Morgunblaðið - 17.06.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JUNÍ 1977
35
ISLANDSMOT
nærhAlfnað
E
ÞA OPIÐ
IBAÐAENDA
Markaskorarinn mikli I Ii5i ÍBV Sigurlás
Það sem nokkrum leikjum hefur verið frestað f 1. deildinni f knattspyrnu er staða liðanna
nokkuS óljós. Þannig hafa sjö liSanna leikiS 8 leiki, tvö liðanna eru meS 7 leiki og tveimur
leikjum hefur veriS frestaS hjá Vestmannaeyingum, þannig að þeir hafa aSeins leikið 6 leiki.
Þó svo aS liSin hafi þannig leikið mismarga leiki er óhætt að skipta þeim niður f þrjá hópa. í
efsta hópinn verður að setja Akranes. Val og Vfking. í annan hóp liS ÍBK, UBK og Fram. í
þriðja hópinn liS KR, ÍBV, FH og Þórs. Áður en lengra er haldiS skulum viS Ifta á stöSuna f 1.
deildinni. Akranes 8 6 11 14:5 13
Valur 8 5 1 2 11:8 11
Víkingur 7 3 40 7:3 10
ÍBK 84 13 11:12 9
Breiðablik 83 14 11:11 7
Fram 8224 10:12 6
KR 7 2 14 13:11 5
l'BV 6 2 1 3 4:5 5
FH 8 2 1 5 9:14 5
Þór 8 2 1 5 9:18 5
Skagamennirnir hafa tapað fæstum
stigum, aðeins þremur, en lið Þórs og
FH hafa tapað mestu. 1 1 stigum Lið
Akurnesinga hefur skorað flest mörk í
mótinu, 14 alls. Það er athyglisvert að
KR-ingar hafa skorað 1 3 mörk, þar af
1 1 í sfðustu þremur leikjum Víkingar
eru eina liðið, sem ekki hefur tapað leik
í mótinu og reyndar eru Víkingar tap-
lausir yfir lengra tímabil. í Reykjavíkur-
mótinu töpuðu þeir heldur ekki leik.
Þannig hafa þeir leikið 1 2 leiki án taps,
sigrarnir á þessu tímabili eru 4, jafn-
teflin 8. Hafa Víkingar unnið þrjá síð-
ustu leiki sína i deildinni. Hin sterka
vörn Víkinga fær erfitt verkefni í dag,
er liðið mætir Val á Laugardalsvellinum
klukkan 1 7.
Lið ÍBV hefur skorað fæst mörk f
mótinu til þessa. aðeins 4. en Vik-
ingarnir eru litlu skárri hvað þetta
snertir með sín 7 mörk. Þessi tvö lið
eru nokkuð sér á parti hvað mörkin
snertir og einnig ef litið er á fengin
mörk. Víkingarnir hafa fengið á sig
aðeins 3 mörk. Eyjamenn 5. Það er
einnig athyglisvert að þau tvö lið, sem
neðst eru á töflunni, hafa lélegasta
markatölu. FH og Þór, hafa bæði skor-
að 9 mörk í mótinu.
Skagamenn hafa leikið alla sfna leiki
nokkuð vel, ef undan er skilinn sá
leikur sem mesta undrun hefur vakið í
mótinu. Tapleikur Skagamanna gegn
Þór á Akureyri. Valsmenn hafa ekki
alveg fundið rétta tóninn enn þá Þeir
geta svo sannarlega leikið vel, en ná •
einhvern veginn ekki að vera sannfær-
andi í heilan leik. Víkingar hafa misst
talsvert af leikmönnum sfðan í fyrra og
það sem mest háir Víkingsliðinu nú er
hve illa gengur að skora. Árangur liðs-
ins er þó mjög athyglisverður og liðið
hefur unnið þrjá sfðustu leiki sína,
gegn Breiðablik, Keflavík og Fram
Keflvíkingar eiga þá leikmenn. sem
mest hafa komið undirrituðum á óvart
og þó þeir hafi fengið skell gegn
Skagamönnum á mánudaginn, voru
0:4 úrslitin í þeim leik ekki í samræmi
við gang hans Keflvfkingar verða varla
íslandsmeistarar í ár, en falla tæplega
niður í aðra deild í haust eins og
„sumir" spáðu við upphaf keppnistima-
bilsins. Blikarnir eiga í erfiðleikum með
að skora og einnig hafa þeir fengið á
sig ódýr mörk. Liðið er þó eitt af fáum
sem notar kantana vel og á miðjunni er
oft stórgaman að sjá til Blikanna, en
það er bara ekki nóg. Framarar virðast
vera að sækja f sig veðrið. eftir slaka
byrjun íslandsmótsins miðað við
Reykjavíkurmótið Byrjun þeirra er þó
of slæm til að liðið geti gert sér raun-
hæfar vonir um meistaratitil.
KR-ingar eru að sækja sig og hafa
loksins fundið rétta kjarnann eftir að
hafa rokkað með til og frá liðið í
byrjun FH-ingar eiga örugglega eftir
að hala inn gott fleiri stig en þeir eru
nú með og trúlega einnig Þórsararnir,
þó svo að baráttan verði örugglega
mun erfiðari hjá þeim Tvö síðast-
nefndu liðin eru „undir strikinu" eins
og sakir standa. en ekki þarf mikið til
að gjörbreyta stöðunni í 1 deildinni
Ekki skilja nema 4 stig liðið f 4 sæti
og því 10 þ.e. tveir sigurleikir
í upphafi var liðunum í 1. deildinni
skipt í flokka eftir stigum. en einnig
mætti nota aðrar aðferðir við slíka
skiptingu. Til dæmis að raða liðunum
upp eftir hver þeirra leika skemmtileg-
asta knattspyrnu — mat undirritaðs
Yrðu þá Valur, FH. LfBK og ÍA í efstu
sætunum, síðan kæmu baráttuliðin
Víkingur. Keflavfk. Fram og KR. en í
síðasta hópnum ÍBV og Þór Einnig
skiptingin þarna er óljós og t d
lánlausir Eyjamenn hresstust til muna
við að sjá Sigurlás í fótboltabúningn-
um að nýju
Enn er íslandsmótið opið í báða
enda þó svo að mótið sé senn hálfnað
Það sem af er mótinu hefur verið
gaman að fylgjast með og liðin eru vel
undir mótið búin, það leynir sér ekki
Margt óvænt hefur gerzt og á örugg-
lega eftir að gerast — annars væri
ekkert gaman að þessari vinsælustu
íþróttagrein á íslandi. — áij.
LANÐSLEIKUR MILLI
ÍSLANDS OG EYJA?
FYRIRIIUGAÐUR er „lands-
leikur" mílli Vestmannaeyja
og islands til fjáröflunar fyrir
KSt. Lið Eyjamanna verður þá
skipað bæði heimamönnum og
Vestmannaeyingum sem keppa
með öðrum iiðum bæði á fasta-
landinu og erlendis.
Fjölmargir kunnir knatt-
spyrnumenn utan Eyja eru
Vestmanneyingar og má þar
nefna Ásgeir Sigurvinsson sem
leikur 1 Belgfu, Jóhannes
Eðvaldsson sem leikur í Skot-
landi, örn Óskarsson sem
leikur með KR, Kristin
Jörundsson sem leikur með
Fram, Viðar Elíasson sem
leikur með Vlkingi, Atla
Eðvaldsson sem leikur með
Val, ölaf Friðriksson sem
leikur með Breiðabliki og
sfðast en ekki sfzt Guðgeir
Leifsson Tý og Charleroi.
Þá er landsliðsmaðurinn
Ólafur Sigurvinsson f liði Eyja-
manna og margar knáar
kempur eins og Óskar Valtýs-
son, Tómas Fálsson, Páll
Pálmason, Friðfinnur Finn-
bogason og fleiri.
Jóhann Pótur Andersen, for-
maður IBV, og Ellert B.
Schram, formaður KSl, hafa
báðir lýst yfir ánægju með hug-
myndina og er nú unnið að þvf
að finna tfma fyrir leikinn á
næstunni. Er ekki að efa að
landsleikur með þessu sniði
miili „Eyjamanna og Is-
lendinga", ga-ti orðið hinn
skemmtilegasti.
UM HELGINA
0 ÁRLEGA fer fram I Frakklandi
stórt unglingamót t knattspyrnu, og
er Albert GuSmundsson. fyrrum for-
maSur Knattspyrnusambandsins og
atvinnumaSur I Frakklandi, verndari
þessa móts. MeSfylgjandi mynd var
tekin viS upphaf úrslitaleiks
keppninnar fyrir nokkru slSan og eru
sln hvorum megin viS Albert fyrirliS
ar liSa frá Dynamov Kiev frá Rúss-
landi og Flumiense frá Brasiliu. Úrlit
leiksins urSu þau aS Sovétmennirnir
unnu eftir vitaspymukeppni.
NU ER BYRJAÐ
AÐ AUGLÝSA
EFTIR MÖNNUM
„UTFLUTNINGUR" fslenzkra
knattspyrnumanna hefur
mjög verið til umræðu að und-
anförnu og f grein sinni hér á
opnunni gerir Ellert B.
Schram mál þetta að umtals-
efni. Utlendir umboðsmenn
hafa verið hér á landi f leit að
knattspvrnumönnum og f gær
barst Mbl. auglýsing til birt-
ingar, en hana má sjá hér á
sfðunni. Þar er einfaldlega
auglýst eftir knattspyrnu-
manni eins og um atvinnuaug-
lýsingu væri að ræða og er
mikið f boði eins og sjá má.
Kænukeppni
á Nauthólsvík
Kænukeppni I siglingum fer fram á
Nauthólsvik I dag. 17. júní, og hefst
klukkan 10 f .h. Keppt verður i þrem
ur gerSum minni báta og má búast
viS a 20—30 bátar verSi i keppn-
inni. Keppnisstjóri verSur skozki
landsliðsþjálfarinn Alistair Mitchell.
Opin kvennakeppni
Fyrsta opna kvennakeppni
sumarsins i golfi verSur haldinn á
Hvaleyrarvellinum í HafnarfirSi á
morgun, laugardag. og hefst klukkan
13.30. Keppnin nefnist Wella-open.
og eru verSlaun gefin af umboSs-
manni Wella á íslandi, Halldóri Jóns-
syni hf. Keppnin er 18 holur, og er
hún i umsjá Golfklúbbsins Keilis.
Danir unnu Svía
DANIR unnu Svia 2:1 I vináttulands-
leik. sem fram fór á Idrætsparken I
Kaupmannahöfn I fyrrakvöld. Mörk
Dana skoruSu atvinnumennirnir Per
Rönved og Allan Simonsen en Olle
Nordin skoraSi mark Svla. Áhorfend-
ir voru 44 þúsund. Sviar koma hing-
aS til lands I júli og keppa viS Is-
lenzka landsliSiS.
HEIL UMFERÐ verSur i 1. deildinni i
knattspyrnu um helgina og i 2. deild
verSa sömuleiSis fimm leikir.
1. DEILD:
Föstudagur kl 1 7. Laugardalsvöllur:
Valur — Vikingur, Sunnudagur kl
15, Akranes ÍA — ÍBV. laugard.igur
kl 16. Akureyri: Þór — FH Sunnu-
dagur kl. 20. Laugardalsvöllur: KR —
Fram Sunnudagur kl 16. Kópavogur
UBK — ÍBK
2. DEILD:
Laugardagur kl 14. Kaplakriki: Haukar
-— KA Laugardagur kl 16. Sand
gerði Reynir — Þróttur N Laugar
dagur kl 17. Laugardalur: Þróttur —
ÍBÍ Sunnudagur kl 14, Árskógur
Reynir — Völsungur. Manudagur kl.
20 Selfossvöllur. Selfoss — Ármann.
Um helgina verða einnig fjölmargir
leikir I 3 deild, kvennaknattspyrnunni
°9 yogri flokkunum Keppnin í 1.
deildinni heldur siðan áfram á miðviku-
dag I næstu viku og verða þá þrlr leikir
og tveir á fimmtudag, en siðan verður
fri i 1 deildinni fram að leiknum við
Noreg á Laugardalsvellinum
fimmtudaginn 30. júni.
Þess skal getið i sambandi við leik
Akurnesinga og Vestmanneyinga að
Akraborgin fer frá Reykjavík klukkan
1 3 á keppnisdaginn til Akraness og frá
Akranesi til Reykjavikur að leik loknum
klukkan 1 7 30
Þeir f á ekki
réttindi fyrr
en eftir 6 mán.
0 Eins og fram hefur komið f
frétfum, hvggjast tveir atvinnu-
menn snúa heim til Islands og
byrja að leika með íslenzkum lið-
um, Guðgeir Leifsson með IBV og
Elmar Geirsson með Fram. Var
reiknað með þvf að þeir myndu
byrja með sínum nýju liðum í
júlf n.k.
En nú hefur komið i ljós viö
nánari athugun, að samkvæmt
áhugamannareglum Knattspyrnu-
sambands íslands, 7. grein, getur
atvinnumaður ekki öðlazt áhuga-
mannsréttindi fyrr en 6 mánuð-
um eftir að atvinnumennsku lýk-
ur svo að allt bendir til þess að
Elmar og Guðgeir geti ekki byrjað
að leika með sinum nýju félögum
fyrr en næsta sumar.
Knattspyrnumaður
til Svíþjóðar
II. deildar lið í suður-Svíþjóð óskar strax eftir dugandi
tengilið og miðvallarspilara. Við höfum áhuga á fljótri
ákvörðun, en gætum þó hugsað okkur ákvörðun fyrir
keppnistimabilið 1978. Góð vinna og ný íbúð í boði.
Þeir, sm hafa áhuga eru beðnir að senda skriflegar
umsóknir ásamt nafni og símanúmeri til augl. Mbl.
merkt: „Fotboll — 2395".