Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNI 1977 21 Alaskaolían: Flutningsverð verði lækkað Washington, 29. júnf. Reuter. ÁTTA fyrirtæki sem sjá um að flytja ollu um nýju Alaskaleiðsluna, fengu I dag fyrirmæii um að lækka verulega gjald það sem þau höfðu lagt til að tekið yrði fyrir flutning ollunnar þessa 800 mflna leið. Höfðu fyrirtækin óskað eftir því að hver oliutunna frá leiðsl- unni yrði verðlögð á 6.04—6.44 dollara, en ICC, stofnun sú sem sér um verðlagningu neðanjarðar- auðlinda, hefur gefið yfirlýsingu um að þetta sé alltof há verðlagn- ing og sagt að fyrirtækin fái ekki að taka nema frá 4.68 dollurum og upp i 5.10 dollara á tunnu. Ekki er vitað að svo stöddu hvort olíu- félögin verða umyrðalaust við þessum boðum, eða hvort þau áfrýja úrskurðinum. Talsmenn sumra fyrirtækjanna höfðu áður Johnson var með húðkrabba Washington, 29. júni. Reuter. SKURÐLÆKNAR gerðu smá- aðgerð á Lyndon B. Johnson, fyrrverandi Bandaríkjafor- seta, sem reyndist vera húð- krabbamein á vinstri ökkla. Talsmaður bandariska flotans staðfesti fregnir þessa efnis í dag. Hann sagði að aðgerðin hefði verið gerð i Hvita húsinu I október 1967 eða tæpum f jór- um árum eftir að Johnson tók við embætti forseta. Frá að- gerðinni var ekki skýrt þá. Talsmaðurinn Thomas Cold- well sagði að milli 30—40 ber hefðu verið skorin úr líkama Johnsons á árunum frá 1965—1969 en ekkeert þeirra reynzt illkynjað nema þetta. Coldwell sagðist hafa fengið umboð nú frá ekkju Johnsons til að skýra frá þessu. Vélar hurfu Tókíó, 29. júní. Reuter. TVÆR japanskar Lockheed Starfighter vélar hurfu í dag meðan þær voru I æfingarflugi yfir suðurhluta Japans í dag, að því er talsmaður varnar- málaráðuneytis Japans sagði i dag. I tilkynningunni var sagt að verið gæti að vélarnar hefðu rekizt á og hrapað í sjó niður. Leit er hafin að flug- mönnunum að sögn Reuters og er henni beint 80 milur suður af Nagasaki. Samvinna efld Ósló, 28. júní. Reuter. FULLTRUAR Noregs og Portúgals skrifuðu í dag undir samkomulag um aukna sam- vinnu á sviði efnahagsmála á þessu ári og því hinu næsta. Fylgdi samkomulagsgjörð þess i kjölfar tveggja daga við- ræðna fulltrúa þjóðanna og segir þar að framlag Noregs til Portúgals á þessu ári muni verða um það bil 5.4 milljónir sterlingspunda. Er þetta í formi fiskafurða sem Norð- menn selja Portúgölum, svo og ýmissa landbúnaóarvara. Sam- vinna verður efld á sviði feróa- heilbrigðis- og efnahagsmála. 14 létust — 218 slasaðir Sao Paulo, Brazilíu, 29. júni. Reuter. FJÓRTÁN manns létust og 218 slösuðust I geysilegu umferð arslysi sem varð á hraðbraut- inni skammt frá Sao Paulo i dag. 151 ökutæki skemmdist meira eða minna. Að sögn lög- reglunnar má rekja orsakir þessa slyss til þess að niða' dimm þoka var og skyggni nán- ast ekkert. Bilarnir óku hver aftan á annan. látið að þvi liggja að fyrirtæki þeirra myndu alls ekki sjá um rekstur leiðslunnar nema um- beðið verð fengist fyrir. Tals- maður ICC kvaðst ekki búast við að nein harka kæmist i málið. Byrjað var að flytja oliu eftir leiðslunni i siðustu viku en olían fer aðeins með miluhraða á klukkstund og verður þvi fyrsta olian ekki komin til hafnar- borgarinnar Valdez fyrr en um miðjan júlimánuð. Þar verður olían sett í olíuskip og sfðan flutt I oliuhreinsunarstöðvar á vestur- strönd Bandarikjanna ellegar gegnum Panamaskurðinn. KÍNA — Þessar tvær myndir sýna grafhýsi Mao Tse-tungs i Peking, sem vígt var 24. mai eftir aðeins 6 mánaða byggingartíma. Kínverjar harðorðir: Risaveldin reyna að kúga þróunamkin og arðræna þau... S.þ. 28. júní. Reuter. Kínverjar ásökuðu Bandaríkjamenn og Sovét- rfkin um það í dag að spilla fyrir þvf að samkomulag næðist um ný hafráttarlög. Eyjólfur Konráð Jónsson: Hrikalegasta ræða — sem ég hef heyrt en endaði sem grín” „ÞETTA var einhver hrikalegasta ræða sem ég hef heyrt,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, alþm., einn fulltrúa Islands á Hafrétt- arráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um ræðu kfnverska aðalfulltrú- ans I allsherjarnefnd ráðstefnunnar i gær. „Að vísu talaði fulltrúinn alltaf um „risaveldin" í fleir- tölu en engum gat blandast hugur um að skeytunum var beint að Sovétrikjunum. í fyrsta lagi var ræðan algerlega óheimil, a.m.k. á þessum stað og stundu. Hún var ekki á dag- skránni og ekki var meiningin að ræða neitt efnislega. Forset- inn barði því margsinnis I borð- ið og hótaði kinverksa fulltrú- anum þvi að taka af honum orðið, en hann lét það sem vind um eyru þjóta og hélt áfram hinum blóðugustu svívirðing- um sem fyrst og fremst var beint að Sovétríkjunum fyrir kúgun gagnvart þróunarrikjun- um og þeirri stefnu ætti ber- sýnilega að halda áfram að þau sölsuðu undir sig öll auðæfi heimsins og fleira I þeim dúr. Þetta gekk nú svo langt að það endaði meó því að fulltrúarnir voru flestir farnir að hlæja. Um viðbrögð af hálfu Sovétmanna var síðan ekki að ræða. Þó að segja megi að þetta hafi kannski ekki verið nein nýjung að heyra slíkan málflutning, en það sem gerir þetta furðulegt er einmitt að forseti ráðstefn- unnar hafði ítrekað hvað eftir annað að engar umræður um annað en væntanlegt fyrir- komulag á ráðstefnunni mættu fara fram. En Kinverjar létu það sem sagt sem vind um eyru þjóta. Svo hefur virzt sem Kin- verjarnir leiki sér að þvi að reyna að æsa upp, enda vilja þeir náttúrlega alls ekki að nein sáttmáli verði gerður í ná- inni framtíð, sérstaklega ekki um hafsbotninn af því að þeir eru ekki tilbúnir til að vinna auðæfin þar og vilja þvi allt eins að þetta dragist allt á lang- inn. Aðalfulltrúi Kínverja, Shen Wi Luang, sagði að risaveldin reyndu að halda í einræðisvald sitt og beittu öllum gömlum og nýjum ráðum til að kúga önnur rfki og arðræna þau, meðal annars að auðlind- um á hafsbotni. Fulltrúinn sagði þetta á fundi alls- herjarnefndarinnar, þar sem dagskrá ráðstefnunn- ar var til umræðu. Forseti ráðstefnunnar, Shirley Amerashinghe frá Sri Lanka, reyndi hvað eft- ir annað að taka orðið af kínverjanum, en hann lét ekki segjast og hélt ótrauð- ur áfram. Hann sagði að nýr sáttmáli yrði að byggj- ast á ýmsum tillögum frá þróunarríkjunum og standa yrði að honun á lýð- ræðislegan hátt, en svo virtist sem risaveldin tvö ætluðu aö reyna allt sem þau gætu til að koma í veg fyrir þetta. Var af ræðu hans ljóst að hann átti við Bandaríkin og Sovétríkin í ræðu sinni þótt þau væri ekki nefnd sérstaklega og auk þess telja sérfræðing- ar að umfram allt hafi þess- um skeytum verið beint að Sovétríkjunum. Sjö brezkir guðfræðing- ar skrifa bók um Jesúm London, 29. júni. Reuter. SJÖ ÞEKKTIR brezkir guðfræð- ingar fjalla um það i bók sem er væntanleg á markaðinn i þessari viku, hvort Jesús Kristur hafi ver- ið guð i mannsmynd ellegar mað- ur, sendur af guði til að gegna sérstöku guðlegu hlutverki. Bók- in heitir „The Myth of God Incarnate" og það eru Kristileg stúdentasamtök I Bretlandi sem gefa út bókina. Utgáfufyrirtækið spáir þvf að bókin muni valda meira fjaðrafoki en nokkur önn- ur bók um guðfræðileg efni sem gefin hefur verið út um margra ára skeið. Niðurstaða bókarinnar er sögð vera sú að hafi Jesús verið viður- kenndur af guði, en ekki viður- kenndur sem guð i mannsmynd, muni það geta haft mikil áhrif á samband og samskipti kristinnar trúar við önnur alheimstrúar- brögð. Hafréttarráðstefnan: Nýr texti saminn „f gær var ákveðið hér á hafréttarráðstefnunni að saminn yrði nýr texti sem forseti þingsins og formenn nefndanna semdu og að þessi texti yrði tilbúinn um miðja næstu viku og þá yrði svigrúm til að ræða hann að nokkru og taka ákvörðun um hver framvindan yrði,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson í samtali við Mbl. í gær. En líkur benda til að ekkert lokasamkomulag verði á þessum fundi og hneigist allt í þá átt að einn fundur verði haldinn enn og þá á næsta ári. „Þetta var ákveðið i allsherjarnefnd hafréttarráðstefnunnar og verður sjálf- sagt reynt að ræða þennan texta eitthvað töluvert áður en upp verður staðið nú,“ sagði Eyjólfur Konráð að lokum. Ritstjóri bókarinnar, John Hick prófessor i Birmingham, sagði á blaðamannafundi í dag að hann liti svo á að „ef við megum aldrei segja neitt sem vekur hneykslan, getum við aldrei opnað munn- inn." Hann sagðist i ritgerð sinni lýsa Jesúm sem unaðslegustu mannveru sem lifað hefði á jörð- inni. ERLENT Greenpeace hefur að- gerðir senn Washington, 29. júní Reuter. EINS og sagt hefur verið frá I Mbl. hefur umhverfismálastofn- unin Greenpeace ákveðið aS gera ráSstafanir til aS hindra hvala- dráp. Hafa samtökin aflaS sár skips I þessu augnamiSi og var tilkynnt I dag aS skipiS myndi leggja af staS I „björgunarleiS- angur" sinn I þágu hvalanna nú I mánaSarlokin. Hafa endurbœtur veriS gerSar á skipinu, sem er gamall tundurduflaslæSari, og getur þaS nú veriS samfellt á hafi úti I fjörutlu daga I staS þrjátlu áSur. í Reuterfrétt segir aS aSgerSir muni einkum beinast gegn veiS- um Sovéta og Japana og enda kom þaS fram I fyrri frétt Mbl. um þetta mál. Þessar þjóSir veiSa rosklega 75% allra hvala sem árlega eru veiddir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.