Morgunblaðið - 10.07.1977, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.07.1977, Blaðsíða 48
-4___ \n;KVSlN(;.\SIMIN\ KR: 22480 JttorfliuibTnöiíi AUÍÍLYSINÍÍASÍMINN ER: 22480 Bl»r0unMnt>ií> SUNNUDAGUR 10. J(ULl 1977 Fíkniefnadómstóllinn: Hefur haft afskipti af liðlegalOOO ís- lenzkum ungmeimum Ffkniefnadómstóllinn hefur frá árinu 1973 fram til þessa dags haft afskipti af liðlega 1000 íslenzkum ungmennum vegna fíkni- efnamála. A þessum árum hefur verið upplýstur inn- flutningur á 120—130 kíló- um af kannabisefnum, hassi og marihuana, þar af 60 kíló í fyrra. Af þessu magni hefur fjórðungur verið gerður upptækur. Þetta kemur m.a. fram í viðtali Mbl. við tvo starfs- menn Fíkniefnadómstóls- ins, þá Ásgeir Friðjónsson sakadómara og Arnar Guð- mundsson fulltrúa, sem birt er á bls. 20 og 21 í biaðinu í dag. 1 viðtalinu kemur einnig fram, að Fíkniefnadómstóllinn hefur frá miðju ári 1974 fram til þessa dags afgreitt 573 mál, og mál 200 einstaklinga bíða afgreiðslu. A þessu ári hafa 15 aðilar verið dæmdir, þar af 10 í fangelsi, frá 2 einstaklinga hafa verið afgreidd með sektum frá nokkrum þúsund- um króna upp í tæpa hálfa millj- ón. Þá kemur fram í viðtalinu, að í seinni tíð hafa nokkrir aðilar stundað fíkniefnasmygl af hreinní hagnaðarvon. Þeir Ásgeir og Arnar segja i viðtalinu að tölu- vert mörg ungmenni séu það langt leidd, að telja megi þau sibrotafólk í meðhöndlun fíkni- efna og margir hafi nú þegar glögglega beðið líkamlegt og/eða andlegt tjón á heilsu sinni. Frá undirritun sjómannasamninganna f gær f húsakynnum sáttasemjara rfkisins í Tollstöðinni. — Ljósm.: RAX. Sjómenn og útvegsmenn sömdu 1 gær: Megininntak samninganna mánaðarlegt tryggingatímabil Fiskverðshækkun ákveðin 20% í gær SJOMENN og útvegsmenn undir- rituðu nýja kjarasamninga f gær. mánuðum til 4 ára og mál 120 I Að sögn fulltrúa sjómanna, sem Þorskstofninn: Friðunartíllögumar fyr- ir ríkisstjóm á fimmtudag „A MEÐAN friðungartillögurnar hafa ekki verið lagðar fyrir rfkis- stjórn og staðfestar þar, get ég ekki sagt hvernig þær eru. Til- Alexander Haig. lögurnar verða lagðar fyrir rfkis- stjórnarfund f næstu viku, Ifklega á fimmtudag, og ef þær verða samþykktar þá, verður strax gef- in út reglugerð, sem ætti að taka gildi fljótlega upp úr næstu helgi,“ sagði Matthfas Bjarnason sjávarútvegsráðherra f viðtali við Morgunblaðið f gær, er hann var spurður um fyrirhugaðar aðgerð- ir til friðunar á þorskstofninum f þá átt að heildarveiði þorsks fari ekki fram úr 275 þús. lestum á þessu ári. Sjávarútvegsráðherra hefur þegar kynnt hugmyndir sínar fiskifræðingum og fulltrúum út- gerðarmanna og sjómanna og samkvæmt því, sem Morgunblað- ið hefur fregnað, verður ekki far- ið út í kvótaskiptingu á hvért skip, heldur gripið til annarra að- gerða. Morgunblaðið ræddi við f gær, eru þessir kjarasamningar að meginstofni til um breytingu á kauptryggingatfmabili, sem nú verður einn mánuður á báta- flotanum, og einnig mun hver veiðiferð togara teljast sérstakt kauptryggingatfmabil. Engar breytingar voru gerðar á skipta- prósentu. Fulltrúar sjómanna sögðu að þessir kjarasamningar færðu sjómönnum mjög merkan áfanga, sem væri breytt tfmabil og mánaðarlegt uppgjör. Ingólfur Ingólfsson, formaður Vélstjóra- félags Islands, kvaðst telja að þessir samningar væru hinir merkustu samningar fyrir báta- sjómenn, sem náðst hefðu sfðan 1961, en þá voru tekin upp brúttó- skipti. Kristján Ragnarsson, for- maður Landssambands fslenzkra útvegsmanna, kvað hið breytta skipulag mundu auka áhættu f útgerðarrekstri, en hann fagnaði að náðst hefðu samningar átaka- laust. Þá var fiskverðshækkun ákveðin f gær að loknum samn- ingafundum og hækkar fiskverð um 20%. Öskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, kvað erfitt að gera sér nákvæma grein fyrir útkomu samninganna, en við fyrstu yfirsýn sagði hann að þeir hefðu tekizt vonum framar. „Ég segi eins og forveri minn, að ég er aldrei ánægður, þegar upp er staðið frá samningum, en hér hefur þó náðst merkur áfangi f kjaramálum sjómanna." Helzti áfangi samninganna kvað Öskar vera breytt kauptryggingatfma- bil. Hann kvað samninganefnd sjómanna hafa metið þann áfanga svo mikils, að ákveðið hafi verið að hreyfa ekki skiptaprósentum að sinni. „Hún er þó geymd, en ekki gleymd,“ sagði Öskar Vigfús- son og bætti við um breytt kaup- tryggingatímabil, að sú kerfis- breyting, sem með samningunum hefði náðst, hefði fellt úr gildi 30 ára gamalt kerfi. Nýja kerfið tekur gildi hinn 1. ágúst næst- komandi. önnur atriði kjarasamninganna eru, að fastakaup togarasjómanna hækkar um 24% og nokkur hækk- un fékkst á aflaverðlaunum, sem voru 0,64% en verða nú 0,66% hjá hásetum og hækkar hjá yfir- mönnum eins og bátsmanni og matsveini í 0,68%, en áður höfðu þeir sama hlut og háseti. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands fslenzkra útvegs- Framhald á bls. 46 Y firhershöf ðingi NATO á í slandi YFIRHERSHÖFÐINGI Atlantshafsbandalagsins, Alexander Haig, kom til fslands f gær og mun dvelj- ast hérlendis, m.a. við lax- veiðar, fram á mánudag. Með honum er kona hans Patricia. Haig er hér f einkaheimsókn, en þó f boði utanrfkisráðuneytis- ins. Hann mun hitta að máli sendiherra Banda- rfkjanna á Islandi og for- sætisráðherra, Geir Hallgrfmsson. Alexander Haig kom með einkaflugvél til Keflavíkurflug- vallar síðdegis f gær. Hann var í stjórnartíð Richards Nixons, Bandarikjaforseta, einn helzti að- stoðarmaður Henry Kissingers, utanríkisráðherra, og síðan varð hann helzti aðstoðarmaður for- setans á siðustu valdamánuðum hans f Hvíta húsinu. Sagt er að Haig hafi leikið lykilhlutverk í sambandi við afsögn Nixons. Eftir að Gerald Ford tók við stjórnartaumum í Hvíta húsinu var Alexander Haig gerður að yfirhershöfðingja alls herafla Atlantshafsbandalagsins. Sú skip- un var á sínum tfma mjög um- deild, þar sem álitið var að aðrir menn stæðu nær þeirri stöðu en Haig. HREINN ÞENUR NIKKUNA Hreini Halldórssyni er fleira til lista lagt en að kasta kúlu, hann er vel liðtækur harmonikkuspilari og hafði f eina tfð mikla ánægju af gömlu dönsunum. A blaðsíðum 14 og 15 er spjallað við Hrein um heima og geima. (Llósmvnd Emilla).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.