Morgunblaðið - 10.07.1977, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULl 1977
35
segulbandstækinu, enda er
þátturinn kominn fram yfir
tlmamörk s!n. Við þökkum
áhöfninni á Brimkló fyrir spjall-
ið og hlustendum áheyrnina.
Tæknimaður var Stefán Hall-
dórsson og ég, Slagbrandur,
kveð að sinni . . .
Útvarp Uganda, nú verða
sagðar fréttir. Ástsæll þjóðar-
leiðtogi okkar, dr. Idi Amin
Dada, hefur ákveðið að styrkja
atvinnuvegi íslendinga og ætl-
ar að gerast háseti á velbátnum
Brimkló RE 51 5 og tekur með
sér harmónikkuna . . . —sh.
Hljómplötuútgáfan hf. (í8ur Hljómplötuútgáfan Júdas hf.) hefur nýlega
sent frá sér stóra plötu með Vilhjálmi Vilhjálmssyni, „Hana nú". Næsta plata
fyrirtækisins verSur stór plata me8 söng barnastjörnunnar Rutar Reginalds,
sem sló I gegn me8 Simmsalabimm I fyrra. . .
S.G.-hljómplötur hafa nýlega sent á markaS sólóplötu Björgvins Glslason-
ar. gltar- og hljómborSsleikara I hljómsveitinni Póker. Næsta plata fyrirtækis-
ins verSur gamanmálaplata me8 hinum kunna skemmtikrafti og eftirhermu,
Jörundi GuSmundssyni. Þar á eftir kemur svo önnur plata me8 Lúdó og
Stefáni og aS sögn Svavars Gests verSur hún öllu vandaSri en fyrsta platan.
sem var gerS I dálitlum flýti. . .
Fálkinn hf. á einar þrjár plötur á lager og er þeirrar fyrstu vart a8 vænta
fyrr en eftir mánu8. Þa8 er sólóplata Ólafs ÞórSarsonar I Rló, en hana gerSi
Ólafur á þeim tlma er hann stóS utan vi8 Rló, á undan „Fólks"-plötunni.
Mannakorn hafa gert aSra plötu me8 lögum Magnúsar Eirlkssonar og Fálkinn
hefur keypt útgáfurétt a8 stórri plötu Bergþóru Árnadóttur I Þorlákshöfn,
sem gerS var á löngu timabili I fyrra og á þessu ári. Það eru hljóSfæraleikarar
úr Celcius sáluga sem leika undir hjá Bergþóru. . .
Birgir Hrafnsson og félagar úr Celcius hafa á ný tekiS til vi8 upptökur á efni
slnu og frekari vinnslu á þvl sem þeir hljóSrituSu fyrr á árinu, á meSan
hljómsveitin var og hét. . .
Gagn og gaman er nýbúiS a8 fá I hendur hljóSritun meS nýrri fjölskyldu-
plötu, sem þeir Valgeir I Spilverkinu, Leifur I Þokkabót og Pétur Gunnarsson
rithöfundur stóðu að, ásamt fleirum. . .
Bókaútgáfan Iðunn er að færa út kvíarnar I plötuútgáfunni eftir velgengni
Visnaplötunnar á siðasta ári. Önnur vlsnaplata er nú komin langt I vinnslu og
sem fyrr eru þeir Gunnar ÞórSarson, Björgvin Halldórsson og Tómas
Tómasson þar einkum I forsvari. Þá hefur Iðunn gert samning við Megas og
piltana I Spilverkinu um gerð nýrrar plötu og eru upptökur að hefjast um
þessar mundir. . .
Útgáfan Geimsteinn hefur lokið gerð nýrrar plötu með hljómsveitinni
Geimsteini, en það eru þau hjónin Rúnar Júllusson og Marla Baldursdóttir og
Þórir, bróðir Martu, sem eru kjarni hljómsveitarinnar. Ýmsir aSstoðarmenn
koma einnig við sögu. . .
Eik í stúdíóinu
Ijósm Kr Ol
Hljómsveitin Eik hefur lokið gerð nýrrar plötu sem væntanleg er á markað
innan skamms á vegum hljómplötuútgáfunnar Steinar hf. Þá léku liðsmenn
Eikarinnar undir á sólóplötu Herberts Guðmundssonar, söngvara, en hann
hefur I hyggju að gefa plötuna út sjálfur, að þvl er Slagbrandur best veit. . .
Hljómsveitin Haukar hefur boðað útkomu nýrrar plötu innan skamms.
Platan sú mun heita „Svo á réttunni" I framhaldi af nafni fyrri plötunnar
„Fyrst á röngunni". Er þá óhætt a8 spá, að þriðja platan, ef af verSur, hljóti
nafnið „Tjú tjú og tralala". . .
Toshiba sm. 3100 stereosamstæða.
Þetta er ný glæsileg stereosamstæða. Útvarpstæki með langbylgju,
miðbylgju og Fm. — Sterkur 2x1 9 watta stereo magnari (musik power)
— reindrifinn plötuspilari og magnetiskt pickering pickup eftir vali,
vökvalifting á armi. — Casettusegulband með „memory" og tveim
upptökumælum — 2 stórir stereohátalarar. í hvoru boxi er 1 6 sm. bassa
hátalari og 5 sm. tweeter. Verð með öllu 161.540. Pickering xv 200 E
pickup fylgir.
BERGSTAÐASTRÆTI lOA-SlMI 16995
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Nýkomin sending á þessu lága verði. Greiðsluskilmálar.
Hringið eða skrifið eftir upplýsingum.
Við sendum í póstkröfu hvert sem er.
Sm 3200
Útvarpstæki, stereo
magnari 2x12 wött,
cassettusegulbands-
tæki með DNC filter.
Verð kr. 164.335. án
hátalara.
Sm 2900
Útvarpstæki,
stereomagnari 2x14
wött, cassetusegul-
band, 2 stórir hátalar-
ar.
Verð með öllu
kr. 141.350.
Sm 2100
Útvarpstæki, stereo,
plötuspilari. 2 stórir
hátalarar.
Verð með öllu
kr. 93.270
TOSHIBA
Stærstir í heimi í framleiðslu elektroniskra tækja
Stórglæsileg stereo — fjölskylda
á ótrúlega vægu verði — Eitthvað fyrir alla
^oSuba