Morgunblaðið - 04.08.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1977
Lóðaúthlutun í Breióholti:
Morgunblaðið hef-
ur undirbúning
að nýbyggingu
MEÐAL þeirra fyrirtækja, sem
nú hafa fengið úthlutað bygging-
arrétti í svonefndri Mjódd f
Breiðholtshverfi, er Arvakur h.f„
útgáfufélag Morgunblaðsins, sem
fékk úthlutað 5000 til 6000 fer-
metra lóð.
1 samtali við Morgunblaðið f
gær sagði Ilaraldur Sveinsson
framkvæmdastjóri Arvakurs, að
ástæðan fyrir því að útgáfufélag-
ið hyggði nú á byggingarfram-
kvæmdir, væri fyrst og fremst sú,
að hluti af starfsemi Morgun-
hlaðsins færi fram í leiguhús-
næði. Prentun blaðsins og pökk-
un færi fram á allt öðrum stað, en
efni væri unnið, í leiguhúsnæði f
Skeifunni. Kvað hann nú vera
stefnt að því að flytja alla starf-
semi blaðsins á einn stað og yrði
það gert í áföngum. Yrði Ifklega
byrjað á að byggja prentsalinn
fyrst.
— Við munum hefja fram-
kvæmdir eins fljótt og unnt er,
sagði Haraldur.
Á fundi borgarráðs í fyrradag
var sar.iþykkt úthlutun bygg-
ingarreita til fjölmargra fyrir-
tækja og stofnana í Mjódd í Breið-
Framhald á bls 18.
Evrópumótið í bridge í Helsingör:
Ágæt frammistaða
íslenzka liðsins
ISLENZKA landsliðið í bridgei
sem nú tekur þátt í Evrópumót-
inu, spilaði í sjöttu umferð við
Fyrsti
sólardag-
ur í þrjár
vikur
— ÞETTA er fyrsti sólardag-
urinn hér í um þrjár vikur,
sagði Olga Andreason, vita-
vörður á Hornbjargi. — En
ferðamannastraumurinn hef-
ur verið töluvert meiri heldur
en áður. Um 100 manns hafa
komið hingað í sumar, og ný-
lega komu hér Bretarnir tveir
sem ætla að sigla kringum
landið á kajökum.
Svía sem eru í efsta sæti mótsins.
Asmundur, Iljalti, Guðlaugur og
Örn spiluðu allan leikinn. I hálf-
leik var leikurinn í jafnvægi en
Svfar náðu að tryggja sér sigur í
leiknum í seinni hálfleik. Lauk
leiknum með sigri Svía 15—5.
Svfar höfðu unnið alla leiki sfna
til þessa með miklum mun og
höfðu aldrei tapað svo mörgum
stigum í leik.
I sjöundu umferð var spilað við
Frakka. Guðlaugur og Örn,
Hörður og Þórarinn spiluðu þenn-
an leik. Leikurinn var mjög vel
spilaður og lauk með sigri íslands
12—8. Fengu Islendingar 47
punkta gegn 40 og segir það vel til
um hve leikurinn var vel spilaður
af beggja hálfu.
ísraelar eru að verða stórveldi í
bridgeiþróttinni. Þeir unnu Itali í
sjöttu umferð með 20 mínus 2 og
eru í öðru'sæti á mótinu.
Röð þjóðanna eftir 7 umferðir:
Svíþjóð 123, Israel 117, Sviss
Framhald á bls 18.
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Laxá í Aðaldal
Stöðug og góð veiði er áfram í
Laxá í Aðaldal og að sögn Erlu
Stefánsdóttur í veiðihúsinu
Vökuholti á Laxamýri hafa nú
veiðst 1395 laxar á svæði Laxár-
félagsins, en þar hefur verið
veitt með 12 stöngum frá 20.
júní. Er aflinn nú orðinn álíka
og veiðin allt veiðitímabilið á
s.l. ári. Erla sagði að í gær hefði
verið kalt fyrir norðan, NV-átt
og rigning.
Miðf jarðará
Benedikt á Staðarbakka sagði
okkur í gær að mokveiði væri í
Miðfjarðará og á hádegi í gær
voru komnir þar 1096 laxar á
land, en veitt er með 9 stöng-
um. Sagði Benedikt að yfirleitt
væri laxinn vænn, en nokkuð
hefði borið á smálaxagöngum
sem þættu góð tíðindi og bentu
til þess að klak hefði heppnast
vel árið áður. Utlendingar hafa
verið við veiðar undanfarið en
um helgina taka Islendingar
við.
Svipað og í fyrra
í Elliðaánum.
Um helgina voru komnir á
land í kring um 600 laxar úr
Elliðaánum og er það mjög
svipað og á sama tima í fyrra.
Þó er mun meiri fiskur í ánni
nú heldur en þá og hafa tæp-
lega 3000 laxar gengið um
teljarann við rafstöðina. Er það
meira en helmingi meiri ganga
en á sama tíma í fyrra. Erfitt er
að segja með vissu, hvað veldur
því hve tregur laxinn er að
taka, en eitt er vist, að vatnið í
ánni hefur verið kaldara en t.d.
í fyrra. Yfirleitt er laxinn 4 — 8
pund og undanfarið hefur
veiðzt einna bezt á svæðinu fyr-
ir ofan Abæjarstíflu.
Mokað upp úr Stubbnum
Hér er átt við sprænuna milli
Þórisstaðavatns og Eyrarvatns i
Svínadal. 1 vætutíð eins og ver-
ið hefur undanfarið, gengur oft
all-mikið af laxi úr framan-
greindum vötnum í Selósinn
(en svo heitir stubburinn) og
er þá oft gott til fanga. Undan-
farið hefur veiðin verið mjög
góð og veiddust t.d. á mánudag-
inn hvorki meira né minna en
níu laxar á þá einu stöng sem
leyfð er, en aðeins er veitt hálf-
an daginn. Sem fyrr er þó erfitt
að segja til um fjölda veiddra
laxa þarna, því að engin veiði-
bók nær yfir þetta veiðisvæði.
Laxinn þarna er mjög góður,
svipaður og í Laxá í Leir., u.þ.b.
7 — 8 pund að meðaitali. —gg.
Frá setningu Norrænu kristnu menningardaganna I Norræna húsinu I gærmorgun. Ljósm. Mbl.: RAX
Krístnu meimingardagam-
ir settir í Norræna húsinu
NORRÆNU kristnu menn-
ingardagarnir voru settir í gær-
morgun í Norræna húsinu með
ræðu Vilhjálms Hjálmarssonar
menntamálaráðherra. Að því
loknu flutti Haraldur Ólafsson
lektor erindi, sem nefndist „Is-
lenzk kirkja og islenzk menn-
ing“. Þá talaði Jóhannes biskup
i Helsingfors um menningar-
áhrif orþodoxu kirkjunnar í
Finnlandi. Eftir hádegi flutti
Anne-Marie Thunberg ritstjóri
erindi sem nefndist, „Kultur-
kommunikation och
kulturutbud i ett pluralistiskt
samhálle". Að loknu erindi rit-
stjórans skoðuðu þátttakendur
þjóðminjasafnið, þar sem Þór
Magnússon þjóðminjavörður
kynnti íslenzka kirkjulist. í
gærkvöldi voru siðan kirkju-
tónleikar i Háteigskirkju. Þar
lék Marteinn Friðriksson ís-
lenzk orgelverk og Þorgerður
Ingólfsdóttir söng íslenzka
trúarlega alþýðusöngva.
Uppgripaafli togara á Vestfjarðamidum:
Júlíus Geirmundsson
med 915 tonn á 41 degi
UPPGRIPAAFLI er nú hjá togur-
um sem eru að veiðum úti fyrir
Norðurlandi og norðanverðum
Vestfjörðum. Er sama hvort
togararnir eru með botnvörpu eða
flotvörpu, allir rótfiska. Sömu
sögu er að segja af færabátum,
þeir hafa einnig fiskað mjög vel
og hafa gert i nær allt sumar.
Afli togara, sem hafa verið að
Aukaferðir
Herjólfs á
þjóðhátíð
í Eyjum
VEGNA mikilla fólksflutninga
um þjóðhátíðina fer Herjólfur
aukaferðir milli Eyja og Þorláks-
hafnár, en skipið hefur verið full-
skipað fólki og bílum síðustu
daga. I dag, fimmtudag, fer skipið
tvær ferðir, fyrri ferðina kl. 8.15
frá Eyjum og 13.45 frá Þorláks-
höfn og seinni ferðin kl. 18 frá
Eyjum og kl. 22 frá Þorlákshöfn.
A föstudag fer skipið einnig tvær
ferðir vegna þjóðhátiðarinnar, kl.
5 að morgni frá Eyjum og 9 frá
Þorlákshöfn og seinni ferðina kl.
13.30 frá Eyjum og 17.30 frá Þor-
lákshöfn. A laugardag fer skipið
kl. 10 frá Eyjum og 14 frá
Þorlákshöfn og á sunnudag eru
tvær ferðir kl. 9 og 18 frá Eyjum
og 13.30 og 22 frá Þorlákshöfn.
Fjöldi ferða eftir helgina verð-
ur ákveðinn eftir þörfum.
Öll f jöll hvít
— HÉR ERU öli fjöll hvít niður i
miðjar hlíðar eins og að vetrar-
lagi, sagði Haraldur Ágústsson,
athugunarmaður í Sandbúðum, er
rætt var við hann í gær. — Hér
snjóaði aðfaranótt þriójudags og á
þriðjudag og hitastig fór niður í
+1 gráðu. Gífurlegur straumur
ferðafólks hefur farið yfir sand-
inn í sumar og þar á meðal fjöld-
inn allur af smábílum en það er
auðvitað alls ekki heppilegt að
þeir séu að þvælast þarna. Har-
aldur hefur ásamt konu sinni ver-
ið þarna undanfarin ár en þau
munu nú hættá um miðjan ágúst
og nýtt fólk taka við.
veiðum úti fyrir Norðurlandi, hef-
ur verið með eindæmum góður í
allt sumar og fiskurinn sem þar
fæst er miklu vænni en menn
hafa átt að venjast. Sem dæmi um
hina miklu fiskgengd má nefna að
á timabilinu frá 22. júlí til 1.
ágúst fékk skuttogarinn Júlíus
Geirmundsson frá ísafirði og
landaði 915 lestum. Kvað Jón Páll
Halldórsson, framkvæmdastjóri á
tsafirði, sig ekki vita um jafnmik-
il aflabrögð hjá einu skipi á síðari
árum. Þessi afli minnti helzt á
mokið við Grænland á sínum
tíma.
Júlíus Geirmundsson stundaði
þorskveiðar í síðustu viku þegar
flestir aðrir togarar hurfu frá
þorskveiðum, en i þessari viku
mun togarinn ekki vera við þorsk-
veiðar. Skipstjórar á Júlíusi Geir-
mundssyni þennan tíma hafa ver-
Karl prins
KARL Bretaprins kom til ts-
lands í gær og hyggst hann nú
dvelja í 13 daga við Hofsá í
Vopnafirði. Mest af timanum
mun hann nota til lax- og sil-
ungsveiði, en einnig ætlar hann
að skoða náttúru Vopnafjarðar
vel.
Prinsinn kom með einni af
flugvélum móður sinnar, Elísa-
betar drottningar, til Egilsstaða
kl. 17 í gær og var aðeins einn
ið þeir Hermanna Skúlason og
Ömar Ellertsson 1. stýrimaður.
Þess rriá geta að á föstudag lagði
Júlíus 140 lestum á ísafirði. Fór
skipið út á laugardagsmorgun og
kom aftur inn á mánudagsmorg-
un með 150 lestir.
Samkvæmt þeim fréttum sem
Morgunblaðið aflaði sér i gær, þá
hafa sumir togaranna verið að fá
upp í 60 tonn í flotvörpu f einu
hali undan norðanverðum Vest-
fjörðum síðustu daga. Hefur afl-
inn verið það mikill að isvélar
togaranna hafa ekki haft undan,
t.d. fór Krossvík frá Akranesi inn
til Akureyrar í gær og tók þar is.
Jón Páll Halldórsson sagði, að
afli færabáta á Vestfjörðum hefði
oft á tíðum verið ótrúlegur i
sumar og ekki væri óalgengt að
einn maður drægi 1—2 tonn á
dag.
kom í gær
lífvörður i för með honum.
Annað fylgdarlið var ekki. A
Egilsstaðaflugvelli tók vinur
Karls prins Brian Booth, en
hann hefur Hofsá á leigu, á
móti honum ásamt konu sinni.
Þaðan var ekið rakleiðis yfir
Hellisheiði til Vopnafjarðar, en
Karl prins mun dvelja i veiði-
húsinu að Teigi á meðan dvöl
hans stendur, en þar hefur
hann einnig dvalið f tveim fyrri
ferðum sinum til Islands.