Morgunblaðið - 06.07.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 1977
Erfíðleikarísam-
búð N oregs og
Sovétríkjanna
NOKKRIR erfiðleikar hafa verið
í sambúð Noregs og Sovétrfkj-
anna að undanförnu vegna
ágreinings rfkjanna um skiptingu
yfirráða yfir Barentshafi. Náðst
hefur hráðabirgðasamkomulag
um fiskveiðar á svæðinu, en frest-
að hefur verið frágangi endanlegs
samkomulags þar til eftir kosn-
ingar f Noregi, en þær verða f
september.
Á meðan Jens Evensen hafrétt-
arráðherra Noregs var í Moskvu
fyrir stuttu til viðræðna um þessi
mál urðu nokkrir árekstrar á um-
deilda svæðinu á Barentshafi.
Tveir foringjar af norska varð-
skipinu Nornen fóru um borð í
sovézkan verksmiðjutogara f
landhelgi Noregs til að kanna
veiðarfæri skipsins. Sovézkur
skipsmaður á togaranum kastaði
sér þá í sjóinn en var bjargað af
skipsmönnum á Nornen. Þegar
þangað var komið baðst hann hæl-
en og hleypa af tveimur við-
vörunarskotum, en þá fengu
Norðmennirnir tveir að halda aft-
ur um borð í norska varðskipið.
Ekki bætti það ástandið að
Norðmennirnir höfðu komizt að
þvi að sovézki togarinn var með of
smáa möskva í vörpu sinni og
veiddi fyrir vikið mikið af ókyn-
þroska þorski.
Um svipað leyti varð annað at-
vik sem ekki bætti sambúð land-
anna. Þá fóru Rússar um borð í
norskan togara á umdeilda svæð-
inu á Barentshafi, en áður hafði
verið um það samið að á því svæði
skyldi hver þjóð fyrir sig hafa
eftirlit með eigin skipum. Reynd-
ust Rússarnir síðan hafa meiri
áhuga á rafeindabúnaði togarans
en veiðarfærum.
Deila landaanna um skiptingu
yfirráðamarka á Barentshafi staf-
ar af því að hvort rikið um sig
heldur fram vissri reglu sem
gilda eigi um þessi mörk. Norð-
Franz Jósefsland
(Sovétrlkin)
Novayai
iZamlyai
Bjarnareyjar
(Noregur)
Lofoten-
eyjar
lurmanski
SvlþjóB
I I
0 Mílur 200
Svalbaroi
Noregur
Svaeoi innan
200 milna
fré landi
Noregur
Russland
is sem pólitískur flóttamaður.
Rússneski skipstjórinn krafðist
þess þegar f stað að maðurinn yrði
framseldur, en því hafnaði skip-
herrann á Nornen. Sögðust Rúss-
arnir þá ekki mundu hleypa
norsku foringjunum tveimur til
baka um borð í skip sitt fyrr en
flóttamaðurinn yrði framseldur.
Létu þeir ekki undan fyrr en búið
var að manna allar byssur á Norn-
menn vilja halda sig við Genfar-
samþykktina frá 1958, en þar ei
gert ráð fyrir að við aðstæður sem
þessar skuli dregin miðlína og
mörkin ákvarðast af henni. Sovét-
menn vilja á hinn bóginn draga
línu frá landamærum ríkjanna í
hánorður og þannig ákvarða
mörkin. Sú aðferð færði þeim yf-
irráð yfir stærri og vestlægari
hafsvæðum.
-------------------------N
er hægt
að treysta
litmyndir á 3 dögum.
J VIO SELJUM L
Kodak
1 VORUR
V.
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆR
S:20313 S:36161 S: 82590
____________ J
Japanskt varðskip á siglingu hjá sovézkum togara skair.mt undan ströndum Hokkaido. 200 mflna
fiskveiðilögsaga Japans tðk gildi fyrir helgi og héldu þá 112 varðskip úr höfn til að hafa eftirlit með
þvf að erlend veiðiskip virði lögsöguna.
New York:
Tveir bidu bana ádur en
mannræninginn gafst upp
New York. 5. júlf. AP.
LÁGVAXINN spænsku-
mælandi maður, sem í gær
rændi langferðabíl og skip-
aði bílstjóranum að aka til
Kennedyflufívallar, gafst í
nótt upp fyrir lögreglu eft-
ir u.þ.b. 12 tíma eltinga-
leik og samningaviðræður.
Maðurinn, Luis Robertson,
22 ára að aldri, varð tveim-
ur að bana á meðan hann
hafði bílinn á sínu valdi og
var annar farþegi en hinn
bílstjórinn. Þrír menn í
hópi farþega særðust.
Langferðabíllinn var á leið frá
New York til Vermont með fjölda
farþega þegar Robertson vatt sér
skyndilega úr sæti sínu og hleypti
af skoti í háls eins farþeganna,
sem við það særðist en þó ekki
alvarlega. Fyrirskipaði hann síð-
an bilst jóranum að halda til flug-
vallarins og aka þar i gegnum
öryggishlið og um flugbrautirnar.
Varð tvívegis að loka vellinum
fyrir allri flugumferð, en að lok-
um tókst lögreglumönnum að
króa bilinn af og var brynvarðri
lögreglubifreið ekið á hana uppi
við flugskýli.
Hófust þá samræður lögreglu
og Robertsons, en tekizt hafði að
koma á talstöðvarsambandí við
bilinn nokkru áður. Krafðist
Robertson þess að fá sex milljón
daia lausnargjald fyrir gfsla sína
og auk þess flugvél til undan-
komu. „Ég hef fengið nóg af
þessu landi og vil komast burt",
sagði hann. Leysti hann þó smám
saman úr haldi flesta gisla sina og
sendi með þeim skilaboð til lög-
reglunnar. Einn gíslanna ætlaði
að reyna að flýja úr bílnum, en
Robertson skaut hann þegar i stað
og féll hann á jörðina rétt við
langferðabilinn. Robertson að-
hafðist hins vegar ekkert þegar
Ræninginn, Luis Robinson, eftir handtökuna á Kennedyflugvelli.
Ginzburg á yfir höfði
sér 10 ára
Moskvu. 5. júll. Reuler.
SOVEZKI andófsmaðurinn
Alexander Ginzburg, sem er einn
margra andófsmanna, sem stjórn
Carters f Bandarfkjunum hefur
opinberlega stutt, á nú yfir höfði
sér að verða dæmdur f allt að 10
ára þrælkunarvinnu, að þvf er
einn vina hans sagði f dag.
Ginzburg var handtekinn f
febrúar sl. fyrir andsovézkan
áróður, en hann er einn af nfu
félögum f svonefndum Helsinki-
hópi, sem teknir hafa verið fastir
á þessu ári. Ilelsinki-hópurinn
hefur fylgzt með framkvæmd
fangelsi
sovézkra yfirvalda á samkomulag-
inu sem gert var I Helsinki fyrir
tveimur árum. Ginzburg var Ifka
framkvæmdastjóri sjóðs sem
Alexander Solzhenitsyn hafði
komið á fót til að styrkja fjár-
hagslega andófsmenn sem settir
hafa verið f fangelsi og konur
þeirra.
Ginzburg var dæmdur í fimm
ára fangelsi árið 1968 og á nú á
hættu að fá þann dóm tvöfaldað-
an, þar sem hann hefur nú að
sögn sovézkra yfirvalda gerzt i
annað sinn brotlegur við lög sem
banna andsovézkan áróður.
sjúkrabíll kom og sjúkraliðar
báru manninn i burtu á börum.
Þegar líða tók á kvöldið reyndu
lögreglumenn ákaft að fá
Robertson til að láta alla fanga
sína lausa og gefast upp og var
honum heitið því að honum yrði
ekki gert mein. Lét hann loks
undan um hálffjögur-leytið i nótt
og sleppti siðustu 14 gíslum sín-
um og var handtekinn. Verður
hann ákærður fyrir tvö morð og
mannrán. Gíslarnir, sem margir
voru i mikilli hugaræsingu, voru
leiddir burt frá blaðamönnunum
sem safnazt höfðu á staðinn, en
þeim siðan leyft að fara.
Luis Robertson átti heima í
Somerset í New Jersey riki. Að
sögn lögreglunnar var hann
skráður i sjóherinn, en aðrar
upplýsingar um hann voru ekki
fáanlegar.
Gáfust upp
Lima, 5. júlí.
AF. Reuter.
FLUGVÉLARÆNINGJAR
neyddu flugvél frá Chile með 60
manns innanborðs til að fljúga til
Lima í Perú í dag en gáfust siðan
upp eftir þrjá tima.
Ræningjarnir sem voru fimm
kröfðust þess að flogið yrði með
þá til Parísar og slepptu gíslum
áður en þeir gáfust upp. Perú-
stjórn mun sjá til þess að þeir fái
hæli í Venezúela.
— Klofna brezkir
Framhald af bls. 1
það hefur sundrungin aukizt
smátt og smátt.
I siðustu stefnuyfirlýsingu
flokksins segist hann munu
reyna að ná völdum i frjálsum
kosningum, að vísu með hjálp
„fjöldabaráttu", og gamlir
flokksmenn hafa reiðzt þvi
ákaflega að ekki er lengur ta|-
að um það markmið marxista
að koma á „alræði öreiganna“.
Gordon McLennan, ritari
flokksins, segir í flokksmála-
gagninu Morning Star, að sér-
hver kommúnistaflokkur sé
„sjálfstæður og fullveðja" og
tekur þar með í sama streng og
evrópukommúnistar og leggst
gegn Rússum.
French sagði hins vegar ný-
lega á fundi að slíkur hugs-
unarháttur væri hentistefna,
að hann aflaði kommúnistum
ekki fylgis i Evrópu, að einu
löndin sem næðu fram raun-
verulegum sósíalisma væru
þau lönd sem fylgdu hinni sov-
ézku þjóðbyltingarbraut.
Félögum flokksins hefur
fækkað um 4.000 á 10 árum og
hann er í varnarstöðu gagn-
vart flokknum trotskyista sem
höfða til ungs fólks. Flokkur-
inn tapaði síðasta þingsæti
„ sinu fyrir 26 árum og fylgi
hans hefur minnkað úr 0,3% í
0,1 % á þeim tima.