Morgunblaðið - 10.07.1977, Page 1

Morgunblaðið - 10.07.1977, Page 1
48 SÍÐUR 150. tbl. 64. árg. SUNNUDAGUR 10. JÚLt 1977 _____ Prentsmiðja Morgunblaðsins. - Ljósm.: Emilfa Helgarveðrið hér sunnanlands að minnsta kosti á því miður rétt einu sinni að vera af því taginu, sem meðfylgjandi myndir lýsa svo ömurlega. Þær voru teknar i gærmorgun af erlendum ferðamönnum, sem þurftu að ösla á milli húsa. Veðurstofan spáði þoku og súld eða þá bara ósvikinni rigningu, en hitastigið átti að hanga í títi til þrettán stigum eftir því, hvar menn voru staddir i súldinni. Flugránið í Kuwait: Krefjast 300 fanga fyrir 40 gísla Zia hershöfðingi: Bhutto getur komizt aftur til valda Rawalpindi 9. júlí — AP. ZIA-UL-HAQ, hershöfðingi og æðsti maður Pakistan, segir að Zulufikar Ali Bhutto, sem settur var af sem forsætisráðherra við valdatöku hersins, hafi mögu- leika á að komast aftur f stjórnar- aðstöðu eftir frjálsar kosningar f október, sem herstjórnin hefur lofað. Zia hefur einnig skýrt frá til- lögum um leið, til að koma f veg fyrir að innanlandserjur, eins og vikurnar voru fyrir valdatökuna, endurtaki sig f Pakistan og að herinn grfpi völdin um leið og breytingar verða eða eru fyrir- sjáanlegar á valdahlutföllum. Zia skýrði frá tillögum sinum í viðtali við AP-fréttastofuna, og sagði að herinn ætti að hafa eftir- lit með öllum kosningum í fram- tiðinni og um það ætti að vera ákvæði í stjórnarskránni. Hann benti á að á 30 árum eftir að Pakistan varð sjálfstætt hefðu aldrei orðið stjórnarskipti, sam- kvæmt reglum stjórnarskrárinn- ar. Hann sagði að hann hefði sjálf- ur ákveðið klukkan 17 á mánu- dag, að framkvæma morguninn eftir, löngu gerða áætlun um valdatöku og handtöku forsætis- ________Framhald á bls. 46 Bretar taka sænskan togara Lundúnum — 9. júlf — Reuter BREZKT herskip tók f gærkvöldi sænska togarann Halland að meintum ólöglegum veiðum inn- an 200 mflna markanna og færði hann til hafnar f Leirvfk á Hjalt- landi. Skipstjóri togarans kemur fyrir rétt f Leirvfk f dag. Kuwait — 9. júlí — AP NlU vopnaðir hermdar- verkamenn, sem segjast vera palistínskir skærulið- ar, halda tæplega 40 manns í gislingu um borð í Boeing 707 þotu Kuwait Airlines á Sweltering-flugvelli i Kuwait. Þeir krefjast þess, að um 300 föngum, sem eru í haldi í hinum ýmsu Arabaríkjum, verði sleppt í skiptum fyrir gíslana, auk þess sem þeir hafa krafizt þess, að eldsneyti verði sett á þotuna. Að hvorugri kröfunni hefur verið geng- , ið til þessa. Hermdarverkamennirnir létu lausa 8 farþega, börn og konur, auk tveggja brezkra flugliða, þeg- ar þotan lenti í Kuwait í gær- kvöldi, og i morgun slepptu þeir tveimur flugfreyjum og véla- manni. Þegar þotan lagði af stað frá Beirut voru um borð 42 ara- bískir farþegar og 3 brezkir, ásamt 10 manna áhöfn, en þar af eru sjö Bretar. Er talið að skæru- iiðarnir hafi komizt um borð með vopn sín með aðstoð manna, sem voru dulbúnir sem sýrlenzkir öryggisverðir á flugvellinum i Beirút. Tilraunir ráðherra i Kuwait og sendiherra frá Arabarikjunum til að semja við skæruliðana um að láta gislana lausa hafa engan árangur borið, en samkvæmt opinberum talsmanni Kuwait- stjórnar var skæruliðunum boðið, að þotunni yrði flogið til Suður- Yemen, þar sem þeir fengju að fara frjálsir ferða sinna að þvi tilskildu að þeir slepptu öllum gislunum i Kuwait. Mikið herlið með alvæpni er á flugvellinum í Kuwait, en flug- vallarstarfsmaður, sem fylgdi sendiherra Suður-Yemen til fund- ar við skæruliðana um borð i þot- unni, telur líklegt, að skærulið- arnir séu i þann veginn að láta Framhald á bls. 46 Frakkland: 26 fórust í flóðum Auch, Frakklandi — Reuter. ÓTTAZT er að 26 manns hafi farizt í mestu flóðum, sem komið hafa í suðvestur-Frakklandi i 80 ár. Flóðin komu i kjölfar þrumu- veðurs og úrhellisrigningar í gær. Fimm manns, þar af þrjú börn, létu lífið með þeim hætti, að fljótsbakki lét undan straum- þunga, sem siðan hreif með sér hjólhýsi og bifreiðar, sem stóðu á bakkanum. Þegar er ljóst, að flóð- in hafa valdið gífurlegu eignar- tjóni, og er búizt við þvi, að tala látinna eigi eftir að hækka. Komiðupp um mörg njósna- mál í Vestur-Þýzkalandi í ár EKKI þarf að búa til njósnasög- ur I V-Þýzkalandi um þcssar mundir, þvl þar rekur hvert njósnamálið annað, sem gefa hörðustu reifurum ekkert eftir. Frá þv( snemma á sfðasta ári er búið að handsama 81 austur- þýzkan stórnjósnara f V- Þýzkalandi og f jöldann allan af minni spámönnum. Nýjasta málið varðaði skrif- stofumann f v-þýzka flughern- um Hans-JUrgen Jenzowski, sem f sfðasta mánuði var stað- inn að þvf að afhenda austur- þýzkum njósnara viðkvæm skjöl. A heimili Jenzowskis fann lögregla sfðan heilt safn njósnaútbúnaðar, örlitlar myndavélar og senditæki. Kona Jenzowskis, Friedel, var hand- tekin við það tækifæri. Stuttu áður voru tveir hátt- settir V-Þjóðverjar handsamað- ir fyrir að veita austur-þýzkum njósnurum aðgang að leyni- skjölum. Hér var um að ræða Dagmar Kahlig-Scheffler, rit- ara i v-þýzka utanríkisráðu- neytinu, og Rolf Grunert yfir- mann rannsóknarlögreglunnar í Hamborg. I Bonn er talið að enn gangi lausir um 8000 austur-þýzkir njósnarar i V-Þýzkalandi, en engu að siður er það hald manna, að síðustu handtökurn- ar hafi verið verulegt áfall fyrir yfirmann njósna i Austur- Þýzkalandi, Markus („Mischa") Wolf, sem er aðstoðaröryggismál aráðherra þess lands. Mischa hefur stjórn- að austur-þýzkum njósnum frá árinu 1958 og náð undraverðum árangri. Ein ástæða þess er hversu auðvelt það hefur verið að blanda njósnurum i hinn stóra hóp flóttamanna frá A- Þýzkalandi sem nú býr i V- Þýzkalandi. „Þá er ekki hægt að útiloka alla þá sem fæddir eru austan landamæranna frá veigamiklum stöðum í land- inu," segir öryggisstarfsmaður i Bonn, en þrjár milljónir Aust- ur-Þjóðverja búa nú í V- Þýzkalandi. Mischa náði lengst, þegar honum tókst að koma njósnara að sem helzta aðstoðarmanni og hægri hönd Willy Brandts kanzlara, sem varð að segja af sér þegar máiið komst upp. GUnter Guillaume var nánasti samstarfsmaður Brandts í fjög- ur ár, allt þar til upp komst um athæfi hans árið 1974 og hafði látið af hendi við menn Mischa fjölmörg rikisleyndarmál, sem gera má ráð fyrir að hafi einnig komið fyrir sjónir KGB manna i Moskvu. Sá sem nú stjórnar and- njósnaaðgerðum v-þýzku stjórnarinnar er 49 ára gamall leynilögreglumaður, Richard Meier. Hann hefur tekið full- komna tölvutækni í þágu starf- semi sinnar og komið á góðu samstarfi við lögreglustjórnir um allt V-Þýzkaland. Arangur hans á þessu ári hefur verið mjög góður, því á þessu ári er þegar búið að koma upp um 30 a-þýzka njósnara. Mischa er því nú í eins konar varnarstöðu og hefur tekið upp ýmis brögð, eins og t.d. að láta laglega unga menn tæla ein- mana og einhleypa einkaritara Framhald á bls. 46

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.