Morgunblaðið - 06.07.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.07.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JULt 1977 ÞRÍRLEIKIR í KVÖLD Hallsson, Dagblaðinu, Hermann Gunnarsson, útvarpinu, Pétur Björns- son, formaður NK, Björn Blöndal, VIsi, Gylfi Kristjánsson, Vfsi, Agúst I. Jónsson, Morgunblaðinu, Gunnar Steinn Pálsson, Þjóðviljanum, og Sveinn Björnsson frá SAAB-umboðinu. ENGAR TÖLUR GEFNAR UPP: i KVÖLD fara fram þrir ieikir i 1. deildar keppni íslandsmótsins í knattspyrnu og ættu þeir allir að geta orðið hinir skemmtilegustu, enda mí segja a8 úr þessu séu flestir laikir i deildinni úrslitaleikir, annað hvort á toppinum eSa botninum. I Vestmannaeyjum leika kl. 19.00 í kvöld Ii8 ÍBV og Fram. VerSa heimamenn aB teljast sigurstrang- legri i þeim leik. en sem kunnugt er hefur Eyjaliðið tekiS viS sér svo um hefur munaö nú að undanförnu. en a8 sama skapi dofnað yfir FramliS- inu. Kl. 20.00 leika á Laugardalsvell- inum liS KR og ÍA og má búast vi8 harSri baráttu i þeim leik. en fyrir marga er það stór stund þegar þessi Ii8 eigast viS. Þennan leik verSa Akurnesingar a8 vinna til þess a8 halda sér á toppnum i deildinni en KR má lika illa vi8 þvi að tapa. þar sem Ii8i8 er enn i fallhættu. Kl. 20.00 leika svo FH og Vikingur á Kaplakrikavellinum og verSa Vik ingar a8 teljast sigurstranglegri í leiknum. jafnvel þótt FH-ingar séu nú með skemmtilegt og létt-leikandi lið. ÍÞRÓTTAMENN leiddu saman hesta sína i golfi siðastliðinn föstudag og voru Vísismenn mjög í sviðsljósinu að þessu sinni. Sigraði Gylfi Kristjánsson, Vísi, í keppninni. Notaði hann einu höggi minna en þeir Agúst I. Jónsson, Morgunblaðinu og Björn Blöndal, Vísi. í bráðabana sigraði Ágúst siðan Gylfa. Ekki voru fréttamennirnir stoltir af árangri sínum og verða því engar tölur gefnar upp hér. SAAB-umboðið gaf verðlaun til keppninnar að venju, og afhenti Pétur Björns- son, formaður Golfklúbbs Ness, þau að keppni lokinni. DOCHERTY VAR LATINN FJUKA ÞAÐ er ekki ofsögum sagt að stólar brezku framkvæmda- stjóra knattspyrnuliðanna séu heitir, eins og það er kallað. Í fyrrakvöld var frá því skýrt, að einn þekktasti brezki fram- kvæmdastjórinn, Tommy Docherty, hefði verið rekinn frá Manchester United, en Docherty hefur gert lið þetta að stórveldi í ensku knattspyrn- unni siðan hann tók við því, og fæstir áttu von á öðru en að forystumenn Manchester United gerðu allt til þess að halda i hann sem iengst. Ástæð- an sem gefin var upp fyrir brottvisun Dochertys var laus- læti, en enskir blaðamenn sem fjallað hafa um atburð þennan virðast sammála um að óánægj- an hafi átt sér dýpri rætur og að forráðamenn United hafi ekki verið hrifnir af því hversu fús Docherty hefur verið að ræða við forráðamenn annarra liða sem verið hafa að leita hóf- anna hjá honum. Varla þarf Docherty að kvíða atvinnuleysi þótt svona færi, þar sem vitað er að mörg af beztu liðum Eng- lands hafa rennt til hans hýru auga. Er greint frá þvi að bæði Derby County og Tottenham Hotspur hafi verið búin að gera honum tilboð áður en upp úr sauð. J V díiTVerksmiójurnar framleióa m.a.: Skip — Skiptiskrúfubúnaó — Þverskrúfur — Andveltigeyma og Skipshuróir fi HEKLA HF. Laugavegi 170-172, - Simi 21240 Sölu viógeróo- og CotorpiNar.Git.09 0 ikróí*tf yörumerfci varahlutoþjónusta í sérflokki I íslandsmðtia 2. flelld | Haukar í baráttunni - unnu Selfoss 4:0 HAIJKAR tryggðu enn stöðu sína við toppinn í 2. deildar keppni Islandsmótsins f knattspyrnu f fyrrakvöld er þeir sigruðu Sei- fvssinga með fjórum mörkum gegn engu í leik liðanna sem fram fór á grasvellinum á Sel- fossi. Völlurinn var mjög hlautur og þungur er leikurinn fór fram, og var áberandi hversu leikmönn- um gekk illa að fóta sig, ekki sfður heimamönnum, sem eiga þó að vera vanir þvf að leika á grasi. Haukar voru betri allan leikinn og tókst að skora þegar á 10. mín- útu. Var það hinn marksækni Loftur Eyjólfsson sem markið gerði með skalla. Stóð þannig þangað til að lokamínútu fyrri hálfleiksins er Haukunum tókst að bæta öðru marki við og var það Ólafur Jóhannesson sem það gerði. I seinni hálfleik var hið sama uppi á teningnum. Haukarnir sóttu meira og skoruðu tvö mörk. Hið fyrra gerði Loftur Eyjólfsson um miðjan hálfleikinn, en Ólafur Jóhannesson skoraði síðasta markið úr vitaspyrnu, sem var nokkuð vafasamur dómur. Selfyssingar áttu nokkur allgóð færi i leiknum, en náðu ekki að nýta þau. Voru úrslit leiksins þó ekki ósanngjörn, þar sem Haukarnir voru til muna frískari en heimamenn. ÁRMANN SÓTTITVÖ STIG TIL SANDGERÐIS ARMENNINGAR máttu teljast heppnir að ná báðum stigunum í leik sinum við Reyni í Sandgerði í fyrrakvöld. 2—0 fyrir Armann urðu úrslit leiksins, en jafnteli hefðu ekki verið órettlát úrslit þar sem heimamenn áttu eins mikið í leiknum — ef ekki meira á köflum. Leikið var við mjög slæm skil- yrði í Sandgerði í fyrrakvöld. Stórrigning hafði verið allan dag- inn og var völlurinn þvi blautur og pollóttur. Settu þessar aðstæð- ur svip á leikinn, en eigi að síður náðu bæði liðin ágætum leikköfl- um. A 25. minútu náðu Armenning- ar forystu i leiknum er Þráinn Ásmundsson skoraði með skalla eftir aukaspyrnu. Nokkru siðar fengu Sandgerðingar gullið færi til þess að jafna er Ari Arason komst einn inn fyrir, en þá skaut hann framhjá. I seinni hálfleiknum héldu heimamenn áfram að sækja og mátti þá segja að jöfnunarmarkið lægi í loftinu. En þegar skammt var til leiksloka tókst Ármenning- um að snúa eitt sinn vörn i sókn og skoraði þá Gunnar Guðlaugs- son, eftir mistök hjá markverði Sandgerðinga. Með sigri i leik þessum heldur Ármann stöðu sinni á toppnum i 2. deildar keppninni í ár og er aðeins tveimur stigum á eftir for- ystuliðunum Þrótti, Reykjavik, og KA. JJ Unglinga- og drengja- landsleikir í kvöld ÍSLENDINGAR og Eæreyingar leika tvo knattspyrnulandsleiki f kvöld. Er þar annars vegar um að ræða unglingalandsleik 16—18 ára pilta sem fram fer í Færeyj- um og hins vegar drengjalands- leik, 14—16 ára pilta, en sá leikur fer fram í Keflavík. Ætti þarna að geta orðið um að ræða skemmti- lega og jafna leiki, en Færeying- ar hafa átt á að skipa ágætum unglingaliðum að undanförnu. Liðið sem leikur i Færeyjum í kvöld verður þannig skipað: Markverðir: Stefán Jóhannsson, KR Bjarni Sigurðsson, IBK Aðrir leikmenn: Pálmi Jónsson, FH Benedikt Guðbjartsson, FH Ragnar Eðvaldsson, UMFG Guðmundur Halldórsson, UBK Þorvaldur Hreinsson, UMFA Ingólfur Ingólfsson, Stjörnunni Birgir Teitsson, UBK Helgi Helgason, Völsungi Kristján B. Olgeirsson, Völsungi Þorsteinn Ögmundsson, Leikni Ólafur Magnússon, Þrótti R Páll Ólafsson, Þrótti R LEIKNISMOT LEIKNIR gengst fyrir innan- félagsmóti í frjálsum íþróttum á Fellavelli i dag kl. 17.30. Keppnis- greinar verða 60 metra hlaup, 600 metra hlaup og langstökk. Sigurður Halldórsson, UBK Nokkrir þessara pilta hafa leik- ið í islenzka drengjalandsliðinu, en leikurinn i Færeyjum verður fyrsti unglingalandsleikur þeirra allra. Athygli vekur frá hversu mörgum félögum piltarnir eru og eiga t.d. Grindvikingar og Mos- fellingar fulltrúa í liðinu, auk þess sem í því er leikmaður frá hinu unga Reykjavíkur félagi, Leikni. Drengjalandsliðið sem leikur i Keflavik verður þannig skipað: Markverðir: Gisli Daníelsson, KR Árni Dan Eiríksson, UBK Aðrir leikmenn: Halldór Ólafsson, KR Benedikt Guðmundsson, UBK Heimir Karlsson, Vikingi Ágúst Hauksson, Þrótti Sigurður Guðnason, Reyni S Skúli Rósantsson, IBK Ómar Jóhannsson, ÍBV Jón Þór Brandsson, FH Jóhann Þorvarðarson, Víkingi Jón G. Bjarnason, KR Lárus Guðmundsson, Víkingi Arnór Guðjohnsen, Víkingi Gunnar Gislason, KA Sæbjörn Guðmundsson, KR Stjórnendur liðsins sem leikur i Færeyjum verða þeir Helgi Dan- íelsson og Sölvi Óskarsson, en þjálfari liðsins sem leikur i Kefla- vik verður Lárus Loftsson. Dóm- ari drengjalandsleiksins verður Rafn Hjaltalín, en línuverðir þeir Ármann Pétursson og Ársæll Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.