Morgunblaðið - 04.08.1977, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1977
17
skugga um aó á ferðinni sé hinn
rétti Lugmeier og koma honum á
ný til Þýzkalands.
Lugmeier og Linden voru leidd-
ir fyrir rétt i Frankfurt snemma
árs 1976. Lugmeier komst nú í
þriðja sinn rækilega á forsíður
blaðanna, en hann komst á brott
úr réttarsal, í viðurvist fjölda
blaðamanna, dómara og áhorf-
enda. Fangavörður aðstoðaði
hann við flóttann, opnaði skyndi-
lega handjárnin og Lugmeier og
hann stökk í skyndingu út um
glugga á dómshúsinu og niður til
jarðar. Hvarf hann lögreglunni
sjónum, enda þótt geysilega öfl-
ugt lið færi nær samstundis á
hæla honum.
Lugmeier var dæmdur til
fangelsisvistar að sér fjarverandL
I október sl. og hljóðaði dómsorðitf
upp á 1—12 ára fangelsi. Gerhard
Linden afplánar nú 13 ára dóm,
sem kveðinn var upp yfir honum.
Alþjóðleg leit að Lugmeier bar
um hríð engan ágangur, en vestur
þýzka lögreglan fékk þó af því
fregnir að hann hefði tyllt niður
tá á Kanaríeyjum og í Suður-
Ameriku áður en leiðir hans lágu
til tslands.
Stjórnvöld í Munchen hafa ekki
höfðað mál á hendur þeim Lug-
meier og Linden fyrir fyrra ránið,
þ.e. frá árinu 1972, en búizt er við
að það verði gert. Auk þess sem
Lugmeier hefur þegar fengið dóm
fyrir seinna ránið.
Lugmeier er 28 ára gamall og er
ættaður frá bænum Kochel am
See í Bæheimi.
; Lugmeier leiddur f fylgd lögreglumanna úr
þeirri er flutti hann og Linden frá Mexfkö.
i er tekin 15. maf 1974.
Nokkurra mánaða myndir af þeim Ludwig Lugmeier og Gerhard
Linden, sem nú afplánar 13 ára fangelsisdðm. Myndirnar eru úr safni
lögreglunnar f Frankfurt.
'lunnar við Hverfisgötu. Lugmeier
andtekinn á föstudaginn. (Ljðsm.
orgaði
í hönd"
verjans, Bandaríkjamannsins,
haft samband við sig og spurt
hvaða verð hún vildi fá fyrir bíl-
inn. — Ég sagði henni hvað ég
gerði mig ánægða með fyrir hann
og eitthvað hringdi hún í mig
aftur. Frá kaupunum var hins
vegar gengið á skrifstofu bílasöl-
unnar og þar komu útlendingur-
inn sem keypti bílinn en hann
sagðist vera írskur og með honum
var bandarískur vinur hans.
Hann borgaði bílinn út í hönd og
með íslenzkum peningum, en
kaupverðið var 280 þúsund.
* Það urðu engin orðaskipti milli
mín og kaupandans, þvi sölu-
maðurinn á bilasölunni annaðist
allt það sem á milli okkar fór um
kaupin. Ég sá þennan mann að-
eins í þetta eina skipti og efast
hreinlega um að ég mundi þekkja
hann aftur. Þetta var eftir þvi
sem ég fékk bezt séð allra geð-
felldasti maður, sagói stúlkan sem
seldi Þjóðverjanum bílinn en hún
vildi ekki láta nafns sins getið.
i Sennilega vísað
i úr landi en
I
í ekki framseldur
| — SENNILEGAST er að Þjðð-
. verjinn Ludwig Lugmeier verði
I sendur utan f fylgd íslenzkra lög-
| gæslumanna með flugvél öðru
hvoru megin við næstu helgi,
sagði Baldur Möller, ráðuneytis-
| stjðri f dómsmálaráðuneytinu í
samtali við Morgunblaðið f gær.
' Baldur sagði að Þjððverjinn yrði
| að öllum Ifkindum ekki fram-
| seldur, þrátt fyrir óskir þýzkra
j yfirvalda þar um, þar sem ekki
I væru f gildi neinir samningar um
| framsal á afbrotamönnum milli
lslands og Vestur-Þýzkalands.
I Yrði þess f stað notuð heimild í
lögum um eftirlit með útlending-
. um hér á landi, þar sem segði að
I heimilt væri að vfsa úr landi
| ðæskilegum útlendingum.
J — Það hefur þegar komið fram
við rannsóknina að Þjóðverjinn
I hefur brotið islenzk lög þó ekki sé
nema með því að koma inn i land-
ið á fölsuðu vegabréfi, sagði
| Baldur. Fram kom hjá Baldri að
ekkert lögbundið eða formað
skipulag er fyrir hendi um hvern-
j ig staðið skuli að framsali á af-
■ brotamönnum, þegar ekki eru
fyrir hendi samningar um slíkt
| milli landa eða sérstök lög eins og
• í gildi eru milli Norðurlandaanna.
Taldi Baldur því líklegt að fyrr-
nefndri heimild i lögum um eftir-
lit með útlendingum hér á landi
yrði beitt og Þjóðverjinn sendur
| utan í fylgd islenzkra löggæslu-
| manna og þá lyki lögsögu Islend-
inganna er komið væri inn í loft-
helgi annars lands eða lent á flug-
| velli í öðru landi. Bjóst Baldur við
að Þjóðverjinn yrði fluttur með
vél sem færi beint til Frankfurt
og þar tækju þýzk lögregluyfir-
völd við honum.
Baldur sagði að tekin yrði
ákvörðun um það, hvort þjóð-
verjanum yrði vísað úr landi,
þegar rannsókn í máli hans væri
lokið af hálfu Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og rikissaksóknari
teldi þá rannsókn nægjanlega.
Það gæti þó tafið fyrir því að
honum yrði vísað úr landi, ef
ríkissaksónari teldi ástæðu til að
höfða mál á hendur manninum
fyrir brot á isd .nzkum lögum og
teldi rétt að maðurinn yrði hér á
landi vegna þeirra málaferla.
í samtalinu við Baldur kom
fram að á árinu 1961 var handtek-
inn hér á landi Þjóðverji, sem
framið hafði bankarán í Vestur-
Þýzkalandi. Hafði maðurinn dval-
ið hér á landi um nokkurt skeið
en upplýsingar, sem leiddu til
handtöku hans komu i hendur
islenzku lögreglunnar, þegar hún
kannaði feril mannsins erlendis
af öðru tilefni. Þýzk yfirvöld
óskuðu eftir þvi að þessi maður
yrði framseldur og var fallizt á þá
ósk að sögn Baldurs með ákveðn-
um skilyrðum, s.s. um meðferð
hans og að honum yrði ekki refs-
að fyrir aðra glæpi er hann hafði
drýgt fyrir framsalið en þá er
hann var framseldur fyrir. Bald-
ur sagði að þessi maður hefði ekki
gerzt brotlegur við íslenzk lög en
þaó væri hins vegar í máli Þjóð-
verjans Lugmeier.
Varðandi mál bandarikja-
mannsins, sem handtekinn var
með Þjóðvejanum, sagði Baldur
að með það yrði farið eftir is-
lenzkum lögum reyndist hann
hafa brotið þau.
■ II
Vopnasafn það, sem lögreglan f Múnchen fann f aprfl 1974, f fbúð
Brigitte Linden, systur Gerhards Linden, samverkamanns Lugmeiers.
* ogreglubílar fyrir utan Dresdenbanka f Frankfurt 29. oktðber 1973,
skömmu eftir að Lugmeier og Linden komust á brott með 2 milljðnir
marka. (AP-mynd).
Sigurður Þormar ökukennari
undirbjð Lugmeier undir bflpröf
hér á landi f marzmánuði sfðast-
liðnum.
— Hins vegar benti simsvari hon-
um á að hafa samband við mig og
þar sem lítið var að gera hjá mér i
ökukennslunni um þetta leyti tók
ég Þjóðverjann í tima.
— Hann sagði mér að hann væri
írskur, en hann talaði mjög sterka
ensku með þýzkum hreim, svo ég
gat ekki annað en spurt hann
hvort hann væri af þýzku bergi
brotinn. Sagðist hann þá vera að
hálfu leyti írskur og að hálfu leyti
þýzkur. Annars vildi hann mjög
lftið ræða um sin einkamál.
Maðurinn var mjög rólegur, nema
reyndar i fyrsta timanum, en þá
var éitthvert pat á honum. Hann
sagði mér að hann hefði keypt sér
ökuskírteini fyrir 25 dollara i
Mexikó, en ekki notað það eftir að
bifreið hans lenti í árekstri.
— Hann bjó í Breiðholtinu, mig
minnir i Dúfna- eða Blikahólum
og þangað sótti ég hann í siðasta
tímann. En annars sótti ég hann á
heimili Bandarikjamannsins að
Hringbraut eða á Hótel Esju, en
Sagðist vera barna-
bókahöfundur og unn-
ustan kæmi um páskana
— IIANN var greinilega mjög vel
að sér I bðkmenntum og man ég
t.d. að er ég minntist á Thomas
Mann, sagði hann mér heldur að
lesa eitthvað annað og nefndi
ýmsa aðra góða v-þýzka rithöf-
unda. Sjálfur sagðist hann vara
barnabökahöfundur og hafa
stundað háskðlanám, en ekki lok-
ið prðfi. Atti hann von á unnustu
sinni um páskana, en ekki veit ég
hvort hún kom.
Það er Sigurður Þormar, sem
þannig segir frá, en hjá Sigurði
var v-þýzki glæpamaðurinn
Ludwig Lugmeier í ökunámi og
tók að því loknu bilpróf i Hafnar-
firði. Sagðist Lugmeier heita
John Michael Waller er hann
mætti í ökutímana. Vitnaði hann
þar til hins falsaða vegabréfs, sem
hann hafði undir höndum, en það
var gefið út i Dublin.
— Hann reyndi að komast í
samband við föður minn, Geir
Þormar, ökukennara, sem þá var
erlendis, segir Sigurður Þormar.
þar bjó hann, að mér skilst, fyrst
eftir komuna hingað. Bandarikja-
maðurinn, sem var tekinn með
honum kom einnig með honum i
tvo tima og sagði hann mér að
þeir hefðu kynnzt i New York.
— Að þvi kom að „Irinn“ með
þennan þýzka hreim var tilbúinn
i ökuprófið og þurfti ekki annað
en að hafa ljósmyndir af sér,
læknisvottorð og íslenzkt saka-
vottorð. Sjálfur náði ég í sakavott-
orðið fyrir hann og var það alveg
hreint, sem þýðir að hann hafi
ekki gerzt brotlegur við íslenzk
lög. Hann gæti hins vegar hafa
verið margfaldur morðingi úti i
heimi án þess að það væri nokk-
urs staðar á pappirum hér.
— Prófið tók hann síðan 18.
marz og hafði þá tekið 13 tima hjá
mér. Hann tók oft tvo tíma i röð
og gerði ég það til að nýta timann
sem bezt, en hann vildi gjarnan
flýta prófinu eins og hann fram-
ast gæti. Ég ráðlagði honum að
Framhald á bls 18.