Morgunblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.06.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNl 1977 iuandgrunnsnefnd: Tvö hagstæð til- boð um jarðefnaleit á landgrunninu — aðkaUandi að móta stefnu í máUnu BRVN nauðsyn er á því að mati Landgrunnsnefndar að mótuð verði stefna I olfuleitarmálum. Segir I skýrslu nefndarinnar, sem dagsett er I nðvember 1976, að nefndin telji, að árunum 1974 o„ 1975 hafi borizt að minnsta kosti tvö tilboð frá erlendum fyrirtækj- um, norsku og bandarfsku, um olfuleit við ísland, sem ástæða hefði verið til að sinna og sé mið- V estmannaeyjar: Féll 40 metra og beið bana SÁ ATBURÐUR varð í Vest- mannaeyjum um miðnætti s.l. laugardagskvöld, að 32 ára gamall maður fór fram af svonefndum Ofanleitishamri syðst á Heimaey og féll 40 metra niður f stórgrýtt flæðarmálið. llann mun hafa látizt samstundis, að þvf er talið er. Lögreglumenn höfðu komið að manninum skömmu áður þar sem þeir voru á eftirlitsferð, en ham- arinn er nærri veginum. Ætluðu þeir að hafa tal af manninumm en hann hörfaði undan þeim og byrjaði að klifra í hamrinum. Virtist maðurinn vera f miklu uppnámi. Lögreglumennirnir reyndu að tala við manninn og róa hann en allt kom fyrir ekki og lét maðurinn sig falla fram af hamrinum. Sigið var eftir líki mannsins. Maðurinn var ókvæntur en hann lætur eftir sig nokkur börn úr tveimur hjónaböndum. ur að þá var ekki búið að móta stefnuna f olfuleitarmálum Landsgrunnsnefnd segir í skýrslu sinni, að þekking á jarð- fræði og eðli landgrunnsins sé ekki komin á það stig að til álita komi að semja við olíufélög um nákvæma könnun og boranir, og segir jafnvel ekki víst, að málið komist nokkurn tímann á það stig. Jarðlög á íslandssvæðinu séu mjög frábrugðin þvi sem er við strendur Noregs og undir Norður- sjónum og því beri að varast að draga ályktanir varðandi íslands- svæðið af árangri olíuleitar á landgrunni Vestur-Evrópu. Enn- fremur sé vinnslutæknin enn svo skammt á veg komin, að þau svæði sem helzt koma til álita að hefðu að geyma olíu, yrðu ekki nýtanleg um sinn, jafnvel þótt þar fyndist olia. Hins vegar fundust í rússnesk- um leiðangri 1973 merki um til- vist kolvetna í jarðlögum á 8—900 metra dýpi á svæðinu milli ís- lands og Jan Mayen. Til þess að afla vitneskju um þykkt, aldur og lögun setlaganna þurfi mun full- komnari búnað en innlendir aðil- ar hafa nú á að skipa. Ymis olíuleitarfyrirtæki hafa svo boðizt til að gera hér við land ýmsar forathuganir á olíulfkum. Þessi fyrirtæki ætla siðan að selja oliufélögum niðurstöður mælinga sinna, en jafnan er gert ráð fyrir því að fslenzk stjórnvöld fylgist náið með rannsóknum og fái ein- tak af öllum gögnum með þeirri kvöð, að þau verði trúnaðarmál í Framhald á bls. 39 Fjölmennustu hátíða- höld hin seinni ár — ÞETTA var með fjöl- mennari útisamkomum á 17. júní hin seinni ár, sagði Bjarki Elíasson yfirlög- regluþjónn, þegar hann var inntur eftir fjölda þeirra sem þátt tóku í há- tíðahöldunum 17. júní í Reykjavík, enda var veðrið gott. Umferðin gekk vel, það var þröngt á þingi við Tjörnina þegar gömlu bíl- arnir óku þar um, en fólk lét það ekki á sig fá, allir vildu sjá þá sem bezt. Að öðru leyti sagði Bjarki að ekki hefði verið um neina eftirmála við 17. júní að ræða, ölvun hefði verið nokkuð mikil við Melaskólann, en þó ekki til vandræða, en margir ungl- inganna, sem þar hefðu* verið hefðu hreinlega „dáið“ og lögreglan því þurft að flytja þá brott. — Þessi fjölmennu hátíðahöld fóru mjög vel fram og það var allt í sóm- anum, sagði Bjarki, það eina sem skyggði á var þessi áberandi mikla ölvun á einum dansstaðnum. VR hafði betur í deilu um stjórn lífeyrissjódsins ALLT FRÁ þvf er samningsaðilar á Loftleiðahótelinu komust að samkomulagi hinn 15. júnf sfðast- liðinn um kauplið samninganna hafa samningafundir verið mjög langir og yfirleitt staðið allar nætur og fram á morgun. Hefur fundum yfirleitt lokið á tfmabil- inu frá klukkan 5 til 6 á morgn- ana. í gærkveldi var boðaður fundur klukkan 20.30 og var óvfst, hvenær fundum lyki. Nú er lokið samningum við all- flest aðildarfélög ASl og ramma samningur samningsaðila liggur fyrir til undirritunar. í fyrradag náðist samkomulag við Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur, en deila kom upp við vinnuveitendur um hversu marga menn VR skyldi hafa í stjórn Lífeyrissjóðs VR. Þar höfðu vinnuveitendur þrjá fulltrúa en launþegar tvo. Sam- komulag tókst í fyrrinótt um að báðir aðilar skyldu eiga jafn- marga fulitrúa í sjóðsstjórninni. Þá náðust einnig um svipað leyti samningar við mjólkurfræðinga, ASB, félag starfsstúlkna í brauða- og mjólkurbúðum, við bílstjórafé- lög og félag leiðsögumanna. Þá náðist einnig samkomulag í gær við Hið íslenzka prentarafélag og Bókbindarafélag íslands. Eftir var að semja við Grafiska sveina- félagið, en það stendur utan Al- þýðusambands íslands. Þó stóðu vonir til þess að samkomulag væri ekki langt undan. Grafiska sveinafélagið stöðvaði I gær í prentsmiðju Loftleiðahótelsins prentun á rammasamningnum, sem menn vonuðust til aó geta undirritað á hverri stundu. Getur þessi stöðvun Grafiska sveinafé- lagsins tafið undirritun samnings- Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samningum: Frítekjumarkið hækkað: í 180 þús. kr. fyrir einstakl- ing og 252 þúsund fyrir hjón Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir aðgerðum til að hækka frítekjumark tekju- tryggingar almannatrygg- inga úr 120.000 krónum á ári I 180.000 fyrir einstakl- ing og úr 168.000 krónum f 252.000 krónur fyrir hjón frá 1. júU n.k. Einnig mun rfkisstjórnin hækka bóta- fjárhæðir almannatrygg- inga frá 1. júlf, þannig að þær lágmarkstekjur, sem almannatryggingar ábyrgjast Iffeyrisþegum hækki f sama hlutfalli og laun verkamanna sam- kvæmt kjarasamningum. Þá mun rfkisstjórnin beita sér fyrir lagabreytingum svo greiða megi fólki, sem búið hefur lengi f óvfgðri sambúð, makalffeyri. Þá verður tekin upp sérstök heimilisuppbót á Iffeyri allra einhleypra tekjutrygg- ingarþega, sem búa einir á eigin vegum, og nemurhún óskert 10.000 krónum á mánuði. Einnig mun rfkisstjórnin beita sér fyrir þeim breyt- ingum á reglugerðum Iff- eyrissjóða, sem nauðsyn- legar eru vegna samkomu- lagsaðila vinnumarkaðarins og tryggja að áfram verði unniðað undirbúningi sam- fellds Iffeyriskerfis fyrir alla landsmenn, sem taki til starfa á árinu 1980. Þá mun rfkisstjórnin í samvinnu við sveitarfélög og rfkisbanka tryggja þvf fólki, sem lýkur starfsævi f opinberri þjónustu og ekki á betri rétt á Iffeyrissjóðum opinberra starfsmanna, sama lágmarksrétt og lögin um eftirlaun aldraðra félaga f stéttarfélögum og sam- komulag aðila færa þeim, sem þeirra njóta. í ársbyrjun 1979: V erkamannabústaðir: Byggingar auknar og greiðslubyrði létt um aðbúnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöðum og skqoum RÍKISSTJÓRNIN hefur jkveSið að skipa sex manna nefnd til aðfjalla um byggingu IbúSa á félagslegum grundvelli. Skal sérstök áherzla lögð á að efla byggingu verka- mannabústaða og kannaðar leiðir til að létta greiðslubyrði lána f sambandi við kaup á þeim. Nefnd- in á að Ijúka störfum fyrir áramót. Rfkisstjórnin skipar þrjá menn f nefndina eftir tilnefningu ASÍ og þrjá án tilnefningar. Nefndin skal sérstaklega taka til meðferðar greinargerð og tillögur ASÍ um húsnæðismál frá febrúar 1977 og vinna að endurskoðun þeirra ákvaaða laga um húsnæðismála- stofnun rfkisins, sem fjalla um byggingu Ibúða á félagslegum grundvelli, f samræmi við yfirlýs- ingar rfkisstjórna um húsnæðis- mál frá febrúarmánuðum 1974 og 1976. Frumvarp að breyttri lög- gjöf verður þá lagt fyrir næsta Alþingi til afgreiðslu. Sem fyrr segir skal sérstök áherzla lögð á að efla byggingu verkamannabústaðe og tryggja nægilegt fjármagn til þeirra og kanna leiðir til þess að létta greiðslubyrði lána fyrstu 3—5 ár- in. Einnig verði aukin ftök laun þega f stjómum verkamannabú- staða. RÍKISSTJÓRNIN mun skipa tvær nefndir til þess að semja frumvörp til laga um aðbúnað. hollustu- hætti á vinnustöðum og f skipum. Skal stefnt að þvl að ný lög um þessi mál taki gildi ekki sfðar en f ársbyrjun 1979. Auk fulltrúa rfkis- stjórnarinnar f nefndum þessum munu fulltrúar launþegasamtaka og vinnuveitenda eiga aðild að þeim. Þá mun rfkisstjórnin beita sér fyrir þvl að næstu mánuði verði gerð sérstök athugun á aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnu- stöðum og mun hún ná til ákveð- ins og takmarkaðs fjölda vinnu- staða. Þetta er gert til að knýja á úrbætur og jafnframt verða niðurstöOur hafðar til hliðsjónar við lagasetninguna. Rfkisstjórnin mun beita sér fyrir þvf að fé fáist til að lána fyrirtækjum svo að unnt verði að koma fram aðkall- andi úrbótum á aðbúnaði og ör- yggi vinnustaða, þar sem þeirra er þörf. Aðilum vinnumarkaðarins verð- ur gefinn kostur á að tilnefna full- trúa til að leggja á ráðin og fylgj- ast með framangreindri athugun og rfkisstjórnin mun stefna að þvf að upp verði tekið reglubundið allsherjareftirlit með öryggismál- um og vinnuvernd á öllum vinnu- stöðum, fyrst f stað með eflingu bess eftirlits, sem fyrir hendi er. ins eitthvað og var óljóst, hvernig þessari synjun þeirra reiddi af i gærkveldi. Þá má geta þess að á laugardag aflýstu fjögur verka- lýðsfélög á Suðurnesjum yfir- vinnubanni. Að morgni 17. júní tókust samn- ingar við málm- og skipasmiði, bakarasveina og þá tókust einnig samningar um unglingakaup og sendlakaup. í gær var enn verið að þrátta um kaup iðnsveina og var það eitt af fáum verkefnum aðalsamninganefndar ASÍ sem ólokið var. Komust ekki áfram ISLENZKU dansmeyjarnar, Auð- ur Bjarnadóttir og Ásdls Magnús- dóttir, komust ekki áfram í al- þjóðlegu ballettkeppninni í Moskvu. Féllu þær út eftir fyrstu umferð keppninnar, að sögn Ivars H. Jónssonar, skrifstofustjóra í Þjóðleikhúsinu. Þetta er í fyrsta skipti, sem ballettdansarar frá islenzkum skóla taka þátt í þessari keppni, en Helgi Tómasson hlaut þar á sínum tlma silfurverðlaun, en han'n starfaði þá sem nú í Banda- ríkjunum. Sveinn Sv. Björnsson látinn Sveinn Sv. Björnsson tann- læknir i Kaupmannahöfn lést hinn 19. ágúst. Útför hans verður gerð föstudaginn 24. júní. Sveinn var fæddur 21. júní 1916. Hann var sonur Sveins Björnssonar, fyrsta forseta íslands. Hans P. Petersen forstjóri látinn Hans P. Petersen kaupmaður, forstjóri Hans Petersen h.f., lézt í Landspitalanum 18. júní s.l. Verzlun hans hefur um árabil verið kunnasta ljósmyndatækja- verzlun landsins. Séra Jakob Einarsson látinn Séra Jakob Einarsson, fyrrver- andi prófastur á Hofi í Vopna- firði, andaðist á Elliheimilinu Grund 16. júní s.l. Séra Jakob var fæddur 1891 að Kirkjubæ í Hróarstungu. Hann lauk guð- fræðiprófi við Háskóla íslands 1917. Séra Jakob gegndi margs konar trúnaðarstörfum á sinni ævi og viðamiklar ritsmíðar liggja eftir hann, m.a. um ættir Aust- firðinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.