Morgunblaðið - 10.07.1977, Page 32

Morgunblaðið - 10.07.1977, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULI 1977 r I sandkassanum Höfundur: Þóra Bryndís 6 ára. Þegar Halli var úti að labba, sá hann Kalla í sand-kassanum á leikvellinum. Hann hljóp til háns og sagði: má ég vera meó þér í sand-kassanum? Kalli svaraði ekki. Hann var í vondu skapi af því að það var strákur að skemma fyrir honum það, sem hann bjó til. Hann fór að gráta í hvert sinn, sem strákurinn skemmdi fyrir honum. Og svo varð hann reiður. En Halli fór bara heim til sín og sagði mömmu sinni frá öllu saman. 5ar»g$^ RuTMsa^a O- Þörir S. Guðbergsson Rúna Gfsladóttir Barna- og íjölskyldasíðan — Hreinn Framhald af bls. 15 ur endist hann. Þetta ætti að koma mér til góða, því ekki eru nema 10 ár síðan ég byrjaði að æfa kúluvarp.“ — „Annars veit ég ekkert hvað ég endist lengi í þessu og hvort ég á eftir að bæta árangur minn. Framtíðin verður að skera úr um það. Eins og ég segi þá tek ég hlutina eins og þeir koma,“ segir Hreinn Halldórsson að lokum og brosir." spölinn. Ég hef bætt mig 1 ár um tæpan metra og þegar maður er kominn með þennan árangur, er ekki auðvelt að bæta sig um marga sentimetra frá móti til móts. Hvort ég næ einhvern tíma 22 metrum skal ósagt látið, reynslan verður að skera úr um það.“ „Heimsmetið í kúluvarpi er nú liðlega 22 metrar, en árið 1980 gæti það verið orðið 23 metrar. Það kæmi mér þó á óvart, en tækninni fleygir fram i þessu sem öðru. Hver kúluvarpari hefur sinn stfl, sína tækni, engir tveir kasta kúlunni eins. Sjálfur heyri ég það oft að ég kunni hreinlega ekki að kasta kúlunni, siðast nú i vikunni skrifar sænskur blaða- maður um þetta, en blaðamenn hafa sjaldnast nokkurt vit á tækni." Eins lengi og maðnr nennir — „Það háir manni mikið að fá ekki fleiri tækifæri til að keppa á stórmótum, en hvað mig snertír hefur þetta að visu lagazt i sumar. Reynslan hefur gífurlega mikið að segja og reynsluleysi getur gert margar mánaða æfingapuð að engu. Það er t.d. ekki þægilegt að vera í harðri kúluvarpskeppni á stórmóti, vera búinn að úthugsa atrennuna og einbeitingin kannski I hámarki þegar tugir þúsunda af áhorfendum byrja allt í einu að fagna 100 metra hlaup- ara sem kemur i markið. Þá er um að gera að geta útilokað sig frá öllu utanaðkomandi, ef ekki, er hætt við að árangurinn verði ekki sem skyldi." — „Kúluvarpari getur næstum þvi haldið áfram að bæta sig með- an hann nennir að æfa sig af kappi. Guðmundur Hermannsson er bezta dæmið um þetta, hann var á toppnum í iþrottinni um fertugt. Þá held ég lika að þvi seinna, sem kúluvarparinn byrji að æfa íþróttina, þeim mun leng- Hringflug í samvinnu við Flugfélag Norðurlands og Flug- félag Austurlands hagar Flugfélag íslands áætlunum sínum þannig að þú getur farið flug- leiðis fjórðunga á milli, sparað þér þann tíma og fyrirhöfn, sem bílferð útheimtir og geymt kraftana til að skoða þíg vel um á hverjum stað. Það má gista á hóteli, hjá vinum eða notast við tjaldið og svefnpokann. Lent er á ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn og í Reykjavík. Hringfluginu má ljúka á einni viku, en frjálst er að dveljast lengur á hverjum stað og skemmta sér að vild. Jæja, nútímamaður, hvernig væri að*fljúga hringinn í sumar? FLUCFÉLAC ÍSLAJVDS INNANLANDSFLUG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.