Morgunblaðið - 21.06.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JUNl 1977
19
Sjaldan fleirí kepp-
endur og óvenju góður
árangur hjá kytfingum
EITT ALSTÆRSTA golfmót, sem haldið hefur verið hérlendis,
fór fram á Nesvellinum á Seltjarnarnesi frá þvf á fimmtudaginn
og lauk á sunnudagskvöld. Var þetta Pierre Roberts-keppnin og
voru alls 224 kylfingar með f mótinu að þessu sinni. Af þeim voru
43 f meistaraflokki og sigraði Ragnar Ólafsson þar eftir jafna og
skemmtilega keppni. Var árangur einstaklega góður, eins og sést
á þvf, að sigurskorið frá f fyrra, 148 högg, nægðu aðeins til
10.—12. sætis að þessu sinni.
Lék meistaraflokkurinn allar
36 holurnar ásunnudaginn og
fengu þessir fremstu kylfingar
landsins mjög gott veður til
keppni á góðum Nesvellinum.
Framan af leit út fyrir sigur
Islandsmeistarans Björgvins
Þorsteinssonar, sem lék á pari
vallarins fyrstu 18 holurnar,
eða á 70 höggum. 1 seinni
hringjunum tveimur hlekktist
Björgvini þó illilega á á 9.
braut, fór hana á 8 og 6 högg-
um, sem var of mikið til að eiga
nokkra möguleika í hinni jöfnu
keppni.
Ragnar sótti hins vegar í sig
veðrið er leið á keppnina og lék
seinni 18 á pari og kom inn sem
öruggur sigurvegari á 141
höggi. Sagði Ragnar að sér
hefði komið sigurinn á óvart,
því hann hefði ekki getað æft
sem skyldi að undanförnu
starfs síns vegna, en Ragnar sér
um rekstur golfskálans í Graf-
arholti og framkvæmdir á vell-
inum. Er árangur Ragnars og
Björgvins á 18 holum jafn vall-
armeti Björgvins Þorsteinsson-
ar, 70 högg, en völlurinn er að
vísu heldur einfaldari nú en er
Björgvin setti met sitt. Þá er
árangur Ragnars á 36 holum
nýtt vallarmet á Nesvellinum.
1 öðru sæti I keppninni varð
Loftur Ólafsson, sem eins og
Ragnar hefur þó litið æft að
undanförnu. Þriðji varð siðan
sigurvegarinn i þessari keppni
frá í fyrra, Jón Haukur Guð-
iaugsson, sérfræðingur I Pierre
Roberts-keppninni. Unglinga-
meistarinn Sigurður Pétursson
varð fjórði og kom síðan hver
kempan af annarri, en Islands-
meistarinn varð I 9.—12. sæti
að þessu sinni.
Mót þetta gaf samtals 135 stig
til landsliðsins í golfi og fékk
Ragnar 44.65 stig. Er hann með
flest stig landsliðsmanna, 89.14.
Magnús Halldórsson er með
81.39, Sigurður Pétursson hef-
ur 77.71, Björgvin 71.47, Hálf-
dán Þ. Karlsson 58.88, Loftur
Ólafsson 55.85, Þórhallur Hólm-
geirsson 46.07, Jón Haukur
Guðlaugsson 45.68, Óskar Sæ-
mundsson 36.15 og I 10. sæti i
landsliðsstiganum er hand-
.knattleiksrisinn Ágúst Svavars-
son með 36 stig.
— En til hvers landsliðsstig,
þegar ekkert er landsliðið,
spurði Björgvin Þorsteinsson
að keppninni lokinni. Ákveðið
var nýlega að senda ekki kepp-
endur á Evrópumeistaramót
fullorðinna, sem hefst I Hol-
landi i vikunni, og eru margir
kylfingar mjög óánægðir með
þessa ákvörðun Golfsambands-
ins. Ástæðan fyrir því að is-
lenzka liðið var dregið út úr
keppninni er sú, að sögn Kon-
ráðs Bjarnasonar, að peninga
skortir til ferðarinnar. Verður
hins vegar reynt að koma þrem-
ur beztu kylfingunum, sem
ekki eru i unglingalandsliði, á
golfmót erlendis siðar í sumar.
— Okkur fannst réttara að
senda heldur keppendur á
Evrópumeistaramót unglinga i
Ósló í lok næsta mánaðar held-
ur en til Hollands, sagði Kon-
ráð. — Bæði er ódýrara að
senda keppendur þangað og
auk þess eru 8 af þeim 12 hæstu
I landsliðsstiganum enn á ungl-
ingalandsliðsaldrinum, sagði
Konráð.
Björgvin Þorsteinsson (tv) óskar Kagnari Ólafssyni til hamingju
með sigurinn og þakkar honum skemmtilega keppni.
ÚRSLIT I EINSTÖKUM FLOKKUM 1
PIERRE-ROBERTS KEPPNINNI:
MEISTARAFLOKKUR:
Ragnar Ólafsson, GH 141
Loftur Ólafsson, NK 143
Jón Haukur Guðlaugsson, NK 144
Sigurður Pétursson, GH 145
Júlfus R. Júlfusson, GK 147
ÍVIagnús llalldórsson, GK 147
Gunniaugur Ragnarsson, GK 147
Björn V. Skúlason, GS 147
Óskar Sæmundsson, GR 147
Björgvin Þorsteinsson, GA 148
Geir Svansson, GR 148
Hálfdán Þ. Karlsson, GK 148
1. FLOKKUR KARLA:
Tómas Ámason, GR 75
Björn V. Skúlason, GS 77
Knútur Bjömsson, GK 77
2. FLOKKUR KARLA:
Jón Skarphéðinsson, GS 78
(forgeir Þorsteinsson, GS 81
Sverrir Guðmundsson, GR 81
3. FLOKKUR KARLA:
Jens Karlsson, GK 85
Aðalsteinn Guðlaugsson, GR 85
Jens V. Ólason, NK 86
MEISTARAFLOKKUR KVENNA:
Jóhanna Ingólfsdóttir, GK 81
Sigurbjörg Guðnadóttir, GV 86
Kristfn Pálsdóttir. GK 88
1. FLOKKUR KVENNA:
Guðrfður Guðmundsdóttir, GR 98
Hanna Holton, NK 98
HannaGabrfelsdóttir, GR 104
UNGLING AFLOKKUR:
Guðjón Guðmundsson, GK 76
Eyþór Kristjánsson. NK 81
Páll Ketilsson, GS 82
DRENGJAFLOKKUR:
Magnús Stefánsson, NK 82
Tryggvi Traustason, NK 82
Ásgeir Þórðarson, NK 83
Hinn bráðefnilegi hástökkvari úr FH, Guðmundur Guðmundsson. (Ijðsm. Friðþjófur).
Hreinn vann langbezta
afrek Þjóðhátíöamnótsins
LlTIL REISN var yfir þjóð-
hátiðarmótinu i frjálsum iþrótt-
um, sem fram fðr á Laugardals-
vellinum 16. og 17. júni. Margt af
okkar bezta fþróttafólki tók ekki
þátt í mótinu ýmist vegna dvalar
erlendis eða af öðrum ástæðum.
Árangur var fyrirleitt slakur en
hæst bar kúluvarp Hreins Hall-
dórssonar, 20,35 metrar. Fyrir
þetta afrek hlýtur Hreinn For-
setabikarinn i ár og var hann svo
öruggur um að hljóta bikarinn, að
menn þurftu ekki einu sinni að
lita á stigatöfluna til að bera
saman árangur Hreins og annarra
í mótinu. Hreinn á við meiðsli að
striða I hægra fæti og getur hann
þvf ekki tekið nákvæmlega rétta
atrennu. Er lftill vafi á þvf að
Hreinn kastar yfir 21 metra ef
Landsleikur
viö Færey-
inga 15. júlí?
STJÓRN KSÍ hofur ritaö Færeyska
knattspymusambandirtu brif 09 ósk-
aö eftír landsleik milli þjóöanna I
ReykjavFk föstudaginn 15. júlF n.k.
Sem kunnugt er átti leikur þessi aö
fara frarn F maF s.l. en honum varö að
aflýsa vegna þess að Færeyingarnir
komust ekki til landsins. Færeyingar
hafa ekki enn svarað stjórn KSÍ.
íslendingar leika landsleik við SvFa á
Laugardalsvelli miðvikudaginn 20.
júlF.
Guðmundur
nefbrotinn
HINN marksækni leik-
maður Valsliðsins, Guð-
mundur Þorbjörnsson,
nefbrotnaði illa i leik
Valsmanna gegn Víking-
um síðastliðinn föstu-
dag. Mun Guðmundur
því ekki leika með Vals-
liðinu næstu leiki og
varla fyrr en eftir hálfan
mánuð. Annan fimmtu-
dag er landsleikur gegn
Norðmönnum hér á
Laugardalsvellinum og
er ótrúlegt að Guð-
mundur verði í landsliðs-
hópnum. þá.
hann fær sig góðan af meiðsl-
unum.
Urslit urðu þessi I einstökum greinum:
110 M. GRINDARHLAUP KVENNA Þórdfs Gísladóttir tR 16.5 sek.
STANGARSTÖKK: Valbjörn Þorláksson KR 3.80 m
100 METRA HLAUP PILTA: Guðni Tómasson Á 11.7 sek.
100 M HLAUP TELPNA: Rut Ólafsdóttir FH 13.4 sek.
LANGSTÖKK KARLA: Jón Oddsson HVl 6.57 m.
SPJÓTKAST KARLA: Elías Sveinsson KR 59.73 m.
HÁSTÖKK KVENNA: Þórdfs Gfsladóttir ÍR 1.69 m.
200 M HLAUP KARLA: Björn Blöndal KR 23.5 sek.
400 M HLAUÐ KVENNA: Sígrún Sveinsdóttír Á 59.6 sek.
KCLUVARP KVENNA: Katrfn Atladóttir tr 8.77 m
3000 M HLAUP KARLA: Sigfús Jónsson tR 8.42.8 mín.
KRINGLUKAST KVENNA: Kristjana Þorsteinsdóttir Vfði 30.17 m
110 M GRINDAHLAUP KARLA: Þorvaldur Þórsson lR 15.4 sek.
HÁSTÖKK KARLA: Elfas Sveinsson KR 1.90 m
KRINGLUKAST KARLA: óskar J akobsson ÍR 55.37 m
100 M HLAUP KARLA: Björn Blöndal KR 11.1 sek.
100 M HLAUP KVENNA: Sigurborg Guðmundsdóttir A 12.6 sek.
800 M HLAUP KVENNA Aðalbjörg Hafsteinsdóttir HSK 2.20.5 mfn.
400 M HLAUP KARLA: Þorvaldur Þórsson tR 51.0 sek.
KtJLUVARP KARL4: Hreinn Halldórsson KR 20.35 m
800 M HLAUP KARLA: Gunnar Þ. Sigurðsson FH 1.59.4 mín
4x100 M BOÐHLAUP KARLA: Sveit Ármanns 45.3 sek.
4x100 M BOÐHLAUP KVENNA: Sveit Ármanns 50.8 sek.
Þórir Lárusson, formaður ÍR, og nýkjörinn heiðursformaður
félagsins, Albert Guðmundsson.
Albert heiðurs-
formaður ÍR —
Magnús heiðursfélagi
ÍÞRÓTTAFÉLAG Reykjavíkur bauð nokkrum gestum til
hádegisverðar I Þingholti á þjððhátfðardaginn 17. júnl. Þar
kunngerði Þórir Lárusson, formaður IR, kjör nýs heiðursfor-
manns félagsins og ennfremur kjör heiðursfélaga, en IR varð 70
ára á þessu ári.
Stjórn ÍR hefur kjörið
Magnús Þorgeirsson kaupmann
í Pfaff heiðursfélaga, en hann
hefur starfað fyrir félagið um
áratuga skeið. Þá hefur stjórn-
in kjörið Albert Guðmundsson
heiðursformann, en það er
æðsta virðingarstaða innan fél-
agsins. Tveir menn hafa áður
gegnt starfi heiðursformanns,
Sveinn Björnsson og Ásgeir Ás-
geirsson, en þeir hafa sem
kunnugt er báðir gegnt æðstu
virðingarstöðu Islenzku þjóðar-
innar, forsetaembættinu.
íþróttafélag Reykjavíkur
hefur nú flutt alla sina starf-
semi í Breiðholtshverfi og
hefur félagið nú aðsetur að
Arnarbakka 2.