Morgunblaðið - 10.07.1977, Síða 45

Morgunblaðið - 10.07.1977, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULÍ 1977 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI orðið satan þýðir andstæðingur Guðs. Þessari veru fylgdu margar aðrar andaverur og það eru þess- ar verur sem fólk er í sambandi við er það leitar frétta af fram- liðnum. Það er því ekki furða að Guð bannar algjörlega allt slikt, sama er að segja um spákonur og fleira. Fyrsta lygi Satans var þegar hann sagði við Evu að vissulega dæi hún ekki þótt hún óhlýðnað- ist Guði, heldur yrði hún eins og Guð, en hver sagði sannleikann, Guð eða Satan? Það er virkilega sorglegt hvað margir trúa þessari fyrstu lygi Satans. Ég vildi hvetja alla einlæga menn til að rannsaka Bibliuna sjálfa og finna sannleik- ann í þessu máli. Guðrfður Guðjónsdóttir, Hofsstöðum, Eyrarbakka.“ Svo mörg voru þau orð og við höldum okkur við efnið og hér fara á eftir nokkur orð frá Sigurði Draumland: # Einstefnu- akstur Matthías Jochumsson hefur verið klemmdur út úr sálmabók- inni Leirgerði 20. aldar. Og hver sem það nú er sem ræður vali á prestum og ræðum þeirra í út- varpi á helgidögum, þá gengur hann framhjá flestum frjálslynd- um guðfræðingum og velur hina. I húsi mínu eru margar vista- verur — stendur einhvers staðar. En er það álitið að höfundur lifs- ins hafi velþóknun á að stefna til afnáms trúfrelsis á Islandi, af- náms prestkosninga og að nýrri gerð um eignarhöld? Nú er t.d. hinn forni ættbrigða- réttur löngu úr sögunni og þjóðin yrði því berskjaldaðri en fyrrum var fyrir ásælni kirkjunnar, — ekki burðugra hjálparmeðal en sú kristnistefna er sem undanfarna áratugi hefir ríkt. Þjóðkirkja á að vera á Islandi, frjálslynd mótmæl- endakirkja. En I útvarpi og með öðrum aðgerðum er nú fylgt mjó- um vegi, ekki til hjálpræðis held- ur til útskúfunarkenningarinnar I fullum krafti síðar, þótt nú sé þegar komið framhjá nokkrum vegarmerkjum sem vísa þangað. Ahrifa þessara umbrota hefur um alllangt skeið gætt hér á Akureyri, ekki frá kennimönn- um, heldur í því formi frá nokkr- um fjölmiðlum að þola ekki að kirkjan hér heiti Matthíasar- kirkja. Hver rær undir? Að vísu ætti núverandi kirkjuhús að heita dómkirkja Akureyrar, en byggja ætti nýja kirkju tileinkaða Matthíasi. Amtsbókasafnið mætti heita Davíðsbókhlaða. Davlð frá Fagraskógi var ekki guðfræð- ingur til allrar hamingju fyrir hann sjálfan, en hver getur bent á sannari llfstrúarmenn en Matthlas og Davlð, jafnvel sann- heitari guðstrúarmenn? Og má nefna þá eigi seinna en Harald Nlelsson, sem eins og kunnugt er boðaði skoðanir Fjallræðuhöf- undarins snjallar og innilegar en nokkur klerklærður Islendingur fyrr og síðar. Dæmi eru um það I sögu þjóð- anna svo I trúmálum sem öðrum, að menn, yfirleitt vænir og inni- lega hrifnir af sinni stefnu, hafa lagt komandi kynslóðum til bagga að bera I formi lagasetninga og hughrifa, sem þeim verri menn beittu harðneskjulegar I langar aldir. Voru sem sagt engir menn, nema fyrir reglurnar og yfirborð- ið. Því er skylda að gá hér að og geyma siðari kynslóðum frjálsan rétt. Noti þær kynslóðir vilja sinn og vit vel, og það er alls engin ástæða til að efast um, geta þær miklu fremur stýrt framhjá blind- skerjum eða yfir þau, óbundnar af þrældómsoki liðins tima. Ef holskefla ris, þá er illt að vera tjóðraður. Þá skaðast það eða ferst sem alltaf þarf að bjargast, — ef til vill einkum það. Sigurður Draumland." Mjög ödýr 12VDRÁTTARSPIL # Kraftmikil og örugg. # Henta vel fyrir bíla og trillur. # Eru laus og má festa hvar sem er. # Halda hlassi þegar stöðvað er. # Eru fjarstýrð. BALDURSSON H/F KLAPPARSTÍG 37, Sfmi 26516 — 26455. # Veðurkort f dagblöðum? Dagný: — Einn er sá hlutur sem ég hefi saknað úr blöðum hérlendis en það er að geta séð hvernig veðrið er I hinum ýmsu löndum. Það er gaman að geta lesið um það hvernig veðrið er hér og þar, t.d. kl. 12 á hádegi, hvort að við hér á landi erum I rigningu meðan aðr- ir Evrópubúar hafa sól eða öfugt. Maður fær þetta upplýst i morgunútvarpinu I belg og biðu og nær ekki að melta það, það væri miklu betra að geta gert það I rólegheitum með morgunkaff- inu I blaði. Ég held að það geti varla verið svo mikið fyrirtæki að fá þetta upplýst á veðurstofunni SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson A Ólympíuskákmótinu I Haifa I fyrrahaust kom þessi staða upp I skák þeirra Toths, Italiu, sem hafði hvítt og átti leik, og Serets, Frakklandi. Siðasti leikur svarts var 29. ... Hg6-g7 og hvítur fann nú einfaldan, en snjallan leik sem gerði út um taflið: 30. Hf8+! Svartur gafst upp, því að eftir 30. ... Kxf8 31. Dh8+ Kf7 32. Rxe5+ — Kf6 33. Rxd7+ er staða hans auðvitað með öllu von- laus. og fá gert veðurkort, svipað og er alltaf I sjónvarpinu. # Sólarferðir og útilegur „Utilegumaður“: —Ég vil aðeins i framhaldi af orðum „sóldýrkanda" í Velvak- anda á föstudag upplýsa hann um að útilegur hérlendis eru miklu minna fyrirtæki en hann virðist halda. Hann talar um að hann nenni ekki í útilegu i fríi sínu vegna þess að það sé svo mikil vinna að tjalda og allt sem úti- legum tilheyri kosti svo mikið um- stang, að hann komi jafnvel þreyttari heim. Ég vil endilega hvetja sóldýrkandann til að prófa eina og eina útilegu milli sólar- ferðanna, þvi ekki vil ég að hann missi af þeim úr þvi hann hefur ánægju af, en ef hann prófaði útilegu eina helgi þá er ég viss um að hann kæmist að því hvað þær eru hressandi og skemmtilegar. Það er ekkert mál að útbúa nesti, bara taka eitthvað fljótiegt með, svefnpoka, einn aukaskammt af fötum og að ógleymdu tjaldi og prímus. Siðan er að aka eitthvað óg finna tjaldstæði, helzt við læk, því þar er að finna i senn isskáp og þvottaskál og þá er nokkurn veginn upptalin öll fyrirhöfnin. PEUCEOT HHUHIJOL NE9 IUÁLPARMÓTOK Sjálfskipt. Vél 1,5 — 1,8 hefstöfl. Eyðsla 1,6 til 2 I. á 100km. Ennfremur gírahjól með 2,5 hestafla vél. Smekklegt útlit á franska vísu og hin margrómuðu Peugeot gæði. VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211-85505 FURUVÖLLUM 11 SÍMI 21670 ----------------------- UMBOÐÐ A AKUREYRI- HAFRAFELL HF. VÍKINGUR SF. S2F SIG6A V/öGA g itLVtmi kawwi vo^v/vmm \ ^onvoi- Sfötf 0\<Kot? s wfvO/í Átí A9 Ló$t$)A OKKOtf VÚ 5/X\KíK W UW Yl£V VZI' A9 SG t\\$m 4 Yimi AVbY/EWR/ föl KElfr VfaAYlLíGM W VKKOÍ?, Vsm sm og vowyawy. VoföKHÁOS V/9 VLWm Á VKKoV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.