Morgunblaðið - 11.06.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JUNÍ 1977
25
Norðurlandaráð
kynnt á 15 stöðum
í tilefni 25 ára afmælis Norður-
landaráðs á þessu ári mun Nor-
ræna félagið gangast fyrir kynn-
ingu á störfum þess 11.—22. júnf
á Vesturlandi, Vestfjörðum og
vestanverðu Norðurlandi. Sam-
komur verða haldnar á 15 stöðum
f þessum landshlutum.
Erlendi Paturssyni, lögþings-
manni frá Færeyjum, hefur sér-
Erlendur Patursson
staklega verið boðið til Iandsins í
tilefni þessarar kynningar og
mun hann flytja erindi um
Norðurlandaráð og smáþjóðirnar
á fyrrnefndum kynningarsam-
komum. Þá mun Hjálmar Ólafs-
son, formaður Norræna félagsins,
flytja erindi er hann nefnir ,,Hug-
leiðingar um norrænt samstarf“.
Þá verður sýnd kvikmynd frá
Færeyjum og myndir frá íslend-
ingaslóðum í Kauþmannahöfn.
Kynningarsamkomur Norræna
félagsins verða á eftirtöldum stöð-
um:
Akranes 11. júnf kl. 15.00
Borgarnes 11. júnf kl. 21.00
Ólafsvfk 12. júnfkl. 20.30
Grundarfjörður 12. júnf kl. 20.30
Stykkishólmur 13. júní kl. 20.30
Búðardalur 14. júnf kl. 20.30
Patreksfjörður 15. júnf kl. 20.30
Bíldudalur 16. júnf kl. 20.30
Þingeyri 17. júnf kl. 20.30
Bolungarvfk 18. júnf kl. 15.00
ísafjörður 18. júnf kl. 20.30
Hólmavfk 19. júnf kl. 20.30
Hvammstangi 20. júnf kl. 20.30
Blönduós 21. júnf kl. 20.30*
Sauðárkrókur 22. júnf kl. 20.30.
Frímex 77:
Frímerki í 130 römmum
AFMÆLISSÝNING Félags
frímerkjasafnara, Frímex '77, var
opnuð í fyrradag kl. 4 að viðstödd-
um mörgum boðsgestum innlend-
um sem erlendum. Guðmundur
Ingimnndarson, formaður sýning-
arnefndar, bauð gesti velkomna
með stuttu ávarpi en bað síðan
Rafn Júlíusson, póstmálafulltrúa,
að opna sýninguna í fjarveru
póst- og símamálastjóra. Gerði
hann það með stuttri ræðu, þar
sem hann gerði grein fyrir mikil-
vægi FF fyrir frimerkjasöfnun í
landinu siðustu 20 árin og þeirri
ágætu samvinnu, sem væri milli
félagsins og íslenzku þóststjórnar-
innar. Síðan gengu gestir um sýn-
ingarsalinn, en þar getur að líta
margs konar frímerki og fri-
merkjaefni í rúmlega 130 römm-
um.
Sýningin verður opin í dag frá
kl. 17 til 22 og síðan á morgun og
sunnudag frá kl. 14 til 22, en þá
lýkur henni.
Gestir skoða sýninguna.
Ljósm. Emilia
Sýningu Jóhanns
Briem að ljúka
N(J ER sfðasta sýningarhelgi yfirlitssýningar Listasafns
fslands á verkum Jóhanns Briem. Sýningin verður opin í
dag og á morgun frá kl. 1.30 til kl. 22 báða dagana. Fram
til þessa hefur sýningin verið mjög vel sótt.
Jón Gunnarsson sýnir
Jón Gunnarsson iistmálari opnar í dag málverkasýningu
að Kjarvalsstöðum og verður sýningin opin fram til 19.
júní n.k. Á sýningunni eru 76 myndir, allt vatnslita-
myndir. Að sögn Jóns eru flestar myndanna fígúratívar
og málaðar á síðustu tveimur árum, en þetta er áttunda
einkasýning Jóns.
Sýningin verður opin frá kl. 14 til 22 alla sýningardag-
ana til og með 19. júní. Myndin er af Jóni hjá verkum
sínum.
„Dagur
iðnaðarins”
á Selfossi
DAGANA 13.—20. júní fer
fram iðnkynning á Selfossi
og fimmtudaginn 16. júnf
verður „Dagur iðnaðarins“
en þá verður opnuð sýning
f gagnfræðaskóla Selfoss.
Þar munu 25 fyrirtæki á
Selfossi kynna framleiðslu
sína og þjónustu. Lýkur
þeirri sýningu á sunnu-
dagskvöld 19. júní. Meðan
á iðnkynningunni stendur
verða íslenzkar iðnaðarvör-
ur kynntar í verzlunum á
Selfossi.
Iðnaðarráðherra, dr. Gunnar
Thoroddsen, og frú Vala Ásgeirs-
dóttir Thoroddsen heimsækja Sel-
foss ásamt nokkrum forystu-
mönnum íslenzks iðnaðar og
munu gestirnir árdegis á fimmtu-
dag skoða nokkur fyrirtæki.
Við oþnun sýningarinnar á Sel-
fossi kl. 13.30 mun Guðmundur
Jónsson, skósmiður, flytja ávarp,
en kl. 14 hefst fundur i Selfoss-
bíói um iðnaðarmál. Ávarp flytur
iðnaðarráðherra og ræðumenn
verða Bragi Hannesson, banka-
stjóri, Óli Þ. Guðbjartsson, odd-
viti, og Einar Elíasson, fram-
kvæmdastjóri. 1 tilefni iðnkynn-
ingarinnar verður gefin út Iðn-
skrá Selfoss og verður henni
dreift í öll hús á Selfossi, en þar
er að finna upplýsingar um iðn-
fyrirtæki og iðnmeistara.
Sú nýbreytni veröur tekin upp
á iðnkynningunni á Selfossi, að
veitt verður viðurkenning til iðn-
fyrirtækja fyrir snyrtimennsku
og góða umgengni á athafna-
svæði. Hefur Junior Chamber-
klúbburinn á Selfossi gefið far-
andbikar, sem afhentur verður í
fyrsta sinn á „Degi iðnaðarins"
fimmtudaginn 16. júní.
Bnmavarðamóti
lauk í gær
í GÆR lauk norrænu bruna-
varðamóti, sem staðið hefur
yfir hér á landi. í gær skiluðu
starfshópar áliti fyrir hádegi í
hádeginu í gær var slökkvistöð-
in i Reykjavík skoðuð og eftir
hádegi var rætt um launamál
og fleira. Mótinu var slitið
seinnipartinn í gær og i gær-
kvöldi.
Sátu norrænu brunaverðirnir
hóf Birgis ísl. Gunnarssonar
borgarstjóra. Brunavarðamótið
hefur þótt heppnast mjög vel
og hápunkturinn var ferð til
Vestmannaeyja á miðvikudag-
inn. Var meðfylgjandi mynd þá
tekin.
Ljósm. Jóhannes Long
á tréverk í garði og húsi.CUPRINOL viðarvörn
sér inn í viðinn og ver hann rotnun og fúa.
I Slippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414