Morgunblaðið - 10.07.1977, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULl 1977
41
Hér er Susanne á vatninu á
bátnum sfnum sem er holur
trjástofn.
Ovenjuleg
snmarvinna
+ Það er óvenjuleg sumar-
vinna sem danska stúlkan
Susanne Pedersen hefur.
Susanne er 16 ára og þetta er
áttunda sumarið sem hún er
steinaldarstúlka á Hjerl Hede,
milli Holsterbro og Skive á Jót-
landi. Hún malar korn, bakar
brauð og siglir á holum trjábol
á vatninu, allt sem líkast því er
gert var fyrir fimm þúsund ár-
um. Sumir halda e.t.v. að þetta
sé eins og að leika sér og liggja í
sólbaði allt sumarfríið í bikini
úr skinni. En það er misskiln-
ingur, það þarf hestaheilsu til
að vera steinaldarstúlka. Vin-
kona Susanne, sem búið hefur i
steinaldarbænum á sumrin frá
þvi hún var smábarn, er ekki
með í sumar. Hún þoldi ekki
steinaldarlifið og varð veik og
vinnur nú í veitingastofu í sum-
ar. Ca 200.000 ferðamenn heim-
sóttu steinaldarbæinn í júlí-
mánuði siðastliðið sumar. Fólk-
ið í steinaldarbænum reynir að
likja sem mest eftir þvi, sem
vitað er um lifnaðarhætti fólks-
ins á þessum tíma, fyrir um það
bil fimm þúsund árum, og hann
hefur mikið aðdráttarafl fyrir
ferðamenn. Þeir spyrja margra
spurninga og sumar þeirra eru
mjög heimskulegar, segir Sus-
anne. Sumir spyrja hvernig
hægt sé að baka án þess að hafa
sykur, sem ekki þekktist á þess-
um tíma. En það voru til
býflugur, blóm og hunang sem
er mjög gott i bakstur. Eða
hvernig hægt sé að láta brauðin
lyfta sér án þess að hafa ger. En
steinaldarstúlkan notar hrein-
Hér situr Susanne f dyrunum á kofanum, sem hún býr f og veitir
ótrúlega gott skjól fyrir regni og vindi.
dýralauf, sem vex á heiðinni.
Susanne segir að sumir foreldr-
ar, sem þarna koma með börn
sín, telji þeim trú um að fólkið
þarna sé fimm þúsund ára gam-
alt. Börnin eru dauðhrædd við
það og þora ekki :ð koma
nálægt því eða yrða á það.
„E.t.v. halda þau að við getum
ekki talað. Mér finnst að for-
eldrarnir ættu að segja börnum
sinum að við séum bara að
leika. Susanne fær 16 þúsund
krónur í laun fyrir þessar fjór-
ar vikur sem hún er f stein-
aldarbænum á Hjerl Hede. Þrjá
og hálfan tíma á dag hefur hún
viss verk að vinna. Þess á milli
leikur hún sér með félögum sin-
um í steinaldarbænum, þau
sigla á vatninu á holum trjábol-
um og gera sér ýmislegt fleira
til skemmtunar. A kvöldin
kveikja þau gjarnan varðeld.
Susanne finnst þetta miklu
fremur leikur en starf og hún
vidli ekki skifta við vinkonur
sínar sem vinna i verzlunum
eða veitingahúsum í sumarfrí-
inu.
fclk f
fréttum
I fótspor feðra
sinna og mæðra
+ Það gerist æ algengara að börn þekktra leikara feti
í fótspor feðra sinna og mæðra. Þessi tvö eru Patrick
Wayne sonur John Wayne og Taryn dóttir Tyrone
heitins Power. Þau leika saman í nýrri mynd sem
heitir „Sinbad og auga týgrisdýrsins". Myndin á að
gerast á steinaldartfmanum og þykir heldur óhugnan-
leg.
^rðaverslun í Grímsbæ«H
Nýkomið
Mikið úrval af áteiknuðum puntuhand-
klæðum, einnig mikið úrval af hannyrða-
vörum. Opið frá 9 — 6
Reynið viðskiptin. Sími 86922.
Meðeigandi óskast
Fjársterkur meðeigandi óskast að stóru bakaríi í
fullum rekstri á góðum stað í borginni.
Æskilegt, að hann sé bakari að menntun.
Til greina kemur að stofna hlutafélag um
reksturinn. Tilboð sendist Morgunblaðinu
merkt: „Tækifæri — 4721" fyrir 1 5. júlí n.k.
Stór húseign
við Laugaveg
á hornlóð og eignarlóð til sölu.
Gott verzlunarrými á gótuhæð. 3 íbúðir.
Sveinn Snorrason hrl.
Laufásvegi 12
Njög ódýrar
rafsuðuvélar
1. Margar stæðir.
2. Mjög kraftmiklar.
3. Verðfrá 27.000,-
BALDURSSON H/F,
Klapparstíg 37, sími 26516