Morgunblaðið - 20.07.1977, Síða 15

Morgunblaðið - 20.07.1977, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULl 1977 15 Skák —Skák —Skák —Skák —Skák —Skák —Skák —Skák —Skák —Skák — Kann enga skýringu á frammistöðu minni - segir Poluaevsky í viðtali við Mblf en kveðst ætla að berjast til þrautar „EG kann enga skýringu á þess- ari frammistöðu minni. Og reyndar kemur mér jafnt á óvart, hversu mistækur ég hef verið og hversu harður Kortsnoj er,“ sagði svovézki stórmeistarinn Polugaevsky, er Mbl. ræddi við hann I gær, en leikar standa nú 5—1 fyrir Kortsnoj I einvígi þeirra i Evian I Frakklandi. Polugaevsky sagðist ekki álíta að það andrúmsloft, sem rfkti í einvfginu væri orsök þess, hve illa honum gengi. „t'ið tökumst bara í hendur. Mér finnst rétt að það sé ekkert meira okkar I milli. ''ið erum andstæðingar og keppinautar og þar að auki fellur mér ekki, hvernig Kortsnoj hefur komið fram gagnvart föðurlandi okk- ar.“ Þegar Mbl. spurði Polugaevsky, hvort það væri vani hans að eiga aldrei tal við andstæðinga sina, svaraði hann því til, að það fyndist honum eiga við nú. Hann neitaði þvi, að þessi framkoma hans væri til komin að skipan sovézka skák- sambandsins, og þegar Mbl. Tigran Petrosjan dregur sig í hlé ÞAÐ HEFUR vakið at- hygli meðai lesenda sovézka vikuritsins um skák, “64“, sem er jafn- framt víðlesnasta skák- blað í heimi, að nýlega hefur verið skipt um rit- stjóra blaðsins. Tigran Petrosjan, stór- meistari og fyrrum heimsmeistari í skák, hefur horfið frá störfum, eftir langan ritstjórnar- feril, en í sæti hans hefur sest hinn kunni skákrit- höfundur Neistadt. Einnig voru gerðar nokkrar breytingar á rit- stjórn blaðsins. Meðal nýrra ritstjórnarmeð- lima eru þau Anatoly Karpov, heimsmeistari í skák, og Nona Gaprinda- shvili, heimsmeistari kvenna. Meðal þeirra sem hurfu úr ritstjórn var stórmeistarinn Antoshin, en hann tefldi á Reykja- víkurskákmótinú i fyrra. Hann hefur nú til skamms tíma dvalið á Kúbu, við að þjálfa þar- lenda skákmenn. Langmesta athygli vek- ur þó uppsögn Petrosjans, en hann hef- ur ritstýrt ,,64“ um árabil með miklum sóma og virðist erfitt að sjá eðli- legar skýringar á frá- hvarfi hans. Þá vekur athygli að Petrosjan er ekki meðal þátttakenda á 60 ára af- mælismóti byltingar- innar í Leningrad. Þar eru þó saman komnir all- ir helztu skákmenn Sovétríkjanna, sem ekki eru uppteknir við þátt- töku í áskorendaeinvígj- unum, enda þótti mikill sómi þar eystra að fá boð um þátttöku í mótinu. Einnig vekur athygli að Efim Geller, sem var einn af aðstoðarmönnum Petrosjans, er hann tap- aði fyrir Korchnoi í vor, er heldur ekki meðal þátttakenda á mótinu. Að lokum má geta þess á íslenskir áskrifendur að „64“ eru á milli 150 og 200. spurði hann, hvort það væri ekki rétt, að þeir Kortsnoj hefðu verið góðir kunningjar áður fyrr, sagði hann að sam- band þeirra hefði verið ósköp venjulegt samband tveggja skákmanna og ekkert framyfir það. I viðtali við Mbl. fyrir skömmu sagði Kortsnoj aftur á móti að góður vinskapur hefði verió með honum og Polugaevsky áður en Kortsnoj flýði Sovétrikin. Um einvigi þeirra að öðru leyti kvaðst Polugaevsky ekk- ert vilja segja. „En ég mun barjast til þrautar, þótt útlitið sé dökkt sem stendur." Um einvigi þeirra Spassky og Portisch sagði Polugaevsky að bæri með sér, að þar ættust við tveir jafnir skákmenn og væri greinilegt að Spassky væri nú á stöðugri uppleið aftur, sem ef til vill færði honum sigurinn í einvíginu. Meira vildi Polugaevsky ekki segja um ein- vígismál annað en það, að Karpov væri sterkasti skákmað- ur heims nú og að enginn skák- maður gæti hrifsað af honum heimsmeistaratitilinn að þessu sinni. Að lokum kvaðst Polugaevsky minnast með ánægju þátttöku sinnar í stúdentaskákmóti á Islandi 1956 og kvaðst hiklaust myndu þiggja boð um að tefla á Is- landi, ef það rækist ekki á neitt, sem hann áður hefði ákveðið. Þegar allt lék í lyndi. Myndin er tekin á Ólympíumót- inu í Havana 1966. Petrosjan, þáverandi heimsmeist- ari, gefur Fidel Castro ábendingu um næsta leik. Polugaevsky, lengst til vinstri, fylgist áhugasamur með. 0VÆNT TRUFLUN INN- SIGLAÐI JAFNTEFLIÐ ÞEIR Boris Spassky og Lajos Portisch voru óvænt truflaðir, er þeir sátu að tafli í Genf í Sviss í gær, er ljósabúnaður- inn á skákstaðnum bil- aði. Fresta varð skákinni á meðan verið var að lag- færa Ijósin. Eftir 31 mín- útu hlé var hægt að taka til við skákina að nýju, en svo virtist helst sem að baráttuvilji keppenda Spassky teflír nú af mun meiri hörku, en f einvíginu við Hort f vor. Stenst Portisch taugaspenn- una? I einvfgum hans við Larsen 1965 og Petrosjan 1974 var staðan jöfn fyrir síðustu skák, en f bæði skiptin varð hann að lúta f lægra haldi. hefði farið með Ijós- unum, því að þeir sömdu um jafntefli stuttu síðar. Þar með varð stysta jafn- tefli einvígisins til þessa að staðreynd, aðeins 18 leikir. Harry Golombek, yfir- dómara einvígisins og fréttaritara Morgun- blaðsins á staðnum, segist svo frá að Spassky hafi valið hvassa byrjun, eins og hann ætlaði að tefla til vinnings, en Portisch svarað vel. og örugglega. Spassky stóð þó betur eftir 13 leiki, en þá varð bilun í ljósa- búnaðinum, m.a. bilaði lampinn yfir skákborð- inu sjálfu. Gera varð hlé á skákinni, en fimm leikj- um eftir truflunina bauð Spassky jafntefli, sem Portisch þáði. E.t.v. hefur bilunin truflað einbeitingu beggja keppenda svo mikið að þeir hafa talið vopnahlé skásta kostinn. Hvítt: Boris Spassky Svart: Lajos Portisch Drottningar- peðsbyrjun 1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. Bg5 (Spassky ákveður að fara ekki troðnar slóð- ir í þessari skák. Eftir 3. c4 — b6 kemur upp hefð- bundin Drottningarind- versk vörn, en sú byrjun varð uppi á teningnum í fyrstu og fimmtu skák- inni) c5, 4. e3 — Be7, 5. Rbd2 — cxd4, 6. exd4 — b6, 7. c3 (Rangt væri 7. c4 — Bb7, 8. Bd3 — d5 og svartur jafnar taflið auð- veldlega) Bb7, 8. Bd3 — d6, 9. 0-0 Rbd7, 10. Hel 0-0, 11. a4! (Hótar 12. a5 og einnig gætu yfirráð yfir b5 reitnum komið sér vel síðar) a6, 12. h3 — He8, 13. Bf4 (Hér fór ljósabúnaðurinn. Greini- legt er að hvítur hefur heldur rýmri stööu, þó að svarta staðan sé án veik- leika.) Dc7, 14. Bh2 — Bf8 (Báðir taka lifinu með ró og það eru greini- lega engin stórátök í nánd) 15. Rc4 — Bd5, 16. Re3 —Bc6, 17. Rd2 — g6, 18. De2. Hér bauð Spassky jafn- tefli, sem Portisch þáði. Staðan í einvíginu er því enn jöfn, báðir hafa hlotið þrjá og hálfan vinning. Næsta skák verður tefld á morgun, ef hvorugur forfallast og þá er það Portisch sem hef- ur hvítt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.