Morgunblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÖBER 1977
Fatamarkaðurinn
Trönuhrauni 6 Hafnarfirði við
hliðina á Fjarðarkaup
Nú höfum við ODÍð til kl 1 0 á morgun föstudaq
og kl 10—12 laugardag.
Við höfum fengið nýjar sendingar svo sem
kuldaúlpur í barna- og fullorðinsstærðum ódýr-
ar. Barnafatnað ýmiskonar.
Seljum margar tegundir af buxum í barna- og
fullorðinsstærðum fyrir kr 1000, 1500, 2000,
2500, 3000 Allt vönduð vara Herraskyrtur úr
bómull og poliester fyrir kr 1 500 Rúllukraga-
peysur í dömustærðum fyrir kr. 1000 og margt
margt fleira
Fatamarkaðurinn
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Auka-
tónleikar
í Bústaðarkirkju föstudaginn
14. október kl. 20.30.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Einleikari: Sigurður Ingvi Snorrason.
Efnisskrá.
D Cimarosa: Forleikur að ,,Le Mariage
Secret"
W A Mozart: Konsert fyrir klarinett kv 622 í
A dúr
G. Frescobaldi: Toccata
Bach-, Stokowsky: Komm sússer
Tod
G.F Hándel: Vatnasvítan
Aðgöngumiðar seldir við inngang
inn. Verð kr. 1000. — .
VIÐTALSTÍMI |
Alþingismanna og ^
borgarfulltrúa ^
Sjálfstæðisflokksins |
í Reykjavík
'I
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fn/
verða til viðtals í Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1 á K
laugardögum frá klukkan 14 OOtil 1 6 00 Erþartekið
á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er ^
öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma
þessa
Laugardaginn 1 5. október verða til viðtals:
Ellert B. Schram, alþingismaður
Elin Pálmadóttir, borgarfulltrúi
Hilmar Guðlaugsson, varaborgarfulltrúi
Attræður í dag:
Eymundur Torfa-
son vélstjóri Isafirði
Attatiu ára er i dag Eymundur
Torfason vélstjóri, Norðurgötu 3,
ísafirði. Eyinundur er borinn og
barnfæddur Vestfirðingur —
fæddur í Kaldbaksvik á Strönd-
um sonur Torfa Einarssonar, er
þar bjó, og konu hans. Ungur að
árum missti Eymundur föður
sinn. Tvístraðist fjölskyldan þeg-
ar fyrirvinnan var fallin frá og
var börnunum komið víða fyrir.
Eymundur Torfason fékk því
fljótt að kynnast þeim erfiðleik-
um, sem föðurlaus og fátæk börn
áttu við að stríða á þeim timum,
en svo undarlegt er það, að erfið-
leikar í uppvexti, sem nú á tímum
eru gjarna notaðir til þess að af-
saka ýmisiegt, sem miður fer hjá
ungu kynslóðinni, virðast oft hafa
haft þveröfug áhrif á þroska
þeirra, sem eiga sín æskuár langt
að þaki. Líklega er það sú ábend-
ing, sem Halldór Laxness vill að
til skila komist þótt kaldranalega
sé orðuð þegar hann segír eitt-
bvað á þá Ieið i einni bóka sinna,
aó fátt sé ungum drengjum holl-
ara en að missa föður sinn —
nema ef vera skyldi að missa móð-
ur sína. Auövitað ber ekki að
skilja slík orð bókstaflega. Hitt er
hins vegar rétt, að margur maður-
inn, sem nú er kominn á efri ár,
hefur reynst nýtur maður og
vandaður þótt fátækt og einstæð-
ingsskapur i barnæsku hafi lagt á
miklu þyngrí byrðar en nokkur
teldi nú á dögum aö leggjandi
væri á ungmenni þótt n.vti það
aöstoöar hvers kyns hámenntaðra
fræðinga i hak og fyrir. Einn slík-
ur maður, sem reynst hefur
traustur, duglegur og vandaöur
maður í alla staði þrátt fyrir fá-
tækt og einstæöingsskap í upp-
vexti er Eymundur Torfason.
Það er svo síöast á öðrum ára-
tug þessarar aldar, að Eymundur
Torfason sest að á ísafirði — þar
sem hann átti síöan eftir að lifa og
starfa alla ævi síðan. Eymundur
var þá orðinn vanur sjómaður,
stundaði m.a. hákarlaveiðar eins
og fleiri Strandamenn, og þótti
nýtur starfsmaður til allra sjó-
verka. A isafirói var mikil þörf á
slíkum mónnum, en sjómenn og
sjómennska hafa jafnan sett mik-
inn svip á atvinnulíf Isafjarðar og
er svo enn.
Arið 1926 var svo stofnað fyrir-
æki á Isafirði, sem frægt varð um
allt Island og átti sjálfsagt ijðru
fremur sök á þvi ef sök skyldi
kalla, að ísafjarðarkaupstaður
fékk viðurnefnið „rauði bærinn".
Fyriræki þetta var Samvinnufé-
lag isfirðinga, sem stofnað var af
jafnaðar- og verkalýðssinnum
þegar einkareksturinn hafði svo
hrapallega brugðist Isfirðingum i
útgerðarmálum, að við blasti
hrun fiskiskipaútgerðar í þessum
míkla útgerðarbæ, fjöldaatvinnu-
leysi og kreppa. Framkvæmda-
saga jafnaðarmanna og verkalýðs-
sinna á Isafirði á þessum árum er
saga ótrúlegra afreka, sem urðu
eins og fagnaðartiðindi á vörum
sérhvers íslenzks alþýðumanns og
lýsti af eins og kyndlum í sorta.
Þeir ísfirsku sjómenn, sem fóru
utan á árunum 1927—1928 til
þess að fylgjast meö smíði glæsi-
legs fiskiskipaflota fyrir hið
nýstofnaða Samvinnufélag Isfirð-
inga og sigla honum heim, hafa
þvi sjálfsagt farið þá för bæði
stoltir og glaðir. I þeim hópi var
Eymundur Torfáson og aftur kom
hann til ísafjarðar sem vélstjóri á
einum Samvinnufélagsbátanna,
Sæbirni. Glæsilegum farkosti á
þeirra tíðar mælikvarða. Og Sam-
vinnufélagsbátarnir sköpuóu
ákveðna hefð i útgerðarmálum Is-
firðinga, sem enn ér ríkulega við
lýði. Hún er sú að leggja mjög
ríka áherslu á viöhald og snyrti-
mennsku þannig að Samvinnufé-
lagsbátarnir urðu fljótt orðlagðir
sem „isfirsku lystisnekkjurnar".
Og enn er það svo, að ísfirski
fiskiskipaflotinn ber af öðrum
fiskiskipum sökum snyrtilegrar
umgengni og áherslu á ailt við-
hald. Má þekkja ísfirsk fiskiskip á
því hvar sem þau fara þannig aö
enn er floti „ísfirsku lystisnekkj-
anna" við lýði þólt skipin séu nú
örinur en á meðan Birnirnir voru
upp á sitt besta. Þessa hefð átti
Eymundur Torfason ríkan þátt i
að skapa, þvi hann var og er ein-
stakt snyrtimenni og einstaklega
nostursamur maöur og nýtinn.
Sem dæmi um þann anda, sem
ríkti á bátum Samvinnufélagsins
má nefna. aö öll hín mörgu ár
Eymundar Torfasonar á sjó á
bátum Samvinnufélagsins var
hann ávallt með saraa skipstjóran-
um — Olafi Júlíussyni. Olafur var
vinsæll og virtur skipstjóri.
Honum hélst einstaklega vel á
mannskap og var áhöfn hans
mjög samhæfð og samstillt.
"\
Dömur
athugið
Nýtt 3/a v/kna námskeið hefst 1 7.
október.
Leikfimi, sturtur, sauna, l/ós, sápa,
sjampó, olíur og kaffi innifalió í verð-
inu.
Dag- og kvöldtímar tvisvar og fjórum
sinnum í viku. Nudd á boðstó/um.
Innr/tun í síma 42360 og 861 78.
Á staðnum er einnig hárgreióslu-
stofan Hrund og snyrtistofan Er/a til
þægmda fyrir viðskiptavini okkar,
sími 44088.
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53, Kópavogi
Lengst munu þeir Eymundur þó
hafa verið saman til sjós ásamt
Jóni K. Guðmundssyni matsveini.
Þeir byrjuðu saman á Sæbirni
árið 1927—28, eins og áður sagði,
og voru saman á honum til ársins
1946 er þeir héldu til Sviþjóðar til
þess að taka við nýjum báti
Samvinnufélagsins — ísbirni.
Saman voru þeir félagar svo á
ísbirni allt þar til hann var seld-
ur, en þá hætti Eymundur sjó-
mennsku og fór í land, enda kom-
inn á efri ár. Og sem dæmi um
samvinnu þeirra og hve samhent-
ur og góður mannskapurinn var
má nefna, að þótt Sæbjörn væri
ekki endilega aflahæstur
Samvinnufélagsbátanna . skilaði
hann ár eftir ár ávallt bestu af-
komunni. Svo vel fóru þeir fé-
lagar með alla hiuti. Þar fór
ekkert til spillis og engu var hent
— nema fullnýttu.
Ekki fór Eymundur langt þótt
hann væri kominn í land. Hann
hélt enn tryggð við sama vinnu-
veitandann og gerðist nú véla-
gæzlumaður í frystihúsi, sem
Samvinnufélag Isfirðinga átti í
Neðstakaupstað. Þar vann hann
svo uns hann hætti störfum fyrir
aldurs sakir. Er því ekki furða
þótt Eymundi verði í ellinni
tíðrætt um Samvinnufélag ís-
firðinga og ræði um það af vænt-
umþykju — svo lengi og vel sem
hann vann því félagi. Trú-
mennska, dyggð, nostursemi og
einstök lagni í allri meðferð með
vélar eru dyggðir, sem einkenndu
löng og farsæl störf Eymundar
Torfasonar f.vrir Samvinnu-
félagið.
Eymundur Torfason er tví-
kvæntur. Fyrri kona hans var
Rannveig Benediktsdóttir úr
Bolungarvík, systir Guðmundar
Benediktssonar og þeirra bræðra,
sem eru kunnir menn þar vestra.
Þau Eymundur og Rannveig áttu
einn son barna, Garðar, sem býr i
Garðabæ.
Síðari kona Eymundar var
Kristjana Jakobsdóttir, en hún
lést í fyrra. Þau ólu upp dreng,
Gunnar Snorra, sem býr á
Patreksfirði.
Eymundur Torfason er nú
oröinn aldraður maður, en hann
er vel ern og heilsugóður eftir því
sem við má búast af svo fullorðn-
um manni. Hann er hæglátur og
rólegur, en stendur samt fast á
sinu. Jafnaóarmaður hefur hann
ávallt verið og uppeldissonur
hans, Gunnar Snorri, er einn af
nýtustu og bestu samherjum min-
um á Patreksfirði.
Eymundur Torfason dvelst nú
hjá syni sínum, Garðari, Hvanna-
lundi 9, Garðaþæ, og þangaö sendi
ég honum minar einlægustu
hamingjuóskir í tilefni dagsins.
Sighvatur B jórgvinsson
Vinnings-
númerin
innsigluð
DREGIÐ var í Happdrætti Iðn-
kynningar í Reykjavík á mánu-
daginn. Þar sem fullnaðarskil
Iiafa ekki borizt voru vinnings-
númerin innsigluð, en verða birt
eins fljótt og mögulegí er, að því
er forráóamenn happdrættisins
segja, en þeir reikna með að verk-
fall opinberra starfsmanna muni
seinka birtingu númeranna.
Heildarverðmæti vinninga í
happdrættinu er um 6 milljónir
króna. Þeir sem enn eiga
ógreidda gíróseðla vegna happ-
drættisins geta greitt þá í bönkum
og sparisjóðum meðan vinnings-
númerin eru innsigluð.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
tijaivi 'fifíii
i.i4j3« j.íun.Tf) .lj i »i'
U» » >'c L
( \ £