Morgunblaðið - 06.10.1977, Side 1
44 SÍÐUR
221. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Indverska stjórnin
harðlega gagnrýnd
Nýju-Delhí 5. október
Reuter — AP
ÖLL helztu dagblöð Indlands
gagnrýndu í dag stjórn landsins
harðlega fyrir handtöku Indíru
Gandhis og sögðu aðgerðir stjórn-
vaida hafa grafið undan trausti
almennings á stjórninni en gefið
Indiru Gandhi byr undir báða
vængi.
Gandhi var sleppt úr fangelsi í
Bombay í gær eftir sólarhrings-
dvöl þar, eftir að dómari í Nýju
Delhi hafði úrskurðað að engin
haldföst rök væru fyrir ákærum á
hendur henni um spillingu og
valdamisnotkun. Ríkisstjórn
Desais Morais áfrýjaði úrskurði
dómarans þegar til hæstaréttar,
en rétturinn vísaði áfrýjuninni
frá á þeirri forsendu að hún væri
ekki tæknilega rétt. Verður
áfrýjunin tekin fyrir á morgun,
fimmtudag.
Stuðningsmenn Gandhis og
Kongressflokksins efndu til úti-
funda og hópgangna viða um
landið í dag, en eins og sagt var
frá í fréttum í gær fagnaði gífur-
legur mannfjöldi henni í Bombay
er hún var látin laus úr haldi og
Framhald á bls. 26
Bókmenntaverðlaun
Nóbels tilkynnt 1 dag
Stokkhólmi 5. okt. Reuter
SÆNSKA akademfan tilkynnti í dag, að Nóvelsverðlaunin í
bókmenntum yrðu veitt á morgun, fimmtudag, og á undan öðrum
Nóbelsverðlaunum ársins. Kom þessi yfirlýsing mjög á óvart, þar
sem sænska akademían hefur yfirleitt ekki gefið út orðsendingu
fyrirfram og auk þess hefur venjan verið sú að samdægurs er
tilkynnt um Nóbelsverðlaunahafa f ýmsum vísindagreinum. I ár
hefur verið furðu Iftið um skrif um hugsanlega Nóbelshafa í
bókmenntum. 1 fyrra hlaut bandaríski höfundurinn Saul Bellow
þau.'
I Ósló sagði talsmaður
Norsku Nóbelsr.efndarinnar,
sem úthlutar friðarverðlaunun-
um, að 54 hefðu verið tilnefndir
og að skýrt yrði frá nafni friðar-
verðlaunahafans nk. mánudag.
Ekki vildi hann láta uppi hverj-
ir kæmu til greina, en heimildir
í Ósló töldu að meðal þeirra
sem hefði verið stungið upp á
væru alþjóðasamtök og ein-
staklingar sem vinna að rétt-
indamálum Indíána, Eskimóa
Framhald á bls. 26
Dayan og Carter að loknum fundi sínum í fyrrinótt.
Simamynd AP.
ísraelar og Arabar
fjalla um samkomulag
Carters og Dayans
Hryðjuverkamenn
hóta Takeo Fukuda
London og Tókíó 5. október Reuter — AP.
JAPÖNSKU hryðjuverkasamtökin Rauði herinn, sem rændu japönsku
farþegaþotunni á dögunum og nú eru f Alsír, hafa sent Takeo Fukuda,
forsætisráðherra Japans, hótunarbréf, þar sem segir að honum verði
„kennd lexía“ vegna beiðninnar tii Alsírstjórnar um að hún framselji
flugvélarræningjana 5 og félaga þeirra sex, sem sleppt var úr haldi í
Japan í skiptum fyrir gíslana um borð í þotunni, ásamt 6 milljón
doilara lausnargjaldi.
New York, Tel-Aviv og Washington 5. október Reuter-AP.
BANDARlSKIR embættismenn voru varkárir í ummælum um Mið-
austurlandadeiluna í dag, eftir að Moshe Dayan utanríkisráðherra
Israels tilkynnti eftir 6 klst. fund sinn með Carter forseta í New York i
gær, að þeir hefðu náð samkomulagi um framkvæmdaáætlun um nýja
Genfarráðstefnu fyrir lok þessa árs. Talsmenn Carters forseta sögðu í
dag við fréttamenn, að menn hefðu nálgazt nokkuð samkomulags-
grundvöll, en að um væri að ræða bráðabirgðatillögur og að samning-
,um væri ekki lokið.
Sendu samtökin opið bréf til
Fukuda til Reuter-
fréttastofunnar í London, þar sem
segir að hann sé ábyrgur fyrir
aðgerðum Japansstjórnar, hann
hafi gengið aö kröfum samtak-
anna og hann hafi beðið Alsir-
stjórn um lendingarleyfi, en hafi
nú á heimskulegan hátt farið
fram á framsal „hetja okkar.“
Ekkert svar hefur borizt frá
Alsírstjórn við þessari beiðni
Japansstjórnar, en áreiðanlegar
heimildir í Tókfó herma að stjórn
Alsír hafi fallizt á að leyfa
japönsku þotunni að lenda þar,
gegn því að Japansstjórn færi
ekki fram á að hryðjuverkamenn-
irnir yrðu framseldir, né lausnar-
gjaldinu skilað.
Reuterfréttastofan birti i kvöld
viðtal við japanskan mann, Yano
Kenichi, sem sagðist vera heilinn
bak við flugránið. Var viðtalið
tekið í einhverri borg i Miðaustur-
löndum, eftir að japanska þotan
var lent i Alsír. Segir Kenichi, að
Rauði herinn ætlaði að nota
lausnargjaldið til að halda áfram
herferð gegn heimsvaldasinnum,
með Japan og Israel efst á óvina-
lista. Kenichi, sem sagðist eiga
sæti í stjórnmálaráði hryðju-
verkasamtakanna, gaf einnig i
skyn að hann hefði átt aðild að
morðárásinni á Lodflugvelli í
ísrael 1972, er þrír menn úr
Rauða hernum myrtu 25 manns
áður en þeir sjálfir voru felldir.
Talsmaður Schmidts staðfesti í
kvöld að boðað hefði verið til
fundarins, en neitaði að svara
spurningum fréttamanna um
hvort frétt útvarpsins væri rétt.
V-þýzka stjórnin hefur fyrirskip-
Ekkert hefur enn verið látið
uppi um innihald „vinnuplaggs-
ins“, sem þeir Dayan og Carter
sömdu, en grundvallarágreinings-
atriði aðila hefur verið hvernig
þátttöku Palestínumanna í
Genfarráðstefnunni skuli háttað.
Ríkisútvarpið í Israel sagði í
kvöld að i plaggi þeirra Carters og
Dayans væri m.a. yfirlýsing um að
Israelar myndu ekki sætta sig við
að algert bann við fréttaflutningi
af málsmeðferð hins opinbera.
Schleyer, sem er formaður v-
þýzka vinnuveitendasambandsins
og félags iðnrekenda þar í landi,
var rænt 5. september af hryðju-
sendinefnd frá Frelsissamtökum
Palestínumanna, PLO, á Genfar-
ráðstefnunni. Sagði útvarpið
einnig að ísraelar myndu berjast
gegn stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestinumanna jafnvel þótt það
væri i alríkissambandi við Jór-
daníu.
I beinni útsendingu frá frétta-
ritara útvarpsins í New York
sagði að þótt efni vinnuplaggsins
verkamönnum úr Rauðu herdeild
Baader Meinhof samtakanna, sem
myrtu 3 lífverði hans og bílstjóra.
Krefjast ræningjarnir að 11 af
félögum þeirra verði sleppt ú
haldi i skiptum fyrir Schleyer og
1.1 milljón marka verði greidd í
lausnargjald.
I frétt v-þýzka útvarpsins segir
að ræningjar Schleyers hafi ekki
nálgazt tvenn skilaboð hjá sviss-
Framhald á bls. 26
væri enn leyndarmál hefði frétzt
um nokkur atriði, m.a. að Israelar
hefðu lýst yfir að þeir myndu
ekki túlka ályktun öryggisráðs
Framhald á bls. 26
Mannréttindi
efst á baugi
i Belgrað
Belgrað 5. október. Reuter.
AFVOPNUNARMAL og
mannréttindi voru helztu mál-
efni ræðumanna á Öryggisráð-
stefnu Evrópu i Belgrað í dag,
þar sem fulltrúar 35 þjóða eru
saman komnir til að meta það
sem á hefur unnizt frá undir-
ritun Helsinki-sáttmálans
1975. Eins og að líkum lætur
voru ræðumenn austurs og
vesturs ekki á einu máli í af-
stöðu sinni. ’
Leif Leifland, fulltrúi Svi-
þjóðar, sagði í ræðu sinni, að
ekki væri mögulegt að líta á
gagnrýni á brot á mannréttind-
um sem íhlutum í innanríkis-
mál viðkomandi þjóða og Svíar
myndu ekki hika við að vekja
athygli á slíkum brotum. I
sama streng tók fulltrúi V-
Þýzkalands, Giienther van
Well, ráðuneytisstjóri v-þýzka
utanríkisráðuneytisins, sem
sagði að mannréttindi væru
grundvallarskilyrði friðar.
Fulltrúi Búlgaríu Stefan
Stajkov, sagði að afturhaldsöfl
hefðu skipulagt herferð gegn
anda Helsinki-ráðstefnunnar,
en Milorad Pesic, fulltrúi gest-
gjafa ráðstefnunnar,
Júgóslavíu, sagði að mannrétt-
indi væru afar viðkvæmur
þáttur alþjóðasamskipta, sem
fjallayrði um af fullri ábyrgð.
Schleyermálið:
Ekkert heyrzt frá
ræmngjunum rvflrn
Schmidt á fundi með ráðgjöfum sínum í gærkvöldi
Bonn 5. október. Reuter.
HELMUT Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, boðaði helztu ráðgjafasína
um öryggismál á fund í kvöld ásamt neyðarástandsnefndinni, sem sett
var á stofn eftir rán Hanns Martins Schleyers fyrir 4 vikum, eftir að
v-þýzka útvarpið skýrði frá þvf að ekkert hefði heyrzt frá ræningjum
Schleyers f eina viku.