Morgunblaðið - 13.10.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÖBER 1977
33
i
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10-11
‘f r\y
nokkur maður er fluttur í viðkom-
andi hverfi. Ekki verður því
endurtekin sagan úr Hlíðunum,
þar sem ekki var malbikað fyrr en
10 eða 20 árum eftir að flutt var i
hverfið.
En þetta var nú bara inngangur
og bezt að koma sér að efninu.
Það sem ég vildi einkum fjalla um
er hin nýja braut í framhaldi af
Kleppsvegi, sjávarbrautin (ég
veit ekki einu sinni hvað hún
heitir), sem liggur meðfram sjón-
um og tengist svo Skúlagötunni
við hringtorgið. Þessi nýja braut
er mjög til bóta og gerir fólki, sem
er á ferð frá Laugarneshverfi og
niður i miðbæ eða í vesturbæinn,
kleift að fara þarna á milli á mun
skemmri tíma en áður var. Að því
er mér,skilst er þessi gata einn
þáttur í hinu margumtalaða aðal-
skipulagi gatna í höfuðborginni
og má vel nefna að hér hefur vel
tekizt til og vonandi verða fieiri
svona hraðbrautir komnar í gagn-
ið áður en langt liður.
Einn hlut mætti þó nefna, sem
ég er ekki alveg sáttur við, en það
eru biðstöðvar strætisvagnanna á
Kleppsveginum. Þar sem er nán-
ast um breiðgötu að ræða, þ.e.
tvær akreinar i hvora átt og eyja á
milli, væri alveg óhætt að hafa
þarna fullan hámarkshraða, eða
60 km klst. eða jafnvel 70, en
vegna biðstöðvanna er hraðinn 50
km. Það sem gera þyrfti til að
lagfæra þetta er að mínu mati að
hafa útskot fyrir vagnana, þannig
að ekki verði hætta, þó ekið sé
framhjá þeim er þeir þurfa að
stöðva við biðstöðvarnar. Eg held
að gangandi fólki þurfi ekki að
vera svo hætt, þó að þetta yrði
gert, enda er varla svo ógurlega
mikið af fólki, sem fer þarna yfir
götuna til að ná í strætisvagn.
Að öðru leýti er þetta spor í
rétta átt og þar sem bréfið er
þegar orðið of langt er mál að
linni. Ökumaður."
Velvakandi þakkar ökumannin-
um fyrir þessi tilskrif og minnir á
að það er óhætt að senda línu þótt
ekki sé verið að skammast eða
kvarta yfir einhverju, þaö er ekki
verra að minnast stundum á það
sem við teljum vera gert vel.
% Símatíminn
í verkfalli berst enginn póst-
ur og þeir sem vilja koma ein-
hverju á framfæri við Velvak-
anda verða þvi að grípa til simans.
Er því ekki úr vegi að vekja at-
hygli á símatímanum, sem er kl.
10—11 á morgnana, mánudaga til
föstudaga og geta menn annað-
hvort haft tilbúna „ræðu“ eða
reifað hugmynd, sem Velvakandi
kemur siðan i orð.
Þessir hringdu . . .
0 Of stór skírteini
Kona í Keflavík:
— Eg þykist halda fram að ég
hafi nokkra skýringu á því hvers
vegna fólk hefur ekki alltaf á sér
þessi skírteini, eða vegabréf, sem
þarf til að komast upp á Kefla-
víkurflugvöll. Það er vegna þess
að þau eru allt of stór um sig.
Fólk nennir ekki alltaf að hafa
þau á sér og þau komast varla
fyrir í venjulegu veski og auk
þess held ég að fólk-hreinlega tini
þeim þegar það hugsar ekki um
að hafa þau alltaf á sér. Við get-
um borið þau saman við íslenzka
ökuskírteinið, en það er um 5x9
cm, sem er að mínu mati of stórt,
en erlend nafnskírteini eru um
það bil 4x8 cm og það munar um
hvern sentimetrann i þessú efni.
% Skrítnar aðgerðir
Siiðurnesjamaður:
— Eitthvað virðast þessar að-
gerðir lögreglumannanna i hliö-
inu á Keflavikurflugvelli koma
undarlega fyrir og er eins og
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A alþjóðlegu skákmóti í Pól-
landi, fyrir skákmenn undir 25
ára aldri, kom þessi staða upp i
skák Begovae, Júgóslavíu, og
Dzieniszewski, Póllandi, sem
hafði svart og átti leik.
(Efftir 20. Rxe5 — Rxe5, 21. e4 —
Rg4 er staða svarts einnig létt-
unnin) Rd4!, 21. exd4 *— Bxd4+,
22. Khl — h4, 23. g4 — Df3 IVlát.
Sigurvegari á mótinu varð pól-
verjinn Borkowski með 9 v. af 12
mögulegum. Næstur kom hinn 16
ára gamli A-Þjóöverji Casper með
8'/í v. og hálfurn vinningi minna
og þriðja sætió hlaut svíinn
VVedberg.
menn séu ekki sammála um hvað
sé rétt í því efni. Eftirlit er
kannski sjáifsagt, en máður hélt
nú að ekki þyrfti endilega vega-
bréf af sérstakri gerð til að fara
ferða sinna hér á landi. Var ekki
einhvern tíma talað um að nú
væri þetta alveg íslenzt umráða-
svæði, þ.e. íslenzk lögregla sæi
um það og allt eftirlit? Er það þá
hún sem hefur tekið það upp að
krefja menn um vegabréfin? Það
er a.m.k. helzt að skilja á frétt í
Mbl. í gær og verður það fróðlegt
að fylgjast með framvindu þessa
máls, verst er að þurfa alltaf að
bíða eftir blöðum, til að heyra
einhverjar ffettir.
HÖGNI HREKKVÍSI
t.JU
matar
Dilkakjöt á gamla verðinu.
1/1 Dilkar
niðursagað 1 . flokks 636. — kr kg
Hangikjötslæri 990 — kr. kg
Hangikjötsframpartar 778 — kr. kg
Úrb. hangilæri ........................ 1 790. — kr. kg
Úrb hangiframpartar 1390 — kr. kg
Hangiframpartar á gamla verðinu 790 — kr. kg
Folaldabuff.............................. 1550,- kr. kg
Folaldagullasch ......................... 1390,— kr. kg
Folaldasaltkjöt 590 — kr kg
Folaldahakk 650 — kr kg
Reykt folaldakjöt 685 — kr kg
Af nýslátruðu: Lambahjörtu 708 — kr. kg
Af nýslátruðu: Lambanýru 708,— kr. kg
Af nýslátruðu: Lambalifur 1028,— kr. kg
Ærhakk aðeins ......................... 550 — kr. kg
Saltkjötshakk ......................... 685 — kr. kg
Kindahakk 685.— kr. kg
Svínahakk ................................ 990,— kr. kg
,ATH: 26 tegundir af áleggspylsum Sviðasulta — Svína-
sulta — Lundabaggi — Hrútspungar — Slátur — 5
slátur í kassa frá einu besta sláturhúsi landsins
(Borgarfirði) 6.600. — kassinn.
4 slátur I kassa frá Sláturhúsi Skagfirðinga Sauðár-
króki 5.280 -
Nautalifur ............................. 300.— kr. kg.
10stk. kjúklinqar ...................... 990,— kr. kg.
Unghænur .................................. 690 kr. kg.
10 stk. í kassa.
Nautahakk ...............
Nautahakk 10 kg
Nautagrillsteik
Nautabógsteik
Nautasnitchel 3155
Nautagullasch ....
Nautaróast-beef .........
Nautafillet-mörbráð
Nauta T-bone ...............
Nautatungur saltaðar
'/2 nautaskrokkar
Tilbúið ! frystikistuna, úrbein
847 — pr kg. 1 gæðaflokkur
OPIÐ FÖSTUDAG TIL KL. 7,00
OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 12,00
Laugalæk 2, REYKJAVIK, simi 3 5o 2o
Skráð Okkar
veró veró
pr kg pr kg.
1553,- 1090 -
1553 - 990 -
948 - 840 -
948 - 840 -
31 55 - 2350 -
2428 - 1990 -
2580 - 2100,-
3398 - 2700 -
1564 - 1290 -
1450 - 990 -
ð, pakkað og merkt kr
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU