Morgunblaðið - 31.08.1977, Side 20

Morgunblaðið - 31.08.1977, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. AGtJST 1977 | atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Forstöðumanns- starfið við Hegningarhúsið í Reykjavík er laust til umsóknar. Starfið veitist frá -1 . nóvember 1977. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 1 5. september 1977. Dóms- og kirkjumálaráduneytið, 30. ágúst 1977. Skrifstofustarf Útflutningsfyrirtæki óskar að ráða sem fyrst ritara til almennra skrifstofustarfa. Starfið er fólgið í almennri vélritun og íslenzkum og enskum bréfaskriftum og er góð enskukunnátta og vélritunarþjálfun æskileg. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir föstudag 2. septem- ber merkt: ,,S—4009". Starfskraftur til saumastarfa Óskum eftir að ráða manneskju til fata- breytinga. Heils dags vinna. Starfsreynsla æskileg. Upplýsingar í verzluninni í dag frá kl. 5—6. Tískuskemman. Sendill óskast í vetur til léttra sendistarfa. Hálfsdagsstarf kem- ur til qreina. Uppl. veittar í síma 24333 frá kl. 1—2. Davíð S. Jónsson og Co. h.f. Þingholtsstræti 18. Húsgagnaverzlun Óskum að ráða sem fyrst röskan starfs- kraft til afgreiðslustarfa í húsgagnadeild. Vinnutími 1 —6. Uppl. á skrifstofu. JL-húsið. Hringbraut 121. Oska eftir starfsfólki til afgreiðslustarfa í söluturni. Vaktavinna. Áskjör Ásgarði 22. Simi: 36960. Bifvélavirkjar Óskum eftir að ráða nú þegar bifvélavirkja eða menn vana bifreiðaviðgerðum. Nán- ari upplýsingar gefur verkstæðisformað- ur. Davíð Sigurðsson h / f Fiat einkaumboð á íslandi Síðumúla 35. Óskum að ráða aðstoðarmenn á trésmíðaverkstæði okkar að Auðbrekku 55 Kópavogi. Upplýsingar gefur verk- stjóri á staðnum, ekki í síma. Tréval h / f Auðbrekku 55 Kópavogi. Lagerstarf Óskum eftir að ráða starfskraft eldri en 25 ára til lagerstarfa. Bílpróf nauðsynlegt. Vinsamlegast hafið samband við verk- stjórann Hörð Jónsson kl. 10—-12 fyrir hádegi fimmtudag. Heimilistæki s /f Sætúni 8. A/Klæðning er fáanleg í mörgum fallegum litum sem eru innbrenndir og þarf því aldrei að mála. A/Klæðning er úr áli sem má beygja án þess það brotni og ef það verður fyrir miklu höggi tognar á því en það rifnar ekki. Annars er álið í A/Klæðningu svo þykkt að það þolirtöluvert högg án þess að á því sjáist. Fáanlegir eru ýmsir fylgihlutir með A/Klæðningu sem hefur þurft að sérsmíða fyrir aðrar klæðningar. A/Klæðning er auðveld í uppsetningu og hefur reynst vel í íslenskri veðráttu. ---------:----------------------- Afgreiðslufrestur er alveg ótrúlega stuttur. Leitið upplýsinga og kynnist möguleikum HHR ^ A/Klæðningar. HHk -tÉ&B Sendið teikningar og við munum reikna efnisþörf og gera verðtilboð yður að kostnaðarlausu. Skoðið sýningarbás okkar nr. 58 V ytiM HEimH> 77 q. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, REYKJAVfK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012 TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400. KLÆDNING Mynd- og handmenntamám verði í kjarnanámi skóla MYND- og handmenntarkennarar á námskeiði I Kennaraháskóla íslands 22.—27. ágúst 1977, samþykktu einróma eftirfarandi tillögur á sameig- inlegum fundi, sem haldinn var 26. ágúst siðastliðinn. 1 Mynd- og handmenntarkennarar fagna útkomu nýrrar námskrár i mynd- og handmennt og þakka námsskrár- nefndinni vel unnið starf. Jafnframt er bent á, að til þess að hægt sé að framkvæma þau góðu áform og ábend- ingar, sem i námskránni eru, þarf viða 1 skólum landsins að stórbæta aðbúnað og aðstöðu alla, ef námsskráin á ekki að verða dauður bókstafur 2 í inngangsorðum hinnar nýju námsskrár er gert ráð fyrir að greining nemenda eftir kynjum i hannyrða- og smiðanámi verði úr sögunni eins fljótt og aðstæður leyfa Hefur nokkuð borið á að þau ákvæði hafi verið framkvæmd á þann hátt að nemendur hafa nú lært bæði hannyrðir og smiði á sama tima og áður var ætlaður aðeins annarri greininni. Veld- ur sú þróun okkur miklum áhyggjum þar sem hannyrðanám byggist á kerfís- bundnum stigþyngjandí vinnubrögð- um er hvorki mega rofna né standa í stað Ljóst er að sá kennslutimi sem ætlaður var hannyrðanámi mátti á eng- an hátt styttri vera. Þvl skorum við á yfirvöld að grunn- skólinn bregðist ekki hlutverki sinu fyrir þann hluta þjóðarinnar sem að handverki vínnur. Höfum að markmiði að æskufólk okkar verði sjálfbjarga i verki en verði ekki einungis neytendur aðkeypts verk- smiðjuvarnings. Fyrirbyggjum þá hættu með þvi að veita verknámi í raun nauðsynlegan lágmarkstima i grunnskólanum eða 2 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐEW vikustundir vetrar langt yfir skyldu- námstimabilið fyrir hvora grein um sig eins og verið hefir um langt árabil 3. Skorað er á menntamálaráðu- neytið að koma á fót, hið allra fyrsta, innkaupastofnun sem sjái um innkaup og dreifingu efnis, verkfæra og kennslutækja til mynd- og hand- menntarnáms i grunnskólum landsins 4. Skorað er á ráðamenn Fræðslu- myndasafns rikisins, Þjóðminjasafns íslands og Listasafns islands að vinna að gerð kennsluefnis úr ofan greindum söfnum, sem nota mætti til kennslu á öllum skólastigum Sérstaklega skal á það bent að nauðsynlegt er að allir skólar hafi aðgang að litskyggnum ásamt skýringum á verkum í Listasafni íslands og Þjóðminjasafninu. 5 Mynd- og handmenntarkennarar bundu miklar vonir við tilkomu fjöl- brautarskólanna, sérstaklega hvað varðaði mynd- og handmenntargreinar og væntu þess að loksins yrðu þessum greinum skipaður sá sess i islenzkum skólum. sem þeim bæri. Þvi miður virðist raunin ætla að verða sú að enn einu sinni skuli þessar greinar vera vikjandi i íslenzka skólanum. Þessvegna vilja mynd- og hand- menntarkennarar leggja á það mikla áherzlu að þeir fjölbrautaskólar, sem þegar eru teknir til starfa og þeír sem hefja starf á þessu ári og næstu árum. taki mynd- og handmenntamám skil- yrðislaust I kjamanám skólanna. 6. Mynd- og handmenntarkennarar lýsa vanþóknun sinni á og mótmæla harðlega þeirri öfugþróun sem orðið hefur á uppbyggingu mynd- og hand- menntargreina við Fjölbrautarskóla Suðurnesja i Keflavik Þar áttu nem- endur, sem áður voru I framhaldsdeild- um gagnfræðaskólans, kost á allmiklu mynd- og handmenntarnámi en nú hefur mynd- og handmennt verið al- gerlega felld úr námi nemenda við Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Ekki verð- ur annað séð en að uppbygging skól- ans sé með þeim hætti að hinn gamli menntaskóli sé að verulegu leyti sjálf- stæð stofnun, ótengdur þeim mennta- þáttum öðrum. sem i upphafi skyldu skarast. Við álitum að sllk uppbygging fjölbrautarskóla sé byggð á öðrum forsendum en i upphafi var ætlað. þegar hlutverk og skipulag fjölbrautar- skóla var kynnt fyrir þjóðinni Reýkjavik 17. ágúst. 1977.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.