
afmælisárganganna og færði
hann skólanum að gjöf frá þeim
öllum vandað ljósritunartæki,
sem skólastjóri kvað koma f góðar
þarfir.
í lok skólaslitaræðu sinnar
brýndi skólastjóri fyrir ný-
stúdentum m.a. að vera minnugir
þess sem í helgum fræðum segir:
„Varðveit hjarta þitt framar öllu
öðru, því að þar eru uppsprettur
lífsins." Margar hættur steðjuðu
nú að ungu kynslóðinni og því
yrði hún að vera vel á verði ef
hún ætti að vera þeim vanda
vexin að stýra fleyi sínu heilu í
höfn.
Athöfninni lauk með því að ný-
stúdentar sungu skólasönginn og
lauk þar með 72. starfsári Verzl-
unarskóla Islands.
Sölustaðir:
TH GARÐARSSON HF.
Vatnagörðum 6. — Sími 86535
V elta Sam virkis
jókst um 225%
AÐALFUNDUR Samvirkis —
Framleiðsfusamvinnufélags raf-
virkja, — var haldinn fyrir
skömmu f Kópavogi. 1 skýrslu
stjórnar kom fram að heildar-
velta félagsins árið 1976, varð lið-
lega 110 milljónir króna og hafði
aukist um 225% frá fyrra árí, og
er hagur félagsins góður. Starf-
semi Samvirkis f Neskaupstað
gekk einnig vel og var heiidar-
veltan þar röskar 8 rnilfj. kr.
Stærsta verkefnið sem fyrir-
tækið vinnur að eru raflagnir við
Sigöldu á vegum v-þýzka fyrir-
tækisins Brown Boveri.
Þá var samþykkt á aðalfund-
inum að lýsa yfir fullum stuðn-
ingi við meginkröfur ASÍ i
kj ar asamningunum.