Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULI 1977 47 Leiðrétting LEIÐ mistök urðu i blaðinu i gær, er birt var mynd af Guðlaugu Eiriksdóttur frá Blómsturvöllum, er lézt á sl. hausti, með minn- ingargrein um Guðlaugu Eiríks- dóttur fyrst til heimilis í Hafnar- firði, en nú síðustu ár ævi sinnar austur á Eyrarbakka. Er beðizt afsökunar á mistökum þessum. Leiðrétting I undirfyrirsögn á bls 2 i blað- inu i gær, þar sem sagt var frá fiskverðshækkunum á Banda- ríkjamarkaði, stóð að hækkun hefði orðið á öllum tegundum nema 4x15 punda þorskflökum. Eins og kemur fram í fréttinni sjálfri var þetta ekki rétt. Verðið hækkaði á öllum tegundum nema 10x5 punda pakkningum. — Katrín sextug Framhald af bls. 16 voru þau nær óaðskiljanleg. Þrátt fyrir erfiðleika á æskuárum, gekk Katrin menntaveginn. Hún fékk inngöngu í Kvennaskólann í Reykjavik nokkrum árum eftir barnapróf fyrir eigin dugnað og aðstoð móðursystur sinnar og gekk henni vel í skóla, lauk þaðan prófi með ágætiseinkunn. Siðan réðst hún i nám við Hjúkrunar- skóla Islands og á námsárum sín- um vann hún m.a. við Kleppsspít- alann og Landspitalann, þar sem hún hefur unnið lengst af. Eftir að hún er orðin hjúkrunarkona fór hún til starfa við Sjúkrahúsið I Húsavík sem yfirhjúkrunar- kona. I Húsavik kynntist hún eig- inmanni sínum, Gunnari Aðal- steinssyni. Þau fluttust siðar til Reykjavíkur og hafa starfað þar siðan. Á þessum árum voru bræð- ur hennar að brjótast til mennta og studdi hún ætið við bak þeirra að öllum mætti. Alla tíð var sam- heldni þeirra systkina slík að að- dáunarvert var. Þegar ég var vör þeirrar hlýju og gleði, sem ríkti, þegar þau hittust og voru saman, þá skildi ég bezt hvað systkini eru dýrmæt eign hverjum einstakl- ingi, þá eign varðveittu þau vel og mátu án efa vegna hinna miklu bernskuerfiðleika. Það var ekkert sem þessi systkini létu ógert til að hjálpa hvert öðru. Það voru erfið- ar stundir fyrir þær systurnar, þegar bræður þeirra létust í blóma lífsins, Hafsteinn 1967 og Hilmar 1968. Katrin hefur nú starfað í Röntgendeild Landspít- alans undan farin ár, þar sem hún hefur hjálpað og liðsinnt fjölda fólks, sem sótt hefur geislalækn- ingu. Hún hefur verið góður starfskraftur og gegnt trúnaðar- störfum hjúkrunarfræðinga. Hún er vinsæl af sjúklingum sinum og vel metin af samstarfsfólki, þó oft þyki hún nokkuð hvatskeytt og ákveðin i skoðunum. Hún hefur yndi af skemmtilegum sögum og hnyttnum tilsvörum. Oft þykir hún nokkuð dómhörð og fylgin sér og sjaldan ann hún sér hvíld- ar. Katrín og Gunnar áttu nýverið 30 ára hjúskaparafmæli. Þau eiga fjögur uppkomin börn: Ingi- björgu Sesselju, f. 1945; Guð- mund Aðalstein, f. 1947; Jóhönnu Guðbjörgu, f. 1952; og Katrínu Gunnvör, 1957; og fjögur barna- börn. Eitt barn mætti kenna henni enn, sem hún barðist fyrir að kæmist í heiminn og henni má þakka að fæddist heilbrigt. Fyrir það vil ég þakka henni, auk alls þess sem hún hefur gefið af sínu stóra hjarta. Lifðu heil með guðs friði. Birna Bjarnadóttir. kos of mikt Til er fólk, sem heldur að því meir, sem hljómtaeki kosta þeim mun betri séu þau. Að vissu leyti er þetta rétt, ef orðið „betra" þýðir að þér getið spilað fyrir allt nágrennið, án bjögunar Crown framleiðir einnig þannig hljómtæki. En við höfum einnig á boðstólum hljómtæki, sem uppfylla allar kröfur yðar um tæknileg gæði LAUSNIN ER €ÍSHC 3150 sambyggðu hljómtækin. Þér fáið sambyggt mjög vandað tæki, sem hefur að geyma allar kröfur yðar. Crown sambyggðu tækin eru mest seldu stereotæki lands- ins. Ef það eru ekki meðmæli, þá eru þau ekki til. Ársábyrgðoq fullkomnasta viðgerðaþjónusta landsins. Einnig fást Crown SHC 3330 Verð 131.179.- SHC3220. Ver8 157.420 - SHC — 3150 ALLT I EINU TÆKI Magnari fjögurra vídda stereo magnari 12 5 W + Í2.5 wött gerir yður kleift að njóta beztu hljómgæða meðfjögurravídda kerfinu. Plötuspilari fullkominn plötuspilari, allir hraðar, vökva- lyfta, handstýranlegur eða sjálfvírkur, tryggir góða upptöku af plötu. Segulband Hægt er að taka upp á segulbandið af plötuspil- aranum, útvarpinu og gegnum hljóðnema, beint milliliðalaust og sjálfvirkt. Segulbandið er gert fyrir allar tegundir af cassettum, venjulegar og Krómdioxið Útvarp Stereoútvarp með FM- lang- og miðbylgju. Ákaf- lega næmt og skemmtilegt tæki. i ' 1 I 1 Chafne Stéréo Stereo-Musikanlaye B|smi ið%mL 1 - m v “ lr.\■: J ! k' « CROWN RADIO CORP. JAPAN Verð: 109.860.- SKIPHOLTI 19 V/NÓATÚN, SÍMI 23800. .BUÐIRNAR CROWN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.