Morgunblaðið - 02.10.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÖBER 1977
kerjunum og leiða það i rörum
út úr verksmiðjuhúsinu. Þessir
þættir tveir draga stórlega úr
mengun innanhúss en þriðji
þátturinn, uppsetning hreinsi-
stöðva milli skálanna tveggja í
Straumsvík, miðar að því að
draga úr mengun í náttúrunni.
Hreinsistöðvarnar taka við loft-
inu, sem sogað hefur verið frá
kerjunum og skilja úr því flúor-
sambönd og önnur efni, sem
kunna að vera hættuleg gróðri,
áður en loftinu er skilað út í
andrúmsloftið.
Að sögn Pálma er ráðgert að
byggja yfir og ganga frá
hreinsiútbúnaði við öll 120 ker-
in í skála 2 í Straumsvík næstu
tvö árin, en sá skáli liggur næst
Reykjanesbrautinni. Árið 1980
er svo áætlað að byggja yfir öll
ker í skála 1, en þau eru 160 að
tölu. Hreinsistöðvar verða fjór-
ar og verður sú fyrsta ekki tek-
in í gagnið fyrr en 40 ker hafa
verið yfirbyggð i árslok 1978.
Jafnframt því, sem hreinsiút-
— Yfirvega
Framhald af bls. 2
valdir hafa verið i sáttanefnd í
samráði við báða deiluaðila.
Fjármálaráðherra og félagar
BSRB hljóta að yfirvega af-
stöðu sína vandlega áður en
þeir hafna sáttatillögu, sem
þannig er tilkomin. Öyfirveguð
afstaða ynni gegn þeim tilgangi
laganna að finna friðsamlega
og frjálslega leið til málalykta.
Falli tillagan er erfitt að sjá
farsæl málalok. Ég trúi þvi
ekki, að menn vilji átök átak-
anna vegna.
Eg vona einlæglega, að félag-
ar BSRB vilji nálgast málið
með sama hugarfari með al-
mannaheill fyrir augum, auk
sinna eigin hagsmuna, sem vel
eru viðurkenndir i þessari
lausn. Nú er mál til komið að
deilunni Ijúki og það sannist,
að lagabreytingin, sem gerð var
á þinginu i vor, sé vænlegur
farvegur fyrir kjaramál opin-
berra starfsmanna.
— Algjör
Framhald af bls. 17
fornu hetja sem segir frá í Is-
lendingasögunum. Þar var allt
nýtt og fágað, alls ekkert af þvi
gamla góða eftir.
En þessi vonbrigði okkar
hurfu fljótt, þegar við fórum að
fara um landið og sáum þá
mjög margt , sem okkur hafði
ekki órað fyrir að fyndist hér.
Náttúra íslands er hreint frá-
bær. Flest okkur urðu þó mest
snortin, þegar við komum til
Vestmannaeyja. Umhverfið
mjög sérkennilegt og það er
hreint aðdáunarvert hversu
uppbygging hefur gengið vel og
fljótt fyrir sig þar.
En ef við snúum okkur aftur
að islendingasögunum, trúið
þið því sem þar stendur?
— Auðvitað trúum við ekki
öllu, sem þar stendur, en þó eru
söguþræðirnir örugglega sann-
ir, siðan er skáldað i kringum
þá til að gera sögurnar líflegri.
I norskum menntaskólum
þurfa allir að lesa eitthvað af
islendingasögunum, og það
hafa flestir mjög gaman af
þessum sögum.
búnaði er komið fyrir verður
vinnufyrirkomulagi við kerin
breytt. Fram til þessa hefur
þeim verið hliðarþjónað sem
kallað er, þ.e. starfsmenn hafa
komið með tæki upp að hlíð
kerjanna og brotið þannig ker-
skurn, komið fyrir súráli, og
tekið ál. Hin nýju ker eru aftur
á móti miðjuþjónuð og er notað-
ur til þess sjálfvirkur útbún-
aður og í framtíðinni er ráðgert
að þessi útbúnaður verði tölvu-
stýrður.
Ein deild, ný byggingatækni-
deild, vinnur að þessu verkefni
en þar vinna 5 menn. Auk þess
vinna 5 járniðnaðarmenn að
verkefninu ásamt verkfræðing-
um hér og erlendis.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 6. október kl. 20.30.
Stjórnandi: Páll P. PálsSOn
Einleikarar:
Guðný Guðmundsdóttir
Hafliði Hallgrímsson
Philip Jenkins
Efnisskrá: Beethoven — Coriolan forleikur, Beethoven — þrikonsert f.
fiðlu, celló, píanó og hljómsv., Beethoven — Sinfónia nr. 4
Aðgöngumiðar seldir í bókabúðum Lárusar Blöndal og Sigfúsar
Eymundssonar.
Askriftarskirteini seld á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar Laugavegi
120.
Sigurvegarinn
PHILIPS
litsjónvarp
með eðlilegum litum
Umboðsmenn um land allt:
Akranes
Borgarnes
Bolungarvík
ísafjörður
Hvammstangi
Blönduós
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Verslunin Valfell
Kaupfélag Borgnesinga
Virkinn hf
Póllinn hf
K/F V Húnvetninga
K/F Húnvetninga
K/F Skagfirðinga
Aðalbúðin
Ólafsfjörður Verslunin Valberg I Fáskrúðsfjörðu Guðmundur Hallgrímsson
Akureyri Akurvik hf I Hornafjörður KASK
Akureyri KEA I Hella Mosfell
Húsavík Þ. Stefánsson I Vestmannaeyjar Kjarni
Vopnafjörður K / F Vopnfirðinga I Vestmannaeyjar Stafnes
Seyðisfjörður Stál hf I Selfoss Radio og sjónvarpsstofan
Neskaupstaður Kristján Lundberg I Keflavík Stapafell hf
Eskifjörður Elís Guðnason I Hafnarfjörður Ljós og raftæki
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3. SÍMI 20455 — SÆTÚNI 8. SÍMI 15655
Gömlu kerin 1 álverinu. Nýju kerin er mun hreinlegri eins og sést ef
myndin er borin saman við baksíðumyndina.
Hreinsibúnaður
Framhald af bls. 32.
áramótin 1978 og ’79. Sam-
kvæmt áætluninni verða full-
komnar mengunarv arnir komn-
ar á f árslok 1980. Þetta verk er
geysilega dýrt og nýjustu
kostnaðaráætianir'hljóða upp á
84—86 milljónir svissneskra
franka eða sem næst 7500
miiljónir íslenzkra króna.
Kostnaðaráætiunin er unnin af
verkfræðistofu í Sviss og er í
henni gert ráð fyrir dýrtíðar-
hækkunum.
Morgunblaðsmenn heimsóttu
Álverið s.l. föstudagsmorgun og
skoðuðu framkvæmdir við
hreinsiútbúnaðinn. Samkvæmt
upplýsingum Pálma
Stefánssonar nýbyggingastjóra
hjá tsal er hreinsibúnaðurinn
þríþættur. í fyrsta er það lokun
kerjanna, sem er erfiðasti þátt-
urinn. Álhlerar eru lagðir yfir
kerin til þess að varna þvi að
flúorsambönd og fíngert ryk
gufi upp og valdi mengun í
sjálfum vinnusalnum. Hafa
verið gerðar tilraunir með mis-
munandi hlera, til þess að fá þá
sem þéttasta og hefur orðið góð-
ur árangur af þeim tilraunum.
Annar þátturinn er frágangur á
búnaði til að soga loftið frá