Morgunblaðið - 01.10.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKT0BRR 1977
Harðar kosningar í Heimdalli:
Kjartan Gunnarsson
yar kjörinn formaður
KJARTAN Gunnarsson
laganemi var kjörinn for-
maður Heimdallar, kjör-
dæmasambands ungra
sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, á aðalfundi sambands-
ins í gærkvöldi.
Kjartan hlaut 184 at-
kvæði en mótframbjoðandi
hans, Júlíus Hafstein fram-
kvæmdastjóri, hlaut 135 at-
kvæði. Fundurinn var fjöl-
sóttur og á honum gerði
Jón Magnússon, fráfarandi
formaður Heimdallar,
grein fyrir störfum síðustu
stjórnar og afgreidd var
stjórnmálaályktun.
Ennþá stendur í
stappi um Vængi
EKKKRT mjakaðist í átt. til sam-
komulags í Vængjadeilunni svo-
nefndu í gær samkvæmt upplýs-
ingum deiluaðila. J6n E. Ragnars-
son lögmaður stjórnar Vængja
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að þeir Vængjamenn væru
reiðubúnir að leggja deilumálið
undir gerðardóm eins eða fleiri
manna. sem aðiiar tilnefndu með
samkomulagi sín á milli, en
Björn Guðmundsson, formaður
Félags fsl. atvinnuflugmanna.
sem farið hefur með mál flug-
manna hjá Vængjum í deilu þess-
ari, hvað tilboð þessa efnis enn
ekki hafa borizt FlA fra stjórn
Vængja.
Björn Guðmundsson sagði hins
vegar, að hann teldi fremur ólík-
legt, án þess þó að vilja fullyrða
um það á þessu stigi, að FlA gæti
fallizt á gerðadómslausn í deilu
Stolið úr sautján
sumarbústöðum
RANNSÓKNARLÖGREGLA
rfkisins hefur haft hendur f hári
nokkurra ungra pilta, sem höfðu
orðið uppvísir að þvf að brjótast
inn í 17 sumarbústaði í Grafningi
nú f vikunni.
Rannsóknarlögreglan hefur
mál þetta nú til rannsóknar og er
ekki fullkannað hve miklu pilt-
arnir stálu úr bústöðunum. Sást
til þeirra og var lögreglunni gert
viðvart og voru þeir handteknir
er þeir komu akandi til Reykja-
víkur á fimmtudaginn.
þar sem um væri að ræða skýlaust
samningsbrot. Jón E. Ragnarsson
sagði hins vegar að i reynd snerist
deilan um mismunandi túlkun á
einu ákvæði í kjarasamningi aðila
og hinn löglegi aðili til að fjalla
um slík ágreiningsatriði væri
félagsdómur. Flugmenn Vængja
hefðu hins vegar kosið að leggja
niður vinnu, gert ólöglegt verk-
fall, sem þeir reyndar sjálfir köll-
uðu ýmist veikindi eða óhagstæð
veðurskilyrði en síðan gerðu þeir
kröfur um launagreiðslu fyrir
Framhald á bls. 28.
Nýr bíll skemmdur
Á TÍMABILINU
klukkan 11.20 til 13 í
gær, föstudag var ekið
á bifreiðina G-103, þar
sem hún stóð austan-
vert við Sambandshús-
ið við Sölvhólsgötu.
Þetta er splunkuný Audi
fólksbifreið, mosagræn að
lit, og var hægri framhurð
hennar dælduð. Þeir, sem
telja sig geta veitt upplýs-
ingar um ákeyrsluna eru
beðnir að hafa samband við
slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Einn sækir
um Norðfjörð
RUNNINN er út umsóknarfrest-
ur um prestsembættið í Norðfirði.
Einn umsækjandi er um embætt-
ið, sr. Svavar Stefánsson, settur
sóknarprestur á staðnum.
Utankjörstað-
aratkvæði í
BSRB-deilunni
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
tilkynning til ríkisstarfsmanna i
BSRB frá yfirkjörstjórn þess efn-
is á sáttanefnd hafi samþykkt að
þeir rikisstarfsmenn í BSRB, sem
fari af landi brott og verði ekki
hérlendis dagana 1. og 3. október
n.k. þegar atkvæðagreiðsla um
sáttatillögu sáttanefndar i yfir-
standandi kjaradeildu milli ríkis-
ins og BSRB fer fram, geti greitt
atkvæði utankjörstaðar í dag,
laugardag, milli kl. 16 og 18 á
skrifstofu BSRB að Laugavegi
172.
Tveir í gæzlu
vegna þjófnaða
SAKADÓMUR Reykjavík-
ur hefur úrskurðað tvo
menn í gæzluvarðhald
vegna þjófnaða og fleiri af-
brota. Vár þetta gert að
kröfu Rannsóknarlögreglu
ríkisins, sem hefur rann-
sókn málanna undir hönd-
um.
Annar mannanna var úr-
skurðaður í gæzluvarðhald fyrir
fjársvik, bílveltu, ölvun við akst-
ur og stuld á bifreið. Hinn, sem er
aðeins 17 ára, er úrskurðaður
vegna 30 innbrota og þjófnaða
það sem af er þessu ári.
! • ' HOtSJÖKUU ■ V
■ % >.■ ■ ,
> J ■/ J.
-■■ > • ■ .v,- Hhjt'ííS ’ ■
.«> ,......' ivr.#
:■* • >■•■'./ ■■■-, :/• .<
4* t■ ’ y /■■;. ,. - f
X A F
RaUið hefst á morgun
LENGSTA og erfiðasta rall-
keppni sem hér á landi hefur
verið háð hefst í kvöld, laugar-
dag, kl. 18. Verða eknir 950 km
á um 18 klukkustundum og er
stór hluti leiðarinnar ekinn í
myrkri en víða er mjög erfitt
yfirferðar og gerir keppnin því
miklar kröfur til ökumanna og
bifreiða. Þegar hafa um 20 öku-
þórar skráð sig til keppni.
Það verður um hádegi á
morgun, sunnúdag, sem öku-
mennirnir nálgast aftur höfuð-
borgina og fyrir þá sem áhuga
hafa á að fylgjast með keppn-
inni skal bent á að kl. 07 í
fyrramálið verða bílarnir
komnir tii Þingvalla og fá þar
smáhvíld áður en lagt er á
Kaldadal og þeir koma síðan á
hótel Loftleiðir um kl. 12.30,
þar sem þeim keppendum sem
komast alla leið verður fagnað,
en sigurvegarinn verður hyllt-
ur á dansleik á Hótel Loftleið-
um kl. 22 um kvöldið.
Sæmundur Auðuns-
son skipstjóri látinn
1 FYRRINÓTT lézt á heimili sfnu
hér f Reykjavík hinn landskunni
skipstjóri Sæmundur Auðunsson,
sem var skipstjóri á hafrannsókn-
askipinu Bjarna Sæmundssyni.
Hann hefði orðið sextugur á
mánudaginn kemur 4. október.
Kom Sæmundur úr síðasta leið-
angri sínum á sunnudaginn var.
Fæddur var hann suður á Minni-
10% hækkun
á farmgjöld-
um Eimskips
HEIMILUÐ hefur verið 10%
hækkun á fargjöldum Eimskipa-
félagsins, en samkvæmt upplýs-
ingum Verðlagsskrifstofunnar,
hafði félagið farið fram á 37%
hækkun. Þá var einnig heimiluð
28% hækkun á upp- og útskipun-
argjaldi og er það í samræmi við
gerða kjarasamninga.
Vatnsleysu, sonur Auðuns Sæ-
mundssonar sem var kunnur sjó-
sóknari og vélbátaformaður og
konu hans Vilhelmínu Þorsteins-
dóttur. Allt frá unglingsárum
stundaði Sæmundur sjómennsku,
eins og fleiri i þessari miklu sjó-
sóknarætt. Hann var meðal þeirra
er komust af er togarinn Skúli
fógeti fórst í Grindavík, þá var
Sæmundur 15 ára gamall. Þess
má geta t.d. að Sæmundur varð
fyrsti skipstjóri Útgerðarfélags
Akureyrar er það eignaðist ný-
sköpunartogarann Kaldbak. Var
Sæmunur um nokkurra ára skeið
togaraskipstjóri nyrðra. Er hann
kom aftur til Reykjavikur varð
hann framkvæmdastjóri togaraút-
gerðarinnar Fylkis, sem átti sam-
nefndar togara. Fór Sæmundur i
nokkra fiskileitarleiðangra með
skip sitt. Um margra ára skeið
hefur nafn Sæmundar þannig
verið tengt fiskileit og veiðitil-
raunum, en nú síðustu 7 árin var
hann skipstjóri á Bjarna Sæ-
mundssyni — frá því hann var
smíðaður fyrir Hafrannsókna-
stofnunina. Þess má geta að um
nokkurn tíma var Sæmundur for-
stjóri Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar. — Hann lætur eftir sig
konu, Arndisi Thoroddsen og tvö
uppkomin börn, dóttur og son.
Kílómetragjald
hækkar í 40 kr.
FERÐAKOSTNAÐAR-
NEFND hefur reiknað út
nýtt kílómetragjald fyrir
bifreiðir, sem ríkisstarfs-
menn nota vegna vinnu í
þágu hins opinbera.
Iðnkynningunni í Laugar-
dalshöll lýkur um helgina
IÐNKYNNINGIN í Reykjavík
lýkur um þessa helgi. Verður
henni slitið við Sýningarhöll-
ina í Laugardal á sunnudags-
kvöld með hátíðlegri athöfn
sem hefst kl. 22.
Lýkur þá jafnframt Iðnkynn-
ingu í Laugardalshöll, en svo
nefrlist sýning og kynning á
reykviskum iðnaði sem stendur
yfir í Laugardalshöllinni.
Iðnkynning í Laugardalshöll
verður opin í dag og á morgun
frá kl. 13—22 báða dagana. Á
kynningunni verður hvorn dag
efnt til tveggja gestabingóa og
þriggja tízkusýninga.
Samkvæmt upplýsingum Tóm-
asar Sveinssonar, formanns
nefndarinnar, hækkar almennt
gjald úr 37 krónum í 40 krónur
fyrir kilómetrann. Nemur hækk-
unin 8.1%. Þetta gjald er miðað
við að eknir séu færri en 10 þús-
und kílómetrar. A bilinu 10 þús-
und til 20 þúsund kílómetrar
verða greiddar 34 krónur í stað 31
krónu og ef eknir eru yfir 20
þúsund kilómetrar fyrir ríkið eru
greiddar 29 krónur fyrir hvern
kílómetra umfram það.
Sérgjald, sem gildir fyrir akstur
á malarvegum hækkar úr 43 i 47
krónur kílómetrinn fyrir fyrstu
10 þúsund kílómetrana og tor-
færugjald hækkar úr 53 i 58 krón-
ur hver kílómetri fyrir fyrstu 10
þúsund kílómetrana.
mn 6H0P
SIG reflM f PRÓF-
KlöRl.L/EKNlR ]