Morgunblaðið - 13.10.1977, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 13.10.1977, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977 35 Nicki Lauda er Júdas segir Enzo Ferrari NICKI Lauda, hinn ný- bakaði heimsmeistari í kappakstri 1977, mun aka Brabham-bifreið á næsta keppnistímabili, en allt frá því að Lauda hóf kappakstur fyrir al- vöru hefur hann ekið bif- reiðum frá Ferrari- verksmiðjunum. Kom ákvörðun Nicki Lauda um að hætta hjá Ferrari ekki á óvart, þar sem vit- að var að hann lenti í hörðum deilum við hinn 79 ára gamla stjórnanda fyrirtækisins, Enzo Ferr- ari, eftir að Lauda hætti í kappakstrinum í Japan í fyrra, en þar átti hann góða möguleika á að tryggja sér heimsmeist- aratitilinn. Taldi Lauda hrautina of hættulega og hætti um miðja keppn- ina. Nýlega birti vestur-þýzka blaðið Bild viðtal við Enzo Ferr- ari, þar sem gamli maðurinn valdi Lauda hin verstu orð. — Lauda er Júdas, sagði Ferrari, — hann lætur kaupa sig fyrir 30 salami-pylsur. (Fyrirtækið sem er á bak við Brabham framleiðir mjólkur- og kjötvör- ur). — Lauda hefur svikið mig, bætti gamli maðurinn við, — og hann fær ekki að koma nálægt nýju bifreiðunum okkar. Ég mun finna annan ökumann sem verður fljótur að svipta Lauda af toppnum, enda er það ekki honum að þakka að hann er nú orðinn heimsmeistari að nýju, heldur hinum frábæru bifreið- um sem hann hefur ekið í keppninni. Góðar gjafir frá Adidas Nýlega hefur Adidas sportvöru- fyrirtækið gefið eftirtöldum aðil- um knattspyrnuskó og keppnis- búninga: íslenzka landsliðinu, Val, Akranesi og Fram. Að auki hafa nokkrir frjálsíþróttamenn hér fengið Adidas-íþróttavörur að gjöf. Gjafir þessar eru hingað komn- ar fyrir milligöngu heildverzlun- ar Björgvins Schram, sem hefur umboð fyrir Adidas. Hollendingar unnu Dani í unglingaleik Hollendingar sigruðu Dani 2—1 í landsleik í knattspyrnu leik- manna 21 árs og yngri, en leikur þessi fór fram í Alaborg um helg- ina. Staðan í hálfleik var 1—1. Mörk Hollands skoruðu Henk van Löuwen og Loek Ursem, en Lars Lunkvist skoraði mark Dananna. VEL HEPPNUÐ ÞYZKA- LANDSFERÐ KR-INGA LAUGARDAGINN 20. ágúst s.l. lögSu tuttugu KR-ingar úr meistara- flokki karla upp í ÞýskalandsferS ásamt þjálfara sinum, Geir Hallsteinssyni. Tilgangur fararinnar var tviþœttur, annars vegar sem undirbúningur fyrir komandi keppnistimabil, en eins og vitaS er unnu KR-ingar sér rétt til aS leika i 1. deild siSast liSiS vor og hins vegar til styrktar. samheldni og félagsanda leikmanna. KeppnisferSin ték 13 daga og leiknir voru 9 leikir. Úrslit urSu þau aS S leikir unnust, tveim lauk meS jafntefli og tvö urSu töpin. en þaS var gegn 1. deildar félögunum Neuhausen, sem nýlega vann Dankersen, og Göppingen. Þessir leikir voru mjög jafnir þar til um 10 minútur voru til leiksloka. en þá kom mikil þreyta i mannskap okkar, enda búnir aS vera i ferSalagi meS lang- ferSabil i margar stundir fyrir leik- inn. Leiknum viS Göppingen var sjónvarpað, þar sem veriS var aS kynna 1. deildarliSin áður en meistarakeppnin hófst. Fyrri hálfleik lauk meS sigri okkar 12—10, og er það einn besti leikur sem sést hefur til KR-liSsins. En eins og áður segir var ávallt erfitt aS leika seinni hálfleik á fullu vegna þreytu í svo löngu ferSalagi. en leiknum lauk meS sigri Göppingen 24—19. Vinsælasti og besti leikmaSur Göppingen er Gunnar Einarsson, sem skoraSi gullfalleg mörk i leiknum, og má landslið okkar teljast gott. ef það hefur ekki þörf fyrir þennan vinstri handar leikmann. Sama sagan endurtók sig gegn Neu- hausen, fyrri hálfleikur var jafn 8—8 en við töpuSum leiknum 21 — 16. FerSast var með dönskum lang- ferSabil vitt og breitt um Þýskaland og alls var ekiS rúma 2000 kiló- metra. Yfirleitt var gist á hótelum, en einnig á heimilum gestgjafa. Undirbúningur undir ferð þessa KR-mgar stóðu sig tnjög vel í lærdómsrfkri keppnisför sinni til Þýzkalands f haust. Virðist félagið nú tefla fram heilsteyptu og góðu liði og máttu Islandsmeistarar Valá vel við una að vinna KR með einu marki í fyrsta leik 1. deildar keppninnar. Myndin er úr þeim leik og sýnir Steindór Gunnarsson Valsmann skora, án þess að Jóhannes Stefánsson, KR-ingur og fyrrum Valsmaður fái vörnum við komið. hefur staðið yfir frá sl. áramótum og eiga þeir Sigurgeir Guðmannsson, framkvæmdastjóri Í.B.R. og þýskur Islandsvinur og handknattleiksunn- andi. jarðfræðingurinn Gustav Alte- vogt allan veg og vanda af ferð þessari ásamt stjóm handknattleiks- deildar KR. Kostnaður fararinnar var greiddur af leikmönnum sjálfum og öfluðu þeir sér tekna með flugelda- sölu og 17. júni sölutjaldi. Einnig tóku þau félög sem heimsótt voru þátt i kostnaðinum. Um ferðina er það að segja, að hún heppnaðist frábærlega vel og óhappalaust. Allar móttökur Þjóðverjanna voru til mikillar fyrirmyndar og gestrisni þeirra mikil. Það sem sérstaklega vakti athygli varðandi þýskan handknattleik er dómgæslan Munurinn á þvi hvernig þýskir og islenskir dómarar túlka lögin er slikur, að ætla má að ekki sé dæmt eftir sömu reglum. Það sem er tvimælalaust brottrekstrarsök á íslandi er ekki ástæða tiltals i Þýska- landi. Harkan er allsráðandi. Til dæmis var aðeins þrisvar sýnt gult spjald í öllum niu leikjunum. (Þýskir handknattleiksdómarar hafa tekið upp gul og rauð spjöld likt og i knattspyrnunni.) Þó voru sumir leikirnir hreinræktuð slagsmál á köfl- um, en þannig handknattleik vill fólkið sjá í Þýskalandi. Mikill munur er á þýskum og íslenskum handknattleik. Sóknir þeirra byggjast flestar á gegnum brotum af linu og hraðaupphlaupum. Stórskyttur og leikmenn sem ráða yfir mikilli tækni og leikni voru fáir. Sérstaklega var þetta áberandi, þegar við lékum gegn Göppingen og sáum yfirburði Gunnars Einarssonar á þesSu sviði. Handknattleiksmenn úr KR hvetja alla iþróttaflokka til að fara slikar ferðir. Þrátt fyrir mikla undir- búningsvinnu og erfitt ferðalag eru keppnisferðir sem þessar ógleyman- legar og einstakar. Að síðustu er ekki úr vegi að minnast orða, sem einn gestgjafa okkar viðhafði er hann sagði að sam- skipti íþróttafólks hefði oft meiri áhrif til tryggingar heimsfriði, en margar ferðir diplomata. Alla vega ber þessi hópur KR-inga hlýjan hug til Þjóðverja eftir þessa för og getur ekki annað, en borið þeim vel söguna ((Frá Handknattleiksdeild KR.) Risaferðabingó í Sigtúni í KVÖLD kl. 20.30. Húsið opnar kl. 19 Takið þátt í góðri skemmtun og spennandi keppni um glæsilegar sólarlandaferðir FERBASKRIISTOFAN SIINNA UKJAREÖTU 2 Skemmtiatriði: Hinn frábæri Jörundur flytur nýja skemmtiþætti og kynnir efnið af nýrri hljómplötu sinni Stutt ferðakynning: Sagt frá Kanaríeyjaferðum og öðrum spennandi ferðamöguleikum í vetur Glæsileg tískusýning: Karon samtök sýningarfólks sýna. Fegurðardrottning íslands 1977 og ungfrú Reykjauík 1 977 ásamt fleirri stúlkum sem tekið hafa þátt í fegurðarsamtökum erlendis fyrir íslands hönd sýna það nýjasta í kvenfatatískunni JÖRUNDUR i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.