Morgunblaðið - 02.10.1977, Síða 14

Morgunblaðið - 02.10.1977, Síða 14
■ - - 14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1977 Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur: Vörtukláði, alvarlegur kartöflusjúkdómur í ár Mörí-um kartöfluræktendum varö heldur betur bilt vió, er þeir hugðu að uppskeru sinni á þessu hausti. V<»ru marítar kartöflur al- settar vörtum (»k vanskapaðar í»k var þetta í mörgum tilfellum svo slæmt, að uppskeran var næstum ónýt. Gildir þetta einkum um Kamla heimilisKarða á suðvestur- horni landsins. Þar sem fyrir- spurnum hefur nánast risnt yfir Rannsoknastofnun landbúnaðar- ins út af þessu og margir ná- grannar álversins hafa óttast, að mengun þaðan gæti verið orsökin, þykir rétt að gera nt.kkra grein fyrir, hvað hér er um að ræða. Sjúkdómur þessi heitir vörtu- kláði og veldur honum sveppur, Spongospora subterranea. Þessi sjúkdómur hefur verið hér lengi og yfirleitt gert lítinn skaða, en hefur blossað upp öðru hvoru í votviðratíð. Sjúkdómurínn þrífst best við rök og svöl skilyrði, og hefur verið tengdur illa fram- ræstum jarðvegi. Það er varla vafi á því, að hin mikla úrkoma, sem fallið hefur undanfarin sum- ur, er aðal orsökin fyrir því, hversu alvarlegur þessi sjúkdóm- ur er nú. Það skal þrennt til þess, að sjúkdómurinn komt fram; í fyrsta lagi þarf sveppurinn að vera til staðar, í öAru lagi þurfa skilyrðin til smitunar að vera hagstæð og í þriðja lagi þarf kartaflan að vera móttækileg. Þau afbrigði, sem við ræktum hér, eru öll móttækileg. Smitefni finnst viða í görðum í formi hvíldargróa, sem geta lifað 5—6 ár, en magnið er auðvitað breytilegt. Mest er það sennilega í gömlum heimilisgörðum, sem hafa verið i samfelldri ræktun í tugi ára og í illa framræstum görðum. Reikna má með, að mikil aukning á magni smitefnis hafi átt sér stað undanfarin sumur og ef til vill hefur smitmagnið tak- markað sjúkdóminn áður. Smit- unin fer fram við myndun kart- aflanna i jarðveginum. Hvíldar- gró, sem legid hafa í jarðveginum eða borist með útsæðinu, spíra og það myndast lífvera, sem getur synt inn um loftaugun á'kartöfl- unum. Þar framkallar hún frumu- skiptingú og frumuvöxt í kart- öfluvefnum, svo Ijósar vörtur geta myndast á yfirborðinu. Seinna fjölgar sveppurinn sér og Framhald á bls. 19. Yfír 2700 bttar aka með Lume á Islandi í dag Platínulaus transistorkveikja er NÚTÍMA-LAUSN 4. STAÐREYND: Frá þvi augnabliki, eyösla) vegna ástandsbreytinga á sem nýjar platinur eru settar i kveíkj- platinum var úr sögunni meö notkun una, þá byrja þær aö brenna og plat- sliks búnaðar. inubilið aö breytast. Oumtlýjanleg at-Jf STAÐREYND: Astandsbreyting á leiöing er orkutap og aukin benzín- platinum er langalgengasta orsök eyðsla. orkutaps og aukinnar benzineyðslu. yL STAÐREYND: Með notkun LUMEN jf STADREYND: Slæmtástandá Platin- ITION er „veikasti hlekkur" kveikju- um er algengasta orsök þess aö vélin rásarinnar (platinur og þéttir) endan- fer ekki i gang, sem oft hefur i för lega úr sögunni. Að þessu leyti trygg- með sér aðkeyptan akstur og vinnu- ir LUMENITION hámarks orku- og tap. benzinnýtingu, sem helzt óbreytt. jf STADREYND: Missmiði eða slit á jf STADREYND: I LUMENITION eru kveikjuknöstum, svo og slitnar engir hlutir sem slitna eða breytast við kveikjufóöringar, hafa mjög truflandi núning. áhrif á gang vélarinnar. Jafnvel nýjar jf STADREYND: Platinulaus kveikju- vélar geta haft slipunargaila á búnaður var á sinum tima kynntur i kveikjuknöstum. sjónvarpsþættinum „Nýjasta tækni og J^-STADREYND: Slit eða gallar á visindi" og þar kom fram, að slikur kveikjuknöstum hafa engin áhrif á búnaður væri algjör bylting aö því er gang vélarinnar með notkun varöaðí benzinnýtingu og almennan Lumenition. Jafnvel minni háttar slit reksturskostnað. á fóðringum hefur ekki truflandi JÍ- STAÐREYND: Platinulaus kveikju- áhrif. búnaður var lögleiddur i Bandarikjun- Jf STAÐREYND: Lumenition kveikju um 1975 eftir að opinber rannsókn búnaður er ónæmur gagnvart raka. sannaöi, að óþörf mengun (= benzín- SkeiSunní Je * Simi 3*33‘45 Vesturlönd gera sér ranga mynd af Sovétríkjunum Stærðfræðingurinn Vladimir Bukovski, einn þekktasti rússneski flóttamaðurinn, sem sloppið hefur af geð- veikrahæli í landi sínu, var nýlega í París. Eftir níu mánaða dvöl á Vesturlöndum hefur hann myndað sér skoðanir á því hvaða augum Vesturlönd líta Sovétríkin. Um þær fjallaði hann m.a. í eftirfarandi viðtali við .Jean-Franeois Revel í Express. J.F. Revel: Nú ertu búinn að dvelja i niu mánuði hér á Vestur- lönduni. Hvaða hugmyndir sýnist þér Vesturlönd gera sér um Sovétríkin? Bukovski: Hér er mikið af upp- lýsingum. En þær upplýsingar eru nokkuð valdar. Sérhver mað- ur heyrir aðeins það sem hann vill heyra. J.F. Revel: Og hvað finnst þér við helzt heyra? Bukovski: Þið hafið gert ykkur mjög rótfasta mynd. Revel: Dæmi? Bukovski: Til dæmis um Rúss- land og sögu þjóðarinnar. í stuttu máli þetta, Rússland hefur aldrei verið frjálst, Rússar hafa alltaf verið undirokaðir. Þess vegna er engin furða þó sósíalisminn hafi mistekizt í Rússlandi. í öðru landi, frjálsu landi, gæti sósial- isminn orðið annar. Revel: En sýnist þér ekki að atburðir, svo sem Honoluluráð- stefnan, sýni að Vesturlönd séu að byrja að skilja. .. I fyrsta skipti hefur nú verið fordæmd notkun geðlækninga til að halda fólki niðri í Sovétrikjunum. Bukovski: Jú, Honoluluráð- stefnan er nýjung. Það tók sjö ár að ná þeim tímamótum. Og þau sjö ár voru býsna bitur. Fyrsta viðbragð Vesturlanda sýndi þenn- an sígilda ótta þeirra við að særa Sovétríkin. Þið vitið hvernig þetta er. . . ekki má móðga, betra er að beita diplomatískum Ieióum bak við tjöldin. Opinber mótmæli gera ekki annað en auka vand- ann. Menn segja við sjálfa sig, hjálpum dúfunum i Sovétstjórn- inni til að ná yfirhöndinni yfir haukunum, Allt þetta hjal kemur frá fólki, sem þekkir ekki lífið i Sovétrikjunum. Hér á Vestur- löndum búa menn sér til ímynd af dúfum og haukum, og yfirfæra hana svo á Sovétríkin, þar sem hvorki eru til dúfur né haukar. Fyrra Heimsþing geðlækna í Mexico 1971 neitaði að taka málið til meðferðar. Afleiðingin varð sú, að strax í kjölfarið blómstraði misbeiting geðrænnar meðferðar og sérhæfðum geðsjúkrahúsum fjölgaði. Jafnframt fjölgaði þeim manneskjum, sem lagðar voru ínn á þessi geðsjúkratús. Og það sem meira er, þessi aðferð til að halda fólki niðri færðist út til annarra sósíalistískra ríkja. Allir þeir, sem lýstu sig mótfallna þessari misnotkun, voru sakaðir um und- irróðursstarfsemi og lokaðir inni. Þess vegna eyddi ég mörgum ár- um á slikum himnaríkisstað — vegna þess að vestrænir geðlækn- ar höfðu ákveðið að hjálpa ,,dúf- unum“ í Sovétrikjunum. . . Revel: Á Vesturlöndum ríkja fordómar, sem ganga út á það að hættulegt sé að verja mannrétt- indin. Af þeim sprettur fordæm- ing á Carter og baráttu hans. Frakklandsforseti lét hafa eftir sér i Newsweek ummæli, sem gagnrýna stefnu Carters. Bukovski: Harðlínumenn og frjálslyndari eru ekki til í Sovét- rikjunum, og slíkar stefnur gætu ekki myndazt af þeirri einföldu ástæðu að við höfum einsflokks- kerfi og þar er skipting i hópa útilokuð. Um leíð og örlar á mis- ræmi, hefjast innandyra hreins- Vestrænar þjóðir mega ekki fela skoðanir sínar þegar þær tala við Sovétríkin. anir, mannfall, sprengingar í flugvélum o.s.frv. Jafnvel þó mað- ur gerðí ráó fyrir því að í Sovét- skipulaginu séu einhver brot harðari og önnur mildari þá get ég ekki skilið tal manna eins og Giscards, Schmidts og annarra. Því hvernig ætti einhver hörð af- staða á Vesturlöndum að geta hert stefnuna í Sovétríkjunum? Þvert á móti ætti hörð afstaða á Vesturlöndum aó hjálpa þeim, sem taka afstöðu með tilslökun í Sovétríkjunum. Hún ætti einmitt að leggja þeim rök í hendur. Við getum ekki vitað nákvæm- lega hvert stefnir i sovézkum stjórnmálum, þvi það er algert myrkraherbergi. En við getum óbeint gert okkur hugmynd um það af endurskini þess í viðhorf- um stjórnenda hinna landsmanna i sovézku blokkinni, Þau sýna næstum öll áhuga á því að Vestur- lönd taki upp harðlínustefnu. Þau reyna alltaf að nota harða stefnu Vesturveldanna til að reyna að þrýsta á Sovétstjórnina, og sýna henni hve óraunhæf stjórnmála- stefna hennar er. Að auki ættum við að láta okkur skiljast, og það er kannski hvað mikilvægast þeg- ar talað er um stefnu Sovétríkj- anna, að geð stjórnenda Sovét- ríkjanna er það sama sem Mafiunnar. Það er ekki geð stjórnmálaflokks eða opinberra stjórnenda. Það bezta sem Vestur- lönd gætu gert, væri að skipa gamlan góðan lögreglustjóra frá Chicago til að eiga viðræður við Sovétríkin, mann sem hefði grundvallarþekkingu á sálarlífi glæpamanna. Þegar Brandt segir að maður verði að viðurkenna pólitiskar staðreyndir, þá er það alrangt. Fyrir okkur, sem i Sovétríkjunum búum, táknar viðurkenning á pólitískum staðreyndum það eitt að ganga i Flokkinn eða vinna með KGB, ekkert annað. Frá þeirri stundu gæti engin mann- réttindahreyfing svo mikið sem hafizt í Sovétrikjunum. Revel: Telur þú að í Sovétrikj- unum sé nægilega sterk and- spyrnuhreyfing meðal fólksins, til að hún geti náð fótfestu? Bukovski: 1 Sovétríkjunum eru um það bil hundrað þjóðir, eins og þið vitið. Það er siðasta ný- lenduveldið á hnettinum. Saga síðustu sextíu ára hefur kennt okkur að kúgaðar nýlenduþjóðir gera allt sem í þeirra valdi stend- ur, gera jafnvel örvæntingarfull- ar tilraunir til að afla sér frelsis. Revel: En hvaða raunhæf ráð eru þá til að ná árangri, sem hönd er á festandi? Bukovski: Eins og er höfum við fá vopn. En eitt vopn hefur þó reynzt vera meira ógnvekjandi en önnur, ef á heildina er litið. Þar á ég við upplýsingamiðlun, það eitt að tala, Það hefur komið á daginn, að það vopn skelfir mest, liggur við að það skekji kerfið, og kemur á framfæri — jafnvel við stjórn- endur Sovétrikjanna — vissum nýjum viðhorfum. Revel: Vesturlönd hafa þá stóru hlutverki að gegna? Bukovski: Geysistóru hlutverki. Samkvæmt sovézkum upplýsing- um hlusta 40 miiljónir manna á BBC. Frakkar lokuðu ems og góðu börnin þeirri deild franska útvarpsins, sem sendi til Sovét- ríkjanna. Revel: De Gaulle var góður vin- ur Nikita Krusjeffs. Bukovski: Já, vegna þess að hann vildi vera óvinur Bandaríkj- anna. Hann hugsaði eins og menn gerðu á 19. öld. Hann leit á óvin óvinar síns eins og væri hann vinur. Það er ekki okkar skoðun. Við eigum okkur málshátt: „Sendið ekki úlfinn gegn hund- unum“. Vel á minnzt, Giscard d’Estaing er nýbúinn að gefa yfir- lýsingu, sem kom okkur gersam- lega á óvart. Hann sagði i viðtali í LEITIfl yiokkarOG VHIMUNIIM FIMUt húseíqn liiifaf hali Sölustjóri; Sigurður Benediktsson Haraldur Magnússon Viðsk.fr. _ Verðmetum íbúðina samdæqurs, vður að kostnaðarlausu oq án skuldbindinqa. OdÍÖ 9-12 OQ 13.30-18 Kvöldsími 42618.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.