Morgunblaðið - 26.07.1977, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JULÍ 1977
11
Miðaldir í Mosaic
MOSAIC heitir bókmenntatímarit
sem Manitobaháskóli í Winnipeg
gefur út ársfjóröungslega; hver
árgangur allt að þúsund bls. Ég
hef lítillega getið þessa rits hér
áður. Einn af aðstandendum þess
er Haraldur Bessason sem kennir
íslensku við nefndan háskóla.
Islenskar bókmenntir hafa fengið
ærið rúm i ritinu, sennilega vegna
aðildar hans.
Mosaic er skýrt dæmi þess hvað
unnt er að gera i fjölmenni þar
sem ekki skortir fé. Utgáfa rits af
þessu tagi útheimtir meira en að
einn ritstjóri sitji við borð og biði
þess að efninu snjói niður í fang
hans. Það er heilt fyrirtæki að
halda því gangandi ár eftir ár.
Mosaic er fjölbreytt timarit á
akademiskum grundvelli, flytur
alhliða skoðanir og sinnir rann-
sóknum á eldri jafnt sem yngri
bókmenntum. Þó höfundar í
hverju hefti séu milli tíu og tutt-
ugu — oftast, birtast sífellt ný og
ný nöfn; ritið viðar að sér efni
hvaðanæva að. Stundum koma
hefti með blönduðu efni en yfir-
leitt hneigjast þeir Mosaicmenn
til að raða saman skyldu efni,
taka fyrir eitt og eitt afmarkað
svið í senn. Síðasta hefti var t.d.
helgað miðaldayrkisefni í nútima-
bókmenntum.
Miðaldirnar, eftir á að hyggja,
þær eru talsvert á dagskrá þessi
árin. Fyrir nokkrum áratugum
voru þær skoðaðar sem menn-
ingarsögulegt svartnætti. Nú er
litið til þeirra bjartari augum.
Minnumst þess að íslenskar
»fornbókmenntir« urðu til á mið-
öldum. Hvað voru þær? Islensk
fornöld, klassik? Eða einungis
miðaldabókmenntir í almennum
og venjulegum skilningi og þá i
tengslum við aðrar slikar í nálæg-
um löndum? Mér er óhætt að
segja að þeir, sem skrifað hafa um
miðaldabókmenntir í Mosaic, hafi
yfirhöfuð skoðað islenskar forn-
bókmenntir i samhengi við þær.
Ég nefni ritgerðir eins og Grettis
saga og evrópskar slðmiðaldabók-
menntir eftir Robert J. Glendinn-
ing (IV/2 1970) og Draumar og
forspár í fslenskum fornbók-
menntum eftir Paul Schach
(IV/4 1971).
Schach ber ýmis minni i
islenskum fornbókmenntum
saman við önnur slik i evrópskum
bókmenntum á sama tima. Niður-
staða hans verður sú að allt séu
þetta greinar á sama meiði,
íslenskar fornbókmenntir séu i
höfuðatriðum afsprengi sinna
tíma, miðaldabókmenntir klippt
og skorið.
En jafnframt getur hann þess
að þeim^sem stúdera þessi fræði
nú á dögum, hætti til að ganga of
langt, gera of mikið úr þessu sam-
hengi, skoða islenskar bókmennt-
ir sem hluta stærri heildar ein-
ungis.
T.M. Anderson, sem ritar um
uppruna islenskra bókmennta
(VII4 1975), er á sama máli varð-
andi tengsl þeirra við aðrar
evrópskar bókmenntir sömu alda,
hvort heldur litið sé til lagarit-
unar, helgra fræða eða sagnfræði.
Hið eina sem hér hafi verið
saman sett og sérislenskt megi
kallast — frá upphafi til enda —
Bðkmenntlr
eftir ERLEND
JÓNSSÖN
séu Islendingasögurnar. Séu þær
jafnframt hið frábærasta er
islendingar hafi lagt til miðalda-
bókmenntanna.
En jafnvel þó hvorki Schach né
Anderson né aðrir, sem um
islenskar fornbókmenntir fjalla,
telji þær eitthvert einstakt fyrir-
bæri i heimsbókmenntunum held-
ur rækilega tengdar sinni tið,
gera þeir hlut þeirra eigi að minni
fyrir bragðið.
Ég hygg að hinn almenni mið-
aldaáhugi lyfti þeim fremur en
hið gagnstæða og við megum glað-
ir sætta okkur við að vera ekki
taldir með grikkjum og rómverj-
um eins og ýmsir hylltust til hér
forðum. Hitt er svo annað mál að
þessar bókmenntir munu hér
eftir sem hing'að til hafa svipað
gildi fyrir íslenska bókmennta-
sköpun og t.d. rómversk klassík
hefur haft fyrir rómanskar óg
jafnvel engilsaxneskar bók-
menntir.
Þar sem Mosaic er tímarit með
ritskýringu að markmiði en ekki
gagnrýni eins og við skiljum það
orð hér fæst það að minnihluta
við sköpun bókmennta á liðandi
stund. Eina ritgerð hef ég rekist á
þar um islenskar nútímabók-
menntir. Er hún heftir Sigurð A.
Magnússon og er hugleiðing um
íslenska skáldsagnaritun (1970).
Islenskur lesandi saknar
náttúrlega hressilegra sviptinga í
svona riti, við erum þvi vanir. Ég
minnist t.d. aðeins eins viðtals —
þau mættu vera fleiri — Anne-
Marie Brumm talar við Josif
Brodski, rússneskt ijóðskáld (f.
1940), búsett i Bandaríkjunum og
telst til útlagaskálda. Viðtalið
snýst um ljóðlist og þá einkum
Brodskis. Bæði fróðlegt og
skemmtilegt!
Sú var tíðin að rússneskum út-
lagaskáldum veittist erfitt að
koma verkum sínum á framfæri á
Vesturlöndum. Þau stóðu i sviðs-
ljósinu það andartakið sem þau
voru að sleppa vestur fyrir, siðan
ekki söguna meir. Það var ekki
fyrr en með Solzhenitsyn að þetta
tók að breytast, að útlagaskáldin
komu sér varanlega á framfæri.
Nú eru þau orðin kapituli i bók-
menntasögunni. Og rödd þeirra er
orðin sterk.
Hinu ber ekki að neita að frægð
þeirra fyrir almenningssjónum
stafar oftar af fyrri fangabúðavist
eystra en af skáldskaparverðleik-
um. Þeir eru sjálfsagt fleiri sem
kannast við nafnið Brodski en
hinir sem lesið hafa ljóð hans, svo
dæmi sé tekið.
En með þetta viðtal i huga,
meðal annars, segi ég og skrifa að
tímarit ættu að leita meira en þau
gera til höfunda sjálfra, ekki sist
Ijóðskálda sem jafnan gengur
nokkuð erfiðlega að ná til fjöld-
29555
opidalla virka
daga frá 9til 21
ogumhelgar
f rá 13 til 17
Mikió úrval eigna á
söluskrá
Skoóum ibúóir samdoegurs
EIGNANAUST
LAUGAVEGI 96
(vió Stjörnubió)
SÍMI 29555
Hjörtur Gunrfarsson sölum.
Bogi Ingimarsson sölum.
Sveinn Freyr solum.
Svanur Þór Vilhjálmsson hdl.
ans. Gott viðtal kemst næst per-
sónuiegum kynnum við skáldið
sjálft. Og skáld er vissulega jafn-
rétthátt öðrum gagnrýnendum
þegar það ræðir eigin verk.
Ég ætla ekki að sinni að fjöl-
yrða meira um Mosaic. Þetta rit
er með áranna rás orðinn heill
hásköli. Mig langaði aðeins að
minna á það og þakka vini okkar,
Haraldi Bessasyni, fyrir þann
þátt sem ég þykist vita að hann
eigi í að gera hlut íslenskra bók-
mennta þarna snöggtum meiri en
hið margfræga fólksfjöldahlutfall
gefur annars rétt til.
Erlendur Jónsson
16180-28030
Ljósheimar
2 herb. íb. í háhýsi 60 fm. 6,5
millj. Útb. 4,5 millj.
Jörvabakki
2 herb. ib. á 1. hæð 65 fm 6,5
millj. Útb. 5 millj.
Laufvangur
3 herb. íb. i sérflokki 96 fm. Sér
þvottah og búr. 9 millj. Útb 6
millj.
Hjarðarhagi
3 herb. íb. á 1. hæð. 96 fm 9,5
millj. Útb. 6,5 millj.
Furugrund
4 herb. íb. á 1. hæð 110 fm. 2
herb. i kj. um 30 fm. fylgja. íb. i
sérflokki. 13 millj. Útb. 8,5
millj.
Smáíbúðarhverfi
Einbýlishús á tveim hæðum 1 50
fm. Útb. 1 2 millj.
Brekkutangi
Fokhelt raðhús á mjög góðum
stað í Mosfellssveit 210 fm. á
tveim hæðum auk 1 20 fm í kj.
Útb. aðeins um 6 millj.
Laugavegur 33
Róbert Árni Hreiðarsson lögfr.
Sölustj. Halldór Ármann Sigurðss.
Kvölds. 36113
28611
Miðvangur
nýtt og glæsilegt raðhús á tveim
hæðum um 155 ferm. f húsinu
eru 4 svefnherb. innréttingar
mjög vandaðar. Bílskúr og frá-
gengin lóð. Verð 20—21 millj.
i Garði
efsta hæð í þríbýlishúsi 120
ferm. ný hitaveita. Hæðin skipt-
ist í 2 svefnherb., stofu, hol,
eldhús og bað. Verð 6,5 — 7
millj. Skipti æskileg (t.d. sumar-
bústaður).
Hávegur
lítið hús (hálft) á einni hæð með
háalofti, þetta er tvö herb. eld-
hús og bað, geysistór og falleg
lóð. Bílskúrsréttur líklegur. Verð
7 millj.
Laugarnesvegur
4ra—5 herb. 100 ferm. ibúð á
4. hæð. Parket á stofu, suður-
svalir, verð 9,5 millj.
Þverbrekka
5—6 herb. 130 ferm. ibúð á 2.
hæð, fullfrágengin ibúð, tvennar
svalir, verð 11,5 millj.
Hamraborg
3ja herb. 86 ferm. ibúð á 6.
hæð. Bilskýli. Verð 9 millj.
Grettisgata
4ra herb. 1 10 ferm. ibúð ásamt
geymsluplássi i risi, verð 10
millj.
Vesturberg
4ra—5 herb. 108 ferm. jarð-
hæð, 3 svefnherb. Sér garður,
verð 10 millj.
Skaftahlíð
5 herb. 127 ferm. neðri sérhæð
ásamt bilskúr. Sér inngangur,
sér hiti. Verð 1 7 millj.
Heimsendum söluskrá.
Fasteignasalan
Bankastræti 6
Hús og eignir
Simi 28611,
Lúðvik Gizurarson hrl.,
kvöldsími 1 7677.
26200
Víðigrund — Einbýli
Höfum til sölu eða í skipti fyrir 4ra—5
herb. íbúð í blokk, helst í vesturbæ eða
Háaleitishverfi fyrir skemmtilegt einbýlishús
í Víðigrund, Kópavogi. Húsið sem er um
125 fm. að stærð er rúmlega fokhelt,
kjallari er undir hluta hússins. Teikningar og
allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FASTEICSIASALA5I MORCISRLABSHISISL
Óskar Kristjánsson
MÁLFLlTMSCSSkRIFSTOFA
(iuðmundur Pétursson hrl., Axol Einarsson hrl.
MlflMORG
Hilmar Björgvinsson hdl., Harry H. Gunnarsson, sölum.
fasteignasala
Lækjargötu 2,
(Nýja bíó)
Símar 25590 og 21682.
Til sölu
2ja herb. ný vönduð
íbúð við Blikahóla. íbúðin er á 6. hæð. Sérstak-
lega fallegt útsýni. Laus 1. október. Verð 6.5
millj. Útborgun 4.5 millj.
3ja herb. 80 firríbúð
við Hverfisgötu. íbúðinni fylgir saunabaðstofa
og geymslur. Laus nú þegar. Verð 8.5 millj.
Útborgun 5—6 millj.
I byggingu
Hlíðarvegur í Kópavogi
Vorum að fá til sölu 3 íbúðir í byggingu í
þribýlishúsi. íbúðirnar afhendast fokheldar að
innan en húsið fullfrágengið að utan. Á efri
hæð er 147 fm. sérhæð ásamt bílskúr á neðri
er 3ja herb. 80 fm. íbúð, ásamt bílskúr. og 2ja
herb. íbúð, 70 fm. íbúðirnar eru allar með
sérinngangi.
HÚSAFELL
FASTEIGNASALA Ármúla42 81066
Kleppsvegur
til sölu mjög góð 4ra herb. íbúð á 4. hæð.
íbúðin er laus nú þegar.
Austurbær
til sölu mjög góð íbúð í sambýlishúsi ca 1 20
fm. íbúðin er saml. stofur, 2 stór svefnherb,
gott bað og eldhús, rúmgott þvottaherb. inn af
eldhúsi. Tvennar svalir. íbúðin er laus strax.
Hraunbær
lítil 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Laus strax.
Fasteignamiðstöðin, Austurstræti 7
simar 20424—14120
heimasími 42822
Sölustj. Sverrir Kristjánsson
viðskiptafr. Kristján Þorsteinsson.