Morgunblaðið - 21.06.1977, Side 19

Morgunblaðið - 21.06.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNI 1977 23 egi Islend- urvelli 17. júní. Því miður hefur þetta einfalda sjónarmið ekki hlotið verðskuld- aða virðingu, og af þvi hefur hlot- ist margvislegur vandi. Á næst- unni hljótum við að keppa að því á öllum sviðum þjóðlífsins að ná þessu búskaparlagi. Við ísiendingar viljum halda til jafns i lifskjörum við það, sem best gerist með öðrum þjóðum. Þótt örfáar þjóðir búi við betri lífskjör en við, m.a. vegna betri ytri skilyrða og þróunar um lang- an tíma, eru lifskjör hér betri en i flestum löndum heims. Við höfum þvi enga ástæðu til að kvarta, heldur ber okkur að þakka hlutskipti okkar, sem legg- ur okkur skyldur á herðar að fara vel með stjórn eigin mála og axla að okkar hluta ábyrgð á fram- vindu mála á alþjóðlegum vett- vangi. Föðurlandsástin á að knýja okkur til dáða En hvað sem lífskjörum líður þykir okkur vænt um landið okk- ar. Hér viljum við búa okkur og börnum okkar heimili. Föður- landsástin á að knýja okkur til dáða, opna augu okkar fyrir því mikilvæga, sem sameinar okkur fremur en því smáa, sem kann að skilja á milli okkar. íslenski fáninn er tákn þjóðar- einingar, sýnum honum virðingu og eflum með okkur þjóðrækt, svo að fáninn megi ávallt blakta yfir frjálsum íslendingum í framfara- hug. Gleðilega þjóðhátíð. $onar mí einhuga gegn reykingunum Samstarfi Krabbameins- félags Reykjavíkur og skólanna í Reykjavík og nágrenni lauk formlega, að þvl er varðar starf- ið í 6. bekk í vetur, með fjöl- mennum fundi í Laugarásbíói snemma í maí mánuði. Þangað komu fulltrúar sjöttubekkinga í 28 skólum i Reykjavík, Seltjarnarnesi, í Garðabæ, Kópavogi, Hafnar- firði og á Selfossi, til að taka höndum saman S baráttunni gegn reykingum. í þvi nær öllum þessum skól- um fór fram skipulögð fræðsla um skaðsemi reykinga í sam- vinnu við Krabbameinsfélagið og í mörgum þeirra tóku nem- endur sjötta bekkjar virkan þátt í að fræða yngri skóla- systkin sin um þetta efni að loknum ítarlegum undirbún- ingi í hverri einstakri bekkjar- deild. Auk fulltrúanna var boðið á fundinn skólastjórum, yfir- kennurum, umsjónarkennur- um bekkjanna og fleiri gestum. Var fundurinn að mestu leyti undir stjórn 6. bekkinga. Fluttu þeir ýmis atriði sem urðu til í hópvinnu í bekkjunum í vetur: leikþætti, sögu, visur, samtöl o.fl. Auk þess fluttu nokkrir fulltrúanna skorinorð ávörp. Þá lásu þrír fulltrúar upp til- lögur til ályktana varðandi bar- áttuna gegn tóbaksneyslu. Voru þessar tillögur byggðar á hug- myndum sem komu fram í um- ræðum i skólunum við undir- búning fundarins. Fylgja þær hér með. Að lokinni dagskrá sjöttu- bekkinga fluttu ávörp Ásgeir Guðmundsson skólastjori af hálfu skólanna og Páll Gislason yfirlæknir af hálfu stjórnar Krabbameinsfélags Reykjavík- ur. Lýstu báðir yfir mikilli ánægju yfir samstárfi þessara aðila, sem byggir á margra ára hefð, en er nú nánara en nokkru sinni fyrr. Auk þeirra talaði framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavík- ur, Þorvarður Örnólfsson, en hann hefur skipulagt starfið i skólunum af háifu félagsins og heimsótt þá, suma margsinnis. Mikill einhugur rikti á fund- inum og almenn ánægja með hvernig til tókst. Ályktanir sjöttubekkinga um tókabsmál Samþykktar á fundi í Laugar- ásbiói 4. maí 1977 af fulltrúum frá 28 skólum i Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Reykja- vik, á Selfossi og Seltjarnar- nesi. Stúlkur úr Fossvogsskóla leiða fjöldasöng. Þorvaldur Björnsson kennari f Breiðagerðis- skóla leikur undir á harmonikku. Nemendur úr Breiðagerðisskóla flytja „Vís- ur tóbakspúkans“ við undirleik Þórodds Björnssonar kennara. Unga fólkið greiðir atkvæði um ályktanir gegn tóbaksreykingum. í. Við erum þakklát fyrir þá fræðslu um skaðsemi tóbaks- neyslu, sem við höfum fengið í skólunum í vetur og óskum eft- ir að framhald verði á fræðslu- starfinu bæði fyrir okkur og aðra í skólunum. Einnig finnst okkur nauðsyn- legt að efla fræðslustarf fyrir almenning um þetta efni og sjá til þess að allir sem þurfa geti fengió aðstoð til að hætta að reykja. Við teljum að kvikmyndir og námskeiðið i sjónvarpinu hafi haft mikil áhrif og mælum með þvi að haldið sé annaö sjón- varpsnámskeið á næsta vetri og sýndar verði fleiri kvikmyndir og fræósluþættir um skaðsemi reykinga og um það hvernig menn geti lifað heilbrigðu lifi. 2. Við erum mjög ánægð með að Alþingi hefur nú bannað allar tóbaksauglýsingar frá 1. júni næstkomandi og vonum að allir virði þessi nýju lög. Okkur finnst að fullorðna fólkið ætti að forðast að gera nokkuð sem getur orðið til þess að börn og unglingar byrji að reykja. Til dæmis ætti fólk alls ekki að senda börn í búðir eftir sígarettum og reyndar ætti alveg að hætta að selja börnum og unglingum tóbak. Einnig finnst okkur rétt að stefna að þvi að tóbak sé ekki selt i matvörubúðum. Vió teljum líka að verð á tóbaki ætti að vera mun hærra en nú, til dæmis 500 krónur pakkinn, og með þvi mætti draga úr reykingum ungs fólks. 3. Við teljum nauðsynlegt að fjölga sem mest þeim stöðum og farartækjum þar sem reyking- ar eru takmarkaðar eða alveg bannaðar. Sérstaklega finnst okkur sjálfsagt og leyfa ekki reyking- ar á stöðum þar sem fram fer starfsemi fyrir börn og unglina t.d. i barnaheimilum, skólum, tómstundaheimilum og iþrótta- húsum eða á samkomum sem börn og unglingar sækja. Til dæmis ætti alls ekki að leyfa reykingar í hléum á barnasýn- ingum i bióum eða leikhúsum. Einnig teljum við nauðsyn- legt að koma í veg fyrir reyk- ingar I öllum sjoppum og lokuð- um biðskýlum. Reyndar finnst okkur að það ætti að hlífa börnum við tóbaks- reyk eftir þvi sem mögulegt er ekki siður á heimilunum en annars staðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.