Morgunblaðið - 10.06.1977, Page 19

Morgunblaðið - 10.06.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JUNI 1977 19 — Minning Erling Framhald af bls. 23 meistara. Þeir fluttust til Reykja- víkur 1942 og lauk Erlingur námi þar. Á ísafirði tók Erlingur þátt í íþróttalífi með ungum mönnum og var hann félagi í knattspyrnu- félaginu Herði, hann lagði aðal- lega fyrir sig knattspyrnu og náði þar mjög góðum árangri á þess tíma mælikvarða við erfiðar að- stæður. Hann skipaði stöðu bak- varðar í okkar liði og dugði vel, ekki var auðvelt að sækja fram þegar hann var í vörn því þar var fyrirstaðan mikil. Er suður kom gekk hann í knattspyrnufélagið' Viking og lék þar við góðan orð- stír. Erlingur hafði l;ka önnur áhugamál en það var 'óma- og trjárækt ásamt silungs- og lax- veiði en þeirri íþrótt hafði hann kynnst hjá föður sfnum strax á unglingsárum en þá var farið vítt og breitt um ísafjarðardjúp, þvl náttúruskoðun og veiðiferðir heillaði þá feðga báða jafnt. Djúp- ið er lika fagurt að sumarlagi og að Rauðamýri var Erlingur oft á sumrin og undi sér vel. Hér fyrir sunnan lauk Erlingur námi með glæsibrag og stundaði iðn sina ásamt Magnúsi bróður sínum um margra ára skeið. Um tima breytti hann til og vann við húsbyggingar og mun hafa líkað það vel, énda var sama að hverju hann gekk, það lék allt í höndun- um á honum. Við lærðum saman og er mér minnisstætt hve útsjón- arsamur og fljótur hann var að leysa vandasömustu verkefni en þar kom til brennandi áhugi hans á smiðum og meðfædd hugvits- semi. Um nokkurra ára skeið vann hann í frístundum sínum að mjög hugvitsamlegri uppfinningu og eyddi í þetta miklu fé, hann mun hafa sótt um einkaleyfi á uppfinn- ingu sinni en aldrei notið arðs af henni, en það er nú svo að þeir sem ryðja brautina njóta sjaldn- ast ávaxtanna af erfiði sínu. I daglegu lífi sínu var Erlingur hinn dagfarsprúði maður sem aldrei tranaði sér fram, hann mátti ekki vamm sitt vita í neinu, öllum vildi hann hjálpa og einkum þó þeim sem minnimáttar voru og var hann þá stórtækur enda sló viðkvæmt hjarta inni fyrir. Hann átti erfitt með að sætta sig við hrjúfan hugsana- gang og óréttlæti. í góðum vinahópi sem undan- farið hefir þynnst hörmulega mikið, var Erlingur hrókur alls fagnaðar og var þá oft gaman að gleðjast með honum. Á þessum degi er mér ofarlega í huga innilegt þakklæti til for- eldra Erlings fyrir alla þeirra göð- vild og hlýhug í minn garð alla tið. Aldraðri móður hans og að- standendum votta ég mína dýpstu samúð með þeirri ósk að sá sem öllu ræður megi milda sorg þeirra og breyta í ljúfar minningar. Guðmundur L. Þ. Guðmundsson. Traustur vinur og drengur góð- ur er látinn. Sú fregn barst mér s.l. sunnudag að Erlingur Guð- mundsson hefði látist laugardag- inn 4. þ.m. Ég áttaði mig vart á þessu í fyrstu. Ég hafði hitt hann daginn áður og virtist hann þá bæði hress og kátur. Eftir frekari íhugun var mér ljóst að sjúkdóm- ur sá er hrjáði Erling heitinn hin síðustu ár, gat leitt til hins verra hvenær sem væri. Erlingur var Vestfirðingur. Hann var sonur hjónanna Þor- gerðar Bogadóttur úr Seyðisfirði vestra og Guðmundar Pétursson- ar kaupmanns á ísafirði, ættuðum frá Hafnardal við Isafjarðardjúp. Erlingur Guðmundsson var fæddur 21. apríl árið 1921 og var því aðeins rúmlega 56 ára gamall r hann lézt. Kynni okkar byrjuðu strax i æsku og urðum við brátt óaðskilj- anlegir leikfélagar og vinir og hefur sú vinátta haldist æ síðan. Leiðir okkar lágu saman í gegn- um barnaskólann, á knattspyrnu- vellinum á ísafirði og síðar skóla- bræður i Reykholtsskóla í Borgar- firði. Nú enn urðum við samferða, báðir fluttumst við til Reykjavík- ur og tókum þar upp sameiginlegt áhugamál þ.e.a.s. knattspyrnuna. Við gerðumst félagar i Knatt- spyrnufélaginu Víkingi og lékum þar saman í mörg ár, uns Erlingur varð fyrir meiðsli í hné og varð að yfirgefa völlinn fyrir fullt og allt. Mér er ljúft að minnast orða eins af andstæðingum okkar er hann sagði að á öllum sinum knatt- spyrnuferli hefði hann aldrei leikið á móti eins drengilegum leikmanni og Erlingi, en þó hafi hann ekki gefið neitt eftir. Þetta eru orð að sönnu og í fullu sam- ræmi við skaphöfn hans. Traust, vinátta og drengskapur voru ávallt i fyrirrúmi Erlings, annað kom ekki til greina hjá honum. Eigi skal skilið við þessi fátæk- legu orð, svo ekki sé minnst á góðvild Erlings i garð fjölskyldu minnar. Börnum og barnabörnum minum reyndist hann með af- brigðum góður og skilningsrikur. I hljóðri bæn sameinumst við og þökkum honum af heilum hug fyrir allt sem hann hefur fyrir okkur gert. Móður, systkinum og öðru venzlafólki votta ég fyllstu samúð mína. Guðmundur Samúelsson. „Eitt sinn skal hver deyja“, og einu sinni er allt fyrst, líka það að reyna af veikum mætti að minn- ast látins vinar. Vinar í orðsins fyllstu merk- ingu. Þegar mér var sagt að Elli væri dáinn, fannst mér það alls ekki getað verið rétt. Þann sama dag hafði hann kom- ið heim, eins og venjulega. Erling- ur var alveg einstakur maður, yfirlætislaus hægur og prúður í hvívetna. Barngóður mjög, og það voru ekki ófáar stundirnar sem ég átti með honum sem barn, svo og mín- ar dætur. Var hann okkur eins góður, sem okkar eigin faðir. Hann gekk ekki heill til skógar hin seinni ár, og vissi að hverju stemmdi. Og í þeirri vissu, að honum líði betur núna, þakka ég góðum guði fyrir að hafa eignast svo góðan vin. Móður hans, systkinum og öðr- um aðstandendum, votta ég sam- úð mína. Blessuð sé minning hans. Kristln Guðmundsdóttir. 'ins og a/lir vita þá seldum við yfir 2000 Crown stereo samstæður á síðasta ári. Ef það eru ekki meðmæli þá eru þau ekki til. höfum við flutt tækin í gámum beint frá Japan til íslands og þessvegna eru þau nú ódýrari en nokkru sinni fyrr eða aðeins upplýsingar Magnari 6—IC, 33 transistorar 23. dióður. 70 wött. Útvarp Orbylgja (FM) 68 108 megarið Langbylgja 150 300 kllórið MiSbylgja 520 1605 kilórið Stuttbylgja: 6 18 megarið Segulband Hraoi 4,75 cm/s Tiðnisvórun venjulegrar kas ettu (snaeldu) er 40—8000 rið Tfðntsvorun Cr 02 kasettu er 40—12 000 rið Tónflökt og blakt |wow 8» flutter) betra en 0 3% RMS Tlmi hraðspólunnar á 60 mln. spólu er 105 sek UpptókukeHi AC bias. 4 rása stereo Afþurrkunarkerfi AC afþurrkun Plötuspilari Full staerð. allir hraðar, sjálf virkur eða handstýrður Ná kvæm þyngdarstilling á þunga nálar á plotu Mótskautun míð flóttans sem tryggir lítið slit á nál og piótum ásamt fullkom inni upptoku Magnetiskur tönhaus Mátalarar Bassahátalari 20 cm af konlskri gerð Mið og hátalari 7.7 cm af gerð Tfðnisvið 40—20 000 Aukahlutir Tveir hátalarar Tveír hfjóðnemar Ein Cr 02 kasetta FM loftnet Stuttbylgju loftnetsvir hátiðni köniskri rið SHC - 3220 Nýjasta gerð BÚÐIRNAR Skipholti 19 við Nóatún. f sími 23800 26 ár í fararbroddi K,appar8tÍ9 26 sími 19800 !I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.