Morgunblaðið - 10.06.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JUNI1977
31
Hreinn Halldórsson.
vegar náði Steen Hedegárd 2. sæti
með 55.66 m. Óskar Jakobsson kast-
aði aðeins 15 sm styttra, 55.50 og
varð þriðji. Eftir fyrri dag landskeppn-
innar hafði ísland forystu með 1 5 stig
gegn 7 stigum Dananna
í unglingakeppninni leiddi island
einnig. Þráinn Hafsteinsson sigraði I
kringlukastinu með 44.30 m og Óskar
Reykdalsson I kúluvarpinu með 13.74
m. Hvort tveggja góður árangur og
persónulegt met hjá Óskari. Stigin þar
stóðu 6:4 fyrir ísland.
259 áhorfendur borguðu sig inn á
landskeppnina á miðvikudaginn og er
það óvenju mikið I frjálsum Iþróttum
hér á landi. Er ekki að orðlengja það
hversu mun skemmtilegra það er fyrir
alla aðila að standa I keppni sem
þessari ef einhverjir áhorfendur eru
viðstaddir.
FRIÐRIK Þór Óskarsson er í stöð-
ugri framför f langstökkinu og ef
svo heldur sem horfir verður þess
ekki iangt að bfða að Islandsmet
Vilhjálms Einarssonar í grein-
inni falli. Á frjálsfþrðttamðtinu f
Laugardalnum á miðvikudaginn
stökk Friðrik 7.41 metra, en met
Vilhjálms er 7.46 m. Gðður ár-
angur náðist einnig f öðrum
greinum, en vegna rúmleysis er
aðeins birtur árangur einstakra
keppenda, en ekki umsögn.
100 m hlaup
1. Sigurdur Sigurðsson Á 10.9
2. Magnús Jónasson Á 11.1
3. Björn Blöndal KR 11.1
4. Guólaugur Þorsteinsson í R 11.3
5. Jón S. Þórðarson í R 11.5
6. Jón Sverrisson (JBK 11.6
Hástökk
1. Þórdfs Gfsladóttir ÍR 1.68
2. Anna Alfreósdóttir lA 0.
Kringlukast
1. Erlendur V: Idimarsson Isl. 58.14
2. Steen Hadegard Danm. 55.66
3. Óskar Jakobsson ísl. 55.50
4. Pader Jori Hansen Danm. 49.82
1. Þráinn Hafsteinsson isl. 44.30
2. Jan Hansen Danm. 40.82
3000 m hlaup
1. Thelma Björnsdóttir UBK 11.02.6
2. Aóalbjörg Hafsteinsdóttir ÍR 11.07.2
3. Guórún Arnadóttir FH 11.11.6
Stangarstökk
1. Valbjörn Þorláksson KR 3.75
2. Ásgeír Þ. Eirfksson ÍR 3.45
3. Eggert Guómundsson HSK 3.45
1500 m hlaup
1. Einar P. Guómundsson FH 4.14.6
2. Gunnar Þ. Sigurósson FII 4.15.2
3. Hafsteinn Óskarsson ÍR 4.17.1
Langstökk
1. Friðrik Þ. Óskarsson ÍR 7.41
2. Jóhann Pétursson UMSS 6.34
3. Óskar Thordarsen ÍR 6.21
200 m hlaup
1. Ingunn Einarsdóttir ÍR 25.1
2. Sigurborg Guómundsdóttir Á 26.0
3. Sigrfður Kjartansdóttir KA 26.5
Kúluvarp
1. Hreinn Halldórsson ísl. 20.62
2. Óskar Jakobsson tsl. 17.56
3. Mickael Henningsen Danm. 16.26
4. Kjeld Nielsen Danmörk 14.94
Kúluvarp unglinga 1. Óskar Reykdalsson ísl. 13.74
2. Jan Hansen Danm. 12.80
400 m. Grindarhlaup 1. Þorvaldur Þórsson ÍR 56.6
2. Óskar Thorarensen ÍR 62.4
Forsala
FORSALA Á LANDSLEIK islands og
N-íra hðfst I tjaldi við Útvagabank-
ann f Austurstrssti á miðvikudaginn
og hefur verið góð sala, þannig að
búast má við miklum fjölda áhorf-
enda Á leik Úrvals KSÍ og stjömu-
liðs Charltons á dögunum voru lið-
lega 8 þúsund áhorfendur og á leikn-
um 6 morgun verða örugglega vel
yfir 10 þúsund. Til aðforðast biðrað-
ir og þrengsli er bent á að forsalan I
Austurstrssti verður opin eftir hádegi
I dag.
Golfmót
EITT opið golfmót verður
haldið um helgina, Smimov-keppnin
á Hólmsvelli I Leiru. Leiknar verða
36 holur með og án forgjafar, karlar
og konur. Verður fyrsti hópurinn
rnstur út klukkan 8.30 á laugar-
dagsmorguninn.
Blikarnirfærðu KR
bæði stigin að gjöf
KR—INGAR lyftu sér af botni 1. deildar I fyrrakvöld með þvl að sigra
Breiðablik I Kópavogi 2:1. Segja má að sigurinn hafi verið gjöf tveggja
Breiðabliksleikrr inna, þeirra Ólafs Hákonarsonar markvarðar og Einars
Þórhallssonar. Einar gaf eftir óþarfa hornspyrnu á lokasekúndunum og úr
homspymunni skoruðu KR-ingar sigurmark beint.
Löng sending kom fram völlinn og
fylgdi Einar boltanum eftir. Þegar bolt-
inn var að rúlla út fyrir endamörk og
dómarinrt beið þess að geta flautað
útspark slæmdi Einar fætinum I bolt-
ann þannig að hornspyrna varð úr
Hálfdán Örlygsson tók spyrnuna, gaf
vel upp I vindinn og boltinn sigldi yfir
Ólaf markvörð og I netið Ekki vannst
tlmi til að hefja leikinn að nýju, leiktlm-
inn var búinn.
í heild var leikurinn slakur. Breiða-
blik hafði vindinn I bakið I fyrri hálfleik
og sótti þá mun meira. Skapaðist
hætta við mark KR I nokkur skipti og
var Hreiðar Breiðfjörð þar fremstur I
flokki Hann skoraði eina mark Breiða-
bliks á 14 mlnútu með góðu skoti af
stuttu færi, eftir að hafa fengið góða
sendingu frá Hinrik Þórhallssyni. í
seinni hálfleik snerist dæmið við. KR-
ingar sóttu þá mun meira og voru
mjög hættulegir við mark Breiðabliks.
sérstaklega eftir að Örn Óskarsson var
settur I framllnuna. Hann jafnaði metin
UBK-KR
1:2
fyrir KR á 61 minútu með skalla eftir
hornspyrnu Hálfdáns og brást þá út-
hlaup Ólafs markvarðar herfilega illa
eins og seinna I leiknum. KR-ingar
voru nærri því að skora en þegar
markið loksins kom var það af ódýr-
sutu gerð
KR-ingarnir voru sprækir I þessum
leik og sigur þeirra var ekki óverð-
skuldaður. Blikarnir eru mjög misjafn-
ir, góðir I einum leiknum en slakir I
öðrum. Áhorfendur voru 741 aðtölu.
—SS.
BREIOABLIK: Ólafur Hákonarson 1, Gunnlaugur Halgason 2, Bjarni
Bjarnason 2, Valdimar Valdimarsson 3, Einaf Þórhallsson 1, Srgurjón
Rannversson 2. Jón Orri Guðmundsson 2, Þór Hreiðarsson 2, Hinrík
Þórhalisaon 1, Ólafur FriHríksson 1, HoiSar Breiðfjörð 3, Vignir
Batdursson (vm) 1, GIsli Sigurðsson (vm) 1
KR: Halldór Pálason 2. Sigurður Indriðason 2, Stefán Sigurðsson 2.
Ottó Guðmundsson 3, Börkur Ingvarsson 2, Öm óskarsson 3. Haukur
Ottesen 2, Vilhelm Frederiksen 1. Guðmundur Ingason 2, öm Guð-
mundsson 1. HáHdán Örlygsson 3. Magnús Jónsson (vm) 1. Dómari:
Þorvarður Bjömsson 3.
Hreinn óánægður með
20.62 m í kúluvarpinu
HREINN HALLDÓRSSON varpaði kúlunni 20.62 metra fyrri dag kastlands-
keppninnar við Dani á Laugardalsvellinum I fyrrakvöld. Er þetta einn albezti
árangur I kúluvarpi, sem náðst hefur I heiminum I ár og aðeins 8 sm frá
íslandsmeti Hreins. Ekki var þetta kast þó að öllu leyti fullkomið hjá Hreini,
sórfrsðingar fundu ýmislegt að þessu kasti, sem var hans fyrsta I keppninni,
og sjálfur hristi Hreinn höfuðið eftir kastið. greinilega ekki ánægður. —
Þetta var ekki eins og ég vildi hafa það, sagði Hreinn. — Ef ég nsði þvl sem
ég er að reyna að gera held ég að kúlan fsrí enn lengra.
Hreinn varpaði kúlunni fimm sinn-
um yfir 20 metra, eitt kastið gerði
hann ógilt. Sýnir þessi kastserla hans
hve öruggur Hreinn er orðinn og
„stóra-stóra-kastið" getur komið hven-
ær sem er. Hreinn var eðlilega I sér-
flokki I kúluvarpinu, enda á hann þriðja
bezta árangurinn I greininni I ár. Óskar
Jakobsson sýndi þó enga minnimáttar-
kennd I keppninni. Hann varpaði kúl-
unni lengst 17.56 metra, en það er
jafnt þvl bezta sem hann hefur áður
gert, en það var I Svlþjóð I fyrrasumar,
skömmu áður en hann hélt á Ólymplu-
leikana. Óskar er I örri framför I kúlu-
varpinu og það verður gaman að þeim
degi er hann fer að veita Hreini harða
keppni
í kringlukastinu var Erlendur hinn
öruggi sigurvegari. kastaði kringlunni
58.1 4 m og er það ágætur árangur hjá
Erlendi. — Ég er sæmilega ánægður
með frammistöðuna I kvöld, sagði Er-
lendur á miðvikudaginn. — Mér
fannst lengsta kastið að vlsu ekki vel
heppnað, en 58.14 m er ágætur
árangur miðað við hversu fá mót hafa
verið haldin og að ég hef átt við slæma
tognun I öxl að strlða I tvo mánuði
í kúluvarpinu voru Danirnir nánast
„statistar" og máttu gera sér 3. og 4.
sætið að góðu. f kringlukastinu hins
Aðeins spurning
hvenær Friðriktek-
ur met Vilhjálms