Morgunblaðið - 16.07.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JULI 1977
Félagið Germanía er sá
félagsskapur sem hvað mest
hefur stuðlað að samskiptum
milli íslands og Þýzkalands á
sviði menningarmála. Félag-
ið var stofnað árið 1920 og
er elzta féiagið af þessu tagi
á íslandi. Tilgangur félagsins
er að greiða fyrir menningar-
legum samskiptum milli
landanna tveggja. Starfsemi
félagsins hefur að miklu leyti
Félagió
Germanía
hefur starfað
í 57 ár
verið fólgin í því, að fá hing-
að til lands Þjóðverja til fyrir-
lestrarhalds eða tónlistar-
flutnings, að ógleymdum
ýmsum sýningum, sem hafa
verið fluttar hingað til lands.
í því sambandi má til dæmis
nefna sýningu á verkum Emil
Nolde, sem Germania stóð
að á fimmtíu ára afmæli sinu
ásamt Listasafni íslands og
Gutenberg — en hún var
fyrirtveimurárum.
Germanía hefur einnig
staðið fyrir því að íslenzkar
listsýningar væru settar upp í
Þýskalandi og fyrirlesarar
færu utan. Auk þessa starfs
hefur Germanía um langt
árabil staðið fyrir þýzkunám-
skeiðum fyrir byrjendur.
Félagar í Germaníu eru
einkum fólk, sem hefur dval-
ið i Þýzkalandi við nám eða
af öðrum ástæðum og kynnzt
landsmönnum og menningu.
í félaginu eru nú um 300
manns. Félagið hefur mikil
samskipti við félög í Þýzka-
landi sem miða að þvi að
halda uppi menningarsam-
skiptum við ísland, en slík
félög eru starfandi bæði i
Hamborg og Köln. Samvinnu
þessara félaga hefur m.a.
verið þannig háttað, að
Germanía hefur skipulagt
hópferðir til Þýzkalands, en
íslandsvinafélögin ytra hafa
gengizt fyrir hópferðum Þjóð-
verja hingað til lands.
Núverandi formaður
Germaníu er Davíð Ólafsson
bankastjóri.
Fyrr á öldum áttu íslend-
ingar litil menningarsam-
skipti við aðrar þjóðir og þar
á meðal Þjóðverja. Einn Þjóð-
verji hafði þó all mikil sam-
skipti við nokkra islenska
framámenn á síðustu öld.
Það var fræðimaðurinn
Konrad Maurer, en hann átti
m.a. mikinn þátt i útgáfu
þjóðsagnasafns Jóns Árna-
sonar. Hann vareinnig dygg-
ur stuðningsmaður íslend-
inga i sjálfstæðisbaráttunni
og er af ýmsum talið að varla
hafi annar maður erlendur
orðið málstað íslands jafn
mikið til framdráttar og
hann, með skrifum sinum
um þau mál.
Margir íslendingar hafa á
liðnum árum sótt menntun
sína til Þýzkalands og þegar
Framhald á bls. 26
Frá opnun Nolde-sýningarinnar árið 1970.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og dr. A. Butenandt, forseti Max Planck
vísindastofnunarinnar, en þeir voru báðir gestir Germaníu á 50 ára afmæli
félagsins.
FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR
/SLAJVDS
Fiankliiit
íyistí áfangí á leíð lengia
Frankfurt er ekki aðeins mikil miöstöö viöskipta
og verslunar — heldur einnig ein stærsta flug-
miðstöð Evrópu. Frá Frankfurt, sem er um þaö
bil í miðju Þýskalandi, eru óteljandi
ferðamöguleikar.
Þaðan er stutt til margra fallegra staða í
Þýskalandi sjálfu (t.d. Mainz og Heidelberg) og
Þaðan er þægilegt að halda áfram ferðinni til
Austurríkis, Sviss, Ítalíu, Júgóslavíu, eða jafnvel
lengra.
Frankfurt, einn fjölmargra
staða í áætlunarflugi okkar.