Morgunblaðið - 10.07.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULl 1977
7
Á sunnudaginn var skild-
um við við Pál postula þar
sem hann horfir á efri árum
sínum um öxl yfir stórbrotinn
æviferil, og lofgjörðin rís í
hjarta hans og streymir fram
af vörum hans, þegar hann
minnist þess, hvernig Krists-
vitrunin, gersamlega óvænt,
knúði tiann inn á þann veg,
sem hann sjálfur sízt hefði
valið. Og nú skulum við, þú
og ég, horfa á minninga-
myndir hins liðna.
Sjálfsagt eru þær myndir
fátæklegar, ef bornar eru
saman við þær myndir, sem
Páll sá þegar hann horfði yfir
farinn veg. Við höfum hvor-
ugu kynnzt í sama mæli og
hann. Hinni stóru sorg allt
eins og hinni stærstu gleði
kynnist aðeins hin stóra sál.
Það sem vekur létta vind-
hrinu í huga meðalmannsins
verður að ofsaroki í sál hins
geðstóra, mikla manns. Sjálf-
sagt er sú skýring þess að
honum getur Guð trúað fyrir
hinu stóra og sent slíka menn
út á opið haf, æðandi haf,
meðan hann lætur bátinn
minn og þinn sigla á innfjörð-
um, þarsem bárurnar risa
ekki eins hátt og siglingin
gerir minni kröfur til manns-
ins, sem siglir.
En hvað um það, þótt við-
burðarásin hjá okkur sé stór-
tíðindalítil og sjóferðin aðeins
innfjarðasigling um sæmi-
lega lygnan sæ, á engum
þeim sem ekki gengur í
svefnmóki sinn veg að geta
dulizt, að mikið er „djúp rík-
dóms og speki og þekkingar
Guðs, og að órannsakandi
eru dómar hans og órekjandi
eru vegir hans."
Eðlilegt er, að þetta sé
öldruðum manni Ijósara en
hinum unga. Ósanngjarnt
væri að undrast það um hina
ungu, sem minna hafa reynt
en þeir, sem langan eiga feril
að baki. En er þetta okkur
hinum eldri eins Ijóst og vera
ætti?
Taktu þér hljóða stund og
láttu straum minninganna
flæða hindrunarlaust yfir hug
þinn. Verður þá ekki gest-
kvæmt í sál þinni, þegar
„svipþyrping sækir þing í
sinnis hljóðri borg", eins og
Grímur Thomsen kemst að
orði í Ijóðinu um endurminn-
inguna? Ef þú horfir, ef þú
hlustaropnum eyrum, opn-
um hug, bendir þér þá ekkert
á æðri hönd að baki hinna
ytri viðburða á vegi þínum?
Ef þú hlustar, ef þú horfir,
sér þú þá ekki, að æðri hönd
leiddi þig ekki aðeins á veg
gleðinnar, sem var þér vel-
kominn, heldur einnig á hinn
óvelkomna veg, sem lán inn í
musteri lífsreynslu, sorgar og
tára?
Þú ert ósáttur við sitthvað,
sem þú hefðir kosið öðruvísi,
en ertu viss um að það hefði
orðið þér betra? Á líðandi
stund, hverfulu augnabliki,
er oft erfitt að átta sig á
samhenginu í örlagarásinni.
En sjáum við það ekki stund-
um síðar meir við meiri
heildarsýn og af öðrum
sjónarhóli, að þar var að
verki hulin hönd, sem við
héldum í byrjun, að um
markmiðslausar hendingar
einar væri að ræða, og að þar
réði stefnunni vísdómsfullur
kærleikur, þegarvið vorum
knúin inn á veg, sem við
hefðum sjálf aldrei valið? Það
þarf ekki ævinlega langur
timi að líða, unz við horfum
allt öðrum augum á það, sem
er okkur sorgarefni í dag.
Sjónarhringur okkar er
þröngur, fjötrum jarðlífsins
fylgja margskonar takmark-
anir. Við berum okkur
mannalega og þykjumst vita
eitt og annað, sem við vitum
í rauninni ekkert um en styðj-
umst aðeins við trú og óviss
hugboð. Við búum við
rökkursjón og óljósan skiln-
ing og líkt og lítil börn, sem
eru að fálma sig áfram i
veröld mikilla leyndardóma.
En sjónin á að skýrast, vit-
undin að vikka, og við vax-
andi aldur og þroska lærist
mörgum að greina betur, hví-
líkt er djúp ríkdóms og þekk-
ingar Guðs og órekjandi veg-
ir hans.
En fyrst mönnum getur
lærzt meðauknum þroska,
árum og aldri að sjá betur
handleiðslu Guðs og greina
betur markmiðin, sem hönd
hans er að leiða okkur að, er
þá óskynsamlegt að ætla að
eftir að við höfum afklæðzt
jarðneska holdsfatinu, jarð-
neska líkamanum, munum
við smám saman öðlast skýr-
ari sjón og meiri skilning á
handleiðslunni, sem okkurer
veitt, þeirri vísdómsfullu náð,
sem yfir vegum okkar vakti,
hinum óvelkomnu jafnt og
hinum velkomnu vegum? Er
ekki gott að mega treysta
því, að eilífðin geymi okkur
slika gjöf?
En vitum við það, ég og
þú? Barnið hefir enga með-
vítaða hugmynd um þá
vernd, sem yfir því vakir. Það
nýtur blessunar móður og
föður en gerir sér þess enga
grein, hvaðan sú blessun
kemur. Ungbarnið lifir líkt og
í óljósum draumaheimi. En
árin líða og smám saman fær
barnið Ijósari vitneskju um
margt, sem áður var hulið.
Þykjumst við ekki vaxin að
viti og árum, ég og þú? Þó
lifum við likt og draumlifi
lítils barns, að því er snertir
æðri rök hvað þá hina efstu
dóma. Þó deila menn, guð-
fræðingar ekki sízt, um þessi
óræðu rök, játa raunar í orði
að eðlilegt sé að skoðanir
skiptist, en fyllast þó gremju
og beita stóryrðum, þegar
aðrir leyfa sér önnur sjónar-
mið. Ég trúi þvi að öll eigum
við síðar meir eftir að standa
á þeim sjónarhóli annarsstað-
ar í tilverunni að við undr-
umst barnaskap löngu lið-
inna ára, barnaskap og
blindni.
Góður skammtur óvissu
— óvissu en ekki afneitunar
— hæfir bezt þegar greina
skal milli vega Guðs og
manna
Vegir Guðs
— vegir þínir
LOKAÐ
VEGNA SUMARLEYFA verður verkstæði okkar
lokað frá og með 1 8. júlí til 16. ágúst.
Fíat einkaumboð.
Davíð Sigurðsson.
Síðumúla 35.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu
JEPPAEIGENDUR
Eigum.aftur fyrirliggjandi
2 gerðir farangursgrinda á
Bronco, Range Rover og Land
Rover. Tökum einnig að okkur
smiði á aörar tegundir bila.
Sendum i póstkröfu.
MÁNAFELL H.F.
Járnsmiöaverkstæöitopið 8-11 á
kvöldin og laugardaga).
l.augarnes vegi 46. Heima-
simar: 7-14-86 og 7-31-03.
Nú er auðvelt
að mála rétt
í horn.
The Clio World
Winning Films '76
1. Auglýsingateiknarar
2. Kvikmyndagerðarmenn
3. Stjórnendur fyrirtækja
4. Þulir
5. Leikarar
6. Og annað áhugafólk
um auglýsingamál.
Félag íslenskra auglýsingateiknara
(F. í. T.) i samvinnu vid Upplýsingaþjón-
ustu Bandaríkjanna býöur ykkur aö sjá
kvikmyndasýningu viöurkenndra auglýs-
ingamynda “The CLIO World Winning
Films' 1976” í húsakynnum Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna aö Neshaga 16
Reykjavík. — Þriöjudaginn 12. júlí 1977
kl. 20.00.
VERIÐ VELKOMIN