Morgunblaðið - 21.06.1977, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.06.1977, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR21.JUNÍ 1977 33 félk f fréttum / + Á alþjóðlegu ráðstefnunni um umhverfismál, sem nýlokið er í Reykjavfk, var próf. Edward Kuenen, rektor háskólans ( Leiden f Hollandi, heimsþekktur vfsindamaður og virtur. 4 , , I samræðum við frétta- mann Mbl. kvaðst hann hafa komið fyrr til Islands, fyrst þegar hann var ungur piltur. Þá kom hópur af skólapiltum frá Hollandi til tslands og fékk sumarvinnu á bóndabæjum. Þetta var um 1930. Edward Kuenen lenti á Brúsastöðum f Þingvallasveit. Þar fór hann oft með hest og kerru niður á Þing- velli, þvf þar stóðu yfir ein- hverjar framkvæmdir. Þar var þá Jóhannes Kjarval oft að mála f hrauninu. Ilollenzki pilturinn stanzaði oft hjá honum og Kjarval kallaði hann jafnan Rembrandt. Einn góðan veðurdag skar Kjarval svo mvndina. sem hann var að ljúka við, úr blindrammanum og gaf piltinum til minja. Þessi Þingvallamynd eftir Kjarval hefur öll þessi ár prýtt vegginn f stofu þessa fræga prófessors. Og þegar blaðamaður Mbl. sagði honum, að hér væri sér- stakt Kjarvalssafn, rekið af Reykjavfkurborg, sem vafa- laust mundi vilja vita ef hann léti myndina, þá sagði hann fast: Hún verður aldrei látin! Próf. Kuenen er f miðið á meðfylgj andi mynd, ásamt vísindamönnunum próf. Gold- berg og dr. Reid Brayson. — E.Pá. + Nýskipaður sendiherra Tyrklands hr. Erden Erner afhenti 14. þ.m. handhöfum forsetavalds f veikindaforföllum forseta tslans trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Ólafi Jóhannessyni er gegnir störfum utanrfkisráðherra f veikindaforföllum Einars Ágústs- sonar. Sfðdegis þá sendiherrann boð handhafa forsetavalds f Ráðherra- hústaðnum ásamt nokkrum fleiri gestum. Sendiherrann hefur aðsetur f Osló. + Það hefur nú verið tilkynnt op- inberlega að Anna Englands- prinsessa eigi von á barni f nóvem- ber. Barnið mun þó ekki bera konunglegan titil nema Mark Phillips, eigin- maður Önnu. taki tilboði Ellsabetar drottningar um aðalstitil en hon- um hefur hann hafnað hingað til. Anna prinsessa er sem kunnugt er mikil hestakona en verður nú að leggja reið- mennskuna á hill una næstu mán- uðina. + Andrew prins. sonur Ellsabetar Englandsdrottningar, hefur f vet- ur verið f skóla f Ontario f Kanada. Hann er skiptinemi og nýtur engra forréttinda f skólan- um en þykir góður nemandi og er sagður gáfaðastur af börnum Ellsabetar. Andrew, sem er 17 ára. hefur verið vinsæll I skólan- um og stúkurnar bfða f biðröðum til að fá að dansa við hann. Sjálf- ur segist Andrew njóta þess að vera bara einn úr hópnurtt. laus við allar konunglegar siðareglur. Stúlkan sem þarna er með Andrew heitir Sandi Jones 16 ára og var daman hans á fyrsta skóla- ballinu f Ontario. Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóðleikhúsinu m Léttsemfis ....og endist og endist Við sjáum yfirleitt bara ristina i frárennsliskerfinu. Undirhenni eru ótalmargir hlutar, sem hjálpast að við að koma vatninu á leiðarenda. VATNSVIRKINN hefur allt, sem til þarf í þessu sambandi. VATNSVIRKINN hefur starfað í 25 ár sem sérverzlun með efnivörur til pipulagna. VATNSVIRKINN býður viðskiptamönnum sínum einungis úrvals vörur, sem eru þekktar að gæðum. VATNSVIRKINN kynnti árið 1966 frárennsliskerfi, sem er unnið úr plastefninu polypropylene. Þetta efni hefur augljósa kosti: • Það þolir sjóðandi vatn og sýrur. • Það er létt sem fis. • Það endist.....og endist. Vatnsvirkinn hf Ármúla 21 - Sérverzlun meö efnivörur til pípulagna Reiðskólinn í júlí og ágúst Vegna mikillar þátttöku í námskeiðum í júní verða ný námskeið fyrir börn og unglinga I júlí og ágúst. Nemendur fá fjölþætta, alhliða þjálfun á hest- baki ásamt bóklegri kennslu. Kennslan fer fram í gerði en einnig er farið í útreiðatúra. Haldnar eru kvöldvökur og farið í leiki. Þátttakendur-geta komið með eigin hesta. 21. júlf—2. ágúst (13 dagar) ByrjendanámskeiS 13. ágúst—25. ágúst (1 3 dagar) Byrjendanámskeið 25. ágúst—1. september (8 dagarj FramhaldsnámskeiS Nánari upplýsingar og bókanir hjá Ferðaskrifstofunni Úrval, Sími 26900. Hestamiðstöóin Geldingaholt Reiöskóli,útreióai;tamning,hrossarækt og sala Gnúpverjahrepp, Árnessýslu • Sími um Ása EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.