Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 34
M MOKGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10.JÚLI 1977 Góðn átioyioiHlui! Lnnerum við á foið moð hljóðnonumn oy nð þossu sinni komnn í kaup- stað í náyionni Roykjavíkur. /1 tlunin oi að hoilsa upp á skipvoijaiui á fimm manna fat- inu Bnmkló, som hclt i síðustu sjófoiðnut í fyna , eins oy þið munið Þess sjást öll moiki, or við nályumst loyuból Brimkló- «ii, að útyoiðm só á cnda Hói á túninu stendui myndaileyui bátui, heitn .ið vísu okki Brim- kló, on okki fæ éy betui séð en að honum luifi síðast voiið siylt í fyiiasumat, svoað þotta yotur allt staði/t Við holdum nú inn í bílskúnnn héina við hliðína, éy oy ta'knimaðuiinn oy nú fara ;ið boiast iið eyium okkai oy hljóðnomanum tætinysleyii tönai. yítaiylamui oy bumbu- bank Þoyni «ið oi yáð, reynist héi voi.i stödd áhöfnin á Brim- klónni fimm monn, alln á jöfn- um lilut að sjálfsöyðu oy eny- inn öðium fiemii Þoir eru að fitl.i við áheyrendaveiðarfærin, öðiu nafni (iljóðfaínn, oy ræða um veiðiticknina, öðiu nafni layevalið Allt bendii því til þess að senn muni fleyinu ýtt úi voi að nýju oy lóið á feng- sæl hskimíð öðru nafní dans- liúsin Oy nú hlustendur yóð ir, skulum við setjast að snakki með þeim skipverjum: Björgvin Halldórssyni, Sigurjóni Sig- hvatssyni, Hannesi Jóni Hann- essyni, Arnari Sigurbjörnssyni oy Ragnari Sigurjónssyni. ,, Já, það er ætlunin að leika á dansleikjum i félagsheimilum viða um land um sex helgar," segja þeir Brimklóarmenn. ,,Það verður byrjað 22. og 23. júli á Flúðum og síðan verður haldið áfram, yfirleitt föstu- daga, laugardaga og sunnu- daga, fram til 28. ágúst. Við höfum gefið þessum ferðum nafnið „Brimkló á faraldsfæti '7 7" og höfum fengið Halla og Ladda i lið með okkur." Já, hlustendur góðir, það á sem sé að fjölga um tvo í áhöfninni á þessari vertið En látum oss hlýða á piltana enn um stund „Við erum að byrja að æfa núna, æfum á kvöldin, en ætl- um svo að æfa daglega frá morgni til kvölds siðustu vik- una áður en ferðin hefst Við ætlum að leika lögin af plötun- um og einhver önnur af lögun- um sem við lékum á sinum tíma í Brimkló Einnig getur verið að við bætum við nokkr- um nýjum lögum sem Brimkló hefur ekki leikið áður. Við þurf- um að læra lögin á plötunum upp á nýtt og æfa samspilið og ná samstillingunni upp á nýtt. Það eru tvö ár liðin siðan við lékum síðast saman á balli, en höfum síðan gert tvær plötur. Já, það má segja að við höfum haft slökkt á sviðsljósinu í tvö ár!" Já, tvö ár eru langur tími, áheyrendur góðir. Hljóm- sveitin Brimkló starfaði i þrjú ár, eins og mörg ykkar muna, frá hausti 1972 til hausts 1975 En hvernig væri að spyrja piltana að því, fyrir hvað hljómsveitin Brimkló hafi verið athyglisverðust eða hver sér- staða hennar hafi verið? „Brimkló var rokk og country-hljómsveit. Það spilaði engin önnur hljómsveit country-tónlist á þeim árum og hefur raunar engin hljómsveit náð að spila hana betur en við, þótt við segjum sjálfir frá," segja þeir Brimklóarmenn, kok- hraustir eins og sjóara er siður. „Við höfum breytt plötumark- aðnum hérna, nú spila flestir country-rokk. Við hittum fyrstir á fjöldann með þessari tónlist, en við viljum samt ekki axla ábyrgðina af öllu því sem á eftir hefur fylgt. Við erum nýbúnir að gefa út nýja plötu og við ákváðum að skilja ekki alveg við þessa linu á þeirri plötu. Fólkið vill þessa tónlist, þetta eru melódísk lög og við höfum alltaf verið hrifnir af þessari tónlist. En nýja platan er bara miklu betri en sú fyrri, hún er stór framför á öllum sviðum. B.J.Cole, sá frægi brezki tón- listarmaður sem aðstoðaði okk- ur við hljóðfæraleikinn, sagði: „Ef menn geta náð að spila country-tónlist vel, þá verða þeir ekki í nokkrum vandræð- um með annað." Einfaldleikinn er stundum svo flókinn. En Brimkló er Brimkló og við ætl- um ekki í Norræna húsið til tónleikahalds á þriðjudagseftir- miðdegi. Þetta er sú tónlist sem við hlustum mikið á og við erum undir miklum áhrifum frá þessari línu. En country- tónlistin er svo greinótt tré — sjáið Eagles og sjáið lcelandic cowboy. . . Já, víst er það rétt, að fjöl- breytnin er mikil. En hvað skyldi taka við hjá Brimkló að lokinni þessari landsreisu? Leik- ur ykkur ekki forvitni á að vita það, hlustendur góðir?: „Spyrjum að leikslokum," segja þeir í Brimkló. „Okkur langar til að fara eina ferð, við erum að hittast á ný. Það er gaman að fara til fólksins, fara burt úr Reykjavik. Það er líka svo gaman að spila fyrir áheyr- endur, svo ólíkt stúdíóvinn- unni. Það er meira stuð og meiri kraftur og þarf meiri sam- Arnar: „Brimkló." Sigurjón: „Það bezta var sumarið'71 meðÆvintýri. Ein- vern veginn er það nú svo, að nútíminn er aldrei merkilegur." Björgvin: „Ég segi það sama og Sigurjón, Ævintýri '71. Það varð slík stökkbreyting, hárið síkkaði, menn urðu reiðir, vondir og háværir rokkarar." Ragnar: „Ég gæti nefnt sum- arið '72 með Mánum og sum- arið '67 með Dumbó og Steina — það var heitt sumar. Þá gátum við fengið 1 0 atvinnutil- boð á kvöldi." Sigurjón: „Af hverju nefn- irðu ekki líka árið '63 i Bíóhöll- inni á Akranesi með Kalla Sig- hvats? Af nógu er að taka!" Hannes Jón. „Ég segi Brim- kló og svo var lika gaman í Næturgölum i gamla daga, '68—'69, en á annan hátt." Arnar: „Skemmtilegasta kvöldið var gamlárskvöldið í Lauqardalshöllinni með Brim- kló . . ." Sigurjón: „Hápunkturinn var þegar Ævintýri lék í Saltvik.í mígandi rigningu um hvíta- sunnuna . . ." Nú, hlustendur góðir, neyddumst við til að slökkva á SléfíS^HDUR* heldni til að spila vel og ná til áheyrenda. . . Gætu þeir kannski hugsað sér að gerast atvinnuhljómsveit á ný? „Það er heilmikið þrekvirki að halda út veturinn núna. Þetta er svo mikið fyrirtæki. Það er samdráttur í greininni, diskótekum fjölgar, gagn- fræðaskóladansleikir hafa víða verið bannaðir, danshúsum fækkar og hljómsveitirnar eru stærri og þyngri í vöfum en *Sður. Að reka hljómsveit er eins og að reka meðaltogara! Við sjáum hérna hljóðfæri Eikarinnar, sem lánaði okkur afnot af skúrnum. Þetta eru fleiri tonn, nóg í heilan bílskúr . . . Það er erfitt að lifa í þessum bransa, ekki nóg að gera og samt verða menn að spila til að halda sér í þjálfun En kannski hefur eitthvað fleira breyzt en bara fjöldi dans- leikja, kannski hafa áheyrendur breyzt?: „Þessi sérstaka tilfinning að hlusta á tónlist hljómsveitanna virðist horfin hjá fjöldanum, nú er þetta bara orðinn bakgrunn- ur sem menn hlusta ekki á, rétt eins og útvarpið. Það vantar líka gróskuna í þetta, það hefur engin endurnýjun orðið í 12—15 ár. Þessi tónlist til- heyrir okkar kynslóð og það hefur ekkert nýtt komið fram hjá þeim sem yngri eru, nema ræflarokkið, sem er afturkreist ingur, síðasta hálmstráið, alger endalok, þar sem reynt er að ganga fram af mönnum . . . Og þó, gleymum ekki síða hár- inu, þegar allt fór í háaloft í fjölskyldum okkar. Nú erum við fjölskyldufeður, eigum börn og erum kannski farnir að hugsa öðruvísi en þeir yngri . . . En, nú, hlustendur góðir, er tími okkar alveg á þrotum og við höfum aðeins möguleika á að skjóta inn einni spurningu enn og biðjum hvern skipverja á Blimklónni að svara fyrir sig: Hvaða tímabil á löngum starfs- ferli þeirra í poppinu er þeim minnisstæðastur? Brimkló RE á vertíð á ný — með Halla og Ladda sem háseta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.