Morgunblaðið - 13.10.1977, Qupperneq 1
36 SIÐUR
226. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hyggja flátt
þótt fagurt gali
— segir Li Hsein-Nien um Sovét-leiðtogana
Fpking. 12. október. Heutor.
I VEIZLU sem Peking-stjórnin
hélt v-þýzka utanríkisrádherran-
um, Hans-Dietrieh Genseher, í
kvöld. réðst Li Hsien-Nien vara-
forsætisráðherra óvenju harka-
lega á stjórn Sovétríkjanna og
sagði nieðal annars að vert væri
að hafa í huga að Kreml-
leiðtogarnir h.vgðu flátt þótt þeir
hefðu í frammi fagurgala. Li lýsti
því yfir að sú spurning ætti nú
fyllilega rétt á sér hvort slökunar-
mál væru ekki að komast.á nýtt
stig þannig að styrjaldarhorfur
hefðu aukizt að undanförnu.
Kvað Li það ómótmælanlega stað-
reynd að heimsvaldakapphlaup
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
færi sífellt harðnandi, og stefndi
þróunin markvisst í þá átt að slls-
herjarstyrjöld skylli á.
Li Hsien-Nien sagði, að eftir
Helsinki-ráðstefnuna 1975 hefðu
Sovétmenn hætt að leggja megin-
áherzlu á að geta með skjótum
hætti flutt víglínu sina að Saxelfi.
Hefðu þeir á síðustu tveimur ár-
um lagt allt kapp á að koma sér
upp aðstöðu i Afríku og Mið-
Austurlöndum með það fyrir aug-
um að geta umkringt Vestur-
Evrópu. Varaforsætisráðherrann
kvað það skoðun Peking-
stjórnarinnar að hægt væri að af-
Framhald á bls. 20.
Stjóm Andreottis á
auknu fylgi að fagna
Kóm. 12. október. Reuter.
GIULIO ANDREOTTI, for-
sætisráðherra Ítalíu, hefur
á tæpu ári styrkt stöðu
stjórnar sinnar mjög veru-
lega, samkvæmt niður-
stöðu skoðanakönnunnar
sem nýlega var gerð. Voru
53,4% þeirra sem könnun-
in tók til hiynntir minni-
hlutastjórn kristilegra
demókrata undir forsæti
Andreottis, en í nóvember
í fyrra voru aðeins 42,7%
sömu skoðunar.
Brown í
Belgrad
Fá Júgóslavar vopn
frá Bandaríkjunum?
Belgrad, 12. október. Heuter.
HAROLD Brown, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, er kominn
til Belgrad til vióræðna um
hugsanlega vopnasölu Bandaríkj-
anna til Júgóslavfu. Talið er að
Júgóslavar sækist eftir því að fá
eldflaugar til varnar skriðdrek-
um, háþróaðan radarútbúnað og
vopn til að verjast loftárásum.
Víðræður Browns við júgóslavn-
eska ráðamenn hefjast á morgun
en þetta er 5 fyrsta sinn sem
bandarískur varnarmálaráðherra
Framhald á bls. 20.
Könnunin bendjr til þess að
bæði kristilegir demókratar og
kommúnistar hafi á siðustu 12
mánuðum bætt um það bil 1 % við
fylgi sitt, og hafi það orðið á
kostnað sósfalista sem virðast
hafa tapaö 1,6% af fylgi sínu.
Samkvæmt niðurstöðunum er
fylgi Kristilega demókrataflokks-
ins um þessar mundir 28,4%,
fylgi kommúnista 27,7% og fylgi
sósiállista 14,1 %.
Samkvæmt þessari sömu skoð-
anakönnun hefur þeim ítölum
sem andvígir eru beinni þátttöku
kommúnista í ríkisstjórn fækkað
verulega á sama tima eða um
7.9%.
Morarji Desai strengdi þess heit f gær að stjófn hans mundi beita
járnaga til að sigrast á ofbeldisaðgerðum af hálfu stjórnarandstæð-
inga. Sagði Desai að leiðtogar Kongressflokksins virtust staðráðnir f
þvf að koma af stað illindum og valda öngþveiti i landinu. Væri
Ijóst að leiðtogar flokksins hefðu ekkert lært og engu gleymt frá þvi
að þeir töpuðu í þingkosningunum s.I. vor, en það væri ásetningur
stjórnarinnar að bregðast við ólöglegu athæfi af einurð og festu.
Þegar Indira Gandhi, fyrrverandi forsætisráðherra, var handtekin
um daginn urðu óeirðir víða i landinu. Þar til í dag hafði Desai
núverandi forsætisráðherra ekki komið fram opinberlega frá því að
frú Gandhi var handtekin en hún var látin laus skömmu siðar.
Myndin að ofan er frá handtökunni.
Tító kom-
inn til
Parísar
Farís. 12. október. Reuter.
VIÐ UPPHAF opinberrar heim-
sóknar sinnar til Frakklands í dag
kvaðst Tító Júgóslavíuforseti
gera vonir um að viðræður hans
við franska stjórnmálaleiðtoga
yrðu til þess að ..bæta andrúms-
loftið á alþjóðavettvangi". Um
leið og hinn aldurhnigni forseti
beindi orðum sinum til gestgjafa
síns, Giscard d'Estaing, lýsti hann
því yfir að skoðanir þeirra á al-
þjóðamálum færu saman i mörg-
um greinum og væru þeir að
mörgu leyti sammála um leiðir til
að leysa margháttuð vandamál í
samskiptum þjóöa. 1 svarræðu
sinni við móttökuathöfnina
kvaðst Frakklandsforseti þess
fullviss að Frakkar og Júgóslavar
gætu i sameiningu fengiö miklu
áorkað á alþjóðavettvangi.
Taiið er að í viðræðum sínum
við fulltrúa frönsku stjórnarinnar
muni Tító lýsa áhyggjum sinum
yfir seinagangi i sambandi við
framkvæmd slökunarstefnunnar
og áframhaldandi vígbúnaðar-
kapphlaupi Bandarikjanna og
Sovétrikjanna.
Opinber heimsókn Títós til
Frakklands stendur í tvo daga. í
kvöld situr hann veizlu Frakk-
landsforseta í Elysee-höll.
Giulio Andreotti.
Vamarmálaráðherrar NATO
fresta ákvörðun um neutron
Bari, halíu, 12. ukt. Koutor.
VARNARMALARAÐHERRAR
Atlantshafsbandalagsríkjanna
frestuðu í dag ákvörðun um hvort
hinni umdoildu neutron-
sprengju skuli komið fyrir í Vest-
ur-Evrópu. Samkvæmt áreiðan-
legum fregnum af fundi ráðherr-
anna val* engin afstaða tekin til
Harold Brown
„Öfugsnúið mann-
greinarálit”?
Washini'ton, 12. október. Reuter.
HUNDRUÐ manna urðu frá að
hverfa þegar málflutningur
höfst fyrir Hæstarétti Banda-
ríkjanna i dag í máli, sem talið
er að marka muni tímamót í
kynþáttamálum þar í landi.
Málið snýst um það, sem nefnt
hefur verið „öfugsnúið mann-
greinarálit", en málavextir eru
þeir nánar tiltekið að hvítur
námsmaður, Allan Bakke, held-
ur því fram að honum hafi ver-
ið meinuð innganga í lækna-
skóla vegna hörundslitar síns.
Bakke sótti á sínum tíma um
skólavist i læknadeild Kaliforn-
íuháskóla, en heldur því fram
að sér hafi verið hafnað þar eð
tiltekinn fjöldi úr hópi blökku-
manna og annarra minnihluta-
hópa njóti forgangs um skóla-
vist án tillits til raunverulegra
verðleika. Bakke vann málið
fyrir hæstarétti Kaliforníu, og
hefur Kaliforniuháskóli nú
áfrýjað málinu til Hæstaréttar
Bandaríkjanna. Arehibald Cox,
sem Nixon fyrrverandi forseti
svipti umboði sérlegs ákær-
anda í Watergatemálinu árið
1973, flytur málið fyrir hönd
háskólans. Sagði Cox fyrir
hæstarétti í d.ag, að nauðsynlegt
væri að láta sérstök ákvæði
gilda um réttindi minnihluta-
hópa til að auka möguleika til
eðlilegrar þátttöku á öllum
sviðum þjóðlífsins og til aö
Framhald á bls. 20.
þess hversu iengi verði beðið með
að taka ákvörðun, en Fred
Mulley, varnarmálaráðherra
Breta, taldi líklegt að margir
mánuöir liði áður en niðurstaða
lægi fyrir.
Neutron-sprengjan hefur aö
undanförnu verið mikið hitamál í
ríkjum Atlantshafsbandalagsins,
og hafa þar aðallega stangazt á
sjónarmið þeirra, sem lelja að
þetta nýja vopn taki öðrum vítis-
vélum fram uni óhugnanlegar af-
leiðingar, fari svo að til þess verði
gripið í hernaði. Hins vegar er því
haldið fram að neutron-sprengjan
sé að því le.vti skárri að hún sé
nákvæmari en aörar kjarnorku-
sprengjui', þar eð unnt sé að hafa
meiri stjórn á þvi hvern usla hún
gerí. Neutron-sprengjan hefur
,þann eiginleika að hún getur eytt
lífi án þess að valda umtalsverðu
tjóni á mannvirkjum.
Vorontsov um mannréttindamál:
Áróðurslegt sjónarspil”
kommúnistarfkin vegna niann-
réttindabrota. Vorontsov kvaðst
ekki telja útilokað að umræddir
ráðstefnufulltrúar létu stjórnast
af hagsmunum, sem alfarið
snertu stjórnmálaástandið í
þeirra eigin löndum
Norðurljósin
eini birtugjafi
Grænlendinga?
ALLT BENDIR nú til að raf-
magnslaust verði á Grænlandi 1.
nóvember n.k. ef danska gra*n-
landsmálaráðuneylið keniur ekki
til móts við launakröfur um 100
Framhald á bls. 20..
99
Moskvu, 12. okt. Reuter.
YULI Vorontsov, sem hefur orð
fyrir sovézku sendinefndinni á
Belgrad-ráðstefnunni lét í dag að
því liggja að af hálfu sumra vest-
rænna ríkja væri þar verið að
„setja á svið áróðurslegt sjónar-
spil“ um mannréttindamál og
væri leikurinn til þess gerður að
ekki þyrfti að fjalla um „raun-
veruleg vandamál í sambandi við
slökun spennu".
Þessi ummæli Vorontsovs
komu fram í viðtali sem hann átti
við Tass-fréttastofuna, og enda
þótt hann nefndi einstök ríki ekki
með nafni var Ijöst að sneiðin var
ætluð þeim fulltrúum frá Banda-
rtkjunum og Vestur-Evrópu, sem
undanfarna daga hafa deilt hart á