Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUpAGUR 30. JUNI 1977 31 RA YMQNT BARRE síðasta trompspil forsetans Þegar Reymond Barre, sem milljónir Frakka höföu aldrei heyrt nefndan fyrr, varð for- sætisráðherra landsins í ágúst 1976, sagði eitt frönsku blað- anna, að í útliti minnti hann sterklega á Ludwig Erhard, höfund þýzka efnahagsundurs- ins. Það væri að minnsta kosti góðs viti. Síðan eru senn liðnir níu mánuðir, en enginn hefur enn séð hilla undir franskt efnahagsundur. En þegar Barre myndaði annað ráðu- neyti sitt í marz s.l., litu milljónir Frakka á hann sem traustvekjandi mann, sem tryði að visu ekki á kraftaverk, en gerði sér ljósa grein fyrir þvi, hvað nauðsynlegt væri i Frakk- landi í dag i staðinn fyrir kraftaverk. En hið kynlega er, að þessir níu mánuðir hafa nægt til að skapa einhvers konar goðsögn um nafnið Barre. Ekki svo að skilja, að hann hafi skort hat- ramma andstæðinga. Þá væri nær að segja, að leiðtogi sósial- ista, Mitterand, verkalýðshreyf- inngin og kommúnistar hefðu veitt honum harðvítuga mót- spyrnu. 1 augum vinstrimanna er hinn góðborgaralegi Rey- mond Barre ímynd hins stöð- uga atvinnuleysis yfir milljón manna i Frakklandi. Það kemst að sjálfsögðu ekki inn í höfuðið á þeim, að þessi forsætisraæð- herra er að sögn færasti efna- hagssérfræðingur Frakka — en þannig kynnti forsetinn hann í fyrra. Og milljónir Frakka taka það allt að því sem storkun, þegar þessi lágvaxni, bústni og snyrtilegi maður segir með hóg- værum orðum, að atvinnuleysið sé að vísu mjög alvarlegt, en i Frakklandi verði baráttan gegn verðbólgunni að hafa algeran forgang. Barre flytur mál sitt á skýran og rökvisan og jafnframt virðu- legan hátt, og Frakkar líta því á hann sem háskólaprófessor. Hann getur ekki dulið sitt eig- inlega starf. Fyrstu fyrirlestra sína hélt hann 1950 í Caan, en frá 1963 i Paris um stjórnmála- hagfræði. Hann hefur skrifað rit í tveimur bindum um efnið, og er það til i öllum frönskum bókasöfnum. Ekki verður skýrt með jafn útþvældum hugtökum eins og hægri og vinstri, hvar Barre sjálfur stendur. „Það er ekki hægt að flokka mig niður,“ sagði hann, þegar hann tók við embætti forsætisráðherra. Hann er á engan hátt svipaður hinum liðugu frönsku stjórn- málamönnum, sem hafa olnbog- aö sig áfram og talað sig upp í háar stöður i París. Hann er svo sparneytinn á orð, að það er eins og hann þyrfti að borga þau úr eigin vasa. Án mikiliar harðneskju En ástæðan til þess, að forset- inn skipaði hann forsætisráð- herra, var sú, að það var álit fjölmargra, að það væri komið undir Barre-áætluninni, sem gerð var opinber þegar i sept- ember 1976, hvort núverandi stjórnarflokkar myndu enn halda velli í næstu þingkosn- ingum, sem fram eiga að fara í marz 1978. Nafn Barres er tengt viðreisnaráætluninni fyr- ir hið franska efnahagslif, en hún er samsafn sigildra ráðstaf- ana, þar sem sneitt er hjá allri harðneskju, en árangurinn næst aðeins, ef áætlunin í heild sinni fær að standa í nægaft tíma: gjaldmiðilinn, frankann, á að treysta, draga úr hallanum á viðskiptunum við útlönd, hamla gegn dýrtíðinni, tryggja vöxt iðnaðarins og reka halla- lausan ríkisbúskap. En um fram allt vill Barre sem nýr forsætisráðherra gera þjóðinni það ljóst, sem verkalýðsfélögin hafa tekið sem opinbera stork- un, að Frakkar eigi á árinu 1977 í mesta lagi að halda óskertum kaupmætti. Aukning kemur ekki til greina. Þessu lýsti hann yfir þegar i upphafi valdaferils sins. Launþegar og vinnuveitend- ur, sem voru orðnir vanir hinu þægilega verðbólguhugarfari, hafa nú stunið og kveinað i niu mánuði. Þegar vinstri flokkarn- ir og verkalýðssamtökin ásaka Barre um að viðhalda atvinnu- leysinu til að tryggja atvinnu- rekendum sinn fyrri arð, verða kveinstafir atvinnurekenda si- fellt háværari, vegna þess að efnahags- og fjármálastefna þessa prófessors Barre hafi lok- að svo fyrir allt fjármagns- streymi, að hætt sé við að fjöldi fyrirtækja muni leggja upp laupana. En fram að þessu hef- ur Barre ekki látið þoka sér af braut hinnar „skipulögðu frjálslyndisstefnu'*. Eftir nið- urstöður bæjar- og sveitastjórn- arkosninganna 20. marz s.l. sem voru stjörnarflokkunum mjög óhagstæðar, lýsti Barre því yf- ir, að kosningaúrslit myndu engin áhrif hafa á stefnu sina i efnahagsmálum. Hann telur hana hina einu réttu tii lengdar og hiria sameiginlegu stefnu vinstri flokkanna með þjóðnýt- ingaráformum sinum vera hreina skýjaborg. Ef Frakkar myndu samt kjósa vinstri flokk- ana að ári, þá muk Barre eins og hann hefur sagt vinum sín- um — fara frá völdum, en „bera höfuðið hátt". Hann trúir því, að það sé langt því frá, að öllum sem mistekst, hafi á röngu að standa. Reymond Barre fæddist fyrir 52 árum á frönsku eynni Ré- union í Indlandshafi, og það var ekki fyrr en 1948, sem nú- verandi forsætisráðherra Frakka kom til Frakklands. H:nn stundaði siðan nám i París og varð brátt að því loknu háskólakennari. 1959 varð hann svo persónulegur ráðunautur og aðstoðarmaður þáverandi iðnaðarráðherra, Jeanneney, sem var náinn og gamall trún- aðarmaður de Gaulles. Til þess tima má rekja hina hóflegu og duldu tilhneigingu Barres til gaulliskra hugsjóna. Um- bótakenningar vinstri kaþó- likka frá þeim tima höfðu einn- ig varanleg áhrif á Barre. 1967 gerði de Gaulle hann að varaformanni frönsku sendi- nefndarinnar hjá Efnahags- bandalaginu i Brússel, og þvi starfi gegndi hann í sex ár og var þá ábyrgur fyrir efnahags- og fjármálastefnu bandalags- ins. Hann hófst þó ekki yfir það að vera þjóðlega sinnaður i því starfi: Fram að þessu hefur Barre talið það sér til gildis, að hann hafi ekki getað hrifizt af eldmóði þeirra, sem hafi viljað gera Evrópu að nýju föður- landi. Hann hélt sig alltaf við hið áþreifaniega, það sem hægt var að gera með þeim ráðum, sem fyrir hendi voru. Tvær Barre-áætlanir frá 1969 og 1970 höfðu það að markmiði að sam- ræma betur efnahags- og fjár- málastefnu bandalagsríkjanna og skapa grundvöll að evrópsku gjaldeyrissambandi eða banda- lagi. Þær strönduðu á þeim að- stæðum og einnig, að þvi er Barre telur, að á þeim tálvon- um og imyndunum, sem emb- ættismannaveldið i Brússel hef- ur skapað og alið með sér. „Efnahagsbandalagið", segir Barre, „líður oft fyrir muninn á hinum mikla rausnarskap og hinum takmörkuðu efnum." Barre telur, að ekkert komi i staðinn fyrir þjóðina. Meira en samband ríkja geti Evrópa að hans áliti ekki orðið um fyrir- sjáanlega framtið. Með hinni nýju ríkisstjórn sinni verður Barre að vinna kosningarnar 1978. Hann er foringi fyrir liði, sem hann hef- ur valið menn i fyrst og fremst eftir þekkingu og skapfestu. Barre hefur óbeit á þeim stjórnmálamönnum, sem reyna að blanda sér inn í mál, sem varða grundvallaratriði i til- veru þjóðarinnar, út frá smásál- arlegum útkjálkasjónarmiðum eða hugmyndafræðilegum kreddum. Barre segir: „Ég er enginn maður fyrir áróður, undirferli og baktjaldamakk" Les gjarna rit Maehiavellis Barre veit það mætavel, að i dag er hann siðasta pólitiska trompspílið, sem Giscard d'Estaing, forseti, hefur enn á hendi. Forin;i Gaullista, Jacques Chirac, fyrirrennari Barres sem forsætisráðherra, stefnir nú opinberlega að for- setaembættinu. Geðspektar- maðurinn Barre gefur ekki neinar slikar hugrenningar i skyn. Hann vinnur störf sín og eyðir hinum takmarkaða fri- tima sínum með konu sinni, ungverskri að ætt, en hún klippir daglega út mikinn fjölda skopmynda, sem birtast i dagblöðunum af manni hennar, og safnar þeim i albúm. Þau eiga tvo syni, sem eru við nám. Reymond Barre unir sér oft við hugleiðingar sinar í hinum fagra garði við embættisbústað- inn, Palais Matignon. Allir vita, að Barre verður aftur háskóla- kennari, þegar hann lætur af störfum sem forsætisráðherra. Nýlega spurði fréttamaður Barre: „Stíga völdin yður til höfuðs?“ „Nei, þvi fer fjarri," svaraði Barre, sem á siðkvöld- um les stundum rit Machia- vellis í hægindastólnum — svo að lítið beri á. — Svá —úr Siiddautsche Zeitung. FRAKKAR VERÐA AÐ GERA SÉR GREIN FYRIR ALVARLEGUM STAÐREYNDUM Nú er kominn lúxusís frá Emmess: appelsínuís og marsipanís meö piparmyntusósu. f^omaCs/nni... /■ V Mm ^ 1 j 1 1 • . JH' :*S| él j jJpmwii' “ ^ ‘ tjj ■ L * 1 ihib-.Awr...,iátlP’ JíteÆ. jföaaK,. ; ■ 1 '1',v;, | : 1, ... \Pr iÍÍ'I 3.47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.