Morgunblaðið - 06.07.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.07.1977, Blaðsíða 1
32 SIÐUF Demirel heitið þingstuðningi Ankara, 5. júlí. Reuter. SULEYMAN Demirel for- sætisráðherra, sem reynir myndun nýrrar stjórnar f Tyrklandi, fékk í dag lof- orð um stuðning flokks sem er í oddaðstöðu I tyrk- neska þinginu. Flokkur Necmettin Erbakans, Þjóðreisnar- flokkurinn (NSP), hét Demirel stuðningi, en kvaðst mundu setja ströng skilyrði. Flokkurinn hefur 24 þingsæti, er fylgjandi miklum útgjöldum til iðn- þróunar, sem olli fjárhags- erfiðleikum f tfð sfðustu stjórnar Demirels, og er andvfgur hvers konar til- slökunum f Kýpurmálinu. Tilboð Erbakans um stjórnar- samvinnu eða stuðning á þingi gæti leitt til myndunar nýrrar hægristjórnar eins og þeirrar sem fór með völdin fram að kosning- unum fyrir mánuði. Demirel var falin stjórnarmyndun í gær eftir ósigur skammlífrar stjórnar sósíaldemókrata á þingi og hann fagnaði yfirlýsingu Erbakans. Bulent Ecevit, forsætisráðherra fráfarandi bráðabirgðastjórnar, varaði hins vegar við því að engin stjórn gæti verið við völd í óþökk sósíaldemókrata sem er stærsti flokkurinn á þingi. Skilyrðin sem Erbakan setur eru á þá leið að endi verði bund- inn á stjórnleysi innanlands, að barattu NSP fyrir eflingu þunga- iðnaðar verði haldið áfram, að ráðstafanir verði gerðar til að lækka framfærslukostnað og að ábyrgzt verði að fylgt verði utan- ríkisstefnu sem NSP geti sætt sig við. Leiðtogi byltingarinnar ( Pakistan, Mohammed Zia Haq hershöfðingi, boðar herlög og nýjar kosningar. Fundu gildru, ekki lík Kafró, 5. júlí. Reuter. RÆNINGJAR dr. Mohammed Hussein Zahabi, fyrrum trúar- málaráðherra. reyndu f dag að ginna lögregluna inn f íbúð þar sem þeir höfðu komið fvrir sprengjugildru með þvf að segja henni að Ifk Zahabis væri þar. Maður sem sagði ekki til nafns hringdi í erlendar frétlastofur og sagði að lfkið væri í ákveðinni ibúð í úthverfi. Lögreglan fann ekkert lík en hins vegar sprengju- gildru. Pakki með sprengiefni var tengdur þannig að ef einhver hefði kveikt á ljósum f fbúðinni hefði pakkinn sprungið. Lögregl- Framhald á bls. 18 Kosningum heitið eftir byltingu Pakistanshers Islamahad. 5. júlf. AP. Reuter HERINN í Pakistan lýsti í dag yfir herlögum og hét nýjum kosningum I október eftir byltingu sem virðist ekki hafa leitt til blóðsúthellinga. Forseti herráðsins, Muhammed Zia Haq hershöfðingi, skýrði frá þessu í útvarpsávarpi til þjóðarinnar. Bylting- in fylgir í kjölfar misheppnaðra tilrauna stjórnmála- manna til að binda enda á pólitískt umrót sem hefur kostað að minnsta kosti 350 manns lífið. Talsmaður hersins sagði að Zulfikar AIi Bhutto for- sætisráðherra, samráðherrar hans og leiðtogar stjórnar- andstöðunnar hefðu verið settir í gæzluvarðhald. Zia hershöfðingi sagði að hann tæki að sér yfirstjórn her- laga ásamt ráði skipuðu yfirmönnum annarra deilda hersins. N azisti horfínn Buenos Aires, 5. júlí. Reuter. YFIRVÖLD f Argentínu hafa heimilað að Vestur-Þjóðverjar fái framseldan Eduard Roschmann sem er sakaður um að hafa átt mikinn þátt I útrýmingu Gyðinga f Lettlandi þegar landið var á valdi nazista. Hins vegar höfðu hvorki argent- ínskir né vestur-þýzkir embættis- menn hugmynd um það í dag hvar Roschmann væri nið- urkominn. Embættismenn f Bonn Framhald á bls. 18 Zia hershöfðingi sagði að Fazal Elahi Choudhry forseti mundi gegna áfram störfum en stjórn Bhuttos hefði verið vikið frá völd- um ásamt ráðherrum fjögurra fylkisstjórna og að þingið hefði verið leyst upp. Hann sagði að forsetum hæstaréttar í fylkjunum Rúmenar til varnar evrópukommúnisma V!n, 5. júir. Reuler. RtlMENSKA kommúnistamál- gagnið Scinteia birti f dag harða varnargrein um evrópu- kommúnisma og þar koma fram skoðanir sem ganga f ber- högg við afstöðu Rússa. Blaðið kvað það rétt og skyldu hvers kommúnista- flokks að móta eigin stefnu án utanaðkomandi gagnrýni. Scinteia minntist ekki á ný- legar árásir Rússa á spænska kommúnistaleiðtogann Santiago Carrillo, en kvað rangt að kynda undir deilur, halda uppi ásökunum og auka á ágreining f kommúnistahreyf- ingunni. Scintein sagði að stefna hvers flokks yrði að miðast við sér- kenni og lífshagsmuni þess lands sem hann starfaði í. Blað- ið fagnaði tilraunum vestrænna kommúnista til að finna nýjar Nicolae Ceusescu, leiðtogi rúmenskra kommúnista. lausnir á vandamálum sfnum. Sovézka tímaritið Nýir timar hefur kallað Carrillo klofnings- mann og skoðanir hans um evrópukommúnisma and- sovézkar, en árásir blaðsins eru jafnframt taldar beinast gegn frönskum og ítölskum kommúnistum. Auk Rúmena hafa Ungverjar tekið vinsam- lega afstöðu gagnvart evrópu- kommúnisma, en þeir hafa þó farið með gát. Scinteia sagði að nöfn eins og evrópukommúnismi skipti ekki máli en grundvallarsjónarmið væru nauðsynleg. Blaðið sagði að enga tilraun mætti gera til að leggja að jöfnu aðferðir vest- rænna kommúnistaflokka og austur-evrópskra. Blaðið kvað ekki fært að framfylgja byltingu samkvæmt einhverri einni forskrift eða þvingunaraðferðum. Ef ágrein- ingur kæmi upp væri eina sann- gjarna og skynsamlega leiðin að forðast allt sem gæti aukið hann. yrði falið að fara með stjórn þeirra. í ávarpi sínu sagði Zia hers- höfðingi að herinn hefði hingað til forðazt að skerast i leikinn þar Klofna brezkir kommar? London. 5. júlf. Reuter. FLOKKAR brezkra kommún- ista rambar á barmi klofnings þar sem hugmyndir svokallaðs evrópukommúnisma hafa fengið vaxandi viðurkenningu. Um það bil 5.000 af 28.000 félögum styðja stalfnista und- ir forystu Sid French og hing- að til hafa þeir fengið að halda flokksskfrteinum sfnum, en starfsmaður f aðalstöðvum flokksins sagði f dag: „Fram- tfðin er óviss.“ Stöðugt fylgisleysi flokksins meðal brezkra verkamanna hefur leitt til þess að hann hefur fært sig nær sjónarmið- um kommúnista í ttalíu, Frakklandi og á Spáni en við Framhald á bls. 14 I sem hann hefði vonað að stjórn- málamönnum tækist að finna pólitíska lausn. Hann kvað það eitt vaka fyrir sér að halda frjáls- I ar kosningar og sagði að herlögin yrðu í gildi þar til kosningar færu fram. Byltingin virðist engri ókyrrð hafa valdið og hafa verið gerð án þess aó nokkur mótstaða hafi ver- ið sýnd. Byltingin virðist hafa hafizt með handtökum í nótt og Framhald á bls. 18 Judd í Khöfn London, 5. júlf. Reuter. FRANK Judd, aðstoðarutanrfkis- ráðherra Breta, ræðir við danska ráðherra f Kaupmannahöfn á morgun um mál sem varða Efna- hagshandalagið. Judd mun einkum ræða fisk- veiðimál að því er talsmaður brezka utanríkisráðuneytisins skýrði frá i dag. Bann Breta við siidveiði i 200 milna fiskveiðilög- sögu þeirra mun líklega bera á góma. Áður hefur Judd átt viðræður um málefni Efnahagsbandalags- ins við ráðamenn i Haag og Dyfl- inni. Hann sérhæfir sig í fisk- veiðimálum i starfi sinu sem að- stoðarutanrikisráðherra. Nýr flokkur ógnar Smith Salishury, 5. júlí. Reuter. AP. NÝR hægrisinnaður flokkur hvltra manna f Rhódesíu lýsti sig f dag mótfallinn skjótri myndun meirihlutastjórnar blökkumanna og hvatti tii lausnar á grundvelli sambandsstjórnar. Nýi flokkurinn, Rhódesfski baráttuflokkurinn (RAP), kveðst vilja herða á baráttunni gegn blökkumönnum og margir telja stofnun hans bera vott um glund- roða og ólgu f röðum 270.000 hvftra ibúa Rhódesfu. Flokkinn stofnuðu 12 hægri- sinnaðir þingmenn og fyrrver- andi ráðherrar úr flokki Ian Smiths forsætisráðherra, Rhódesiufylkingunni, og siðan Smith komst til valda 1964 hefur hann aldrei áður mætt eins mik- illi mótspyrnu i þinginu sem er skipað 66 fulltrúum. Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.