Morgunblaðið - 31.08.1977, Síða 13

Morgunblaðið - 31.08.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. AGUST 1977 13 Dr. Bjarni Þjóðleifsson. hvernig áhættuþættirnir spila saman og magna hver annan upp. t dag koma saman reykingar, of- fita, hreyfingarleysi og streita til viðbótar við hátt kolesterol í blóði, sem meðal tslendinga er það hæsta, sem þekkist hjá nokk- urri þjóð. Allar fyrirbyggjandi aðgerðir, sem ekki taka mið af þessu eru marklausar. Hvað er í húfi í greininni um skynsamlegt matarræði var farið almennum orðum um mikilvægi HÆS fyrir heilsufar Islendinga. í grein sinni 5. ágúst leitar dr. Stefán í heil- brigðisskýrslur til að fá mat á þessum vanda og er það vel. Túlk- un hans á þessum gögnum er þó i ýmsu ábótavant og er langt frá því að rétt mynd komi fram. Dr. Fyrri grein: Hjarta- og æðasjúkdómar helsta heilbrigðisvandamál Islendinga. — Markvissar varnaraðgerðir nauðsynlegar neyslu á hvitu hveiti eða sykri neinum af áhættuþáttum HÆS nema ef þessara fæðutegunda er neytt umfram þarfir, en þá leiðir það til offitu, sem er veikur áhættuþáttur fyrir HÆS. Um mettaða fitu gegnir hins vegar allt öðru máli. Rifleg neysla á mettaðri fitu veldur hækkun á kólesteroli í blóði án þess að hennar sé neytt umfram þarfir og tengist þannig einum helsta áhættuþætti HÆS. Þetta kemur m.a. fram i því að margir Íslend- ingar, sem eru i eðlilegum hold- um, hafa hækkað kolesterol. Eng- ar manneldisrannsóknir eru til, sem styðja kenningu dr. Stefáns að það sé einungis ofát, sem sé slæmt fyrir hjartað og að sam- setning fæðunnar skipti ekki máli. Fituneysla tslendinga fyrr á öldum og áhrif hennar á heilsufar eru heldur haldlitil gögn i umræð- um um heilsufar Islendinga i dag. Það er lítið vitað um heilsu for- feðra okkar og dánarmein þó dr Stefán segi að þrátt fyrir óhóflegt fituát „þá lifðu menn það vel af“ Það er vel mögulegt að kolesterol i blóði islendinga hefi verið hátt áður fyrr án þess að það hafi komið að sök vegna vöntunar á öðrum áhættuþáttum HÆS og vegna þess að meðalaldur var ekki eins hár og nú er. Það kom vel fram i grein dr. Gunnars Sigurðssonar j Mbl. 16. ágúst Stefán bendir á að aðeins 32% dauðsfalla af HÆS komi fram hjá fólki innan við 70 ára aldur og segir siðan: „Þar með er greini- legt að þessir sjúkdómar spegla að verulegu leyti ellihrörnun, sem enginn fær umflúið". Enn- fremur reiknar hann út að um 30 manns á aldrinum 35—50 ára deyi árlega úr þessum sjúkdóm- um og dregur í efa að aukning hafi orðið í þessum aldurshópum. Má af þessu skilja að dr. Stefán telur ekki mikið í húfi og álítur „hæpið að ráðlegggja þjóðinni i heild stórbreytingar á mataræði meðan ekki liggja betri rök fyrir breytingunum en raun ber vitni.“ Við útreikninga á tíðni HÆS leggur dr. Stefán til grundvallar heildarfjölda islendinga. Við það kemur fram töluverð ónákvæmni, þar sem eingöngu fólk eldra en 25 ára fær þessa sjúkdóma og er þvi eðlilegra að reikna út frá fjölda islendinga í þeim aldursflokkun. Samkvæmt minum útreikningum hefur tfðni kransæðasjúkdóma (hjartaköldunar) fyrir tfmabilið 1955—75 aukist að jafnaði um 12,8 einstaklinga af 100.000 ár- lega og þar af er aukningin 5,2 fyrir aldurshópinn 25—64 ára. (Hagstofa islands, óútgefnar heimildir). Það verður því ekki dregið í efa að kransæðasjúkdóm- ar eru í vexti í öllum aldursflokk- um. Framhald af bls. 29 T'.' * 3E Góifdúkur á gólf og veggi! (fv) krommenie gólfdúk: níösterkur, einstæö hönnun, hagstætt verö og þaö er auðvelt, aö halda honum a hreinum. Hvers getið þér krafist frekaraf A gólfdúk? m * Seljum málningavörur og margt fleira. liíurínn Síðumúla 15 sími 3 30 70 VélasamstæBan sem notuS er hjð Garða-Héðni. það sem er á öðrum bygginga- plötum. Hún flagnar ekki af og þolir töluvert hnjask. Garðastál er hægt að fá í lengdum eftir vild allt upp í 1 2 m, þannig að nú gefst hús- byggjendum kostur á klæðn- ingu á þversamskeyti. En einn- ig er þetta framleitt á lager eftir ákveðnum staðli. Þá er hægt að fá með þessu ýmsa auka- hluti, svo sem kjöl, kantjárn, þakrennur, niðurföll, dyra- og gluggarennur, og margt fleira i viðeigandi litum, sögðu þeir Stefán og Sverrir að lokum. NÚ FÁUMVIÐ LÚÐU, LAX OG SILUNG Góðfiski getum við kallað allan ís- lenzkan fisk, sé hann veiddur á réttum tíma, vel verkaður og fersk- ur, eða rétt geymdur. Vissar fisktegundir þykja þó flest- um öðrum betri. Með þeim viljum við smjör, því þegar reynir á bragð- gæðin, er það smjörið sem gildir. Draumurinn um soðinn lax með bræddu smjöri ögrar pyngju okkar á hverju sumri, því hvað er annað eins lostæti og nýr lax með íslenzku smjöri? Matgleðin nýtur sín einnig þegar soðinn eða steiktur silungur er á borðum. Og enn er það smjörið sem gildir. Til að steikja silung dugar heldur ekkert nema íslenzkt smjör og séu silungur eða rauð- spretta grilluð, er fiskurinn fyrst smurður vel með íslenzku smjöri og síðan grillaður heill í örfáar mínútur á hvora hlið. Soðin lúða er herramannsmatur. Sjálfsagt er að sjóða fiskinn í eins litlu vatni og hægt er, ef ekki er Iöguð súpa. íslenzkt smjör má ekki gleyma að bera með, það væri synd. Gott er líka að steikja þykkan Iúðubita í ofni. Við smyrjum bitann vel með smjöri og pökkum inn í álpappír, en setjum ekkert vatn við. fyntaflokfo ísUtn^f smjör Æ\ foo grönm Nú er lúðu-, lax- og silungstíminn. Notfærum okkur gæði lands og sjávar. Annar eins herramannsmat- ur og þessi býðst ekki víða annars staðar í heiminum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.