Morgunblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTOBER 1977 Frá fundi forystumanna BSRB med fréttamönnum í gær Frá blaðamannafundinum í gær, Guðni Jónsson, Einar Ólafsson, Haraldur Steinþórsson og Kristján Thorlacius. „Höfuðstyrkur inn í víðtækri BSRB fólg- samstöðu” % Forystumenn Banda lags starfsmanna ríkis og bæja gengust fyrir fundi með fréttamönn- um í gær og var þar greint frá helztu málum, sem komið hafa upp í verkfallinu. Sátu fund- inn með fréttamönnum þeir Kristján Thorlacius, formaður BSRB, Har- aldur Steinþórsson, framkvæmdastjóri BSRB, Einar Ólafsson, formaður Starfsmanna- félags ríkisstofnana og Guðni Jónsson, formað- ur í verkfallsnefnd BSRB og stjórnarmaður í sam- tökum barnaskólakenn- ara. Verður hér rakið það sem fram kom á fundinum í gær. Fylgjum fast eftir verkfalli húsvarða Guðni Jónsson, formaður Verkfallsnefndar BSRB hafði orð fyrir þeim félögum er rakin voru viðhorf BSRB til verkfalls húsvarða í menntaskólum og öðrum menntastofnunum Sagði Guðni að húsverðir væru í flestum tilfellum innan Starfs- mannafélags rikisstofnana og meðal þeírra verkefna væri að opna skólahúsin að morgni, loftræsta, stilla hitakerfi og raf- magnskerfi Að kvöldi lokuðu þeir síðan húsunum og breyttu hita og rafmagni fyrir nóttina, lokuðu gluggum og slikt. Það færi því ekki milli mála að það væri verkfallsbrot ef aðrir gengju i þeirra störf. Hús- vörðum hefði verið veitt undan- þága til að annast eignaeftirlit og öryggisvörzlu i skólunum, en umfram það mættu þeir ekki starfa og ekki aðrir ganga í þeirra störf. Þætti BSRB það furðulegt ef stjórnvöld teldu sig þess umkomin að brjóta á ský- lausum rétti þessara einstakl- inga Hefði BSRB samþykkt að fylgja fast eftir verkfalli hús- varða Útifundur á Lækjatorgi BSRB efnir í dag klukkan 13.30 til útifundar á Lækjar- torgi og verða mál þess fundar að kanna stöðuna í kjaramálum og verkfallinu. Fundarstjóri verður Kristján Thorlacius, for- maður BSRB, en ræðumenn þeir Haraldur Steinþórsson, Valgerður Jónsdóttir, Valgeir Gestsson, Ólafur S Ólafsson, Ágúst Geirsson og Einar Ólafs- son Á fundinum i gær kom fram að Þórhalli Halldórssyni, for- manni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, var boðið að tala á fundinum, en hann afþakkaði það. Lúðrasveitin Svanur leikur áður en fundurínn hefst í dag. Ströng viðurlög við lagabrotum Einar Ólafsson hafði orð fyrir BSRB-mönnum þegar talið barst að sjúkrahúsum og verk- fallsvörzlu þar eins og greint hefur verið frá í Morgunblað- inu. Sagði Einar að mikill órói rikti í heilbrigðisþjónustunni Stafaði sá órói af rangri fram- kvæmd laga um verkfall opin- (Ljósm. Frirtþjofur) Formaður BSRB gengur af fundi forsætisráðherra í gær, en þar var fjallað um „telex-málið“. berra starfsmanna. Hefði mis- farist að gera nákvæma lista yfir það starfsfólk, sem ætti að starfa á sjúkrahúsum í verkfall- inu. Hefði BSRB borist margar kvartanir frá umbjóðendum þeirra á sjúkrahúsum og þvi hefði málið verið kannað gaumgæfilega Hefði BSRB fengið i hendur afrit af frumgögnum þeim, sem Kjaradeilunefnd vann eftir og væru það vinnulistar frá 15. febrúar. Samkvæmt úrskurði Kjaradeilunefndar væri látið fólk, fólk sem væri hætt á sjúkrahúsunum eða statt er- lendis skyldað til að vinna í verkfallinu. Einnig væri fólk við störf, sem ekki væri á listunum og ynni þvi kauplaust i verkfall- inu. Erindi verkfallsvarða á Land- spítalann hefði alls ekki verið að skapa óróa, heldur að kippa málunum í liðinn og til að knýja kjaradeilunefnd til að virða rétt BSRB og fólks í samtökunum. Ef kjaradeilunefnd hefði ekki gert átak í þessum málum nú þegar gætu alvarlegir hlutir gerzt i heilbirgðisþjónustunni. Það hefði ekki átt að vera neinn vandi að hafa þessa hluti á hreinu þegar kom til verkfalls- ins, fyrirvarinn hefði verið það mikill. Sökín væri öll hjá stjórn rikisspitalanna og kjaradeilu- nefnd, ekki BSRB. Væri kjara- deilunefnd að brjóta landslög með því að hafa ekki fullkomna lista yfír þá, sem eiga að starfa í verkfalli. Viðurlög við sliku væru sektir stöðumissir eða varðhald — Þetta eru vammir þeirra, sem áttu að undirbúa þessi mál, sagði Einar Ólafs- son. Um það mál, sem kom upp i gærmorgun, er 1 2 af starfsfólki Landspitalans hætti störfum, sögðu BSRB-menn að fólkið hefði mætt til starfa klukkan 8 um morguninn. Þá hefðu ekki legið fyrir Ijósir pappírar frá kjaradeilunefnd um að fólkið ætti að vinna. Hefði verið haft samband við nefndina og hún ætlað að afgreiða málið eins fljótt og auðið væri Þegar ekki hefði verið komið svar frá nefndinni klukkan 9 f.h. hefði fólkið farið af vinnustaðnum af sjálfsdáðum Vilja hafa 17 telexnúmer opin — 233 lokuð Formaður BSRB, Kristján Thorlacius, gerðí greín fyrir telexmálin.u svokallaða. Sagði hann að Landssíminn væri með 250 telexnúmer, væru sendi- ráð og ríkisstofnanir með 17 númer, en ýmsir viðskiptaað- ilar, eins og bankar, fjölmiðlar og fyrirtæki ýmiss konar með 233 númer. Hefði BSRB kann- að hvort hægt væri að loka hluta af þessum tækjum og tæknimenn sýnt fram á að hægt væri að taka einstök númer úr sambandi. Sagði Kristján að Seðlabank- inn hefði sótt um undanþágu til að telex fyrirtækisins væri opinn i verkfallinu, en kjara- deilunefnd hafnað þeirri beiðni. Kjaradeilunefnd hefði hins vegar úrskurðað að telex- stöðin skyldi opnuð á ný eftir að póst- og símamálastjóri hefði látið loka henni eftir að götunarspjöld, sem mæla gjöld telexnotenda, hefðu verið búin í stöðinni. Þarna hefði komið greinileg þversögn í starfi kjaradeilunefndar, fyrst hefði hún neitað Seðlabankanum, en síðan opnað fyrir öll númerin, eftirað þeim hafði verið lokað Fór Kristján Thorlacius á fund Geirs Hallgrímssonar for- sætisráðherra út af þessu máli i gær og síðan til Halldórs E Sigurðssonar, póst- og síma- málaráðherra. Sagðist Kristján hafa rakið þessi mál víð ráð- herra og bent á að kjaradeilu- nefnd hefði þverbrotið lög og farið útfyrir sitt verksvið með þvi að hafa afskipti af þessu máli. Það væri hvorki öryggis- né heilsugæzla að telex-tæki fyrrnefndra 233 fyrirtækja væru opin. Sagði Kristján að BSRB hefði boðið að tækjum fyrirtækjanna 233 yrði lokað, en hinum 1 7 tækjum sendi- ráða og rikisstofnana yrði hald- ið opnum. Hefði ekki enn kom- ið svar við þessu og væru nú verkfallsverðir við skápa þá sem geyma telexstöð Lands- simans. / Sagði Kristján að götunar- spjöldin sem skráðu kostnað væru nú væntanlega búin og því notuðu 250 aðilar telex- þjónustuna ókeypis. Hefði það eðlilega í för með sér tekjumissi og verkfallsbrot. Skipulagið orðið gott á verkfallinu Aðspurður um það hvort eitt- hvað hefði komið fram á fund- unum með ráðherrunum um ný tilboð i kjaradeilunni, sagði Kristján að svo hefði ekki verið Um það hvort sáttafundur væri e.t.v. á næsta leyti sagði Krist- ján að sáttasemjari hefði ekki sýnt neitt frumkvæði í þessari deilu og enginn sáttafundur verið boðaður. Um það að starfsmenn Reykjavíkurborgar hefðu nú samið við viðsemjendur sína sagði Kristján að það væri alltaf veikt í deilu að sundra samtök- um. Hins vegar væri Reykjavik- urborg og starfsmenn hennar sjálfstæðir samningsaðilar og við því væri ekkert að segja þó þeir næðu samningum fyrir sitt leyti. Hins vegar sagði Kristján að honum fyndust samningarn- ir í Reykjavík ekki góðir og of lítil hreyfing væri í þeim frá síðasta tilboði ríkisstjórnarinnar i deilunni við BSRB. Hins vegar væru samningarnir á Akranesi á margan hátt mjög góðir. Að lokum sagði Kristján Thorlacius að hann teldi skipu- lag verkfallsins mjög gott eftir nokkra erfiðleika fyrstu dag- ana. Nú væri verkfallið svo gott sem algjört og mikil og víðtæk samstaða væri meðal fólks. Langir biðlistar væru með fólki, sem vildi starfa fyrir samtökin í verkfallinu. BSRB væri nú að komast á það stig að fá stöðugt meira samband við fólkið og það væri gleðilegt. Höfuðstyrk- ur BSRB væri fólginn í viðtækri samstöðu eins og allsherjarat- kvæðagreiðslan um sáttatilboð- ið sýndi, það væri bezti mæli- kvarðinn á samstöðuna. BSRB biður blaðamenn afsökunar A FUNDI BSRB í gær barst talið lítillega a» Keflavíkur- hliðinu «fí þeim atburðum, sem þar hafa átt sér stað í verkfallinu. Báðust hæði Kristján Thorlaeius og Harald- ur Steinþðrsson afsökunar á þeim mistökum, sem starfs- mönnum urðu á, er þeir mein- uðu blaðamönnum að fara inn á Keflavíkurflugvöll til starfa sinna. Sögðu þeir að það væri að sjálfsögðu vilji BSRB að hlaðamenn fengju að fara allra sinna erinda vegna starfs slns, en þarna hefði verið um mistök starfsmanna að ræða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.