Morgunblaðið - 06.10.1977, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.10.1977, Qupperneq 1
44 SÍÐUR 221. tbl. 64. árg. FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Indverska stjórnin harðlega gagnrýnd Nýju-Delhí 5. október Reuter — AP ÖLL helztu dagblöð Indlands gagnrýndu í dag stjórn landsins harðlega fyrir handtöku Indíru Gandhis og sögðu aðgerðir stjórn- vaida hafa grafið undan trausti almennings á stjórninni en gefið Indiru Gandhi byr undir báða vængi. Gandhi var sleppt úr fangelsi í Bombay í gær eftir sólarhrings- dvöl þar, eftir að dómari í Nýju Delhi hafði úrskurðað að engin haldföst rök væru fyrir ákærum á hendur henni um spillingu og valdamisnotkun. Ríkisstjórn Desais Morais áfrýjaði úrskurði dómarans þegar til hæstaréttar, en rétturinn vísaði áfrýjuninni frá á þeirri forsendu að hún væri ekki tæknilega rétt. Verður áfrýjunin tekin fyrir á morgun, fimmtudag. Stuðningsmenn Gandhis og Kongressflokksins efndu til úti- funda og hópgangna viða um landið í dag, en eins og sagt var frá í fréttum í gær fagnaði gífur- legur mannfjöldi henni í Bombay er hún var látin laus úr haldi og Framhald á bls. 26 Bókmenntaverðlaun Nóbels tilkynnt 1 dag Stokkhólmi 5. okt. Reuter SÆNSKA akademfan tilkynnti í dag, að Nóvelsverðlaunin í bókmenntum yrðu veitt á morgun, fimmtudag, og á undan öðrum Nóbelsverðlaunum ársins. Kom þessi yfirlýsing mjög á óvart, þar sem sænska akademían hefur yfirleitt ekki gefið út orðsendingu fyrirfram og auk þess hefur venjan verið sú að samdægurs er tilkynnt um Nóbelsverðlaunahafa f ýmsum vísindagreinum. I ár hefur verið furðu Iftið um skrif um hugsanlega Nóbelshafa í bókmenntum. 1 fyrra hlaut bandaríski höfundurinn Saul Bellow þau.' I Ósló sagði talsmaður Norsku Nóbelsr.efndarinnar, sem úthlutar friðarverðlaunun- um, að 54 hefðu verið tilnefndir og að skýrt yrði frá nafni friðar- verðlaunahafans nk. mánudag. Ekki vildi hann láta uppi hverj- ir kæmu til greina, en heimildir í Ósló töldu að meðal þeirra sem hefði verið stungið upp á væru alþjóðasamtök og ein- staklingar sem vinna að rétt- indamálum Indíána, Eskimóa Framhald á bls. 26 Dayan og Carter að loknum fundi sínum í fyrrinótt. Simamynd AP. ísraelar og Arabar fjalla um samkomulag Carters og Dayans Hryðjuverkamenn hóta Takeo Fukuda London og Tókíó 5. október Reuter — AP. JAPÖNSKU hryðjuverkasamtökin Rauði herinn, sem rændu japönsku farþegaþotunni á dögunum og nú eru f Alsír, hafa sent Takeo Fukuda, forsætisráðherra Japans, hótunarbréf, þar sem segir að honum verði „kennd lexía“ vegna beiðninnar tii Alsírstjórnar um að hún framselji flugvélarræningjana 5 og félaga þeirra sex, sem sleppt var úr haldi í Japan í skiptum fyrir gíslana um borð í þotunni, ásamt 6 milljón doilara lausnargjaldi. New York, Tel-Aviv og Washington 5. október Reuter-AP. BANDARlSKIR embættismenn voru varkárir í ummælum um Mið- austurlandadeiluna í dag, eftir að Moshe Dayan utanríkisráðherra Israels tilkynnti eftir 6 klst. fund sinn með Carter forseta í New York i gær, að þeir hefðu náð samkomulagi um framkvæmdaáætlun um nýja Genfarráðstefnu fyrir lok þessa árs. Talsmenn Carters forseta sögðu í dag við fréttamenn, að menn hefðu nálgazt nokkuð samkomulags- grundvöll, en að um væri að ræða bráðabirgðatillögur og að samning- ,um væri ekki lokið. Sendu samtökin opið bréf til Fukuda til Reuter- fréttastofunnar í London, þar sem segir að hann sé ábyrgur fyrir aðgerðum Japansstjórnar, hann hafi gengið aö kröfum samtak- anna og hann hafi beðið Alsir- stjórn um lendingarleyfi, en hafi nú á heimskulegan hátt farið fram á framsal „hetja okkar.“ Ekkert svar hefur borizt frá Alsírstjórn við þessari beiðni Japansstjórnar, en áreiðanlegar heimildir í Tókfó herma að stjórn Alsír hafi fallizt á að leyfa japönsku þotunni að lenda þar, gegn því að Japansstjórn færi ekki fram á að hryðjuverkamenn- irnir yrðu framseldir, né lausnar- gjaldinu skilað. Reuterfréttastofan birti i kvöld viðtal við japanskan mann, Yano Kenichi, sem sagðist vera heilinn bak við flugránið. Var viðtalið tekið í einhverri borg i Miðaustur- löndum, eftir að japanska þotan var lent i Alsír. Segir Kenichi, að Rauði herinn ætlaði að nota lausnargjaldið til að halda áfram herferð gegn heimsvaldasinnum, með Japan og Israel efst á óvina- lista. Kenichi, sem sagðist eiga sæti í stjórnmálaráði hryðju- verkasamtakanna, gaf einnig i skyn að hann hefði átt aðild að morðárásinni á Lodflugvelli í ísrael 1972, er þrír menn úr Rauða hernum myrtu 25 manns áður en þeir sjálfir voru felldir. Talsmaður Schmidts staðfesti í kvöld að boðað hefði verið til fundarins, en neitaði að svara spurningum fréttamanna um hvort frétt útvarpsins væri rétt. V-þýzka stjórnin hefur fyrirskip- Ekkert hefur enn verið látið uppi um innihald „vinnuplaggs- ins“, sem þeir Dayan og Carter sömdu, en grundvallarágreinings- atriði aðila hefur verið hvernig þátttöku Palestínumanna í Genfarráðstefnunni skuli háttað. Ríkisútvarpið í Israel sagði í kvöld að i plaggi þeirra Carters og Dayans væri m.a. yfirlýsing um að Israelar myndu ekki sætta sig við að algert bann við fréttaflutningi af málsmeðferð hins opinbera. Schleyer, sem er formaður v- þýzka vinnuveitendasambandsins og félags iðnrekenda þar í landi, var rænt 5. september af hryðju- sendinefnd frá Frelsissamtökum Palestínumanna, PLO, á Genfar- ráðstefnunni. Sagði útvarpið einnig að ísraelar myndu berjast gegn stofnun sjálfstæðs ríkis Palestinumanna jafnvel þótt það væri i alríkissambandi við Jór- daníu. I beinni útsendingu frá frétta- ritara útvarpsins í New York sagði að þótt efni vinnuplaggsins verkamönnum úr Rauðu herdeild Baader Meinhof samtakanna, sem myrtu 3 lífverði hans og bílstjóra. Krefjast ræningjarnir að 11 af félögum þeirra verði sleppt ú haldi i skiptum fyrir Schleyer og 1.1 milljón marka verði greidd í lausnargjald. I frétt v-þýzka útvarpsins segir að ræningjar Schleyers hafi ekki nálgazt tvenn skilaboð hjá sviss- Framhald á bls. 26 væri enn leyndarmál hefði frétzt um nokkur atriði, m.a. að Israelar hefðu lýst yfir að þeir myndu ekki túlka ályktun öryggisráðs Framhald á bls. 26 Mannréttindi efst á baugi i Belgrað Belgrað 5. október. Reuter. AFVOPNUNARMAL og mannréttindi voru helztu mál- efni ræðumanna á Öryggisráð- stefnu Evrópu i Belgrað í dag, þar sem fulltrúar 35 þjóða eru saman komnir til að meta það sem á hefur unnizt frá undir- ritun Helsinki-sáttmálans 1975. Eins og að líkum lætur voru ræðumenn austurs og vesturs ekki á einu máli í af- stöðu sinni. ’ Leif Leifland, fulltrúi Svi- þjóðar, sagði í ræðu sinni, að ekki væri mögulegt að líta á gagnrýni á brot á mannréttind- um sem íhlutum í innanríkis- mál viðkomandi þjóða og Svíar myndu ekki hika við að vekja athygli á slíkum brotum. I sama streng tók fulltrúi V- Þýzkalands, Giienther van Well, ráðuneytisstjóri v-þýzka utanríkisráðuneytisins, sem sagði að mannréttindi væru grundvallarskilyrði friðar. Fulltrúi Búlgaríu Stefan Stajkov, sagði að afturhaldsöfl hefðu skipulagt herferð gegn anda Helsinki-ráðstefnunnar, en Milorad Pesic, fulltrúi gest- gjafa ráðstefnunnar, Júgóslavíu, sagði að mannrétt- indi væru afar viðkvæmur þáttur alþjóðasamskipta, sem fjallayrði um af fullri ábyrgð. Schleyermálið: Ekkert heyrzt frá ræmngjunum rvflrn Schmidt á fundi með ráðgjöfum sínum í gærkvöldi Bonn 5. október. Reuter. HELMUT Schmidt, kanslari V-Þýzkalands, boðaði helztu ráðgjafasína um öryggismál á fund í kvöld ásamt neyðarástandsnefndinni, sem sett var á stofn eftir rán Hanns Martins Schleyers fyrir 4 vikum, eftir að v-þýzka útvarpið skýrði frá þvf að ekkert hefði heyrzt frá ræningjum Schleyers f eina viku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.