Morgunblaðið - 10.07.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.07.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULl 1977 35 segulbandstækinu, enda er þátturinn kominn fram yfir tlmamörk s!n. Við þökkum áhöfninni á Brimkló fyrir spjall- ið og hlustendum áheyrnina. Tæknimaður var Stefán Hall- dórsson og ég, Slagbrandur, kveð að sinni . . . Útvarp Uganda, nú verða sagðar fréttir. Ástsæll þjóðar- leiðtogi okkar, dr. Idi Amin Dada, hefur ákveðið að styrkja atvinnuvegi íslendinga og ætl- ar að gerast háseti á velbátnum Brimkló RE 51 5 og tekur með sér harmónikkuna . . . —sh. Hljómplötuútgáfan hf. (í8ur Hljómplötuútgáfan Júdas hf.) hefur nýlega sent frá sér stóra plötu með Vilhjálmi Vilhjálmssyni, „Hana nú". Næsta plata fyrirtækisins verSur stór plata me8 söng barnastjörnunnar Rutar Reginalds, sem sló I gegn me8 Simmsalabimm I fyrra. . . S.G.-hljómplötur hafa nýlega sent á markaS sólóplötu Björgvins Glslason- ar. gltar- og hljómborSsleikara I hljómsveitinni Póker. Næsta plata fyrirtækis- ins verSur gamanmálaplata me8 hinum kunna skemmtikrafti og eftirhermu, Jörundi GuSmundssyni. Þar á eftir kemur svo önnur plata me8 Lúdó og Stefáni og aS sögn Svavars Gests verSur hún öllu vandaSri en fyrsta platan. sem var gerS I dálitlum flýti. . . Fálkinn hf. á einar þrjár plötur á lager og er þeirrar fyrstu vart a8 vænta fyrr en eftir mánu8. Þa8 er sólóplata Ólafs ÞórSarsonar I Rló, en hana gerSi Ólafur á þeim tlma er hann stóS utan vi8 Rló, á undan „Fólks"-plötunni. Mannakorn hafa gert aSra plötu me8 lögum Magnúsar Eirlkssonar og Fálkinn hefur keypt útgáfurétt a8 stórri plötu Bergþóru Árnadóttur I Þorlákshöfn, sem gerS var á löngu timabili I fyrra og á þessu ári. Það eru hljóSfæraleikarar úr Celcius sáluga sem leika undir hjá Bergþóru. . . Birgir Hrafnsson og félagar úr Celcius hafa á ný tekiS til vi8 upptökur á efni slnu og frekari vinnslu á þvl sem þeir hljóSrituSu fyrr á árinu, á meSan hljómsveitin var og hét. . . Gagn og gaman er nýbúiS a8 fá I hendur hljóSritun meS nýrri fjölskyldu- plötu, sem þeir Valgeir I Spilverkinu, Leifur I Þokkabót og Pétur Gunnarsson rithöfundur stóðu að, ásamt fleirum. . . Bókaútgáfan Iðunn er að færa út kvíarnar I plötuútgáfunni eftir velgengni Visnaplötunnar á siðasta ári. Önnur vlsnaplata er nú komin langt I vinnslu og sem fyrr eru þeir Gunnar ÞórSarson, Björgvin Halldórsson og Tómas Tómasson þar einkum I forsvari. Þá hefur Iðunn gert samning við Megas og piltana I Spilverkinu um gerð nýrrar plötu og eru upptökur að hefjast um þessar mundir. . . Útgáfan Geimsteinn hefur lokið gerð nýrrar plötu með hljómsveitinni Geimsteini, en það eru þau hjónin Rúnar Júllusson og Marla Baldursdóttir og Þórir, bróðir Martu, sem eru kjarni hljómsveitarinnar. Ýmsir aSstoðarmenn koma einnig við sögu. . . Eik í stúdíóinu Ijósm Kr Ol Hljómsveitin Eik hefur lokið gerð nýrrar plötu sem væntanleg er á markað innan skamms á vegum hljómplötuútgáfunnar Steinar hf. Þá léku liðsmenn Eikarinnar undir á sólóplötu Herberts Guðmundssonar, söngvara, en hann hefur I hyggju að gefa plötuna út sjálfur, að þvl er Slagbrandur best veit. . . Hljómsveitin Haukar hefur boðað útkomu nýrrar plötu innan skamms. Platan sú mun heita „Svo á réttunni" I framhaldi af nafni fyrri plötunnar „Fyrst á röngunni". Er þá óhætt a8 spá, að þriðja platan, ef af verSur, hljóti nafnið „Tjú tjú og tralala". . . Toshiba sm. 3100 stereosamstæða. Þetta er ný glæsileg stereosamstæða. Útvarpstæki með langbylgju, miðbylgju og Fm. — Sterkur 2x1 9 watta stereo magnari (musik power) — reindrifinn plötuspilari og magnetiskt pickering pickup eftir vali, vökvalifting á armi. — Casettusegulband með „memory" og tveim upptökumælum — 2 stórir stereohátalarar. í hvoru boxi er 1 6 sm. bassa hátalari og 5 sm. tweeter. Verð með öllu 161.540. Pickering xv 200 E pickup fylgir. BERGSTAÐASTRÆTI lOA-SlMI 16995 EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Nýkomin sending á þessu lága verði. Greiðsluskilmálar. Hringið eða skrifið eftir upplýsingum. Við sendum í póstkröfu hvert sem er. Sm 3200 Útvarpstæki, stereo magnari 2x12 wött, cassettusegulbands- tæki með DNC filter. Verð kr. 164.335. án hátalara. Sm 2900 Útvarpstæki, stereomagnari 2x14 wött, cassetusegul- band, 2 stórir hátalar- ar. Verð með öllu kr. 141.350. Sm 2100 Útvarpstæki, stereo, plötuspilari. 2 stórir hátalarar. Verð með öllu kr. 93.270 TOSHIBA Stærstir í heimi í framleiðslu elektroniskra tækja Stórglæsileg stereo — fjölskylda á ótrúlega vægu verði — Eitthvað fyrir alla ^oSuba

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.