Morgunblaðið - 31.08.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.08.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. AGUST 1977 29 Pfffl í h i 1 j | Ii í 1S ;I 51 A! VELVAKANDI SVARAR í SÍMA Í0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI Komið hefur fram sú tillaga að flytja gömlu húsin upp i Grjóta- þorp , sem fjarlægja þarf, ef „Aðalstrætishugmyndirnar" verða að veruleika. Gæti orðið skemmtilegt að endurvekja svæðið frá Grjótagötu og alveg að Vesturgötu, og mætti það sem eftir er af Bernhöftstorfunni gjarnan notast i sama skyni. Gamla Bernhöftsbakarí ætti ekki að kunna illa við sig, þar sem „Glasgow “ stóð forðum. En þessi endurvakning Grjóta- þorps getur ekki lengur átt við húsaröðina við Aðalstræti. Þar hafa eimitt komið fram tillögur um hóflega uppbyggingu, sem meðal annars fellir Morgunblaðs- húsið betur að'umhverfi sinu. Að lokum verður borin fram sú ósk, að fyrsta aðgerðin í öllum þessum málum verði enduropnun Vallarstrætis út að Veltusundi. Lokun þar er i andstöðu við allar hugmyndir um göngugötur og upplífgun miðbæjarins. Valdimar Kristinsson 0 Jafnrétti ungra og eldri Músíkmaður skrifar: Mig langar að biðja þig að birta fyrir mig fyrirspurn til Tón- listardeildar Ríkisútvarpsins varðandi danslög sem leikin eru á laugardagskvöldum og mér sögð vera valin af fólki sem vinnur í Tónlistardeildinni. Mér finnst það furðulegt að þetta fólk skuli velja lög sem eru svo að segja eingöngu fyrir ungt fólk, ungl- inga, en ekkert fyrir fullorðið fólk, i það mesta 3—4 lög á kvöidi. Hversnvegna má ekki hafa jafn- rétti, helminginn af tímanum fyr- ir unga fólkið og hinn helminginn fyrir fullorðna fólkið? Og gerir þetta fólk, sem velur lögin, sér ekki það ljóst að unga fólkið er ekki heima á laugardagskvöldum til að hlusta á danslög? Nei það er úti að skemmta sér, bæði i dans- húsum í Reykjavík og úti um allt land. Fullorðið fólk og miðaldra fólk kvartar yfir þessu i stórum stíl, en ekki til réttra aðila. A sunnudagskvöldum er Utvarpið með 2 danskennara til þess að velja og kynna lögin, en það er nú lítið betra þvi þeir leika einungis Iög eða danstempó sem þeir kenna í sínum dansskólum, eins og t.d. suðurameríska dansa, rúmbú, samba, tja tja taj, og svo framvegis. Þetta er ágætt með, en of mikið allan danslagatímann. Velvakandi þakkar bréfritara línurnar, og hvetur fleiri til að segja álit sitt á þessu máli. Full- trúum Tónlistardeildar Ríkisút- varpsins verður léð rými fyrir at- hugasemdir, óski þeir þess. SKAK Umsjón: Margeir Pétursson A skákmóti í Sovétríkjunum i ár kom þessi staða upp i skák þeirra E. Vladimirovs, sem hafði hvítt og átti leik, og Agzamovs. % Ógleymanlegir tónleikar Jóhanna Kristinsdóttir, Miðtúni 2 Keflavik, skrifar: Kæri Velvakandi. Hingað til Keflavíkur komu svo góðir gestir 24. ágúst að ég get ekki orða bundizt, kór frá Háskól- anum í Winnipeg, The Bass Elef and Better Half singers undir stjórn frú Helgu Andersson. Kórinn söng í Keflavíkurkirkju kl. 17 á laugardag og þó veðrið væri nánast sagt „vitlaust“ var kirkjan næstum fullsetin, og áheyrendur yfir sig hrifnir, enda kórinn frábær, skipaður ungu fólki sem hefur lært söng og tón- list frá 5—6 ára aldri. Allir með- limir kórsins geta sungið einsöng. Margot Sim, sópran, söng Halle- lúja Handels frábærlega vel og Peter Barnes, baryton, söng á Sprengisandi af miklum þrótti og á prýðis islenzku. Sönggleðin var mikil hjá kórnum, og hvernig þau sungu „Ó guð vors lands“ verður öllum sem á hlýddu ógleyman- legt. Á sunnudag söng kórinn við guðsþjónustu í Keflavíkurkirkju kl. 11 og kl. 2 við guðsþjónustu í Bessastaðakrikju, að viðstöddum forseta íslands og frú hans. Um kvöldið söng kórinn fyrir vist- menn á Hrafnistu við mjög góðar undirtektir. Mun kórinn ferðast um landið, syngur i Vestmanna- eyjum 29. ágúst og á Akureyri 1. sept. The Bass Elef and Better Half munu syngja í Reykjavík sunnu- daginn 4. september í Félags- heimili stúdenta og vil ég ráð- leggja öllum sem unna góðri tón- list að láta ekki þessa tónleika fram hjá sér fara. Undirleikarar á píanó eru Jane Hawkwes og Duncan Campell, gítar Lisa Top- ham og Owen Duggan og Margot Sim á flautu. Mig langar til að þakka öllu þessu unga fólki og stjórnandanum, frú Helgu Ander- son, fyrir ógelymanlega tónleika. Veit ég að hér mæli ég fyrir hönd allra sem á hlýddu. Óska ég kórn- um góðrar ferðar um landið og góðrar heimkomu. HÓGNI HREKKVISI Þetta áhald er ætlað til kembingar, góði minn! — Skynsamlegt Framhald af bls. 13 A árunum 1970—75 dóu að meðaltali 120 manns árlega yngri en 65 ára úr HÆS og kemur þetta heim við nýútkomnar skýrslur, sem sýna að ævilíkur miðaldra Islendinga hafa staðið í stað meðan ævilíkur annarra aldurs- hópa hafa aukist. (Hagtíðindi, júní 1977). Endanlega deyja 43—45% Islendinga úr HÆS, en dánartfðnin segir þó aðeins hálfa söguna. Margir fá þessa sjúkdóma innan við 65 ára aldur og lifa við skerta heilsu árum saman og deyja svo ef til vill úr öðru. Rann- sóknir Hjartaverndar hafa sýnt að 31% karla á aldrinum 60—61 áras hafa einkenni um HÆS. Ar- legar innlagnir á Reykjavikur- spítalanna af völdum HÆS einna saman eru um 600. Af þessu er augljóst að HÆS eru eitt helsta heilbrigðisvandamál á íslandi um þessar mundir. Lækningar á þess- um sjúkdómum eftir að þeir eru komnir fram hafa reynst mjög fjárfrekar og bera takmarkaðan árangur. Eina vonin til að stemma stigu við HÆS er bundin við fyrirbyggjandi aðgerðir. Sú manneldisstefna, sem hér er verið að marka getur því haft veruleg áhrif á heilsu mikils hluta Isléndinga fyrr eða sfðar á ævi þeirra. — Minning Guðný Framhald af bls. 22 Karl, lögfræðingur í Rvík, öll gift og eiga samtals átta börn. Auk þeirra ól Guðný upp dótturdóttur sfna Guðnýju Þóru Hjálmars- ■ dóttur, sem nú er 17 ára. Árið 1952 missti Guðný mann sinn og stóð ein með þrjú stálpuð börn. Það var enginn dans á rósum að vera ekkja með þrjú börn þá, og verður sjálfsagt aldrei, en Guðný kvartaði ekki, heldur hlúði að börnum sínum og studdi þau til náms af fórnfýsi og kærleika, enda uppskar hún eins og hún sáði. Fósturdóttir hennar og nafna, Guðný Þóra, var umvafin kærleika hennar og ástúð enda óx hún upp sem elskuleg stúlka sem flytur nú af landi brott til móður sinnar með kærleika ömmu sinnar að vegarnesti. Guðný Björnsdóttir var suðræn i útliti, dökkhærð, vel eyg og brúnleit á hörund. Tilfinningar minntu líka meira á það fólk sem sunnar á hnettinum býr, en okkur þumbaralega Norður-Evrópubúa, svo hrifnæm, söngelsk og til- finningaheit sem hún var. Hún veitti af rausn, en átti verra með að þiggja. Hún var trúuó og óttaðist ekki dauðann, en hún hafði óskað sér að mega lifa í 3 ár í viðbót, þar til Guðný Þóra væri búin að ljúka menntaskólanámi sinu. Heilsa Guðnýjar bilaði fyrir nokkrum árum, en áfram barðist hún, rétti fram hjálpandi hönd sina hvar sem hún gat og styrkti okkur i kring um sig með trú sinni og bænum. Sl. vetur hrakaði heilsu hennar, og enn meir i vor, en andlegri reisn sinni hélt hún þar til hún andaðist 17. júlí sl. í Borgarspítalanum i Rvik og hefur útför hennar farið fram. Ég votta öllum ástvinum hennar innilega samúð og kveð Guðnýju Björnsdóttur með þakk- látum huga. Anna Þr. Þorkelsdóttir. Til sölu er jörðin Mýlaugsstaðir, Aðaldalshreppi, Suður- Þingeyjarsýslu. Jörðinni fylgir veiðiréttur í Eyvindarlæk og Mýlaugsstaðavatni. Tilboðum í jörðina skal skila til skrifstofunnar fyrir 1 5. september n.k. Allur réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Málflutningsskrifstofa Gunnars Só/nes s. f. Strandgötu 1 Akureyri sími 2 1820. MILWARD SlGeA V/öGA £ TILVERAW H ringprjónar Fimmprjónar Tvíprjónar Heklunálar Framleitt úr léttri álblöndu Heildsölubirgðir: Davib S. Jónsson & Co. hf. Sími 24-333 4 verður svartur mát). 30. fxe6 — Dxe6 31. Bg4 — Dd6, 32. Bf5+ — Kh8, 33. Hg6! Svartur gafst upp. Eftir 33......fxg6, 34. Hxh6+ verður hann mát. /o -/tr c& W\TA aTyíitt ^m) 1738 , \^6U9í/VAl 18 T-KK/ ‘öAm V/9 5!6GA 'TlGGiK >LIGA 4 KLOKKAN IKÍ0 VÚLL V/MM, A^aÁííO OG V//CJ 0úy \<L0WN Morm vrm-; 4ÍU 0G /\TTA^ VLWm 776 KOLL vímh, klokkan VRM'T/CÍ 0G WÍU 0G ytLomn saomw vi?m- 6Í0 06A1TA... vly so/iftDu 099 0 Vt V/6 «•05 M.» ,^T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.